Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR16. MAÍ 1986
47
Dr. Pétur M. Jónasson
DQ Sími 68-50-90
VEITIMOAHÚS
HÚS GÖMLU DANSANNA
Gömlu dansarnir
íkvöld kl. 9-3.
Hl)ómsveitin
Ármenn
ásamt hinni vinsælu söng-
konu Mattý Jóhanns
Lokað laugardagskvöld
Kaupmannahöfn:
íslendingur
kjörinn til
Norsku
vísindaaka-
demíunnar
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
DR. PHIL. Pétur M. Jónasson
prófessor í vatnalíffræði við
Hafnarháskóla hefur verið kjör-
inn meðlimur Norsku vísindaaka-
demíunnar. Afhending- heiðurs-
skjala vegna þessa fór fram í
Osló 5. maí, og var dr. Pétur, sem
einnig er meðlimur Konunglegu
dönsku akademíunnar, þar við-
staddur. Hann er nú á förum til
íslands til að halda áfram og
stjórna rannsóknum við Þing-
vallavatn.
Norska vísindaakademían var
stofnuð 1857 og sitja í henni 219
Norðmenn og auk þess 183 erlendir
visindamenn, annars vegar í stærð-
fræði og náttúruvísindum, en hins
vegar í hugvísindum. Þar átti sæti
á sínum tíma dr. Sigurður Þórarins-
son jarðfræðingur og í grein hugvís-
inda sitja m.a. íslendingamir dr.
Jakob Benediktsson og dr. Magnús
Már Lárusson. Aðalmarkmið aka-
demíunnar er að styðja hvers konar
vísindi og starfa innan einstakra
vísindagreina og vera tengiliður
milli þeirra með margs konar rann-
sóknum og útgáfustarfsemi. Á er-
lendum vettvangi vinnur akademían
sérstaklega að rannsóknarstörfum
vegna þróunarlandanna. Fjárfram-
lög koma frá norska rikinu og ýms-
um sjóðum, en einnig hefur sérstak-
ur framkvæmdasjóður verið settur
á fót til að standa straum af kostn-
aði.
Dr. Pétur Mikkel, sem nú hefur
orðið þessa mikla heiðurs aðnjót-
andi, er eini starfandi prófessor í
vatnalíffræði í Danmörku. Hann
hefur verið búsettur hér síðan 1939
og varð lektor við Hafnarháskóla
1969, dr. phil. 1972 og prófessor
1977. Vatnalíffræðideildin er stað-
sett í Hillered og þar býr dr. Pétur
ásamt eiginkonu sinni, Dóru Gunn-
arsdóttur, og tveim dætrum þeirra
hjóna.
1979 lauk margháttuðum vist-
fræðirannsóknum við Mývatn undir
stjóm dr. Péturs Mikkels í samstarfí
við iðnaðarráðuneytið og kom Mý-
vatnsbók, Lake Mývatn, út sama
ár. Sfðan 1974 hefur hann staðið
fyrir svipuðum líffræði- og vist-
fræðirannsóknum við Þingvallavatn
á vegum Alþingis og mun sambæri-
leg bók um þær rannsóknir koma
út 1988, gefin út af Hinu ísl. fræða-
félagi í Kaupmannahöfn, og er dr.
Pétur ritstjóri hennar. Munu marg-
ar merkar ritgerðir birtast í Lake
Thingvallavatn og þar á meðal 4
til doktorsvamar.
Ólafur Noregskonungur, sem er
heiðursforseti Norsku vísindaaka-
demíunnar, afhenti heiðursskjöl við
hátíðlega athöfn í húsi félagsins í
Osló.
G.L.Ásg.
Opið
íkvöld
til kl. 3
Laugardag til kl. 23.30
H0LL9W00D
liú hafa flestír Skólanemar lokið prófum og við
höfúm ástæðu til að ætla að þeir fjölmenni í
KLÚBBiriM í kvöld. Nú þegar hafa eidri nemendur
fjölmargra framhaldsskóla boðað komu sína.
Hljómsveitin Fiction sér um tónlistina ásamt
tveitnur discotekum. Sem sagt örugg trygging
fyrir pottþéttri skemmtun.
Kofndu í KLÚBBINN í kvöld og haltu upp á prófin
-já, eða bara hvítasunnuna. /
Ath. lokað laugardagskvöld. .
QLEÐILEQA HVÍTASUmU.
l;VOi:uili:iiaa
STADUR PEIRRA SEM AKVEDNIR ERU I ÞVI AD SKEMMTA SER
ÓMAR K
RAGNARSSON,
sá landskunni spéfugl,
skemmtir matargestum.
☆ .............
Pálmi Gunnarsson kemur
fram á Miðnætursviðinu.
Karl Möller sér um að
borðhaldið verði notalegt með
Ijúfum tónum.
Pónik og Einar leika fyrir dansi
Einstök þríréttuð máltíð
á mjög góðu verði.
•••
Matargestir athugi að panta borð tímanlega. Veitinga-
stjórinn tekur við pöntunum og gefur upplýsingar í
símum 23335 og 23333 alla daga vikunnar.
Nýja diskótekið verður opið. Óli og Kiddi verða í tóna
búrinu og spila öll vinsælustu lögin.
Húsið opnar kl. 20.00 fyrir matargesti. Opið til 03.00
Snyrtiiegur klæðnaður - aldurstakmark 20 ára.
LOKAÐ
LAUGARDAGSKVÖLD
☆ ☆ STAÐUR VANDLÁTRA ☆ ☆
.
—.-.,^v,5r-vó
\ > i...
■I/ATS.Z
tí.
Nú fer hver að verða
síðastur að sjá Söng-
bókina hans Gunnars
Þórðarsonarsem
innihelduröll hans
fallegu lög og eru
flutt af okkarsnjöll-
ustu tónlistarmönn-
um.
Söngbókin hefur
fengið frábærarvið-
tökur í Broadway
undanfarnar helgar,
uppselthefurverið
helgi eftirhelgi.
Ennþá er tækifæri til
að sjá okkarsnjöll-
ustu tónlistarmenn
samankomna og
flytja lög úr Söng-
bókinni hans Gunn-
ars.
Pantið miða strax i
dag í síma 77500.
BRCADWAT