Morgunblaðið - 16.05.1986, Side 41

Morgunblaðið - 16.05.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1986 41 Náttúruverndarfélag Suðvesturlands: Fundur með formönnum hverfasamtaka í Reykjavík MorKunblaðið/BAR Nýir leiðsögumenn ásamt kennurum, skólastjóra og forráðamönnum ferðamálaráðs við útskrift úr Leiðsöguskóla Ferðamálaráðs. Leiðsöguskóli Ferðamálaráðs: Nýir leiðsögumenn útskrifast LEIÐSÖGUSKÓLA Ferðamála- ráðs var slitið 9. maí sl. og voru þá útskrifaðir 30 nýir leiðsögu- menn. Kennsla í skólanum hófst í október og hafa leiðsögiinemar fengið fræðslu um jarðfræði, sögu, atvinnulíf, gróður og dýra- líf auk þess sem þeir hafa kynnt sér sögu helstu ferðamannastað- anna. Æfingar fara fram í sal og í bfl undir handleiðslu reyndra leiðsögu- manna og tungumálakennara. For- stöðumaður Leiðsöguskólans er Bima G. Bjamleifsdóttir. Nokkur aukning varð á fjölda erlendra ferðamanna sem komu til íslands sl. sumar og er búist við einhverri Ferð HaUgríms- og Laugames- safnaða til Vestmannaeyja Ákveðið hefur' verið að efna til sameiginlegrar safnaðarferðar til Vestmannaeyja á vegum Hallgríms- og Laugamessafnaða. Farið verður með flugvél að morgni laugardags- ins 14. júní og komið aftur til baka með Heijólfí sunnudagskvöldið 15. júní. í Vestmannaeyjum verða skoð- unarferðir um eyjuna, söfn og aðrir merkir staðir heimsóttir. Gefinn verður kostur á að fara í bátsferð. Á sunnudeginum verður messa í Landakirkju. Sameiginlegur kvöld- verður verður á laugardagskvöldinu og á sunnudeginum morgunverður og síðdegiskaffi. Ferðakostnaður, gisting og það sem sameiginlegt er gert í eyjunni að bátsferðinni undanskilinni verður um kr. 4.500. Þeir sem hefðu áhuga á að vera með þurfa að láta skrá sig í síðasta lagi föstudaginn 23. maí hjá eftirt- öldum aðilum. í Laugameskirkju daglega milli 15 og 17 í síma 34516 og hjá Dómhildi Jónsdóttur í síma 39965. Jón D. Hróbjartsson sóknarprestur XJöfðar til XJLfólksíöllum starfsgreinum! aukningu nú í sumar en skortur var lega þeim á leiðsögumönnum í fyrra, sérstak- frönsku. sem tala þýsku og (Úr fréttatilkynningu) Náttúruvemdarfélag Suðvestur- lands hefur síðastliðin ár staðið að ferðum um hvert sveitarfélag á Suðvesturlandi, þar með talin Reylqavík. Hugmyndin að baki þessum ferðum hefur verið sú að kynna þátttakendum úr sveitarfé- lögunum umhverfi sitt, sögu þess, líffræði og jarðfræði. í því skyni hafa verið fengnir leiðsögumenn sérfróðir um hvem þessara þátta. Síðasta ferðin var farin í mars síð- astliðnum um land gömlu jarðarinn- ar, Vík. Aðsókn að þessari ferð var það mikil að hana varð að endur- taka vegna þeirra sem urðu frá að hverfa. Fjölmargar óskir hafa komið fram um að endurtaka ferð- ina í sumar. Stjóm NVSV hyggst nú, á 200 ára afmælisári Reykjavíkur, efna áfram til svipaðra ferða um lönd hinna gömlu jarða þar sem borgin hefur risið, s.s. Árbæjar, Breiðholts, Bústaða, Klepps, Laugamess, Rauðarár. o.fl. Stjóm NVSV vill gjaman eiga samvinnu við hverfa- samtökin um þessar ferðir. Því vill hún boða formenn hverfasamtak- anna til fundar þar sem þessi mál yrðu rædd. Fundurinn verður hald- inn þriðjudaginn 20. maí kl. 20.30 í veitingahúsinu Lækjarbrekku. Stjómin væntir þess að formenn eða aðrir fulltrúar hverfissamtak- anna geti mætt á þennan fund. Þátttaka tilkynnist í síma 40763 (Einar Egilsson formaður) eða síma 52119 (Jóhann Guðjónsson ritari) fyrir 18. maí. (Frá NVSV) Vantar fylíingtt í líf þítt? Sprungur í vegg lokast ekkí af sjálfu sér. Það veistu. Lausnarorðið er Thoríte. Efnið sem fagmennirnír kalla demantssteypu. Harkan og endingin — þú skilur. Thorite viðgerðarefníð hefur góða víðloðun. Þú notar það jafnt á gamla steypu sem nýja. Mótauppsláttur er óþarfur-. eftir 40—60 mínútur er veggurinn þurr, sléttur og tilbúinn undir málningu. Iðnaðarmenn þekkja Thoríte af langrí reynslu. Nú er komið að þér. Thorlte fæst í litlum og stórum umbúðum með íslenskum Ieíðbeiningum. Spurðu eftir Thorite i næstu byggíngarvöruverslun. Þeír þekkja nafnið. 15 steinprýði | Stórhöfða 16, Reykjavík - S. 83340/84780 THnmTÍ Stórhöfða 16, Reykjavík - S. 83340/84780 Útsölastaðir: BYKO • B.B. Byggíngarvörur • Húsasmíðjan • Skapti, Akureyri • Málníngarþjónustan, Akranesi • G.E. Sæmundsson, ísafirði • Baldur Haraldsson, Sauðár- króki • Dropinn, Kefiavík • Kaupfélag Vestmannaeyja • Kaupfélag A-Skaftfellinga, Hornafirði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.