Morgunblaðið - 16.05.1986, Side 30
30 MORGÚNBLAÐIÐ, FÓSTÚDÁGUR lé. MAÍ1986
Fréttabréf úr Bjarnarfirði;
Kalt vor á Ströndum
Klúkuskóli 40 ára
Bjaraarfírði.
Það hafa ýmsir góðir gestir
verið hér á ferð á vordögum,
ekki bara lóan. Þar má nefna
Leikfélag Patreksfjarðar og svo
forsætisráðherra landsins.
Þó svo veður hafí verið kalt hér
um slóðir, mest norðlægur næðing-
ur og næturfrost, þá hafa farfuglar
■komið og glatt með söng sínum.
Það gerðu einnig Lóuþrælar og
fleiri söngvarar úr Vestur-Húna-
vatnssýslu. Héldu þeir söng-
skemmtun á Hólmavík, við fögnuð
heimamanna. __
Þá varð Lionsklúbbur Hólmavík-
ur 25 ára nú seinni part vetrar og
var þá slegið upp fagnaði fyrir
meðlimi og gesti þeirra. Minnst var
gleðistunda liðinna ára og ýmsra
þeirra afreka er unnin hafa verið.
Þann 12. maí er svo Klúkuskóli
að Laugarhóli 40 ára gamall.
Minntist skólastjóri þess í langri
tölu við skólalok og rakti sögu skól-
ans, tilurð hans sem sérstakrar
stoftiunar og lífsbaráttu. Mættu
foreldrar allra þeirra barna er nú
eru í skólanum og ýmsir velunnarar.
Hófst athöfnin með messu. Séra
Baldur Rafn Sigurðsson, nýkjörinn
sóknarprestur, messaði í íþróttasal
skólans. Að messu lokinni flutti
skólastjóri erindi sitt og afhenti síð-
an einkunnir og kveðjugjafír þeim
nemendum er Ijúka námi við skól-
ann á þessu ári. Loks settust svo
allir að kaffídrykkju af tilefni dags-
ins. Við guðsþjónustuna söng kór
barna úr skólanum undir stjóm
skólastjóra.
Klúkuskóla var í vetur breytt í 8
mánaða skóla. Einnig er þetta fyrsti
veturinn sem skólinn er rekinn sem
heimanakstursskóli. Gekk akstur-
inn vel í vetur og þurftu nemendur
aldrei að búa í heimavist skólans.
Þá var einnig hægt að nota sund-
laug skólans nærri því í hverri viku,
allan veturinn. Það var samkvæmt
tillögu skólastjórans á Drangsnesi,
á almennum borgarafundi í Kaldr-
ananeshreppi, 12. maí 1946, að
stofnað var til skólahalds í Bjamar-
firði syðra í Strandasýslu. Var skól-
inn rekinn með farkennslufyrir-
komulagi fram til 1950, að kennsla
hófst í skála sundfélagsins Grettis
við Gvendarlaug að Klúku. 1961
var svo hafín kennsla í nýjum
kennarabústað er byggður hafði
verið á staðnum. Tíu árum síðar
flyst svo kennslan í bygginguna
Laugarhól, sem vígð er til notkunar,
13. ágúst 1972. Er þar allt í senn,
skóli félagsheimili og sumarhótel.
Nokkuð er síðan lóan kom, en
einnig hefir þröstur, grágæs og
aðrir sumargestir flykkst á túnin
og holtin hér undanfarið, þrátt fyrir
kuldann. Veturinn hefír verið ein-
dæma snjóléttur, en miklar hálkur.
í þessari viku er sauðburður að
hefjast af fullum krafti. Þá er
nokkuð síðan grásleppuvertíðin
hófst. Þar hefír þó afraksturinn
ekki farið eftir erfíðinu. Hefír veiði
verið lítil. Verkar þar margt saman.
M.a. hefir verið svo hvasst að bát-
amir hafa ekki komist út til að vitja
um netin, dögum saman. Er þetta
mjög bagalegt, því að netin fyllast
af þara og þurfa hreinsunar við
eftir hvert veður.
Leikfélag Patreksflarðar kom í
heimsókn og sýndi leikritið Leyni-
mel 13 eftir Þrýdrang hér á Laugar-
hóli við húsfylli. Einnig sýndu þeir
leikritið í Sævangi. Var þessum
gestum vel tekið. Eru leikfélags-
meðlimir frá Patreksfírði að verða
fastir vorgestir hér um slóðir og
sífellt velkomnir.
Forsætisráðherra, sem er þing-
maður kjördæmisins, kom hér einn-
ig í heimsókn og hélt fundi í hrepp-
um sýslunnar. Vom þeir vel sóttir.
Prestkosningar fóm fram hér 27.
apríl. Séra Baldur Rafn Sigurðsson,
sem er yngsti starfandi sóknar-
prestur í landinu, var einn í fram-
boði og hlaut hann lögmæta kosn-
ingu.
í hönd farandi sveitarstjómar-
kosningar hafa ekki ruglað hrepps-
búa neitt í ríminu ennþá. Engir
framboðslistar hafa komið fram og
verða þetta því óhlutbundnar kosn-
ingar. Menn verða að kjósa menn
og konur sem þeir treysta best til
starfsins, hvar í flokki sem þau
standa. Langt er orðið síðan óhlut-
bundin kosning hefír farið fram í
hreppnum. Oftast hefir aðeins verið
einn listi í framboði og því sjálfkjör-
inn. Þess má geta að á Hólmavík
hafa t.d. komið fram fleiri listar til
sveitarstjómar, meðan hér er allt
með spekt ennþá í þessum efnum.
Brátt fer að hefjast bygging
sundskýla við Gvendarlaug, verður
byggingu þeirra vonandi lokið á
þessu sumri. Þá hefír verið ákveðið
að koma upp nýrri kyndingu við
Laugarhólshúsið þar sem jarðvarm-
inn umhverfís er notaður f stað
þess að kynda upp vatn með raf-
magni. Má með þessu móti spara
hátt í 200 þús. kílóvattstundir á ári.
Fréttaritari
Pening’amarkaðurinn,
GENGIS-
SKRANING
Nr. 89 - 15 maí 1986
Kr. Kr. Toll-
Ein.KL09.15 Kanp Sala gengi
Dollari 40,500 40,620 40,620
SLpund 62430 62414 62439
Kan.dollari 29,445 29432 29,387
Dönskkr. 5,0008 5,0156 5,0799
Norskkr. 5,4228 5,4388 54976
Senskkr. 5,7378 5,7548 5,8066
FLmtrk 8,1285 8,1525 84721
Fr.franki 54002 54174 54959
Belg. franki 0,9062 0,9089 0,9203
Sr.rranki 224466 224126 22,4172
HolL gyllini 16,4127 16,4613 16,6544
y-jr.mark 18,4991 184539 18,7969
iLlíra 0,02696 0,02704 0,02738
Austurr.sch. 2,6335 2,6413 2,6732
PorLescudo 04765 04773 04831
Sp.peseti 04913 04921 04947
Jap.yen 044809 044882 044327
Irsktpund 56424 56491 57,112
SDR(SéreL 47,7707 47,9122 47,9727
INNLÁNSVEXTIR:
Sparísjóðsbækur
Landsbankinn....... ........ 9,00%
Útvegsbankinn................ 8,00%
Búnaðarbankinn....... ...... 8,50%
Iðnaðarbankinn...... ........ 8,00%
Verzlunarbankinn..... ....... 8,50%
Samvinnubankinn...... ....... 8,00%
Alþýöubankinn................ 8,50%
Sparisjóðir...................8,00%
Sparísjóðsreikningar
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 10,00%
Búnaðarbankinn............... 9,00%
lönaöarbankinn................8,50%
Landsþankinn................ 10,00%
Samvinnubankinn...... ...... 8,50%
Sparisjóöir.................. 9,00%
Útvegsbankinn................ 9,00%
Verzlunarbankinn............. 10,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýöubankinn................ 12,50%
Búnaðarbankinn............... 9,50%
Iðnaðarbankinn.............. 11,00%
Samvinnubankinn............ 10,00%
Sparisjóðir................. 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Verzlunarbankinn............. 12,00%
með 12 mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................14,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Útvegsbankinn............... 12,60%
Verðtryggðir reikningar
miðað við lánskjaravfsitöiu
með 3ja mánaða uppsögn
Alþýðubankinn................ 1,00%
Búnaðarbankinn...... ........ 1,00%
Iðnaðarbankinn............... 1,00%
Landsbankinn....... ....... 1,00%
Samvinnubankinn...... ....... 1,00%
Sparisjóðir.................. 1,00%
Útvegsbankinn................ 1,00%
Verzlunarbankinn..... ..... 1,00%
með 6 mánaða uppsögn
Alþýöubankinn................ 3,00%
Búnaðarbankinn...... ...... 2,50%
lönaöarbankinn............... 2,50%
Landsbankinn................. 3,50%
Samvinnubankinn ....... ..... 2,50%
Sparisjóðir.................. 3,00%
Útvegsbankinn................ 3,00%
Verzlunarbankinn............. 3,00%
með 18 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn.............. 7,50%
með 24 mánaða uppsögn:
Samvinnubankinn...... ....... 8,00%
Að loknum binditima 18 mánaða og
24 mánaða verðtryggðra reikninga
Samvinnubankans er innstæða laus
tvisvar á ári eins og á 6 mánaða reikn-
ingum.
Ávísana- og hlaupareiknlngar
Alþýðubankinn
- ávísanareikningar.........6,00%
- hlaupareikningar......... 3,00%
Búnaðarbankinn............. 2, 50%
Iðnaðarbankinn...... ...... 3,00%
Landsbankinn....... ....... 4,00%
Samvinnubankinn............... 4,00%
Sparisjóðir................ 3,00%
Útvegsbankinn.............. 3,00%
Verzlunarbankinn1 )........ 3,00%
Eigendur ávísanareikninga í Verzlun-
arbankanum geta samið um ákveðna
lágmarksinnstaeðu á reikningi sínum og
af henni eru reiknaðir almennir spari-
sjóðsvextir auk uppbótar.
Stjömureikningar
Alþýðubankinn')............ 8-9,00%
Alþýöubankinn býður þrjár tegundir
Stjörnureikninga og eru allir verð-
tryggðir. i fyrsta lagi eru reikningar fyrir
ungmenni yngri en 16 ára, með 8%
vöxtum. Reikningurinn er bundinn þar
til eigandinn hefur náð 16 ára aldri. í
öðru lagi eru reikningar fyrir aldraða —
lífeyrisþega — með 8% vöxtum. Upp-
sagnarfrestur er mismunandi eftir aldri
eiganda, 3 til 9 mánuðir. Vextir og
verðbætur eru lausar til útborgunar í
eitt ár. Þá eru þriggja Stjömureikningar
með 9% vöxtum. Hver innborgun er
bundin í tvö ár. Vextir og verðbætur
eru lausar til útborgunar í eitt ár.
Afmælisreikningur
Landsbankinn............... 7,25%
Afmælisreikningur Landsbankans er
bundinn í 15 mánuði og ber 7,25%
vexti og er verðtryggður. Innstæða er
laus i tvo mánuði eftir að binditíma lýk-
ur. Heimilt er að leggja inn á reikninginn
til31.desember1986.
Safnlán - heimilistán - IB-tán - plústán
með 3ja til 5 mánaða bindingu
Alþýðubankinn............... 10-13%
lönaðarbankinn..... ......... 8,50%
Landsbankinn.................10,00%
Sparisjóðir.................. 9,00%
Samvinnubankinn...............8,00%
Útvegsbankinn.................9,00%
Verzlunarbankinn............ 10,00%
6 mánaða bindingu eða lengur
Alþýðubankinn............... 13,00%
Iðnaðarbankinn..... ......... 9,00%
Landsbankinn................ 11,00%
Sparisjóðir ....'........... 10,00%
Útvegsbankinn............... 10,00%
Innlendir gjaldeyrísreikningar:
Bandarfkjadoliar
Alþýðubankinn................ 7,50%
Búnaðarbankinn............... 6,00%
Iðnaðarbankinn............... 6,00%
Landsbankinn....... ......... 6,00%
Samvinnubankinn...... ....... 6,50%
Sparisjóðir................. 6,25%
Útvegsbankinn................ 6,25%
Verzlunarbankinn............. 6,50%
Steríingspund
Alþýðubankinn.............. 11,50%
Búnaðarbankinn..... ........ 9,50%
Iðnaðarbankinn...............9,00%
Landsbankinn....... ........ 9,50%
Samvinnubankinn............ 10,00%
Sparisjóðir................. 9,50%
Útvegsbankinn.............. 10,00%
Verzlunarbankinn........... 10,50%
Vestur-þýsk mörk
Alþýðubankinn............... 4,00%
Búnaðarbankinn..... ........ 3,50%
Iðnaðarbankinn............ 3, 50%
Landsbankinn...... ....... 3,50%
Samvinnubankinn..... ....... 3,50%
Sparisjóðir................. 3,50%
Útvegsbankinn............... 3,50%
Verzlunarbankinn.......... 3,50%
Danskarkrónur
Alþýðubankinn............... 8,00%
Búnaðarbankinn.............. 7,00%
Iðnaðarbankinn..... ........ 7,00%
Landsbankinn...... ....... 7,00%
Samvinnubankinn..... ....... 7,50%
Sparisjóðir................. 7,00%
Útvegsbankinn............... 7,00%
Verzlunarbankinn.... ....... 7,00%
ÚTLÁNSVEXTIR:
Almennirvixlar(forvextir). 15,25%
Skuldabréf, almenn............... 15,60%
Afurða- og rekstraríán
í íslenskum krónum... .... 15,00%
í bandaríkjadollurum........ 8,25%
í sterlingspundum .'....... 111,5%
í vestur-þýskum mörkum.... 6,00%
ISDR........................ 8,00%
Verðtryggð lán miðað við
lánskjaravísitölu
íalltaö 2V2ár.................. 4%
lenguren 2'Aár................. 5%
Vanskilavextir................ 27%
Óverðtryggð skuldabréf
útgefin fyrir 11.08. '84. 15,50%
Skýringar við sérboð
in nlánsstof nana
Landsbankinn: Ársvextir af Kjörbók eru
13,0% — ávöxtun hækkar eftir því sem inn-
stæða er lengur óhreyfð. Á þriggja mánaða
fresti er ávöxtun Kjörbókar borin saman við
ávöxtun á sex mánaða verðtryggðum reikning-
um og sú ávöxtun valin sem reynist hærri.
Vextir eru reiknaðir tvisvar á ári á höfuðstól.
Kjörbók er óbundinn reikningur, en frá út-
borgaðri fjárhæð dregst 0,7% gjald en þó
ekki af vöxtum liöins árs.
Útvegsbankinn: Ábót er óbundinn reikning-
ur. Borin er saman ávöxtun á óverðtryggðum
reikningum og þriggja mánaða verðtryggðum
reikningum og hærri ávöxtunin valin. Ef inn-
stæða hefur verið hreyfð, reiknast almennir
sparisjóðsvextir á reikninginn. Vextir eru færð-
ir einu sinni á ári á höfuðstól, en verðbætur
bætast við höfuðstól ef ávöxtun þriggja mán-
aöareikningaervalin.
Búnaðarbankinn: Gullbók ber 13,0% vexti
á ári — ávöxtun fer hækkandi eftir því sem
innstæða er lengur óhreyfð. Gerður er saman-
burður við ávöxtun þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og ef hún er betri er hún
valin. Vextir eru færðir tvisvar á ári á höfuð-
stól. Ef tekið er út af reikningnum er reiknað
0,75% úttektargjald og er það dregið frá áunn-
umvöxtum.
Metbók Búnaðarbankans er bundinn reikning-
ur til 18 mánaða. Hverju innleggi er hægt að
segja upp með 18 mánaða fyrirvara. Vextir
eru lausir til útborgunar í 6 mánuði. Nafn-
vextir eru 14.50% og höfuðstólsfærslur vaxta
tvisvar á ári. Gerður er samanburður á ávöxtun
6 mánaða verðtryggðra reikninga og Met-
bókar. Ávöxtun Metbókar er aldrei lakari en
ávöxtun 6 mánaða reikninga.
Verziunarbankinn: Kaskóreikningur. Þá
ársfjórðunga (jan.-mars o.s.frv.) sem inn-
stæða er óhreyfð eða einungis ein úttekt (eftir
að lausir vextir hafa verið teknir út) fylgja
vextir þeim sparifjárreikningum bankans sem
hæsta ávöxtun gefa. Af úttekinni fjárhæð
reiknast almennir sparisjóðsvextir. Innstæða
á Kaskóreikningi, sem stofnaður er í siðasta
lagi á öðrum degi ársfjórðungs og stendur
óhreyfð út ársfjórðunginn nýtur Kaskókjara
með sama hætti og innstæða á Kaskóreikningi
sem til hefur verið heilan ársfjórðung og fær
hlutfallslegar verðbætur m.v. dagafjölda i
innleggsmánuði. Stofninnlegg siðar á ársfjórð-
ungi fær hæstu ávöxtun i lok þess næsta á
eftir sé reikningurinn i samræmi við reglur um
Kaskókjör. Ef fteiri en ein úttekt er á ársfjórð-
ungi, eftir aö lausir vextir hafa verið teknir út,
fær reikningurinn almenna sparisjóðsvexti.
Vextir og verðbætur leggjast við höfuðstól í
lok hvers ársfjórðungs hafi reikningurinn notið
Kaskókjara. Vextir eru ávallt lausir og úttekt
vaxta skerðir aldrei Kaskókjör.
Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur. Eftir
þvi sem innstæða er lengur óhreyfð reiknast
hærri vextir. Fyrstu tvo mánuði 8% vextir,
eftir tvö mánuði 8,25%, eftir þrjá mánuði 8,5%
o.s.frv. uns innstæða hefur verið óhreyfð í 6
mánuði þá reiknast 12% vextir. Frá og með
12 mánuöum eru vextir 12,5% og frá og með
18 mánuðum 13%. Aunnar vaxtahækkanir
reiknast alltaf frá því að lagt var inn. Vaxta-
færsla á höfuðstól er einu sinni á ári.
Alþýðubankinn: Sérbók ber allt að 16%
vexti en vextir hækka eftir því sem innstæða
er lengur. Hver innstæða er meðhöndluð sér-
staklega. Höfuðstólsfærslur vaxta eru fjórum
sinnum á ári. Þá ereinnig gerðursamanburður
á ávöxtun Sérbókar og þriggja mánaða verð-
tryggðra reikninga og sú hagstæðari valin.
Sparísjóðir: Trompreikningar eru verð-
tryggðir og bera auk þess grunnvexti 6 mán-
aða verðtryggðra reikninga. Vextir eru færðir
á höfuðstól fjórum sinnum á ári. Hreyfðar
innstæður innan mánaðar bera sérstaka
Trompvexti 12,5% ef innstæða hefur verið
óhreyfð i þrjá mánuði eða lengur, en annars
almenna sparisjóðsbókarvexti. Sparisjóður
vélstjóra er einnig með Sparibók, sem er
bundin í 12 mánuði og eru vextir 15,5%.
Ávöxtun er borin saman við ávöxtun á sex
mánaða verðtryggðum reikningum og sú
hagstæöari valin. Þá bjóða Sparisjóður
Reykjavlkur og nágrennis, og Sparisjóðir
Kópavogs, Hafnarfjarðar, Sparisjóður Mýrar-
sýslu og Sparisjóöurinn i Keflavik svokallaða
toppbók. Þetta er bundinn reikningur í 18
mánuði og er þá laus í einn mánuð, þá binst
innistæðan á ný og er laus til útborgunar í
einn mánuð á sex mánaða fresti. Vextir eru
14.50% og eru færðir á höfuðstól tvisvar á
ári. Ávöxtun Toppbókar er borin saman við
ávöxtun sex mánaða verðtryggðra reikninga
og sú hagstæðari valin.
Iðnaðarbankinn: Bónusreikningur er óverð-
tryggður reikningur og ber 3% vexti. Óverð
tryggð Bónuskjör eru 10,5% á ári. Mánaðar-
lega eru borin saman verðtryggð og óverð-
tryggð bónuskjör og ávöxtun miðuð við þau
kjör sem eru hærri á hverjum tíma. Hreyfðar
innstæður bera sérstaka vexti. Vextir eru
færðir á höfuðstól tvisvar á ári. Heimilt er að
taka út tvisvar á hverju sex mánaða timabili.
Lífeyrissjóðslán:
Lifeyrisajéður starfsmanna riklslns:
Lánsupphæð er nú 500 þúsund krónur og er
lániö vísitölubundið með lánskjaravísitölu, en
ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár,
en getur verið skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörieg,
þá getur sjóðurinn stytt lánstímann.
Greiðandi sjóðsfélagar geta sótt um lán úr
lífeyríssjóðnum ef þeir hafa greitt iðgjöld til
sjóðsins i tvö ár og tvo mánuöi, miðaö við
fullt starf. Biðtími eftir láni er fjórir mánuöir
frá því umsókn berst sjóðnum.
Lffeyrissjóður varzjunarmanna:
Lánsupphæð er nú, eftir a.m.k. 3ja ára aðild
að lífeyrissjóðnum og fimm árum eftir síðustu
lántöku, 150.000 krónur.
Höfuðstóll lánsins er tryggður með láns-
kjaravísitölu, en lánsupphæðin ber nú 5%
ársvexti. Lánstíminn er 3 til 5 ár að vali lántak-
anda.
Lánskjaravísitala fyrir maí 1986 er 1432
stig en var 1428 stig fyrir apríl 1986. Hækkun
milli mánaðanna er 0,28%. Miðað er við vísi-
töluna 100íjúní 1979.
Byggingavísrtala fyrir apríl til júni 1986 er
265 stig og er þá miðað við 100 í janúar 1983.
Handhafaskuldabréf i fasteignaviðskipt-
um. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%.
Sérboð Nafnvextir m.v. óverðtr. verðtr. Verðtryga. Höfuðstóls feersl.
Óbundlðfó kjör kjör tímabil vaxta á ári
Landsbanki, Kjörbók: 1) ?—13,0 3.5 3mán. 2
Útvegsbanki, Ábót: 8-13,0 1,0 1 mán. 1
Búnaðarb., Gullbók 1) ?—13,0 1,0 3mán. 2
Verzlunarb., Kaskóreikn: 8,5-12,0 3,0 3mán. 4
Samvinnub., Hávaxtareikn: 8-13,0 1-2,5 3mán. 1
Alþýðub., Sérvaxtabók: 10-16,0 1,0 4
Sparisjóðir.Trompreikn: Bundiðfé: 12,5 3,0 1 mán. 2
Búnaðarb., Metbók: 14,50 3,5 6mán. 2
Iðnaðarbanki, Bónus: 10,5 3,0 1 mán. 2
Sparisj. vélstj: 15,5 3,0 6mán. 1
1) Vaxtaleiörótting (úttektargjald) er 0,75% hjá Búnaðaörfoanka og 0,7% í Landsbanka.