Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
Ný baráttuaðferð gegn drykkjuskap:
Seldi vatns-
þynntan vodka
- og var dæmdur í átta ára fangelsi
Moskvu. AP.
DÓMSTÓLAR í Leningrad hafa
úrskurðað að hægt sé að ganga
of langt i baráttunni gegn áfeng-
isbölinu. Kremlarbændur hafa
Evrópubandalagið:
Tillögur
um fækk-
un bænda
Strassborg, Frakklandi. AP.
YFIRMAÐUR landbúnaðar-
mála Evrópubandalagsins,
Frank Andriessen, hefur lagt
fram tillögur um endurskipun
landbúnaðarmála bandalags-
ins, sem miðar að því að
minnka fjallháar niður-
greiðslur bandalagsins til
landbúnaðarmála. Fela þær
meðal annars i sér stuðning
við að aldraðir bændur leggi
niður búskap og eiga jafn-
framt að hvetja til að meira
tillit verði tekið til vistfræði-
legra þátta hvað landbúnað
snertir.
Um er að ræða fímm ára
áætlun sem gert er ráð fyrir að
kosti EB um tvo milljarða ís-
lenskra króna samtals. Um ’A
hluti bænda í Evrópubandalags-
ríkjunum er á aldrinum milli 55
og 65 ára og gert er ráð fyrir
sérstökum greiðslum til þeirra
sem hætta búskap og nota land
sitt ekki til landbúnaðar eða
selja land sitt yngri bændum.
undanfarið verið með herferð
gegn ofneyslu áfengis og sötra
núorðið sjálfir ávaxtasafa og
sódavatn í veislum, en láta hana-
stélið lönd og leið. Ungur verka-
maður hjá járnbrautunum í
Leníngrad hugðist halda merkj-
um landsforystunnar á lofti og
selja meðbræðrum sínum út-
þynntan vodka...
Að sögn sovésku fréttastofunnar
Tass var borgarinn R. Kamiliev
dreginn fyrir rétt í borginni Volk'ov
sakaður um að hafa stolið vodka-
flöskum úr verksmiðjulest. Honum
var aukinheldur gefið að sök að
hafa þynnt brennt vínið með vatni,
sett ærmiguna á vodkaflöskur
merktar Stoliehnaya og selt á svört-
um markaði.
Kamiliev, sem nemur lög við
Kazan-háskóla, sagði vélabrögð sín
hafa verið í góðgerðarskyni: „Ég
æski þess að tekið verði tillit til
þess að með því að þynna vodkann
með vatni, lagði ég fram minn skerf
í baráttunni gegn alkohólisma og
drykkjuskap," sagði Kamiliev fyrir
réttinum.
Laun heimsins eru vanþakklæti:
Kamiliev var dæmdur í átta ára
fangelsi fyrir góðan ásetning sinn
og allur ágóði af braskinu gerður
, ERLENT,
Heimt úrhöndum mannræningja
Jennifer Guinnes í faðmi eiginmanns síns eftir I en lögreglu tókst að frelsa hana í umsátri um
að hún var leyst úr höndum ræningjanna á I hús í Dyflinni. Með þeim hjónum á myndinni eru
miðvikudag. Jennifer var átta daga i haldi áður | börn þeirra. Frá vinstri: Ian, Gillian og Tania.
Bangla Desh:
126 manns drukkna
er fenu hvolfir
Dhaka, Bangla Desh. AP.
FERJU með eitt þúsund manns innanborðs hvolfdi á fljóti í Bangla
Desh í stórviðri með þeim afleiðingum að að minnsta kosti 126
manns drukknuðu. Þá herma einnig fregnir að 23 hafi látið lífið í
eldsvoða og 300 særst í flóttamannabúðum fyrir Pakistani í Bangla
Desh.
Ferjuslysið átti sér stað aðfara-
nótt sunnudagsins. Um 80 far-
þegum tókst að synda í land eftir
að feijunni hvolfdi á Dhales Wari—
ánni í grennd við Munshiganj-
höfnina, sem er í 16 kflómetra fjar-
lægð frá höfuðborginni Dhaka.
Björgunaraðgerðir hófust þegar og
höfðu 125 lík fundist undir þiljum
í feijunni þegar síðast fréttist auk
þess sem eitt fannst á floti í grennd-
inni. Óttast var að enn fleiri lík
ættu eftir að fínnast.
Meðal þeirra sem létust í eldsvoð-
anum voru níu böm og tvær konur.
Eldurinn eyðilagði búðimar og em
20 þúsund manns heimilislausar
vegna þess. Slökkviliðsmenn börð-
ust við eldinn í þrjár klukkustundir
áður en tókst að hemja hann, en
þá var það um seinan. Þetta er í
þriðja sinn sem búðimar brenna
frá því þær vom settar upp árið
1972.
Kaffipokinn
sem heldur ekki uatni
Danski KAFFE FILTER-pokinn er
sá sterkasti á markaðinum. Pú
þarft hvorki að hretta upp á
kantana svo hann rifni ekki,
né nota tvo poka, til að uppáhell-
ingin heppnist vel. KAFFE
FILTER rifnar ekki, en heldur
samt ekki vatni.
KAFFE FILTER-pokunum er
pakkað í látlausar umbúðir, sem
gera það að verkum að verðið er
NOTAÐU STERKASTA OG ÓDÝRASTA
KAFFIPOKANN Á MARKAÐINUM.