Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1986 51 n ^7 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS HEILRÆÐI Dráttarvélaeigendur Tryggið öryggi þeirra sem aka dráttarvélum ykkar. Dráttarvélar og stórvirk vinnutæki eru hættuleg í meðförum, ef ekki er farið að öllu með gát. Hugsið ykkur tvisvar um áður en þið látið slík verkfæri í hendur unglingum eða jafnvel bömum. Geislunarmæla í stað fótbolta Poppkorn í framför Ágæti Velvakandi. Ég vil hér með andmæla 7890—5700, sem gagniýnir Popp- kom þann 7. maí sl. Mér finnst þáttur þessi vera í mikilli framför einmitt nú, þar sem hann er mun fjölbreyttari en áður. Mun meira er nú spilað af þungarokki í Popp- komi, sem er ágæt tilbreyting frá skallapoppinu, sem 7890—5700 virðist þykja best. Kynningamar, eða öllu heldur leikþættimir, eru drepfyndnar og gera það að verk- um, að maður myndi horfa á þáttinn þótt lögin væru leiðinleg. Að lokum vil ég biðja Poppkom- arana að halda góðu starfí áfram og sýna fleiri myndbönd með góðum hljómsveitum s.s. Ozzy Osboume, Saxon, Rush, Black Sabbath o.fl. 4325-6572 Gypsy áttu að spila Kæri Velvakandi. Við emm tveir óánægðir Gypsy- aðdáendur. Gypsy á að vísu engan þátt í óánægju okkar, heldur kæra- leysið í þeim sem stóðu fyrir músík- tilraununum í ár. Hvemig datt þeim í hug að láta Rikshaw spila á úrslitakvöldinu en ekki Gypsy? Það er hefð fyrir því, að sigurvegarar í músíktilraunum sfðasta árs spili á úrslitakvöldinu og afhendi sigurvegaranum verð- launin. Rikshaw hefur aldrei komið nálægt þessum músíktilraunum og því alveg út í hött að fá þá til þess að vera gestir úrslitakvöldsins. Þá fannst okkur að sigurhljóm- sveitinni í ár væri sýnd óvirðing því verðlaununum var hálfvegis fleygt í strákana. Við vonum, að betur verði að þessu staðið næst — verðlaunahöf- unum þá sýndur meiri heiður en í ár og verðlaununum ekki fleygt í þá. Að lokum viljum við þakka Gypsy fyrir frábæra frammistöðu. Þeir era sannarlega þess verðugir að spila á stærri hátíðum. Tvær fúlar út í Tónabæ og rás 2 Gleðibankinn, frelsi, friður og bænadagurinn Morgunblaðið segir 1. maí fréttir af undirbúningi söngvakeppninnar í Bergen, gengi Gleðibankans og um þátttakendur frá ísrael og vest- ur-þýska lagið segir: Sérstkar ráðstafanir era gerðar vegna Israelsmanna og hafa þeir einnig með sér einkalífverði. Þeir fá ekki að blanda geði við fjöldann og era fluttir í sér bílum á milli staða. Þeir segjast vera vanir slíku, en vildu auðvitað gjaman geta gengið frjálsir um eins og aðrir. Vestur-þýska lagið „Úber die briicke geh’n" er táknrænt fyrir þrá mannsins eftir frelsi, en þar er fjallað um nauðsyn þess að byggja brú manna á millum, auka skilning og frelsi á þessari jörð er viðgistum um stundarsakir. í sama blaði segir af bænadegi kirkjunnar á sunnudag, nú á friðar- ári Sameinuðu þjóðanna. Það er góð frásögn, en kirkjan má ekki gleyma þrá manna eftir frelsi, sem er for- senda friðar. Biðjum fyrir frelsi, friði og auknum skilningi milli manna. Þá mun gleðibankinn blómstra. hvþ. Kæri Velvakandi. Komum okkur upp geislavirkni- mælingum frekar en að kaupa heimsmeistarakeppnina f fótbolta í sjónvarpið fyrir þijár milljónir króna. Það væri gaman að fá að vita hvað kostar að koma upp að- stöðu til geislavirknimælinga. Ég skora á allt hugsandi fólk að Velvakandi. Ég vil þakka Birni Friðfinnssyni innilega fyrir skelegga grein hans í Morgunblaðinu laugardaginn 26. apríl sl. Hann segir sem satt er, að þetta gamla tímatal okkar sé svo ódrep- andi, að við eram skyldaðir til að halda sumardaginn fyrsta þegar Harpa gengur í garð, og auðvitað vilja það bæði böm og gamalmenni. En víðast hvar er ekki einu sinni farið að vora, og allur sá fjöldi, sem fer undir bert loft þennan hátíðis- dag, getur varla haldið á sér hita nema í þykkum ullarpeysum eða kuldaúlpum. Og af hveiju má ekki breyta hér um, þótt einhveijar gamlar hefðir hafí riðið húsum í þessum efnum sem öðram í annarri nærmynd frá útbrannum tíma, þegar við í smáu sem stóra eram að sigla inn í nýrri og heilsusamlegri heim? Hvað ætli margir hafí hnerrað og hóstað þegar heim, undir þak, var komið eftir rokið og naglakulið? Væri svo ekki nær, eins og Bjöm minnist á, að láta sumardaginn fyrsta bera upp á föstudag svo þjóð- félagsþegnar hefðu þijá daga til að mæla sig í friði, og slægi ekki niður vegna mætingar á vinnustað fyrir einn dag? Og þar sem þessi mæti maður vill, eins og ég og fleiri þúsundir landsmanna, sem kunna að leita á vit íslenskrar náttúru, færa sumar- daginn fyrsta til, þá ætti skilyrðis- laust að flytja hann aftur um tvær vikur, því það munar um minna, og má sjá það best út um gluggann hjá sér, þegar bramið á tijánum er að sækja í sig veðrið. Það veit ég eins og þúsundir láta til sín heyra um það, hvort það vill heldur láta nota þessar þijár milljónir í geislunarmælitæki eða fótbolta. Ég vil jafnframt hvetja alla til að fylgjast með og láta í ljósi álit sitt á notkun almannaQár. Þetta era okkar Qármunir og við eram alltaf að borga braðl og fjárglæfra. Dísa landsmanna, að Davíð Oddsson, besti og ijölhæfasti borgarstjóri Reykjavíkur, kippti þessu snarlega í liðinn, ef hann einn gæti þar nokkra ráðið um, ásamt velviljuðum sjálfstæðismönnum í öllum homum. Kommakarlamir verða hér eftir sem hingað til skjálfandi á öllum dögum ársins, hvort sem er þorri eða sumardagurinn fyrsti á alman- akinu. Þeir vora mestu íhaldsjálkar í borgarmálum og í §ölmiðlum era þeir svo orðlausir yfír öllum þeim loforðum, sem borgarstjóri gaf fyrir síðustu kosningar, að þeir era eins og afturgöngur og harðlæsa sig inni í bílaflota sínum. Sumardagsins sjónarspil syngur falskt um hlíðar. Kannski frekar fæst hann til fjórtán dögum síðar. Krístinn Magnússon. Frábær næturvakt Kærí Velvakandi. Við eram tvær stöllur, sem hlust- uðum á næturvakt rásar 2 laugar- daginn 3. maí síðastliðinn. Ástæðan fyrir því, að við viljum koma því á framfæri, er einfaldlega sú, að næturvaktin þetta áður- nefnda kvöld var í einu orði sagt frábær. Við höfum oft heyrt góða þætti á rás 2, en engan eins góðan og þessa næturvakt. Við viljum því senda stjómandan- um, Ólafí Má Bjömssyni, okkar allra bestu þakkir. Tvær ánægðar. Færum sumardaginn fyrsta Bladburóarfólk óskast! AUSTURBÆR Þingholtsstræti Skipholt 1 -50 Hvassaleiti Samtún MYNDBANDA- NÁMSKEIÐ Notkun myndbanda eykst stöðugt í þjóðfélaginu, bæði í atvinnulífi og á heimilum. Einstaklingar nota myndbandið í auknum mæli til að geyma minningar og atburði á skipulegan hátt. Fyrirtæki og stofnanir hagnýta sér myndbandið til alls kyns kynningar og fræðslu fyrir starfsfólk og viðskipta- vini. íslensk myndritun heldur námskeið í mynd- bandagerð fyrir byrjendur og þá sem lengra eru komnir og veitir þátttakendum vandaða tækjaað- stöðu. Tilgangur: Námskeiðið er haldið til að veita þátttak- endum undirstöðuþekkingu í notkun vídeómynda- véla og upptökutækja fyrir VHS myndbandskerfið. Viðfangsefni: Fjallað er um vídeo sem fjölmiðil. Tekið er fyrir: undirbúningur upptöku (handrit), upptaka myndar og hljóðs, og frágangur efnis (klipping). Til að auðvelda námið fá þátttakendur kennslugögn, m.a. á íslensku. Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað öllum sem áhuga hafa á myndbandagerð. Auk byrjendanám- skeiðs heldur íslensk myndritun framhaldsnám- skeið í ákveðnum þáttum myndþandagerðar. Námskeið íslenskrar myndritunar koma að gagni þeim sem vilja kynna sér seinna U-MATIC Hl- BAND tæki, en þau uppfylla kröfur sjónvarps- stöðva. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Kvöldnámskeiö - 12 timar 27. - 30. mai kl. 20.00-23.00 Helgarnámskeiö - 19 timar 6.-8. júní föstudag, kl. 20.00-23.00 laugardag og sunnudag kl. 10.00-18.00 Námskeiðin eru haldin á Laugavegi 89, 3. hæð. Upplýsingar í síma 621204 frá kl. 10-12. JVC Húsinu, Laugavegi 89, sími 621204. Áskriftarsíminn er 83033
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.