Morgunblaðið - 22.04.1986, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
Mæðguraar
Ilse og Zuzette
Tengdamóðir
Björns Borg
í sviðsljósinu
Þeir sem tengjast frægu folki
lenda oft í sviðsljósinu vegna
þessarra tengsla. Use Björling
tengdamóðir tennisleikarans Bjöms
Borg og dóttir hennar Zuzette
sýndu nýlega fatnað í tískuvöru-
verslun í Stokkhólmi. Ekki höfðu
þær mæðgur áður fengist við slíkt,
en þóttu standa sig vel. Eigandi
verslunarinnar sagði að sér hefði
þótt tilvalið að fá mæðgumar til
þess að sýna þar sem viðskiptavinir
verslunarinnar væru á svipuðum
aldri og þær og hún hefði viljað
vekja á því athygli að mæður og
dætur gætu fundið fatnað við sitt
hæfi í verslun hennar. Ekki hefur
það heldur verið verra að mikið
hefur verið skrifað í blöðin í Svíþjóð
um Use og þá staðreynd að hún
hafði ekki séð dótturson sinn Robin
er fæddist í september á síðasta
ári. En nú hefur verið bætt úr því
og þá var vitaskuld talað um hina
hamingjusömu ömmu.
Frúin tók sig
bara vel út
Björgvin Halldórsson og Guðmundur Einarsson,
framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar,
ræðast við að lokinni afhendingunni.
„Hjálpum þeim“
Islenska hjálparsveitin fær gullplötu
Gullplatan afhent. Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Gunnarsson frá Skífunni, Guðmund-
ur Jóhannesson frá Nýju útliti, Rúnar S. Birgisson frá Nýju útliti, Jóhann G. Jóhannsson
textahöfundur, Axel Einarsson lagahöfundur og Björgvin Halldórsson fulltrúi tónlistar-
Hjálparstofnun kirkjunnar af-
henti fulltrúum íslensku
hjálparsveitarinnar gullplötu síðast-
liðinn þriðjudag og em myndimar
sem hér birtast frá afhendingunni.
Islenska hjálparsveitin stóð sem
kunnugt er að gerð hljómplötunnar
„Hjálpum þeim“ til styrktar munað-
arlausum bömum í Eþíópíu. Þeir
sem tóku við gullplötunni voru:
Björgvin Halldórsson er sá um
undirbúning, umsjón og stjóm
upptöku, Axel Einarsson höfundur
lags, Jóhann G. Jóhannsson, höf-
undur texta, og Auglýsingastofan
Nýtt útlit, sem hafði með undir-
búning og skipulag að gera. Þá
mun eintak gllplötunnar einnig
verða afhent íslenska heimilinu
fyrir munaðarlaus böm í Eþíópíu
og Skífunni, sem annaðist dreif-
ingu.
Samtals seldust um 17 þúsund
eintök af hljómplötunni er skilaði
sex milljónum króna til hjálpar-
starfsins í Eþíópíu. Yfír 100 manns,
hljómlistarfólk, söngvarar, tækni-
fólk og margir fleiri, auk nokkurra
fyrirtækja, lögðu af mörkum vinnu
án endurgjalds, tíma og fjárfram-
lög. Vill Hjálparstofnun kirkjunnar
þakka öilu þessu fólki fórnfúst
framlag.
Átak Islensku hjálparsveitarinn-
ar í þágu munaðarlausra bama í
Eþíópíu skilaði ekki aðeins mikils-
verðu framlagi til hjálpar, heldur
vakti um leið áþreifanlega athygli
á systkinum í neyð um víða veröld
og brýnni þörf á að þeim verði
komið til bjargar.
Liðsmenn íslensku hjálparsveitarinnar spjalla
saman að lokinni afhendingu gullplötunnar. F.v.
Axel Einarsson, Rúnar S. Birgisson, Jóhann G.
Jóhannsson, Kristján Gunnarsson, Guðmundur
Jóhannesson, Björgvin Halldórsson og Guð-
mundur Einarsson framkv.stj. Hjálparstofnunar
kirkjunnar.
Ríkur, frægur
og farinn að átta
sig á tilverunni.
Vímugjafar —
ekki fyrir mig, takk
segir rokksöngvarinn Sting
■ \okkstjaman STING, sem í
rauninni heitir Gordon Sumner,
hefur lýst því yfír að að í maímán-
uði, þegar tónleikaferðalagi hans í
Ástralíu lýkur, ætli hann að taka
sér árs hvíld. Undanfarið ár hefur
hann ferðast um heiminn þveran
og endilangan og haldið 120 tón-
leika, svo ekki er að furða að
maðurinn sé orðinn þreyttur. Eftir
að hann hætti að syngja með félög-
um sínum Stewart og Andy í Police,
stofnaði hann aðra hljómsveit, en
segir að þeir þremenningamir séu
enn góðir vinir. Árið framundan
ætlar hann að nota til þess að hvíla
sig og vera með fjölskyldunni er séð
hefur lítið af honum undanfarið.
Hann segist loksins hafa áttað sig
á tilverunni, hvað það sé sem mikil-
vægt er og nauðsyn þess að halda
sig frá vímugjöfum. Hann hafi um
tíma notað þá of mikið og skyndi-
lega skynjað hyldýpið sem hann var
um það bil að falla ofan í.
Nýja
hljómsveitin
og söngkonuraar tvær
Stewart,
Andyog
Sting
slógu
ígegn
sem Police.
ffclk í
fréttum
As he noars fhe end
of his y««r*long
world four, SHng is
crt the peak of
his suttets ...
worshíppod by
miUions, in demand
cverywhero and
very, very rich. So
why has he decided
to aUoppear from
the scene for!2
months? Tho
answer moy
surpriseyou. 'l've
hurt a greot mony
peopie ... now i'm
tryinq to build