Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
London:
Annar maður hand-
tekinn í E1 Al-málinu
London. AP.
BRESKA lögreglan handtók í
Veður
víða um heim
Leegst Hœst
Akureyri 8 alskýjað
Amsterdam 7 12 skýjað
Aþena 9 19 heiðskírt
Barcelona 17 léttskýjað
Berlfn 5 10 skýjað
Briissel 3 9 skýjað
Chicago 9 16 heiðskirt
Dublin 4 9 skýjað
Feneyjar 14 skýjað
Frankfurt 4 11 skýjað
Genf 4 9 rigning
Helsinki 3 5 rigning
Hong Kong 21 23 rigning
jerúsalem 12 25 skýjað
Kaupmannah. 1 1 rigning
Las Palmas
Lissabon 7 15 skýjað
London 6 12 skýjað
Los Angeles 18 33 heiðskírt
Lúxemborg 9 rignlng
Malaga 21 léttskýjað
Mallorca 17 skýjað
Miami 4 26 skýjað
Montreal 7 15 skýjað
Moskva 7 12 skýjað
NewYork 9 18 skýjað
Osló +2 0 skýjað
Parls 6 12 rigning
Peking 6 22 helðskfrt
Reykjavík 9 léttskýjað
Ríóde Janeiro 17 30 helðskfrt
Rómaborg 3 18 heiðskfrt
Stokkhólmur 0 1 snjókoma
Sydney 13 24 heiðskfrt
Tókýó 13 20 skýjað
Vinarborg 3 10 rfgnlng
Pórshöfn 6 alskýjað
Pakistan:
Skrifstofur
flugfélags
sprengdar
Peshawar, Pakistan. AP.
SPRENGJA sprakk við skrifstof-
ur British Airways-flugfélagsins
seinnipart sunnudagsins og olli
miklum skemmdum, en enginn
særðist eða lést í sprengingunni.
Lögregla hefur handtekið Afg-
ana vegna málsins og var hann
i yfirheyrslum í gær.
Starfsfólk flugfélagsins hafði
nýlega yfírgefið skrifstofumar,
þegar sprengjan sprakk. Sprengj-
unni hafði verið komið fyrir við
inngang skrifstofunnar. Afganinn
var handtekinn á hlaupum frá skrif-
stofunni.
Peshawar er í um 70 kílómetra
fjarlægð frá afgönsku landamærun-
um. Þar eru höfuðstöðvar skæruliða
sem beijast gegn ríkisstjóm Afgan-
istan. Mikið hefiir verið um spreng-
ingar þar og segja pakistönsk yfir-
völd að þær séu verk flugumanna
ríkisstjómar Afganistan.
gær mann, sem grunaður er um
aðild að tilrauninni til að koma
sprengju um borð í flugvél frá
ísraelska flugfélagin E1 Al. Hafa
þá alls þrír menn verið hand-
teknir í þessu máli og eru tveir
enn í gfæslu. Maður, sem var
handtekinn á sunnudag, var lát-
inn laus samdægurs.
Palestínumaðurinn Nezar
Hindawi hefur nú verið yfirheyrður
í fjóra daga en írsk vinkona hans
ber, að hann hafi fengið hana til
að fara eina síns liðs til Tel Aviv í
ísrael og að hún hafi ekki vitað,
að sprengiefni var í ferðatöskunni.
Að sögn lögreglunnar hefði
sprengjan sprungið á leiðinni til Tel
Aviv og farþegarnir, 388 að tölu,
og áhöfn beðið bana.
Lundúnablaðið Daily Mirror hafði
í gær eftir pólskri konu, að hún
væri eiginkona Hindawis og að
saman ættu þau fimm ára gamla
dóttur. Heitir konan Barbara og
náðist símasamband við hana á býli
foreldra hennar í Austur-Póllandi.
Lögreglan vildi ekkert um það
segja hver hann væri, maðurinn
sem var handtekinn í gær, en frétt-
ir eru um, að hann sé arabi og
kunningi Hindawis.
Finnland:
Lestarsam-
göngur
hefjast aftur
að hluta til
Helsinki, Finnlandi. AP.
LESTARSAMGÖNGUR munu að
hluta til hefjast aftur í Helsinki
og nágrenni í dag, þrátt fyrir
verkfall opinberra starfsmanna,
sem staðið hefur yfir frá því 2.
apríl.
Hægt verður að anna um '/« af
venjulegum samgöngum, að sögn
yfírstjómar jámbrautanna. Ein lest
mun ganga á þremur aðalleiðunum
í borginni. Hins vegar verður ekki
hægt að taka upp lestarsamgöngur
í öðrum hlutum landsins, en opin-
berir starfsmenn skelltu á verkfalli
í landinu öllu á miðvikudaginn var.
Aður hafði það aðeins náð til höfuð-
borgarinnar. Venjulega fara um
100 þúsund manns með lestunum
dag hvem.
Ferðir með langferðabílum hafa
hins vegar ekki lagst niður, enda
eru þær í höndum einkaaðila. Opin-
berir starfsmenn krefjast 800
fínnskra marka kauphækkunar, en
það jafngildir tæpum 7 þúsund ís-
lenskum krónum, auk 6% almenn-
rar kauphækkunar.
Jámbrautarsamgöngur í Finn-
landi hafa til þessa alveg legið
niðri. Þá hafa 850 pósthús lokast
og flugsamgöngur í Helsinki lágu
niðri, þar til flugráð þar í landi réði
menn utan verkalýðsfélaga til
starfa á föstudagnn var. Þar er
þó ennþá einungs innanlandsflug
og flugvélar erlendis frá verða að
lenda á flugvöllum annars staðar í
landinu.
Engar viðræður eru í gangi milli
verkfallsmanna og ríkisins.
Elísabet drottning veifar til mannfjöldans, sem fagnaði henni ákaft hvar sem hún fór í gær í til-
efni sextugsafmælis hennar. Við hlið hennar situr maður hennar, Filippus prins.
Míkil hátíðarhöld á sextugs-
afmæli Elísabetar drottningar
London, AP.
SEX þúsund börn, sem sungu og veifuðu blómum, breyttu for-
garði Buckingahamhallar í London í blómahaf til þess að fagna
Elísabet II Bretlandsdrottningu á sextugsafmæli hennar í gær.
Var þetta einn þátturinn í umfangsmiklum hátíðarhöldum, sem
fram fóru í tilefni af afmæli drottningar. Miklar öryggisráðstaf-
anir voru gerðar vegna vaxandi ótta við hryðjuverkamenn.
Er bömin hófu söng sinn stóð Fyrir utan kastalann var skotið
drottning á svölum hallarinnar
ásamt Filippusi prins, manni sín-
um, Andrew prins, næstelsta syni
þeirra og Söru Fergusson, unn-
ustu hans.
Fyrr um morguninn hafði
drottningin farið ásamt manni
sínum og bömum þeirra §'órum
og yfír 40 öðmm skyldmennum
til þakkarguðsþjónustu í kapellu
heilags Georgs í Windsor-kastala.
21 fallbyssuskoti til heiðurs
drottningunni. Að messu lokinni
hélt drottningin og fylgdarlið
hennar frá Windsor og fór drottn-
ingin í vagni, sem fjórir gráir
hestardrógu.
Mikill mannfjöldi var alls staðar
meðfram leið þeirri, sem drottn-
ingin og fylgdarlið hennar fóm.
Vom lögreglumenn þar hvarvetna
á verði með leitarhunda og þótti
þetta greinilegur vottur um sívax-
andi ótta við árásir hryðjuverka-
manna í kjölfar loftárása Banda-
ríkjamanna á Líbýu í síðustu viku,
sem brezka stjómin studdi.
í gærkvöldi var ráðgert, að
drottningin og fjölskylda hennar
sæktu sérstaka hátíðardagskrá í
Konunglegu ópemnni. Þar áttu
að koma fram m.a. Placido Dom-
ingo, Mikhail Baryshnikov og
fjöldi annarra söngvara, dansara
og leikara.
Nú em 34 ár liðin síðan Elísa-
bet varð drottning Bretlands, en
920 ár síðan brezka konungdæm-
ið var stofnað.
Kólumbus víssi um
ferðir Leifs heppna
— segir norski landkönnuðurinn Thor Heyerdahl
ÁRIÐ 1992 verða liðin 500 ár
frá því Kristófer Kólumbus
fann Ameríku og verður þess
minnst á margvíslegan hátt
beggja vegna Atlantshafsins.
Nokkru áður mun þó koma út
bók eftir norska landkönnuðinn
Thor Heyerdahl í samvinnu við
„Syni Noregs“, félagsskap
Norðmanna og fólks af norsk-
um ættum í Bandaríkjunum og
Kanada. í þessari bók á að
„segja sannleikann11 um fund
Ameríku og hvers vegna Leifur
Eiríksson og aðrir norrænir
menn urðu fyrri til 500 árum
á undan Kólumbus.
Heyerdahl hefur fengið til liðs
við sig sérfræðinga á mörgum
sviðum enda verður viðfangsefnið
tekið ýmsum nýjum tökum. Til
stendur einnig að gera kvikmynd
um fyrstu vesturfarana.
„Þetta verður mjög skemmti-
legt verkefni," sagði Thor Hey-
erdahl. „Allar heimildir verða
grandskoðaðar á nýjan leik, ís-
lensku sögumar og yngri verk,
og farið yfir það, sem fomleifa-
fræðin hefur fram að færa, t.d.
uppgröft þeirra Ingstad-hjóna í
L’Anse aux Meadows á Ný-
fundnalandi."
Heyerdahl segir, að um fund
Vínlands megi lesa í Flateyjarbók
og Hauksbók og að utan Islands
hafí hann verið kunnur mörgum
mönnum á Norðurlöndum og
annars staðar í Evrópu. Það sé
því óhjákvæmilegt, að landafúnd-
imir hafí verið kunnir í Páfagarði
en við hann hafði Kólumbus mikil
sambönd.
(Stytt úr „Aftenposten“
Thor Heyerdahl (t.h.) ásamt Paul Nyckelmo, formanni félagsins
„Sona Noregs" í Noregi.