Morgunblaðið - 24.04.1986, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
35
að ferðaskrifstofurnar munu sjálfar
taka samgöngumálin meira í sínar
hendur og ekki skirrast við að leita
til erlendra aðila til að bæta kjörin
og tryggjajafnrétti allra.“
Stóraukinn straumur til
útlanda í sumar
Undanfarin tvö ár hefur verið
spáð miklum samdrætti í ferðalög-
um Islendinga, en samt hefur ferða-
mönnum fjölgað með hveiju ári og
allt bendir til, að svo verði einnig
í ár. Hveijar telur Ingólfur ástæður
þessarar fjölgunar?
„Sala í hópferðir Útsýnar hefur
aukist um 80% frá því í fyrra og
flestar ferðir eru að seljast upp.
Aðalástæðan er lægra verð ferð-
anna í hlutfalli við laun og almennt
verðlag en nokkru sinni fyrr,“ segir
hann. „Opinberar tölur sýna, að
kaup hefur hækkað um 25—40%
að meðtöldu launaskriði síðastliðið
ár, en verð hópferða hefur nánast
staðið í stað og jafnvel lækkað síðan
í fyrra."
— En kemur það ekki niður á
þjónustunni?
„Ferðaskrifstofan Útsýn mun
hafa fleira starfsfólki á að skipa
en aðrar hérlendar ferðaskrifstofur
— það eru um 40 fastráðnir starfs-
menn á skrifstofunni hérna í Aust-
urstræti — og allt þetta fólk er
störfum hlaðið. Mér er í sjálfu sér
ekkert keppikefli að reka stærstu
ferðaskrifstofu landsins, en það
hefur ætíð verið metnaðarmál Út-
sýnar að veita bestu þjónustuna.
Til þess er Útsýn líka vel fær með
slíkan íjölda valinna starfsmanna,
sem flestir hafa langa starfs-
reynslu. Auk þess hóps, sem hér
vinnur á skrifstofunni og umboðs-
manna um allt land, starfa á vegum
fyrirtækisins erlendis um 30—40
manns á sumrin og við munum
þurfa að bæta við starfsfólki í fram-
tíðinni.
Þess vegna efnir Útsýn nú til
námskeiðahalds í ferðaþjónustu.
Aðsóknin er slík, að allir flokkar
námskeiðsins fylltust samdægurs.
Það sýnir hve áhugi fólks er mikill
á störfum í ferðaþjónustunni og hve
brýnt er að bæta úr skorti á kennslu
og starfsþjálfun. Námskeiðið stend-
ur í tíu daga, þijár stundir á dag,
og kennslugreinar eru uppbygging
og útgáfa farseðla og fararstjóm.
Svo þrátt fyrir lága verðið stefnir
Útsýn að því að bæta þjónustuna
enn og laga hana ætíð að kröfum
tímans."
„FRÍ-klúbburinn raun-
hæf leið til sparnaðar“
„Kannski er FRÍ-klúbbur Útsýn-
ar eitt stærsta átakið til aukinnar
og bættrar þjónustu við ferðafólk.
Með samningum við fjölda fyrir-
tækja innanlands og utan eru félög-
um í FRÍ-klúbbnum tryggð sérstök
kjör með afslætti sem almennt
nemur 10—20% af vörum og þjón-
ustu þessara fyrirtækja svo aðild
að FRÍ-klúbbnum er raunhæf leið
til sparnaðar. Og FRÍ-klúbburinn
er fyrir alla, fólk á öllum aldri.
Hann stuðlar að því að auka gildi
ferðalagsins og lífsfyllingu og
ánægju, sem allir keppa að.
Á síðastliðnu ári veitti Útsýn
FRÍ-klúbbsfélögum afslátt af aug-
lýstu verði ferða fyrir meira en sex
milljónir króna. Ætli FRÍ-klúbbur-
inn sé ekki stærstu hagsmunasam-
tök á íslandi þar sem ferðalög eru
annars vegar?
Eg lít ekki á ferðaþjónustuna
eins og einhveija íþróttakeppni, sem
snýst um það hver skorar flest
mörkin. Þetta er þjónusta við al-
menning og frá sjónarhóli neytand-
ans skiptir mestu máli hvar hann
nýtur bestra kjara og fær bestu
þjónustuna,“ segir Ingólfur Guð-
brandsson að lokum.
segir það ekki vera. Þetta væru
styrkir sem veittir hefðu verið án
nokkurra kvaða. Gunnar Guðbjarts-
son framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs segir hins vegar að þetta hljóti
að koma til álita við sölu hússins
og hefur hann gert landbúnaðarráð-
herra grein fyrir þeirri skoðun sinni.
Bóndi fyrir vestan sem blaða-
maður ræddi við sagði að einkenni-
lega hafi verið að sölu sláturhússins
staðið. Það hefði til dæmis aldrei
verið auglýst til sölu. í sjálfu sér
væri lítið hægt að segja við sölu
hússins en bændur hlytu að eiga
rétt á því að krefjast þess fjármagns
sem sem sjóðir landbúnaðarins hafa
lagt í sláturhúsið til að það nýttist
í þeirra þágu og byggðarinnar.
Hann sagði að gengið hefði verið
frá sölu sláturhússins á bak við
tjöldin og forráðamenn kaupfélags-
ins ekki viljað viðurkenna að salan
hefði átt sér stað, þrátt fyrir að
þeir hafi skrifað undir afsalið 1.
desember. Þá hefði sala slátur-
hússins ekki verið borin undir
bændur héraðsins. „Missir slátur-
hússins er mikið áfall fyrir byggðar-
lagið og kemur til viðbótar mikilli
skerðingu sem við höfum þurft að
sæta vegna mjólkurkvótans.
Byggðin hér stendur mjög höllum
fæti vegna samdráttar í landbúnaði
og má engu muna,“ sagði hann.
Selt á „toppverði“
Sigurður Viggósson formaður
stjórnar Matvælavinnslunnar segir
að fyrirtækið hafi meðal annars
verið stofnað til að bjarga slátur-
húsinu eftir að það varð nær verk-
efnalaust. Aðspurður sagðist hann
ekki muna kaupverð hússins en það
hefði verið „toppverð“ og „raun-
hæft markaðsverð". Hann sagði að
nú væri unnin rækja úr einum út-
hafsrækjubát í húsinu en til stæði
að fá annan bát. Einnig væri verið
að athuga með frekari vinnslu.
Hann sagði að sauðfjárslátrun færi
ekki framar fram í húsinu, enda
passaði rækjuvinnslan og slátrunin
ekki saman.
Matvælavinnslan hf. var stofnuð
12. mars 1985. Stofnendur hennar
eru Hraðfrystihús Patreksfjarðar
hf. (60% hlutafjár), Kaupfélag
Vestur barðstrendinga (35%), Jens
H. Valdimarsson kaupfélagsstjóri
(2,4%), Tölvuþjónusta Vestfjarða
(1%) og Fiskvinnslan á Bíldudal hf.
(1,6%). Kaupfélagið er aðaleigandi
Hraðfrystihúss Patreksfjarðar hf.
Hlutafé félagsins er 2,5 milljónir
kr. og var það allt greitt við stofnun
félagsins, samkvæmt upplýsingum
úr Hlutafélagaskrá. Á stofnfundin-
um voru eftirtaldir kosnir í stjórn:
Sigurður Viggósson forstöðumaður
Tölvuþjónustunnar, sem er formað-
ur, Sigurgeir Magnússon útibús-
stjóri Samvinnubankans og Björn
Gíslason byggingameistari. Jens
H. Valdimarsson kaupfélagsstjóri
er framkvæmdastjóri með prókúru-
umboði. Á stofnfundi félagsins var
það bókað að hluthafar væru sam-
mála um að leita eftir leigu eða
kaupum á sláturhúsi kaupfélagsins.
Þetta var 12. mars 1985.
Afsal aðila um sláturhúsið rituðu
stjórnarmenn beggja félaganna. í
stjórn kaupfélagsins eru: Sigurgeir
Magnússon útibússtjóri, sem er
formaður, Ossur Guðbjartsson
bóndi á Lága-Núpi, Ari Ivarsson
sláturhússtjóri, Ánna Jensdóttir
kennari á Patreksfirði og Ragnar
Guðmundsson bóndi á Bijánslæk.
Mikil tengsl eru á milli þessara
tveggja félaga, „þeir eru að selja
sjálfum sér húsið", eins og einn
viðmælandi orðaði það. Mikil tengsl
eru á milli Kaupfélagsins og Hrað-
frystihússins, eins og áður segir,
og eiga þau saman 95% hlutaljár
hins nýja félags. Útibússtjóri Sam-
vinnubankans á sæti í stjórnum
beggja félaganna og skrifar því á
tveim stöðum undir afsalið. Hjónin
Anna Jensdóttir og Sigurður Vig-
gósson sitja báðum megin við borðið
og skrifa bæði undir afsalið. Kaup-
félagsstjórinn er framkvæmdastjóri
beggja félaganna og er auk þess í
varastjórn Matvælavinnslunnar hf.
og Össur Guðbjartsson, sem á sæti
í stjórn Kaupfélagsins, er endur-
skoðandi Matvælavinnslunnar.
- HBj.
UM HELGINA
FIMMTUDAGSKVÖLD:
OPIÐ frá kl.22 - 01
Pálmi Gunnarsson kemur fram og
syngur nokkur lauflétt lög. „Svörtu
ekkjurnar", margfaldir (slandsmeistar-
ar í hópdansi, sýna dans. Tískusýning:
Módel '79 sýna sumarfötin frá tísku-
versluninni Adam.
Óli stendur vaktina í tónabúrinu og
leikur öll vinsælustu lögin.
it iz Ít
FÖSTUDAGS-OG
LAUG ARDAGSK VÖLD:
Húsið opnað kl. 20:00 fyrir matargesti.
Pónik og Einar leika fyrir dansi og Karl
Möller spilar fyrir matargesti bæði
kvöldin. Pálmi Gunnarsson verður á
Miðnætursviðinu á föstudagskvöldið
auk þess sem Magnús og Jóhann
syngja fyrir matargesti. Á laugardags-
kvöldið verður það aftur á móti hinn
eldhressi og sívinsæli Ómar Ragnars-
son, sem skemmtir matargestum.
Óli og Kiddi sjá um diskótekið.
Matseðill: Rjómasveppasúpa
Glóðarsteikt lambalæri
Triffle
-jir ☆ [SlMB^rivlAl^BtLlSlTlRllÁl ☆ ☆
Athugið barnahúsgagnatilboðin okkar þar sem fara
saman hagstæð verð og góð greiöslukjör. Salix húsgögnin
fást í beyki, hvítu, rauðu og bláu.
A VIÐJU BARIÍAHU5G0GIÍUM
20% UTBORQUM
12 MÁMAÐA GREIÐ5LUKJÖR
Barnid
á aðe/n
ls Það öes/a skiUð -
HUSGAGNAVERSLUNIN
VIÐJA
Smiðjuvegi 2 Kópavogi
sfmi 44444
Þar sem
góðu kaupin
gerast