Morgunblaðið - 22.04.1986, Qupperneq 59
V
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL1986
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
{jgjytHiauL-UM-U ir
Fyrirspurn til
J C-hreyfingarinnar
Birna G. Bjamleifsdóttir
hringdi:
Ýmis félög, s.s. oekkjarfélög,
lúðrasveitir o.fl. afla fjár með því
að taka að sér verkefni ýmiss konar.
Til að mynda bera sjálfboðaliðar út
almanök og ferðatilboð.
Heyrst hefur að JC-hreyfingin
hafí tekið að sér að skipuleggja fjár-
söfnun fyrir Krabbameinsfélag ís-
lands. í sjálfu sér er ekkert at-
hugavert við það nema hvað JC
hefur leitað til kvenfélaga og ann-
arra sjálfboðaliða til að annast
söfnunina.
Eg beini þeirri fyrirspurn til for-
ystumanna JC-hreyfíngarinnar,
hvort rétt sé að þeir taki greiðslu
fyrir að skipuleggja söfnunina en
fái svo sjálfboðaliða til að vinna
verkið. Þarft er að sannleikurinn
komi fram því mikið er um þetta
rætt meðal kvenna í kvenfélögum
og annarra.
Fyrirspurn til
skattstjóra
6098—1973 hringdi með fyrir-
spurn til skattstjóra:
Mig langar til að vita hvert er
leyfílegt álag á fasteignagjald af
sumarbústöðum miðað við fast-
eignamat. Ég greiði hærra hlutfall
í fasteignagjöld af sumarbústaðn-
um mínum en ibúðinni. Mér þætti
eðlilegt að þessu væri öfugt farið.
Strætó milli
hverfa
Vigdís hringdi:
Mig langar að beina þeirri fyrir-
Vigdísi þykja slæmar samgöngur
strætisvagna milli úthverfa.
spum til forráðamanna SVR, hvort
ekki þurfí að bæta samgöngur
strætisvagna milli ýmissa úthverfa
í Reykjavík. Sem dæmi má nefna
að næsta vonlaust er að komast
frá Hlíðahverfí eða Hvassaleiti nið-
ur í Laugames, án þess að fara
niður á Hlemm eða Lækjartorg.
Dóttir mín stundar fímleika hjá
Armanni og þótt hringleið 9 aki
þama um er ekki hættandi á að
senda lítil böm yfír Kringlumýrar-
brautina.
/
Gjöld af erlend-
um ávísunum
Búnaðarbankinn og ef til vill
fleiri bankar hafa ekki lækkað gjöld
af erlendum ávísunum, sem þar eru
keyptar. Ég fór um daginn að kaupa
ávísun fyrir tímarit og bækur og
hafði afgreiðslugjald, þ.e. þóknun
og kostnaður, ekki verið lækkaður.
Vill hæstvirtur viðskiptaráðherra
ekki athuga þetta mál?
S.F.
Bíður eftir
seinni myndinni
Kæri Velvakandi.
Mig langar að þakka sjónvarpinu
fyrir að sýna fyrri myndina af
Svarta folanum og bíð þess að
seinni myndin verði sýnd von bráð-
ar.
Hafnfirðingur
Þakkir til sr.
Jóns Einarssonar
Velvakandi hefur verið beðinn
að koma á framfæri þakklæti til
séra Jóns Einarssonar prests í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd fyrir
útvarpsmessu er hann flutti 13.
apríl síðastliðinn. Þess er óskað að
Morgunblaðið birti prédikun hans
svo að ráðamenn þjóðarinnar geti
lesið hana og farið eftir henni.
Úr í óskilum
Sólveig Þorsteinsdóttir fann úr
um miðjan desember síðastliðinn
og þykir henni tímabært að það
komist í hendur eiganda síns. Þetta
er gyllt kvenúr, með leðuról. Eig-
andi eða þeir sem kannast við grip-
inn eru beðnir að hringja í síma
36463 eftir klukkan 6 síðdegis.
Leiðrétting
I bréfi Bergdísar Lindu Kjartans-
dóttur er birtist í dálkum Velvak-
anda fyrir skömmu, komst upphaf
síðustu málsgreinar ekki til skila.
Rétt er það svona: „Tilgangsleysið
þegar fleiri hundruð manneskjur
vafra um í hávaða og reykkófi, án
þess einu sinni að eiga samskipti
hver við aðra, er yfírþyrmandi."
Velvakandi biður hlutaðeigandi
velvirðingar á þessum mistökum.
Velvakandi.
Þeg-ar blómin f ölna
Nýlega barst ósk til Velvakanda
þess efnis að birtur yrði íslenski
textinn við lagið „O sole mio“. Hér
kemur hann:
Þegar blómin fölna
ferðuburtufrámér
erhaustatekur
ogsumardvin
þcgar vorar aftur
égvonaaðsjáþig
því það er eina hjartans óskin mín.
Segmérínótt
semþúöðrumdylur
þínar hjartans vonir og engu leyn
í nótt eða aldrei, skaltu hug minn skilja
meðan blómin sofa
viðvökum ein.
Við getum nú afgreitt allar stærðir af YAMAMA
Enduro og götuhjólum með 3—5 vihna fyrirvara.
Hagstætt verd.
BÍLABORG HF
SMIÐSHÖFÐA 23 SI'MI 6812 99