Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 64

Morgunblaðið - 22.04.1986, Page 64
ÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Nýtt útflutnings- fyrirtæki ullar- framleiðenda? SAUMA- og prjónastofueigendur hafa hafíð undirbúning að stofnun eigin útflutningsfyrirtækis. Astæðan er sú að þeir telja að núverandi útflytjendur hafi lagt of rnikinn kraft í uppbyggingu eigin fram- leiðslu á kostnað sölustarfseminnar og þeirra framleiðslufyrirtækja sem fyrir eru. SH, Sambandið og SÍF: Hlutafélag um útflutn- ing á sérfræðiaðstoð „Sú spuming verður sífellt áleitn- ari hvort það sé ef til vill eina leiðin að framleiðslufyrirtækin sjálf fari að brasa í útflutningi," sagði Reynir Karisson framkvæmdastjóri Lands- samtaka pijóna- og saumastofa á blaðamannafundi þar sem stjóm samtakanna kynnti stöðu fyrirtækj- anna og sjónarmið framleiðenda. Á blaðamannafundinum kom fram að framleiðendur hafa viljað viðhalda þeirri verkaskiptingu sem verið hefur á milli útflytjenda og fram- ieiðenda, en vegna uppbyggingar útflutningsfyrirtækjanna á eigin framleiðslu hefðu fyrirtækin hafið undirbúning að stofnun eigin sölu- Hrímbakur á rækju Akureyri. EINN togara Útgerðarfélags Akureyringa, Hrimbakur, fer á rækjuveiðar einhvem næsta daga. Hrímbakur er á sóknarmarks- kvóta þannig að dagar falla úr sem hann hefúr ekki lejrfí til að veiða. „Við ákváðum að prófa að senda hann á rækjuveiðar frekar en að gera ekki neitt," sagði Gísli Kon- ráðsson, annar forstjóra ÚA, í samtali við Morgunblaðið í gær. Togari frá ÚA hefur ekki áður farið á rækjuveiðar. „Fái hann eitt- hvað,“ eins og Gísli orðaði það, verður aflanum landað á Akureyri. fyrirtækis. Hafa þeir falið innlend- um og erlendum ráðgjafarfyrir- tækjum að kanna fjárhagslegan grundvöll fyrir stofnun slíks fyrir- tækis. Sjá „Undirbúa stofnun eigin útflutningsfyrirtækis** á blað- síðu 34. Reykjavík; Lögreglan varar við sinubrunum NOKKUÐ hefur borið á sinu- brunum í Reykjavík að undan- förau. Hafa þeir flestir verið smáir i sniðum, en lögreglan telur þó ástæðu til að vara við afleiðingum, þar sem eldurinn getur borizt í mannvirki og trjá- gróður. Að sögn lögregiunnar í Árbæ var slökkviliðið kallað til aðstoðar vegna sinubruna í Grafarvogi í gærkvöldi. Einnig var kveikt í sinu við Elliðaámar í gær og Amar- bakka á sunnudag. Lögreglan segir að oftast slökkvi krakkamir eldinn sjálf, ráði þeir við það, en í Grafar- vogi í gærkvöldi hafi þótt ástæða til að kalla á slökkviliðið, þar sem eldur og reykur hefði verið nokkuð mikill. Það sé þvi aldrei of brýnt fyrir bömum og unglingum að fara varlega í sinubruna, sérstaklega þegar jörð sé þurr. SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús- anna, Samband íslenzkra sam- vinnufélaga og Sölusamband ís- lenzkra fiskframleiðenda hafa stofnað nýtt hlutafélag, Icecon hf. Tilgangur félagsins er út- flutningur og sala erlendis á sér- fræðiaðstoð og ráðgjöf, aðallega á sviði sjávarútvegs. Jón Ingvars- son, formaður stjórnar SH, segir að þetta sé tilraun, sem marki timamót. Þessir þrír keppinautar taki þaraa höndum saman um verkefni, sem óskylt sé fyrri starfsemi þeirra og ættu hags- munir ekki að rekast á vegna þessa. Hlutafé félagsins er í upphafí 5 milljónir króna, sem skiptist í þijá hluthafaflokka. SH og Sambandið eiga hvort um sig 40% en SÍF 20%. Heimilt er að bjóða fjárfestingarfé- lögum og sjóðum viðbótarhlutafé í sérstökum hluthafaflokki fyrir sömu Qárhæð og upphaflegt hlutafé nemur. Að tveimur árum liðnum frá stofnun félagsins munu stofn- endur meta árangur af starfsemi félagsins og í ljósi þess árangurs taka ákvörðun um framtíð þess. I frétt frá stofnendum Icecon segir að stofnun félagsins megi að nokkru rekja til umræðna um aukna þörf nýsköpunar í íslenzku atvinnu- lífi svo og starfs á vegum tveggja opinberra nefnda um möguleika á verkefnaútflutningi, það sé svokall- aðrar markaðsnefndar sjávarút- vegsins, sem sjávarútvegsráðherra skipaði á síðasta ári og nefndar, sem viðskiptaráðherra skipaði einn- ig á síðasta ári um verkefnaútflutn- ing. Stjóm félagsins skipa til bráða- birgða: Frá SH Jón Ingvarsson og Friðrik Pálsson, frá Sambandinu Sigurður Markússon og Þorsteinn Ólafsson og frá SÍF Magnús Gunn- arsson. Félagið mun auglýsa eftir framkvæmdastjóra á næstu dögum. Lánskjara- vísitalan hækkar um 0,5% Lí'uiskjaravísitala fyrir maí- mánuð er 0,49% hærri en vísital- an i apríl, skv. útreikningum Seðlabanka íslands. Visitalan í mai er 1432. Umreiknuð til árshækkunar hef- ur breytingin á lánskjaravísitölu verið sem hér segir: Síðasta mánuð 6,1%, síðustu 3 mánuði 10,7%, síð- ustu 6 mánuði 21,2% og síðustu 12 mánuði 28,0%. Sjónvarpsmynd um Vínlandsfund i bígerð TVEIR franskir kvikmyndagerðarmenn, Serge Roux og Jacques Fouraier, vora hérlendis um helgina til þess að reyna að afla stuðnings við gerð sjónvarpskvikmyndar sem þeir hyggjast gera um það, er norrænir menn fundu Ameriku fyrir 1000 áram. Myndin verður gerð eftir skáldsögu Renés Hardy, „La route des cygnes“ eða „Svanaslóð“, verður sex klukkustunda löng og sýnd i sex þáttum. Handritið skrifaði þekktur bandarískur rithöfundur, sem skrifað hefur allmörg kvikmyndahandrit, Robin Moore. „Svanaslóð" á að gera með styrk frá American Scandinavian Found- ation í New York, auk þess sem reynt verður að afla §ár til kvik- myndagerðarinnar bæði austan hafs og vestan, þ. á m. á Islandi. Ræddu þeir Roux og Foumier við fulltrúa frá Qármálaráðuneytinu og ýmsa aðila í útflutningi. Er erindi þeirra nú til athugunar hjá þessum aðilum. Ætlunin er síðan að sýna mynd- ina í tengslum við hátíðahöld í tilefni þess, að norrænir menn fundu Ámeríku fyrir 1000 árum. Eiga þau hátíðahöld að hefjast á hinum opinbera degi Leifs Eiríks- sonar í Bandaríkjunum, 9. október nk. Af gömlum sögnum íslenskum, svo sem Landnámu, Eiríks sögu rauða og Grænlendinga sögu, hefur verið ráðið, að Bjami Heij- ólfsson hafi siglt upp að austur- strönd Norður-Ameríku árið 986 og Leifur Eiríksson stigið þar á land litlu síðar. Um ferð Bjama Heijólfssonar ætla Roux og Fo- umier að gera sérstaka 52 mfnútna kvikmynd, „Opnast sýn til Amer- íku“, sem sýna á í Bandaríkjunum við setningu hátíðahaldanna 9. október nk. og síðan í bandarísku og norrænu sjónvarpi á næsta ári. Til þess að treysta sem best sagnfræðilegan gmndvöll mynd- anna, hafa þeir Roux og Foumier fengið til ráðuneytis ýmsa vísinda- menn á sviði norrænu og fomleifa- fræði og er einn þeirra Jónas Kristjánsson forstöðumaður Stofn- unar Áma Magnússonar í Reykja- vík. Einnig má nefna þá Hermann Pálsson prófessor við Edinborgar- háskóla og Magnús Magnússon, sem m.a. hefur gert sjónvarpsþætti um norrænu víkingana. „Ef úr þessari kvikmyndagerð verður, tók ég að mér að vera fræðilegur ráðunautur af íslands hálfu,“ sagði Jónas Kristjánsson í samtali við Morgunblaðið. „Hlut- verk mitt verður fyrst og fremst það að vera ráðgjafi varðandi það söguiega svona eftir því sem ég hef þekkingu til. Það er enginn vafi á því að ís- lendingar sigldu til þessara landa á austurströnd Ameríku, sem þeir kölluðu Vínland, Markland og Helluland. Hins vegar em þær tvær sögur, sem helst segja frá þessum landafundi, Eiríks saga rauða og Grænlendinga saga, ekki skráðar fyrr en rúmum tvö hundr- uð ámm síðar svo þar er kannski ekki rétt með farið í öllum smáat- riðum og ekki auðvelt að finna þessu löndum nákvæmlega stað eftir sögunum, en Ari fróði talar t.d. í íslendingabók um Vínland eins og það sé alkunnugt land og það ekki nema rúmum hundrað ámm eftir að Leifur er þama á ferðinni. Það er hins vegar galli, að þessir atburðir em ekki nógu kunnir úti í heimi. Það væri ekki óeðlilegt að íslendingar og Norðmenn — málið er þeim skyldast — gerðu eitthvert átak til þess að kynna þetta betur, og kannski opnast þama leið þó að hún komi frá Frakklandi," sagði Jónas Kristjánsson forstöðumaður Stofnunar Áma Magnússonar að lokum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.