Morgunblaðið - 16.05.1986, Side 16

Morgunblaðið - 16.05.1986, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ1986 Davíð Oddsson borgarstjóri svarar spurningum lesenda Spurt og svarað um borgarmál LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS Davíð Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík og efsti maður á framboðslista sjálfstæðisfólks í borgarstjórnarkosningum, sem fram fara 31. maí næstkom- andi, svarar spurningum í Morgunblaðinu um borgarmál í tilefni kosninganna. Lesendur Morgunblaðsins geta hringt til ritstjórnar blaösins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 árdegis, frá mánudegi til föstudags, og lagt spurningar fyrir borgarstjóra, sem blaðiö kemur á framfæri við hann. Svörin birtast síðan í þættinum Spurt og svarað um borgarmál. Einnig má senda spurningar í brófi til blaðsins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svarað um borgarmál, rit- stjórn Morgunblaðsins, pósthólf 1555, 121 Reykjavík. Nauðsynlegt er, að nafn og heimilisfang spyrjenda komi fram. Svipmynd úr Árbæjarhverfi. Á bakhlið myndar, sem ekki er ný af nál, stendur: Máluðu sjálf blokk- ina. Myndin er táknræn fyrir þá viðleitni sem borgarbúar almennt sýna nú, á 200 ára afmæli Reykjavikur, að fegra umhverfi sitt. að gangstéttargerð í syðsta hluta Framkvæmdir í Árbæ og Seláshverf i Þuríður Magnúsdóttir: A) Stendur til að byggja sundlaug í Árbæjarhvefí og þá hvar og hvenær? B) Miki! umferð til borgarinnar og frá gegnum Árbæjarhverfí torveldar íbúum þess að fara ferða sinna úr hverfínu og heim aftur. Stendur til að færa þessi mál til betri vegar, til dæmis með um- ferðarljósum? C) Hvaða framkvæmdir eru framundan hjá borginni í þágu íbúa Árbæjarhverfís á þessu ári og því næsta? Svar: Fyrirhugað er í skipulagi að: 1. sundlaug rísi við íþróttamann- virkin við Fylkisveg. Tímasetning,/ er ekki ákveðin. Nýverið var tekin í notkun bað- og búningsaðstaða við sundlaugina í Laugardal og á sl. ári var Breiðholtslaug stækkuð til muna. Þannig hefur aðstaða þeirra sem sundlaugamar sækja batnað til muna á kjörtímabilinu. 2. Á þessu ári verða sett upp umferðarljós á gatnamótum Hraunbæjar og Bæjarháls gegnt Bitruhálsi og ætti þá umferðarör- yggi fbúa í Árbæjarhverfí að batna til muna. 3. Á þessu ári verður háspennu- línan milli Hraunbæjar og Bæjar- háls tekin niður og jarðstrengur settur í staðinn. Með þessu opnast ýmsir möguleikar til umhverfis- bóta, til byggingar á bflskúrum fyrir íjölbýlishúsin við Hraunbæ o.fl. á þessu svæði og munu skipu- lagsnefnd og Borgarskipulag vinna að þessu verkefni nú á næstunni. Talsverðar fram- kvæmdir verða á miðsvæði Ár- bæjarhverfís næst Árseli og kirkju, bflastæði verða malbikuð að þeim hluta sem að borginni snýr, hvað varðar bflastæði kirkj- unnar stendur söfnuðinum til boða að borgin leggi til malbik á bfla- stæðið og hjálpi til að öðru leyti með lán úr lánasjóði borgarinnar. Þar með verður lokið frágangi á þessu svæði, en miklar lagfæring- ar hafa verið gerðar á lóð Ár- bæjarskóla og Ársels á kjörtíma- bilinu. Sé litið til Seláshverfísins verð- ur í haust tekinn í notkun fyrsti áfangi grunnskóla í suður-Selási og mun hann létta álagi af Ár- bæjarskóla. Unnið verður við útivistarsvæði milli Fylkisvegar og Selásbrautar í sumar, eins og áður er vikið að í svörum mínum. Unnið verður Seláshverfís nyrðra, og Iýkur þeim framkvæmdum þá í þessum hluta hverfísins á milli Selásbrautar og Fylkisvegar. Með styrk Reykjavíkurborgar hefur íþróttafélagið Fylkir hafíð gerð íþróttasvæðis á stærsta úti- vistarsvæði hverfísins. Umhverfi Höfðabakkans hefur tekið miklum stakkaskiptum og er örugg gönguleið undir hann niðri við Rafstöðvarveg og ennfremur gegnt Árbæjarsafni. Unnið verður áfram að um- hverfisbótum við Árbæjarsafn og ættu safnið og umhverfí þess í vaxandi mæli að laða að sér íbúa í hverfínu og er stefnt að því að svo verði í starfí safnsins. Ártúnsholtið er í uppbyggingu en þar veða gerð 3 leiksvæði nú í sumar og er það byijun á frá- gangi í hverfínu eins og vikið hefur verið að í svörum mínum á þessum vettvangi. Seláshverfi Anna Harðardóttir, Mýrarási 14, spyr 1. Hver verður framvinda máls með húsgrunn að verslun við Selásbraut? 2. Hvað er fyrirhugað með autt svæði í Seláshverfí sem gengur niður frá Selásbraut að Fylkis- velli, og hvenær hefjast fram- kvæmdir? Svör: 1. Lóð sú sem hér um ræðir er eignarlóð, svo sem flestar lóðir í Selási. Skv. skilmálum bar eig- anda að koma upp botnplötu innan árs frá því að lóðin var byggingar- hæf og við það var staðið. Fram- kvæmdir hafa síðan legið niðri. Borgaryfírvöld geta fellt bygging- arleyfíð úr gildi og fýrirskipað eiganda að ganga snyrtilega frá lóðinni, en gera verður ráð fyrir að eigandinn vilji frekar nýta fjár- festingu sína og halda fram- kvæmdum áfram. Eg mun fara þess á leit að borgarverkfræðing- ur setji eigandanum byggingar- frest, en að öðrum kosti verður byggingamefnd beðin að aftur- kalla leyfíð. 2. í sumar verða hafnar fram- kvæmdir við útivistarsvæði 20.400 m 2 að stærð sem er syðst í nyrðri og eldri hluta Seláshverf- is. Svæðið liggur inni í byggðinni og nær frá Selásbraut í austri að fylkisvegi í vestri. Þama verða gaeði gróðurreitir og leikvellir. í sumar verður lokið við mótun svæðisins, gerð gangstígs og byijað á plöntun tijáa og mnna. Þetta er áfangaskipt verkefni og lýkur væntanlega á sumri 1987 að fullu. Leiksvæði í Selum Guðjón Jónsson, Jóruseli 26, Reykjavík. Fyrirhugað hefur verið að koma upp bamaleikvelli á homlóð hér í næsta nágrenni. Nú liggur fyrir að framkvæmd þessi sé ekki tíma- sett fyrr en 1989, þá verða þau böm, sem hingað fluttust fyrst, komin á fermingaraldur. Mín spuming er, hvort ekki megi lag- færa þetta fyrirhugaða róluvallar- svæði lítið eitt strax í vor, ef framkvæmdir dragast. Það er opið flag eins og er, hverfínu lítt til prýði. Svar: í áætlun Umhverfís og útivistar 1986 er gert ráð fyrir leiksvæði við Kaldasel, sem verður lokið við í maí. Þetta svæði er milli Jómsels og KlyQasels og ætti að koma þessu hverfi til góða. Samkvæmt framkvæmdaáætlun 1984—1989 Umhverfis og útivistar er leik- svæði við Jórusel á áætlun 1989. Ennfremur skal upplýst, að nú í surnar heQast framkvæmdir við skólagarða milli Fljótasels og Jaðarsels og á þeim að ljúka að vori 1987 og garðamir þá teknir í notkun. Þess utan er ætlunin að vinna 2 önnur leiksvæði í hverfínu nú í sumar og ennfremur vinna við tijáplöntun og fegmn á útivistarsvæðinu vestan Gijótas- els (Seljabotnar). Fuglar á íslandi í máli og myndum Bók Hjálmars R. Bárðarsonar með 500 ljósmyndum, teikningum og kortum Hjálmar R. Bárðarson hefur gefíð út bókina Fuglar íslands. Fjallar hann í myndum og máli um alla íslenzka varpfugla, ýmsa far- gesti og óreglulega varpfugla. Hjálmar hefur tekið allar myndimar í bókinni, sem flestar era í lit, eða 392, en alls era ljósmyndir, teikn- ingar og kort um 500 talsins. Bókin er fáanleg nú á íslenzku og ensku, en í haust era væntanlegar útgáfur á dönsku, frönsku og þýzku. Bókin er 336 blaðsíður að stærð í stóru broti. Hjálmar skiptir bókinni, þar sem fjallað er um íslenzka fugla, í 14 meginkafla. Fyrsti kaflinn ber heit- ið Heimur manna og fugla og era þar rakin ýmis atriði um sambýli fugla og manna, almennt og það sem sérstaklega varðar ísland. Annar kafli bókarinnar fjallar um síðasta geirfuglinn og er þar rakin sorgarsagan um útrýmingu hans. Talið er að síðasta par þessa ófleyga fugls hafí verið drepið í Eldey árið 1844. I þriðja kaflanum er yfirlit um íslenzka fugla. Þar er m.a. skýrt frá ýmsum áhugaverðum stöðum á landinu til fuglaskoðunar. Rótgróin hefð er að kalla íslenzka fugla þá, sem verpa á landinu. Sumir þessara fugla dveljast þó ekki á varpstöðvunum nema 3—5 mánuði árlega, en aðrir era stað- fuglar. Staðfuglamir era á eða við landið allan ársins hring, en farfugl- amir flýja hinsvegar hörð kjör vetr- arins og fljúga til suðlægari landa. Á sumrin setja varpfuglamir svip sinn á allt fuglalíf landsins, bæði staðfuglar og farfuglar. Árlega verpa á Islandi rúmlega 70 tegundir fugla, en alls hafa sést á landinu meira en 300 tegundir. Flestar tegundimar era því flæk- ingsfuglar, vetrargestir, sem koma að hausti og hverfa að vori, eða fargestir, þ.e. umferðafarfuglar, sem hafa viðkomu vor og haust á leið til og frá norðlægari varpstöðv- um. Nokkrir þessara fugla hafa með vissu orpið á íslandi í eitt eða fleiri skipti. Borið saman við nálæg Evrópu- lönd era tegundir varpfugla á Is- landi fremur fáar. Á hinn bóginn er fyöldi einstaklinga sumra þessara tegunda gífurlega mikill og má því telja ísland auðugt af fuglum. Þeir fuglar, sem fyrst og fremst setja svip á fuglalíf á íslandi, era sjófuglar, endur og vaðfuglar. Um þriðjungur íslenskra varpfuglateg- unda eru sjófuglar, en hvað varðar tölu einstaklinga era þeir hinsvegar yfírgnæfandi meirihluti íslenskra varpfugla. Sumar íslenskar sjófuglategundir telja þannig milljónir einstaklinga, og alls er talið að eigi færri en 13 milljónir sjófuglapara verpi á ís- landi. í þeim ellefu meginköflum bókar- stáMxmú. Hjálmar R. Bárðarson í súlubyggð í Eldey 20. ágúst 1982. innar, sem koma á eftir kaflanum um íslenska fugla, er sagt frá þeim fuglum, sem velja sér líkt umhverfi, era skyldir, eða hafa þróast þannig að athafnir þeirra era líkar. Þessir sérkaflar heita: Eyjar og sker, Bjargfuglar, Strandfuglar, Vot- Iendi, Endur, Mófuglar, Við mannabústaði, Hálendið, Hraun og kjarrlendi, Ránfuglar, og að lokum Gestir og stopulir varp- fuglar. I bókinni eru ljósmyndir og lýs- ingar allra reglulegra varpfugla landsins, og auk þess era myndir og lýsingar nokkurra sjaldgæfra flækingsfugla og fargesta. Lögð er áhersla á að sýna bæði fuglana sjálfa og umhverfi þeirra, og gerð er grein fyrir ýmsu forvitnilegu í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.