Morgunblaðið - 24.04.1986, Síða 78
78
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. APRÍL1986
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
UmsjónA/ilmar Pétursson
Sigri
fagnað
Stjörnustrákarnir fögnuðu að
vonum ákaft þegar sigurinn var
í höfn. Þeir höfðu verið talsvert
undir í leiknum, en í framleng-
ingu tókst þeim að knýja fram
sigur og íslandsmeistaratitillinn
í höfn. Hér má sjá nokkra leik-
menn Stjörnunnar eftir leikinn
og greinilegt er á svip þeirra
að þeir eru ánægðir með sigur-
inn og lái þeim hver sem er.
3. flokkur karla:
Stjarnan
íslands-
meistari
íslandsmeistarar Stjörnunnar í
handknattleik 3. flokks karla.
Aftari röð frá vinstri: Jón Ásgeir
Eyjóifsson, formaður hand-
knattleiksdeildarinnar, Gunnar
Ingason, Sigurður Bjarnason,
Árni Gunnarsson, Bjarni Bene-
diktsson fyrirliði, Þóroddur
Ottesen, Heimir Erlingsson,
Sigurður Hilmarsson og Magn-
ús Teitsson þjálfari. Fremri röð
frá vinstri: Baldur Jónsson,
Magnús Eggertsson, Gunnar
Erlingsson, Jóhann Jóhanns-
son, Valdimar Kristófersson,
Stefán Stefánsson og Guðjón
Guðmundsson.
Bjöm
Islant
hér Islandsmeistarabikarnum í
3. flokki karia eftir æsispenn-
andi úrsiitaleik við Selfyssinga
þar sem úrslitin réðust ekki fyrr
en íframlengingu.
Selfyssingar góðir
ÞAU LIÐ sem hafa átt flesta
flokka í úrslitum íslandsmótsins
i handknattleik, Stjarnan úr
Garðabæ og Selfoss, sigruðu f
Má aldrei gefa upp
vonina í úrslitaleik
— sagði Björn Benediktsson fyrirliði
EFTIR maraþonúrslitaleikinn í
3. flokki pilta á (slandsmótinu í
handknattleik var fyrirliði ís-
landsmeistara Stjörnunnar
Björn Benediktsson tekinn tali
og hann spurður hvort hann
hafi ekki verið búinn að gefa
upp vonina þegar 10 mínútur
voru til leiksloka og 7 mörkum
undir.
„Nei, maður má aldrei gefa
upp vonina í úrslitaleik. Við vor-
um undir í hálfleik og töluðum
um það í leikhléinu að við gætum
vel unnið Selfyssingana og það
tókst."
Björn sagði að hávaðinn í
Seifoss-áhangendunum hefði
truflað þá dálítið í fyrri hálfleikn-
um, „en þegar hlutirnir fóru að
ganga upp hjá okkur létu okkar
áhangendur ekki sitt eftir liggja.
Um möguleikana á að verja
titilinn að ári sagði Björn að það
væri nú alltaf erfitt að spá en
flestir væru þeir Stjörnustrákarn-
ir á yngra árinu í 3. flokki, þannig
að möguleikarnir væru góðir og
auðvitað væri stefnt á titilsvörn.
sfnum riðlum í úrslitakeppninni
f 3. flokki pilta og áunnu sér þar
með rétt til að leika úrslitaleik-
inn um íslandsmeistaratitilinn.
Það var mikil spenna f Selja-
skóla þar sem úrslitakeppnin
fór fram f þann mund sem úr-
slitaleikurinn var að hefjast,
tvær stórar rútur komu með
fjölda Selfyssinga og Garð-
bæingar voru ekki sfður fjöl-
mennir á áhorfendabekkjunum.
í fyrri hálfleik voru Selfyssingar
öllu sterkari, þeir höfðu næstum
alltaf frumkvæðið og höfðu
þriggja marka forystu i hálfleik,
10—7. Selfyssingarnir buðu uppá
sannkallaða handboltaveislu í
þessum hálfleik og reyndar einn-
ig góðan part af seinni hálfleik.
Glæsilegar leikfléttur sem end-
uðu með stórfallegum mörkum,
fengu hjörtu handboltaunnenda
sem á horfðu til að taka auka-
slag.
töpuðu
Selfyssingar byrjuðu seinni
hálfleikinn með gífurlega góðum
leik og voru komnir með 7 marka
forystu þegar u.þ.b. 10 mínútur
voru til leiksloka þannig að fátt
virtist geta komið í veg fyrir sigur
þeirra.
Magnús Teitsson þjálfari
Stjörnunnar tók þá á það ráð að
taka 2 Selfyssinga úr umferð, þá
Magnús Sigurðsson og Grím
Hergeirsson og við það hrundi
leikur Sunnlendinganna. Stjörnu-
menn skoruðu hvert markið á
fætur öðru og náðu að jafna leik-
inn fyrir leikslok, 16—16, þannig
að framlengja þurfti hann um 10
mínútur.
í framlengingu léku Garð-
bæingarnir eins og þeir sem
valdið hafa en Selfyssingar voru
nánast ekki með og þessum
merkilega úrslitaleik lauk með
stór-sigri Stjörnunnar, 26—20.
Selfyssingar voru í raun betra
liðið u.þ.b. 80% af venjulegum
leiktíma og hafa á að skipa mjög
skemmtilegu liði. Gústav Bjarna-
son, Magnús Gíslason og Grímur
Helgason ásamt markmanninum
Ragnari Hjálmarssyni, sýndu
snilldartakta í leiknum. En ekki
er nóg að vera betra liðið meiri
hlutann af leiknum ef ekki stend-
ur steinn yfir steini restina af
honum. Mörk Selfyssinganna
gerðu: Gústav Bjarnason 6,
Magnús Gíslason 5, Grímur
Hergeirsson 4 og Einar Guðna-
son 1.
Stjörnumenn sýndu stórkost-
legt keppnisskap í þessum leik
og gáfust ekki upp þótt útlitið
væri dökkt og uppskáru að laun-
um íslandsmeistaratitil. Einnig
höföu þeir það fram yfir Selfyss-
inga að þeir notuðu fleiri leik-
menn þannig að þeir voru betur
undir það búnir að spila í fram-
lengingunni. Liðið er skipað jöfn-
um og góðum handknattleiks-
mönnum. Mörk Stjörnunnar
gerðu: Sigurður Bjarnason 7,
Valdimar Kristjánsson 5, Magn-
ús Eggertsson, Björn Benedikts-
son 3 hvor, Þóroddur Ottesen 2
og Stefán Stefánsson 1.