Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
35
Höskuldur Skarphéðinsson afhendir Eiriki Kristóferssyni, eina
eftirlifandi stofnfélaga félagsins, viðurkenningarskjal.
Gestir á afmælishátíðinni. Morgunbiaðia/ói.K.Mag.
Sex heiðursfélagar
Skipstj óraf élagsins
ÞANN 16. apríl varð Skipstjórafélagið 50 ára
og var afmælið haldið hátiðlegt sl. laugardag.
Höskuldur Skarphéðinsson formaður félagsins
flutti hátiðarræðu, en þar rakti hann m.a. sögu
félagsins. Heiðursfélagar fengu afhent viður-
kenningarskjöl, þeir Eiríkur Kristófersson,
Kristján Aðalsteinsson, Guðmundur Kjerne-
sted, Ingólfur Mölier, Ásgeir Sigurðsson og
Guðmundur Hjaltason. Jóhannes Ingólfsson
kynnti afmælisrit SKFÍ og afhenti Höskuldi
Skarphéðinssyni fyrsta eintak bókarinnar
Skipstjórar og skip II, en bókin verður til sölu
á skrifstofu félagsins.
Umræðu-
fundur um
fíkniefnamál
í kvöld
SAMTÖK presta og lækna halda
síðasta fund sinn á þessum vetri
þriðjudaginn 22. apríl kl. 8.30 í
vistheimilinu á Vífilsstöðum.
Efni fundarins verður: Úrræði í
meðferð vegna neyzlu kannabis
og annarra hættulegra f íkniefna.
Framsögumenn verða Jóhannes
Bergsveinsson yfirlæknir og séra
Birgir Asgeirsson. Fíkniefnavanda-
málið hefur verið mjög til umræðu
í samfélaginu að undanfömu. Ólík-
ar skoðanir og áherzlur hafa komið
fram bæði varðandi meðferð fíkni-
efnasjúklinga, svo og fyrirbyggj-
andi aðgerðir. Hingað til virðist
meðferð neytenda hættulegra fíkni-
efna hafa skilað takmörkuðum
árangri, ef miðað er við þá vinnu,
sem lögð hefur verið í málefnið.
Það vaknar m.a. sú spuming, hvort
ekki verði að taka á þessum málum
með svipuðum hætti og t.d. berkla-
veikinni á sínum tíma, það er bæði
skipulega og víðtækt. Þeir guð-
fræðingar, guðfræðinemar, læknar
og læknanemar, sem áhuga hafa á
þessum viðfangsefnum, em boðnir
velkomnir til fundarins.
(Fréttatilkynning)
Söngfélag
Skaftfellinga
í söngferð
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga í
Reykjavík ráðgerir að fagna sumri
með söngferð til Hafnar í Homafirði
um næstu helgi. Sungið verður í
kirkjunni í Höfn laugardaginn 26.
apríl kl. 16. Þann 27. verður haldið
til baka og sungið í nýja samkomu-
húsinu í Skaftártungu kl. 15.
Stjómandi kórsins er Violeta
Smidova og undirleikari Pavel
Smid.
VOLKSWAGEN
GOLF
ÁRGERD 1986
ÞÝskur kostctgripur,
sem haeíir öllum
MEÐNÝRRI
OG KRAFTMEIRI VÉL
GOLFINN
ez tœz i llestan sjð
# Kjörínn íjölskyldubíll
# Duglegur atvinnubíll
# Vinsœll bílaleigubíll
# Skemmtilegur sportbíll
Verð frá kr. 377.000.