Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 29

Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986 29 AP/Símamynd Mikið annríki var í gær í kauphöllinni í Tókýó vegna gengis- falls dollarans en hann er nú lægri gagnvart japanska jeninu en hann hefur verið eftir strið. Japanski seðlabankinn reyndi að spyrna við fæti en allt kom fyrir ekki. GENGI GJALDMIÐLA London. AP. GENGI Bandaríkjadollars var í gær lægra gagnvart japönsku jeni en það hefur verið alit frá stríðslokum og það féll einnig gagnvart helstu gjaldmiðlum í Evrópu. Japanski seðlabankinn keypti í gær hálfan annan milljarð dollara en það kom þó ekki í veg fyrir, að dollarinn félli í verði. I gær- kvöldi fengust fyrir hann 171,90 jen en 175,-85 á föstudag. Gagn- vart jeninu hefur gengi dollarans ekki verið jafn lágt eftir stríð. í Evrópu féll dollarinn allmikið framan af degi en rétti síðan nokkuð við þegar á leið. Olli þar mestu um, að lækkun millibanka- vaxta í Bandaríkjunum sl. föstu- dag var minni en við hafði verið búist, hálft prósent en ekki eitt eins og flestir höfðu spáð. Eru þeir nú 6,5%. Japansbanki fór að dæmi Bandaríkjamanna sl. laug- ardag og lækkaði sams konar vexti í 3,5% en þeir voru áður 4%. í gærkvöldi fengust fyrir pund- ið 1,5120 dollarar, 1,5142 fyrir helgi, en það hafði áhrif á gengi pundsins, að ólíklegt þótti, að nokkur árangur yrði af OPEC- fundinum í Genf. Gagnvart öðrum gjaldmiðlum var staða dollars þessi í gær: 2,2115 v-þýsk mörk (2,2200); 1,8523 svissneskir frankar (1,8635); 7,0575 franskir frankar (7,0800); 2,4960 hollensk gyllini (2,5110); 1.516,25 ítalskar lírur (1.523,00); 1,3865 kanadísk- ir dollarar (1,3870). Gullið lækkaði í verði, úr 346 dollurum únsan í 343. * Israel: Krafist afsagn- ar bankastjóra Sakaðir um að bera ábyrgð á verðbréfahruni 1983 Jerúsalem. AP. AÐALBANKASTJÓRI næststærsta bankans í ísrael sagði af sér í gær. Kom afsögn hans í kjölfar skýrslu rannsókn- arnefndar en í henni sagði, að hann og fjórir aðrir frammámenn í bankaheiminum bæru ábyrgð á hruni, sem varð á verðbréfamarkaðinum og kostaði fjárfestendur tvo milljarða dollara. Rannsóknamefndin kemst þannig að orði í skýrslunni, að bankastjóramir séu „ófærir um að gegna starfi sínu“ vegna þess, að um sex ára skeið hafí þeir ráðskast á óábyrgan hátt með hlutabréf bankanna. Þessum leik þeirra lauk árið 1983 með verð- bréfahmni sem jók enn á erfíð- leikana í ísraelsku efnahagslífí. Giora Gazit, bankastjóri Hap- olim-bankans, greindi frá afsögn sinni í gær á fréttamannafundi þar sem einnig var kynnt árs- skýrsla bankans. Bar hann sig heldur illa undan skýrslu rann- sóknamefndarinnar og fannst sem nefndin mismunaði mönnum, færi tiltölulega mjúkum höndum um þá fimmmenningana, sem þegar hefðu látið af starfí, en krefðist tafarlausrar afsagnar hinna, sem enn gegndu stöðum sínum. í skýrslunni er lagt til, að höfðað verði opinbert mál á hendur mönnnunum þar sem augljóst sé, að þeir og ýmis fyrir- tæki hafí gerst sek um lögbrot. Einnig er hvatt til, að gerðar verði umfangsmiklar breytingar á bankakerfinu og verðbréfa- markaðnum. Engin hræðsla en fólk hefur andvara á sér — segir Unnur Halldórsdóttir sem býr meðal Bandaríkjamanna í Izniir í Tyrklandi „HÉR LIGGUR eiginlega öll starfsemi niðri þessa dagana eða frá því loftárásin var gerð á Líbýu,“ sagði Unnur Halldórsdóttir, íslendingur sem býr í Izmir í Tyrklandi, er Morgunblaðið náði tali af henni um miðjan dag í gær og innti hana eftir daglega lífinu meðal Bandarikjamanna þar í landi. Bandaríkjamenn eru með her- stöð í nágrenni Izmir, sem er um tveggja milljóna borg á strönd Eyjahafsins, auk þess sem þar er bandarísk ræðismannsskrif- stofa. Bandaríkjamenn reka þar skóla, sjúkrahús, bókasafn og verslunarmiðstöð svo eitthvað sé nefnt og sagði Unnur að öll þessi starfsemi lægi mikið til niðri. Þá hefðu Bandaríkjamenn verið var- aðir við því að vera á ferli og öryggisráðstafanir væru áber- andi meiri en áður. Þannig myndi skólastarf ekki hefjast fyrr en í fyrsta lagi á fímmtudaginn kem- ur, en það hefði legið niðri frá því loftárásin var gerð. Á föstudaginn voru tveir Líbýumenn handteknir með sprengju f fórum sínum, er þeir voru á leið inn á samkomustað bandarískra liðsforingja í Ank- ara, höfuðborg Tyrklands. Unnur sagði að þar hefði þá verið haldin brúðkaupsveisla, en tyrkneska lögreglan hefði verið mjög vel á verði og umkringt mennina og handtekið áður en þeir hefðu komist inn á samkomustaðinn. „Her- og löggæsla hefur verið stóraukin og samvinna tyrknesku lögreglunnar og bandarísku ör- yggisgæslunnar er til fyrirmynd- ar. Okkur hefur verið ráðlagt að vera ekki á ferli þessa dagana. Þó verður maður ekki var við hræðslu meðal Bandaríkjamann- anna við hryðjuverk, en það er hins vegar auðsætt að fólk hefur mikinn andvara á sér og yfír- stjórnin hér vill ékki setja neina starfsemi í gang fyrr en það er fullvíst að þeirra áliti að hryðju- verk séu ekki í undirbúningi. Það berast daglega skýrslur frá Washington um hryðjuverka- starfsemi og aðgerðir hér eru miðaðar við upplýsingar sem þar koma fram,“ sagði Unnur. ER ÞETTA EKKI , RETTA SPOLAN FYRIRÞIC Fyrsta VHS myndbandsspólan sem hlotiö hefur viöurkenningu frájapanska rafeindaeftirlitinu fyrir gæöi. Kynningarverð á 3ja tíma VHS spólu meö upptökubónus, 3 spólur í pakka á aöeins 0) 595.- kr. spólan. #JAPIS BRAUTARHOLT 2 SfMI 27133

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.