Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.05.1986, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ1986 Ef þú slakar á ertu búinn að vera Rætt við Guðlaug Bergmann í til- efni af 20 ára afmæli Kamabæjar í maí árið 1966, fyrir réttum tuttugu árum, var opnuð ný verslun á homi Skólavörðustígs og Týsgötu í Reykjavík. Verslunin lét ekki mikið yfir sér hið ytra, en þó vakti opnun hennar talsverða athygli og umtal. Þetta var fyrsta verslunin, sem bauð eingöngu upp á tísku- föt fyrir bítlakynslóðina svonefndu, sem þá var að vaxa úr grasi. Ekki höfðu allir trú á þessu fyrirtæki og margir vom á því að hér væri á ferðinni tískubóla, sem myndi springa, eins og tónlistin. Hvomgt sprakk, bítlatónlistin varð ódauðleg og þótt hér sé ekki verið að gera því skóna, að fyrirtækið Kamabær muni standa um aldur og ævi, er víst, að það hefur vaxið og dafnað á þeim tuttugu ámm, sem liðin em frá stofnun þess. Þar vinna nú um 100 manns, og hafa aldrei verið fleiri. Forstjóri fyrirtækisins, Guðlaugur Berg- mann, hefur á þessum tuttugu ámm verið áberandi persóna i ís- lensku viðskiptalífi, umdeildur fyrir ýmis tiltæki enda gustar oft á tíðum um hann. „Hann hefur komist þetta á frekjunni," sagði einn kunningja hans þegar 20 ára afmælið barst í tal. Annar var ekki sammáia þessari skýringu og taldi að velgengni Gulla mætti rekja til starfsorku hans og ótrúlegrar bjartsýni. Við skulum heyra hvað um fyrirtækið og uppbyggingu Guðlaugur hefur sjálfur að segja þess á þessum tímamótum: „Sannleikurinn er sá, að Kama- bær varð til fyrir tilviljun. Ég ætlaði mér aldrei að setja upp smásölu- verslun. Ég ætlaði mér númer eitt, tvö og þrjú að selja í heildsölu. Ég hafði rekið heildsölufyrirtæki í nokkur ár, G. Bergmann og Co, og ætlaði mér aldrei að fara út í neitt annað en innflutning. Þegar þessi nýja bylgja kom, þessi fatatíska sem fylgdi popptónlistinni, ætlaði ég mér að ná í umboð fyrir þessi föt. Ég á enn símskeyti frá John Stevens, sem er eins konar guðfaðir Camaby Street í London, sem varð miðstöð þessarar tísku á sínum tíma. Hann opnaði fyrstu búðina í gömlum pöbb í Camaby Street og byrjaði að selja bítlaföt. Ég fylgdist vel með þessari þró- un, bæði þar sem ég var í innflutn- ingi á fötum og eins var ég vel með á nótunum í músíkinni, sem þessi nýja tíska fylgdi. Ég setti mig því í samband við þennan Stevens, en það dróst alltaf að fá staðfestingu frá honum um opnun heildsölu á þessum vörum. í millitiðinni hafði ég hins vegar haft samband við tvær versianir hér í Reylq'avík, sem ætluðu að selja þessar vömr. Þeir urðu svo þreyttir. á biðinni og einn daginn frétti ég að þeir væm famir af landi brott til London. Ég vissi strax hvað var að gerast þama og við Jón Baldursson, sem stofnaði með mér Kamabæ ásamt Bimi Péturssyni, mkum út á eftir þeim til London og hittum þá á Regent Palace-hótelinu. Þar voru þeir með öðmm heildsala og sögðu okkur að þeir væm búnir að kanna málið og þessa vöm væri hvergi að fá nema að kaupa hana af John Stevens, nánast á búðarverði. Þetta væri því útilokað og ekki hægt. Þeir ætluðu allavega ekki að vera með eða koma nálægt þessu. Ég talaði digurbarkalega og sagði að við væmm í pottþéttum sambönd- um, og ef þeir vildu ekki vera með þá næði það ekki lengra. Við myndum þá bara tala við aðra. Með það löbbuðum við Nonni út á Regent Street í þungum þönkum og vissum í rauninni ekkert hvað við áttum að gera. Þetta var í þriðja sinn sem ég hafði komið til London og ég þekkti því ekkert til þama í borginni. Um miðja vegu á þessari miklu verslunargötu Iít ég upp og sé þá skilti sem á stendur: „Baker Guðlaugur, nýfluttur i verslunina á Laugavegi 66, árið 1969. Warburg Division". Ég segi þá við Nonna: „Mér fínnist eins og ég hafi séð þetta nafn einhvers staðar. Eigum við ekki bara að skella okkur inn og athuga hvort við komumst ekki í einhver sambönd?" — Löng saga stutt: Þetta var eina heiidsölu- fyrirtækið á Bretlandseyjum, sem var búið að ná sér í öll umboð fyrir framleiðendur bítlatískufatnaðar. Þetta er ótrúlegt, en satt. Við fórum náttúrulega hróðugir á fund kaupmannanna og létum heildsalann finna það á okkur að okkur þætti ekki mikið til hans koma. Þegar þessir kaupmenn heyrðu verðið urðu þeir óðir og uppvægir og daginn eftir gerðu þeir pöntun. Við gerðum því stóra aukapöntun þar sem við höfðum hug á að koma þessum vörum í fleiri verslanir hér heima. En þegar við komum heim til íslands brá svo við að kaupmenn voru tregir til að kaupa af okkur og við áttum engra kosta völ. Til að losa okkur við þessa vöru var okkur nauðugur einn kostur að setja sjálfir upp verslun, sem við og gerðum og nefndum Kamabæ." Skynjaði popp byltinguna „En þótt forlögin hafi gripið þama inn í atburðarásina var það engin tilviljun að föt urðu mín versl- unarvara. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á fötum. Ég hannaði Lúdó-peysuna á sínum tíma, sem seldist í 2.500 eintökum og Dee- skyrtuna, sem var gott mál á sínum tíma. Þegar ég fór fyrst til London, 18 ára gamall, hafði ég keypt mér peysu í verslun sem hét „Smart Weston", en þessi verslun var með fyrstu peysuskyrturnar sem ég hafði séð. Ég var þá að vinna hjá Rolf Johansen og þegar ég kom heim sagði ég við hann að þetta væri peysan sem við ættum að framleiða. Rolf var alltaf jafn opinn, og ég lærði margt af honum þótt ég hefði aðeins unnið hjá honum í eitt og hálft ár. Við fengum Jónas Jónasson útvarpsmann til að aug- lýsa þessa peysu fyrir okkur og við seldum hana í þúsundatali. Ég hafði ágóðahlut af sölunni, fyrir utan launin hjá Rolf, og þeir aurar urðu grundvöllurinn að því að ég gat stofnað heildverslun með bróður mínum. Ég hafði mikinn áhuga á fötum í gamla daga og var áberandi í klæðaburði miðað við minn tíma. Colin Porter saumaði á mig föt, kragalaus, með öfuga vasa og alla vega. Ég hafði mjög gaman af að stússa í þessu á þessum tíma, en á seinni árum, eftir að ég varð feitur og fínn, hafa viðhorfín gagnvart fötum á sjálfan mig breyst svolítið, en það er önnur saga. Ég var sem sagt búinn að vera mikið í fatnaði, bæði hanna sjálfur og láta framleiða fyrir mig föt. Auk þess var ég umboðsmaður fyrir vinsælustu hljómsveit landsins á þeim tíma, Lúdó og Stefán. Það var því ekkert óeðlilegt að þetta tvennt gerði það að verkum að ég skynjaði poppbyltinguna mjög vel, sérstak- lega í fötum." Allt fyrir tóma heppni „En þegar við Nonni komum heim frá London höfðu kaupmenn almennt ekki trú á að þetta gengi. Guðlaugur Bergmann: „Lognmollan á ekki við mig.“ Við fengum næstum því að vera einir með þetta í þijú ár. Fyrsta daginn sem við höfðum opið, vorum við bara með karlmannaföt þar sem við náðum ekki kvenfötunum úr tolli fyrr en daginn eftir. Við opnuð- um á mánudegi, sem þótti nú ekki gott samanber máltækið „mánu- dagur til mæðu“. Og það má kannski segja að það hafí verið ákveðin mæða að reka þetta fyrir- tæki — alla vega hefur það ekki verið eintómur dans á rósum. En á þessum mánudegi seldum við fyrir 53 þúsund krónur, sem var mjög mikið á þeirra tíma verðlagi. Þetta var í maí og það sem eftir var árs- ins fór ég í átta innkaupaferðir til London. Þetta var sem sagt bullandi uppgangur strax í byijun og allt fyrir tóma heppni. Hugsaðu þér bara, að líta upp í loftið á þessu augnabliki á Regent Street og hvemig allt æxlaðist þar á eftir. Ef eitthvað er til sem heitir forlög, þá er víst að mér hefur verið ætlað að vera í þessum bransa. Stórfyrirtækið GUS Intemation- al hafði nýlega keypt þetta „Baker Warburg Division" á Regent Street og af einhveijum ástæðum höfðu þeir skrifað undir allar pantanir sem við gerðum, án þess að spyija nokkuð um hvort við ættum fyrir þessu eða hefðum meðmæli og veð. Það varð til þess að fjármálastjóri þessa stóra fyrirtækis, Mr. Hudson, gerði sér ferð til íslands til að kanna aðstæður. Bæði var pöntunin nokk- uð stór og eins vildi hann athuga hvort þessum mönnum væri treyst- andi. Vandinn var bara sá, að við vissum ekki hvemig við áttum að taka á móti honum. Við áttum hvorki flottan bíl né flotta skrifstofu og höfðum heldur ekkert sérstakt nafn á okkur í versluninni hér heima því það trúði enginn á okkur. Spum- ingin var hvort við ættum að reyna að láta hann halda að við væmm meiri en við vomm, eða koma til dyranna eins og við vomm klæddir. Við ákváðum að vera ekki með neina sýndarmennsku í þessu og það féll Mr. Hudson svo vel í geð að hann ákvað að bakka okkur algerlega upp. Hann treysti okkur í einu og öllu. Við þurftum því engar bankatryggingar eða þess háttar, og segja má að þar hafi heppnin komið okkur aftur til hjálpar. Ég hugsa alltaf með mikilli hlýju til þessa manns þegar ég lít til baka. Hann er einn af þeim mönnum, sem ég á mikið að þakka og ég gleymi honum aldrei, þótt ég hafí ekki hitt hann í 18 ár. Ég man að honum fannst íslendingar að mörgu leyti skrýtin þjóð, til dæmis að hér máttu menn drekka sig blindfulla af sterk- um vínum en ekki bragða bjór. En með aðstoð Mr. Hudson tókst okkur að koma fyrirtækinu af stað, og eins og ég sagði fengum við að vera að mestu í friði og sitja einir að þessu í þijú ár. Það þarf hins vegar ekkert að segja mönnum hvemig tískuverslanir hafa sprottið upp síðan og það sem menn sögðu þá að væri blaðra sem myndi springa er orðið að umfangsmikilli atvinnugrein.. Fijálsræðið á þessu sviði hefur farið vaxandi, bæði í tónlistinni og klæðaburðinum. En eins og skuggi fylgir sól hefur þessu fijálsræði í popptískunni fylgt skuggi eiturlyfjanna." Horfði upp á hroðalega hluti Hér er Guðlaugur kominn út í umræður sem hafa verið honum hugleiknar í gegnum ári'n, þótt nokkuð sé um liðið síðan hann hóf fyrst baráttu gegn eiturlyfjaneyslu ungs fólks. „Ég hef alltaf verið að burðast með einhveijar hugsjónir. Þar á meðal voru skemmtanimar með „fulltrúa ungu kynslóðarinnar" og svo eiturlyfjamálin. í rauninni er þetta tvennt nátengt sögu Karna- bæjar því þetta fylgdi þróuninni í popptískunni. Ég ákvað strax að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.