Morgunblaðið - 22.04.1986, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
53
Brautryðjandinn og
fólkið í fremstu víglínu
Þau sem stóðu fremst með Jónasi
lækni og ég kynntist, voru kennar-
amir Amheiður Jónsdóttir, Mar-
teinn Skaftfelis og Böðvar Bjama-
son, Hjörtur Hansson, stórkaup-
maður, Pétur Gunnarsson, tiirauna-
stjóri, Oskar Jónsson, útgerðarmað-
ur, og Hilmar Norðíjörð, loftskeyta-
maður. Vegna stöðu sinnar á sjón-
um var hann minna hér fyrir aust-
an.
Jónasi Kristjánssyni kynntist ég
lítið. Hann var þá hálfníræður. A
fundum hafði hann sig lítið í
frammi. Rómur hans var veikur og
áherslulítill, en þegar hann tók til
máls, var þögn í salnum. Það var
auðséð, hver sat í forsæti. Hann
sagði mér að hann hefði helst kosið
að byggja hælið við rætur Reykja-
Qalls.
Jónas sá ég fyrst norður í Skaga-
firði árið 1935. Var ég þar í hrossa-
rekstri. Á móti okkur á veginum
kom bíll. Hann stansar yst á veg-
kantinum, bílstjórinn snarast út og
hleypur út í móa til að standa fyrir
stóðinu ef það skyldi fara út af
veginum. Ég minnist ekki að hafa
mætt svo háttprúðum vegfaranda
fyrr né síðar. Þarna var kominn
héraðslæknir Skagfirðinga í svört-
um klæðisfötum með hvítan strá-
hatt. Hann tók rekstrarstjórann
Pétur Ottesen taii, því að þeir höfðu
áður kynnst í sölum Alþingis.
er þessi dugnaðarkona, sem átti
hvað drýgstan þátt í að ryðja félag-
inu braut, komin á tíræðisaldur.
Hún hefur dvalist á heilsuhælinu
yfir hátíðirnar. Það er eins og
starfsfólkið skynji, hversu mikinn
þátt hún hefur átt í því, að þetta
heilsuhæli var reist. Þykir hveijum
manni heiður að því að vera henni
til aðstoðar.
Um þessar mundir er líka á
hælinu Hilmar Norðfjörð sér til
endurhæfingar. Hann var einn af
máttarstólpum félagsins um ára-
tuga skeið.
Á heilsuhælinu eru nú þrír starfs-
menn, sem unnu við bygginguna
1953: Jón Guðmundsson og Guð-
mundur Jónssofi, byggingameistar-
ar, og Pétur Þórðarson, birgðavörð-
ur. Hópur starfsmanna hælisins
hefur unnið þar í 15—20 ár. Ber
það vott um, að þar sé gott að vinna
Vera má að um þessa byggingu
hafi nætt, en sá næðingur hefur
ekki komið inn fyrir dyrnar, því á
heilsuhælinu starfar samvalið fólk.
Það var góður félagsskapur, sem
reisti þetta hæli, og góðar vættir,
sem fylgja því.
Höfundur er starfsmaður á
Heilsuhæli NLFÍ.
Dalvík:
Merkum áfanga náð
Heilsuhælið var vígt í júlímánuði
1955. Boðið var til matar. Á borðum
voru margir grænmetisréttir, þótt
ekki væru þeir ræktaðir á heima-
slóðum. í hælinu voru 28 sjúkra-
rúm, borðstofa fyrir hundrað
manns, herbergi fyrir ráðskonu og
annað fyrir Jónas lækni. Var það
jafnframt móttökuherbergi hans.
Þegar ég lít um öxl stendur mér
fyrir hugarsjónum þetta fólk, sem
stökk út í strauminn og reyndi að
fóta sig í straumkastinu. Það kallaði
út í hávaðann: „Vellíðan þín tengist
fæðunni, sem þú neytir." Þessu var
jafnharðan svarað, jafnt af lærðum
sem leikum: „Við hlustum ekki á
ykkur."
Þessi fámenni hópur lét ekki
bugast. Hann kallaði hærra og með
enn meiri styrk. Þar kom, að fleiri
og fleiri lögðu við hlustimar.
Kannski var heilhveitibrauðið holl-
ara en franskbrauð og kannski var
ekki sama hvert viðbitð var. Hver
spumingin rak aðra og þær urðu
fleiri og fleiri.
Margs er að minnast
margt ber að þakka
Á þessum 48 ámm, sem liðin em
síðan Jónas Kristjánsspn stofnaði
Náttúmlækningafélag íslands hef-
ur orðið bylting í matarvenjum ís-
lendinga. Á hann manna mestan
þátt í þeirri byltingu og er þá engan
veginn hallað á samstarfsmenn
hans. Flestir em þeir nú, eins og
Jónas, horfnir héðan.
Einn þeirra forystumanna, sem
eftir Iifa, er Amheiður Jónsdóttir.
Var hún fjármálastjóri félagsins,
þegar bygging heilsuhælisins hófst.
Reyndi mikið á hennar hæfíleika,
þegar allt virtist ætla að sigla í
strand vegna féleysis. Ráða þurfti
sérhæft starfsfólk, sem ekkert hús-
næði var fyrir. Þá lét hún byggja
þriggja íbúða hús á eigin kostnað
og ánafnaði það svo félaginu. Nú
Listi sjálf-
stæðismanna
birtur
Dalvík.
BIRTUR hefur verið listi sjálf-
stæðismanna og óháðra kjósenda
við bæjarstjórnarkosningarnar á
Dalvík í vor.
1. Trausti Þorsteinsson, Böggvis-
braut 7, 2. Ólafur B. Thoroddsen,
Steintúni 1, 3. Ásdís Gunnarsdóttir,
Sunnubraut 5, 4. Jón Þ. Baldvins-
son, Goðabraut 9, 5. Albert Ágúts-
son, Brimnesbraut 5, 6. Svanhildur
Ámadóttir, Öldugötu 1, 7. Siguijón
Kristjánsson, Karlsbraut 7, 8. Anna
Baldvina Jóhannesóttir, Sunnu-
braut 4, 9. Hermína Gunnþórsdótt-
ir, Svarfaðarbraut 10, 10. Sigurður
Ó. Kristjánsson, Lækjarstíg 3, 11.
Elín Sigurðardóttir, Stórhólsvegi 7,
12. Jón A. Finnsson, Ásvegi 4, 13.
Kristín Aðalheiður Símonardóttir,
Ásvegi 6, 14. Tryggvi Jónsson,
Sognstúni 1.
Fréttaritarar
Givarahlutir
^ Hamarshöfða 1
Símar 36510 og 83744
Síðasta vetrar-
dag miðviku-
daginn 23. apríl
í Átthagasal
Hótel Sögu kl.
20.30.
DAGSKRÁ
Bjarni P. Magnússon
Bryndís Schram
• ÁVÖRP
Bjarni P.
Magnússon,
Bryndís
Schram
• ALÞÝÐUFLOKKURINN 70 ÁRA
40 mín. myndband.
# FÉLAGSVIST
Stjórnandi: Emilía Samúelsdóttir.
Vinningur: Flugferð til
Kaupmannahafnar.
• DANSAÐ TIL KL. 3.00
Hljómsveit Grétars Örvarssonar
leikur fyrir dansi.
Miðaverð rúllugjald.
CD
U
y§m)
I. 't V-4Í'XZáÆ t: ' * \ t . * i ífd.1*-♦ -V.V 1? V j-
,i i.. uu I1 ;; „■>; rí