Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22.APR1L1986
Castro ávítar verka-
meim f yi íi úheilindi
Havana. AP. ^
Havana. AP.
FIDEL Castro, forseti Kúbu,
kveðst hafa í hyggju að láta til
skarar skríða gegn lötum verka-
mönnum og því fólki, sem virðir
að vettugi hugsjónir sósíalismans
með því að auðgast eftir ólögleg-
um gróðaleiðum.
„Þessa hluti þarf að laga,“ sagði
Puerto Rico:
Sýnir barnanna sem
segull á mannfjöldann
Naranjito, Puerto Rico. AP.
MÖRG þúsund manns hafa flykkst til bæjarins Naranjito í Puerto
Rico eftir að hópur barna þaðan kvaðst hafa séð Maríu mey uppi í
tré í fjallalundi þar hjá fyrir tveimur vikum.
maður úr bænum hafa séð sýnina.
Elba Colme Rivera lýsti henni svo:
„Hún er klædd afar fögrum bláum
kirtli og rís og hnígur í eigin skýi.
Margar litlar stjömur lýsa hana
upp. Sjáið allar litlu stjömumar.
En fallegt."
Onnur kona spurði Rivera hvort
hún segði satt: „Vissulega. Hún
(María) er héma hjá okkur öllum
og þeir, sem efast, gera það vegna
þess að þeir trúa ekki,“ var svarið.
Lítill strákur, sem horfði á trjá-
lundinn gegnum leikfangakíki, var
spurður hvað hann sæi: „Ekkert.
Himinninn."
Kirkjunnar menn draga þessar
sýnir í efa.
Bömin sögðu vinum og ættingj-
um að María hefði birst þeim nokkr-
um sinnum og hafa bömin síðan
skreytt tréð með blómum og farið
þangað til að syngja og biðja.
Lögreglan segir að allt að þrjú
þúsund manns fari á staðinn dag-
lega.
Eitt bamanna, Daina Alicea, sem
er tíu ára gömul, sagðist hafa séð
„unga hvítklædda konu, í bláum
kirtli, með kórónu, í krónu trés.
Skömmu síðar sagðist kven-
Noregoir:
Pan Am hefur
áætlunarflug
Osló, Noregi. AP.
BANDARISKA flugfélagið
Pan American mun hefja flug
til Osló 27. apríl á nýjan ieik,
en það hefur ekki verið með
áætlunarflug til Osló í átta
ár. Hefur norska loftferðaeft-
irlitið veitt bandariska flug-
félaginu leyfi til næstu fimm
ára. Flogið verður fram og
til baka frá Miami um London
og Osló til Helsinki í Finn-
landi.
Að sögn talsmanns Pan Am
í Noregi tengist flugið ýmsum
öðmm áætlunum félagsins til
annarra borga í Bandaríkjunum,
svo sem til New York, Was-
hington, Detroit, Tampa, Orl-
ando, San Francisco, Los Angel-
es og Seattle. Boeing 737-þotur
félagsins munu sjá um flugið,
en þær taka 116 manns í sæti.
Castro, óvenju hreinskilinn, um
galla og lesti kúbanskra verka-
manna.
„Meðal okl"ir em letingjar,
hirðuleysingjar, fólk sem vill ekki
beijast, óábyrgt fólk fólk, sem rís
ekki undir skyldum sínum, fólk sem
sækist eftir forréttindum og fólk
sem sækist eftir skjótfengnum
gróða,“ sagði Castro.
Lestur þessi var í ræðu, sem
Castro hélt í leikhúsi í Havana af
tilefni þess að 25 ár era liðin frá
því sveitir hans unnu sigur á flokki
kúbanskra útflytjenda á Svínaflóa.
Margir aðstandendur þeirra sem
biðu bana vom viðstaddir þegar
Castro flutti ræðuna á laugardags-
kvöld. Sagði Castro að minning
þeirra væri svívirt af þeim, sem
ekki vildu leggja sitt af mörkum.
„Þeir, sem vilja forréttindi, þurr-
ausa uppsprettulindir," sagði
Castro. „Þeir stinga fé í eigin vasa,
sem þeir hafa ekki unnið fyrir í
sveita síns andlitis. Þeir em ekki í
meirihluta og ugglaust miklu færri,
en það er skylda okkar að beijast
gegn þeim.
Hann sagði að þessir menn
gegndu sama hlutverki og skæmlið-
amir, sem gerðu innrás á Kúbu í
Svínaflóa, þótt á annan hátt væri.
AP/Símamynd
Sprenging Titan-eldflaugarinnar
Brak úr Titan-eldflaugwni, sem splundraðist fimm sekúndum
eftir að henni var skotið á loft í Kaliforníu á föstudaginn var,
dreifðist yfir stórt svæði. Orsakir sprengingarinnar eru ókunn-
ar, er rannsóknin beinist einkum að þétthringjum, rafeindabún-
aði og hjálpareldflaugum eldflaugarinnar. Skemmdarverk er
heldur ekki talið útilokað.
Vestur-þýskt dagblað birtir
trúnaðarskjöl um geimvamir
Bonn. AP.
KÖLNARDAGBLAÐIÐ Express birti á laugardag trúnaðar-
bréf milli Bandaríkjamanna og vestur-þýsku stjórnarinnar í
Bonn varðandi samning ríkjanna um samstarf að geimvarna-
áætluninni.
Dagblaðið birti á föstudag
samning ríkjanna um samstarf að
áætluninni.
Bréfín, sem um ræðir, em frá
Richard Perle, aðstoðamtanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, til Lorenz
Noregnr:
Presthus formaður Hægri
Ósló. Frá Jan Erik Laure, fréttaritara Morgunblaðaina.
Landsfundur
Hægriflokksins
kaus Rolf Prest-
hus einróma í
embætti flokks-
formanns í gær.
Tekur hann við
af Erling Norvik,
sem tekið hefur |
við embætti fylk-
ismanns (æðsta I
fulltrú ríkisstjómarinnar) í Öst-
fold.
Þar með er ljóst, að Presthus
lætur af embætti íjármálaráðherra.
Hann mun hins vegar halda sæti
sínu í ríkisstjóminni, en fá annað
ráðuneyti, sem ekki er eins tíma-
frekt. Að öllum líkindum verður
Presthus vamarmálaráðherra.
Það er einnig ljóst, að Ame
Skauge tekur við fjármálaráðherra-
embættinu. Skauge hefur áður
gegnt embætti viðskiptaráðherra
og er nú einn af aðstoðarmönnum
Willochs forsætisráðherra. Ráð-
herraskiptin fara fram nk. föstu-
dag.
Schomemsar, deildarstjóra í vest-
ur-þýska viðskiptaráðuneytinu, og
svarbréf Schomerusar til Perles.
Martin Bangemann, viðskipta-
ráðherra, og starfslið hans sá um
samningana fyrir hönd stjómar-
innar í Bonn. Samningamir vom
tveir, annar um hlutverk Vestur-
Þjóðveija í geimvamaáætluninni,
hinn um vísindasamstarf, og var
kveðið á um það í báðum samning-
um að um trúnaðarmál væri að
ræða.
Þetta mál er neyðarlegt fyrir
þýsk stjómvöld, sem eiga í erfið-
leikum með að halda trúnaðarmál-
um leyndum. Ríkissaksóknari
íhugar nú hvort hefja eigi rannsókn
á málinu.
Bandaríkjamenn lýsa yfir
áhyggjum yfir því hvort Vestur-
Þjóðveijar geti komið í veg fyrir
að Sovétmenn komist yfír upplýs-
ingar um tækniatriði, sem Vestur-
Þjóðveijum yrðu látnar í té vegna
samstarfsins, í öðm bréfanna, er
birtust á laugardaginn. Schomems
segir í bréfí sínu hvaða öryggisráð-
stafana eigi að grípa til til að
tryggja að ýtmstu leyndar verði
gætt.
Express gagnrýndi á föstudag
samning Vestur-Þjóðveija og
Bandaríkjamanna og sagði að þar
væri megin áhersla lögð á hags-
muni Bandaríkjamanna. Báðir
aðiljar hafa hamrað á því í viðtölum
að því væri öfugt farið.
Dieter Vogel, talsmaður við-
skiptaráðuneytisins, sagði á blaða-
mannafundi að traust Bandaríkja-
manna til Vestur-þjóðveija hefði
veikst eftir að samningurinn var
birtur í leyfísleysi.
Dagblaðið Frankfurter Allge-
meine Zeitung greindi frá því á
laugardag að viðskiptaráðuneytið
í Bonn hefði farið fram á að allir
starfsmenn, sem aðgang hefðu
haft að geimvamaáætlunarsamn-
ingnum, undirrituðu yfírlýsingar
þess efnis að þeir hefðu ekki látið
samninginn í hendur óviðkomandi
aðilja. I blaðinu sagði að svipaðar
aðgerðir væm ráðgerðar í utan-
ríkis- og vamarmálaráðuneytinu
og í skrifstofu Helmuts Kohls,
kanslara.
Austurríki:
Handteknir með
tvö kg af heró-
íni innanklæða
Vín, Austurríki. AP.
LÖGREGLA á Schwechat-flug-
velli í Vín handtók þijá Kólumb-
íumenn á föstudag. Tveir þeirra
reyndust vera með tvö kíló af
heróíni, að verðmæti 37,5 millj.
dollarar (rúmlega 1,5 milljarðar
isl. kr.), innanklæða.
Talsmaður lögreglunnar sagði á
laugardag, að Kólumbíumennimir,
tveir karlar og ein kona, hefðu
ætlað með lest til Ziirich. Konan
hafði falið eitt og hálft kfló af
heróíni í nærfötum sínum. Tveggja
og hálfs árs gömul dóttir hennar
var tekin af henni á flugvellinum
og sett í bamagæslu, en verður
send til móðurforeldra sinna í Kól-
umbíu.
Yevtushenko gagnrýnir
höft í Sovétríkiunum
Moskvu.
MÁLGAGN sovéska kommún-
istaflokksins, Sovietskaya Kult-
ura, birti grein f síðustu viku
eftir ljóðskáldið Yevgeny Yevt-
ushenko, þar sem hann gagn-
rýnir ritskoðun og kreddur í
Sovétríkjunum. „Þögn almenn-
ings er falin mynd stjómleysis,"
segir skáldið meðal annars.
Hann líkir leyniþjónustunni við
ævafoma risaeðlu, sem enn setji
eigin skoðanir ofar anarra, og geri
allt til þess að koma í veg fyrir að
rithöfundar, kvikmyndaleikstjórar,
listamenn, vísindamenn og verka-
menn segi hug sinn.
í greininni fer Yevtushenko einn-
ig orðum vanþóknunar um ofsóknir
Stalíns á hendur Önnu Akhmatovu,
Ijóðskáldi, og Dimitris Shost-
akovichs, tónskálds.
Þetta mun vera fyrsta grein í
flokki, sem rithöfundar ætla að
skrifa undir yfírskriftinni „Skoðun
mín“.
Vinir Yevtushenkos segja að
hann hafi verið „framúrskarandi
ánægður" með hversu mikilli gagn-
rýni hann fékk að koma á fram-
færi, þrátt fyrir ritskoðun.
í greininni er sneitt hjá viðkvæm-
um málum á borð við hreinsanir
Stalíns og forréttindi valdastéttar-
innar, eða öllu heldur vom at-
hugasemdir um þessi mál strikaðar
út. Greinin er útgáfa af ræðu, sem
Yevtushenko hélt á rithöfundaþingi
í desember.
Nýr ritstjóri tók við á Sovietsk-
aya Kultura í janúar. Hann tók við
af manni, sem skipaður var 1976
þegar Leonid I. Brezhnev var við
völd.
Yevtushenko: Gagnrýni hans á
prenti í Sovétríkjunum
Sri Lanka:
Stórslys er
stífla brast
Colombo, Sri Lanka. AP.
ÓTTAST er að allt að 100 manns
hafi faríst á Srí Lanka sl. sunnu-
dag þegar mikill stíflugarður
brast. Flóðbylgjan féll á nálægt
þorp og sópaði því að mestu í
burtu.
Þegar stíflan, sem var úr mold
og öðmm jarðvegi, brast geystist
flóðið yfír þorpið Kantalai og braut
það undir sig að miklu leyti.
Snemma dags í gær höfðu sjö lík
fundist en þá var saknað nærri 100
manns. Vann fljóðbylgjan einnig
mikil spjöll í öðmm þorpum og em
15.000 manns heimilislausir.