Morgunblaðið - 16.05.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1986
17
Kaup á einstaklingsíbúð:
Lágmarkslaun 28 þúsund til að
standa undir láni með 5% vöxtum
— er niðurstaða Stefáns Ingólfssonar hjá Fasteignamati ríkisins
EINSTAKLINGUR sem hefur sparað 20% kaupverðs
ibúðar og hefur um 20 þúsund krónur í mánaðarlaun á
erfitt með að kaupa 30—40 fermetra íbúð, þegar raun-
vextir eru 2,5%. Miðað er við að íbúðin kosti 800
þús.—1.000 þúsund krónur. Ef vextir eru 5% verður
hann að hafa 28 þúsund króna mánaðarlaun til að ráða
við kaupin.
Þessar upplýsingar koma fram
í útreikningum Stefáns Ingólfsson-
ar, hjá Fasteignamati ríkisins, og
Samtök áhugamanna um úrbætur
í húsnæðismálum hafa birt. Stefán
kannaði á hvaða verði viðkomandi
gæti mögulega keypt íbúð miðað
við ákveðnu hlutfalli af launum
væri varið til kaupanna og hvaða
áhrif tekjur og vextir hafa á kaup-
getu.
Sé miðað við að kaupandi eigi
ekki eign fyrir og að hann fái
verðtryggt vaxtalaust lán til 20
ára og hafi 250 þúsund krónur í
árslaun er kaupgeta hans áætluð
ein milljón króna. Kaupgetan
lækkar niður í 667 þúsund krónur
ef vextir eru 2,5% og niður í 500
þúsund krónur ef vextir eru 5%. A
töflu 1 er yfirlit yfir kaupgetu og
hvemig hún breytist eftir launum
ogvöxtum.
í töflu 2 er gert ráð fyrir að
viðkomandi hafi sparað 20% kaup-
verðs áður en hann kaupir og ef
hann hefur 20 þúsund krónur í
mánaðarlaun og vextir eru 2,5%
er kaupgeta hans 834 þúsund.
Kaupgetan lækkar um 209 niður
í 625 þúsund þegar vextir eru 5%.
Stefán kemst að þeirri niður-
stöðu að fólk með 20 þúsund króna
mánaðarlaun ráði við kaup á lítilli
einstaklingsíbúð ef vextir eru 2,5%
en hafi ekki bolmagn til íbúðar-
kaupa ef vextir eru 5%. Þannig
hafa vextir mikil áhrif á kaupgetu:
Miðað við 40 þúsund króna mánað-
arlaun er hægt að ráða við kaup
á 4 herbergja íbúð (2,5% vexti) og
3ja herbergja íbúð (5% vextir). Ef
mánaðarlaun eru 60 þúsund þá
hefur viðkomandi bolmagn til að
kaupa góða sérhæð (2,5% vextir)
en annars 5 herbergja íbúð (5%
vexti).
Kaupandi íbúðar sem fær lánað-
ar 500 þúsund krónur til 20 ára
greiðir 96,4 þúsund krónum meira
í vexti fyrstu tíu árin ef lánið ber
5% vexti í stað 2,5%. Þegar lán
ber 5% vexti greiðir lántaki fyrstu
10 árin 442,8 þúsund krónur en
346,4 þúsund krónur ef 2,5%
vextir eru á láninu.
Ef kaupandi þarf að greiða af
tveimur 500 þúsund króna lánum
vegna fasteignakaupa verður hann
að hafa 450 þúsund krónur í árs-
Kaupgeta og laun
Kaupgeta (vextir)
Árstekjur Greiðslug-eta 0% 2,5% 5,0%
250 þús. 20% 50 þús. 1.000 þús. 667 þús. 500 þús.
500 þús. 25% 125 þús. 2.500 þús. 1.667 þús. 1.250 þús.
750 þús. 25% 188 þús. 3.760 þús. 2.507 þús. 1.880 þús.
1.000 þús. 30% 300 þús. 6.000 þús. 4.000 þús. 3.000 þús.
Mánaðarlaun iaupgeta Mismunur
2,5% vextir 5,0% vextir
20 þús. 834 þús. 625 þús. 209 þús.
40 þús. 2.084 þús. 1.563 þús. 521 þús.
60 þús. 3.134 þús. 2.350 þús. 784 þús.
80 þús. 5.000 þús. 3.750 þús. 1.250 þús.
Kvenfálki matar 3 stálpaða unga í hreiðri.
lífsháttum þeirra og atferli, bæði í
máli og myndum.
Til viðbótar við framangreinda
14 meginkafla bókarinnar ritar
Hjálmar 6 kafla almenns eðlis og
flallar þar m.a. um fuglaljósmynd-
un. Bókinni fylgir og ritskrá, efnis-
atriðaskrá og skrá yfir fuglaheiti á
íslenzku ogerlendum málum.
Bókin er prentuð í Haarlem í
tekjur ef lánið er með 5% vöxtum
og 375 þúsund krónur á ári ef það
ber 2,5% vexti. Með öðrum orðum,
til þess að standa undir mismunin-
um á 5% og 2,5% vöxtum verður
viðkomandi að hækka í launum
um 20%.
Stefán reyndi einnig að meta
þann mismun sem hefur myndast
vegna misgengis launa og láns-
kjaravísitölu. Þar kemur fram að
þó vextir verði lækkaðir niður í
2,5% og laun hækkuð um 41%, og
verði jafn há að raunvirði og 1981,
þá hefur lántakinn beðið skaða sem
nemur 13,3% af upphaflegri áætl-
un. Hér er reiknað með 10 ára
láni, tekið 1981. Sé tekið mið af
samskonar láni og að vextir lækki
í 2,5% en laun leiðrétt á sama hátt
og þau hafa skerst frá árinu 1983
þá hefur lántakinn skaðast um
17,8% frá því sem upphaflega var
gert ráð fyrir.
Morgunblaðið/BAR
Sigurður Blöndal skógræktarstjóri og Gestur Ólafsson formaður
Lífs og lands gróðursetja fyrstu trjáplöntuna.
Gróðursett í góðviðrinu
gert á föstudag og laugardag. Ekki
verður gengið í hús heldur ætla
sölumenn að safna við fjölsótta
staði. Stefnt er að því að safna
þremur milljónum króna.
FÉLAGAR samtakanna Lif og
land gróðursettu í blíðskapar-
veðrinu í gær fjörutiu tré á
svæðinu við Suðurlandsbraut
milli Skeiðarvogs og Alfheima.
Samtökin gangast nú fyrir söfn-
un um land allt fyrir trjám til
gróðursetningar í höfuðborg-
inni.
Söfnunin er fólgin í barmmerkja-
sölu og verður lokaátak í henni
Trén, sem gróðursett voru í dag,
voru afrakstur söfnunnarinnar á
Patreksfirði, Siglufirði, Bessastaða-
hreppi, Garðabæ, Grindavík og
Höfn í Homafirði.
Borgarstjórnarkosningar 31. maí 1986
X-
Kosningaskrifstofur
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
Hollandi, en litgi-einingu ljósmynda
annaðist Prentmyndastofan hf. í
Reykjavík.
Bókina tileinkar Hjálmar R.
Bárðarson frænda sínum, Finni
Guðmundssyni, fuglafræðingi, sem
höfundur þakkar hvatningu til
fuglaljósmyndunar og fuglaskoðun-
ar. Einn kafli bókarinnar fjallar um
dr. Finn.
Nes- og Melahverfi
Hringbraut 119 (við hliðina á JL-hús-
inu), simi 16838.
Starfsmadur:
Arnar Ingólfsson.
Kosningastjóri:
Pétur Guðmundarson.
Vestur-og Miðbæjar-
hverfi
Kirkjuhvoll (2. hæð. Inngangur frá
Templarasundi), simi 18515.
Starfsmaður:
Brynhildur Andersen.
Kosningastjóri:
Sveinn Guðmundsson.
Austurbærog Norðtr-
mýri:
Kirkjuhvoll, 2. hæð. Inngangur frá
Templarasundi), simi 19255.
Starfsmaður:
Jórunn Friðjónsdóttir
Kosningastjóri:
Sigurður Haraldsson.
Hlíða- og Holtahverfi og
Háaleitishverfi
Valhöll, Hóaleitisbraut 1,
sími 688981.
Kosningastjórar:
Jóhann Gíslason og Gunnar
Guðmundsson.
Starfsmaður:
Helga Jóhannsdóttir.
Árbær og Seláshverfi
Ártúnsholt og Grafar-
vogur
Hraunbær 102B, simi 75611.
Kosningastjórar:
Anton Angantýsson.
Hreiðar Þórhallsson
Starfsmaður:
Ásta Gunnarsdóttir.
Laugarneshverfi
Valhöll, Háaleitisbraut 1, simi 688958.
Kosningastjóri:
Þórður Einarsson.
Starfsmaður:
Sigfinnur Sigurðsson.
Langholtshverfi
Langholtsvegur 124,
sími34814.
Kosningastjóri:
Gunnlaugur G. Snœdal.
Starfsmaður:
Kristinn Bjarnason.
Smáíbúða- Bústaða- og
Fossvogshverfi
Valhöll, Hóaleitisbraut 1,
sími 688978.
Kosningastjóri:
Karl F. Garðarsson.
Starfsmaður:
Árni Arnarson.
Bakka-og Stekkjahverfi
og Skóga- og Seljahverfi
við Þangbakka 3. hæð, við hliðina á
Viði i Mjóddinni.
Kosningastjórar-
Guðmundur Jónsson og Gísli
Júlíusson.
Starfsmaður:
Kristlaug Gunnlaugsdóttir.
Símar 78340-78383.
Hóla- og Feliahverfi
Við Þangbakka 3. hæð, við hliðlna á
Viði i Mjóddinni.
Kosningastjóri:
Helgi Árnason.
Starfsmaður:
Bertha Biering.
Kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins
í hverfum Reykjavíkur verða opnar fyrst
um sinn frá kl. 17—22 virka daga og frá
kl. 13—17 um helgar.
Stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins
Hafið samband við skrifstofurnar, þar eru stjórnar-
menn til staðar ásamt starfsmönnum. Komið og fáið
ykkur kaffisopa.
Hittið frambjóðendur
að máli
Snúið ykkur til kosningaskrifstofanna ef þið óskið eftir
að hitta frambjóðendur, fá þá í heimsókn eða ef þið
viljið að þeir hringi i ykkur.