Morgunblaðið - 16.05.1986, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR16. MAÍ1986
Árni Árnason framkvæmdastjóri
Verzlunarráðs Islands:
Afkoma fyrirtækja
líklega betri í ár en
var á síðasta ári
VERZLUNARRÁÐ íslands hefur ekki kannað sérstaklega afkomu
fyrirtækja á síðasta ári, en staðfestir þó að hún hafi verið slæm.
Arni Amason, framkvæmdastjóri Verzlunarráðsins, segir ýmsa þætti
hafa valdið verri afkomu en búizt var við. Aukinn stöðugleiki í
verðlagi i ár valdi þvi að líkur verði á betri afkomu þetta ár.
„Verðbólga á árinu varð meiri
eiygert var ráð fyrir, kauphækkanir
urau miklu meiri en stefnt var að
í upphafí ársins," sagði Ámi. „Kaup
hækkaði bæði um mitt ár og síðan
í október. Vegna Qárhagsstöðu rík-
issjóðs voru raunvextir mjög háir.
Greiðsluerfíðleikar voru töluverðir
og þar gekk ríkissjóður á undan.
Mörg fyrirtæki áttu í greiðsluerfíð-
leikum og söfnuðu þar af leiðandi
dráttarvöxtum. í mörgum greinum
var töluverður samdráttur. Allt
þetta hefur þau áhrif að árið kemur
illa út fyrir atvinnurekstur. Ein-
staka greinar bættu þó stöðu sfna,
eins og útgerð, og má segja að tími
hafí verið til kominn. Við höfum
ekki athugað þetta, en það sem við
höfum séð af reikningum fyrir-
tækja, styður það, sem Jónas Har-
alz hefur sagt og jafíiframt tilfinn-
ingu okkar.
Á þessu ári verður vonandi meiri
stöðugleiki á verðlagi en í fyrra.
Lækkandi olíuverð kemur sér vel í
sumum greinum. Samkeppni er
ennþá mikil og engar stórbreyting-
ar hafa orðið til hins betra, en
stöðugleikinn gerir mönnum betur
kleift að takast á við breytingar og
hagræðingu í rekstri. Vegna þess
er búizt við því að árið í ár verði
betra, en vextir eru og verða háir
meðan ríkissjóður er rekinn með
halla,“ sagði Ami Ámason.
Morgunblaðið/Matthías
Strákagöng:
Hættaafhruni grýlukerta
NOKKUR brögð hafa veríð að
því að undanförnu að stór grýlu-
kerti hafa hrunið úr lofti Stráka-
ganga við Siglufjörð.
Guðni Sveinsson, lögreglumaður
á Siglufirði, sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði nýlega
komið að stómm klakastykkjum,
sem hmnið höfðu á veginn í
göngunum og hefði þá verið gengið
í að hreinsa grýlukerti úr göngun-
um. Sum þeirra hefðu verið allt upp
Óheimilt er
að tjalda í
Þórsmörk
um helgina
Morgunblaðinu hefur boríst
eftirfarandi tilkynning:
Ekki er hægt að heimila fólki að
tjalda í Þórsmörk, né á leiðinni
þangað, vegna ástands gróðurs.
Umferð þangað er óheimil um
hvítasunnuna, öðmm en þeim sem
geta sýnt að þeir eigi vísa gistingu
í skálum á svæðinu.
Sýslumaður Rangárvallasýslu,
Skógrækt ríkisins,
Oddviti Vestur-Eyjafjalla-
hrepps.
í metri á lengd og því ljóst að hætta
gæti stafað af þeim, ef bílar eða
menn yrðu fyrir. Á meðfylgjandi
mynd, sem fréttaritari Morgun-
blaðsins á Siglufirði tók nýverið,
má sjá grýlukerti hanga úr lofti í
Strákagöngum.
Morgunblaðíð/Júlfus
Auður Ingólfsdóttir hótelstjórí og Ingólfur Pétursson sem hefur yfirumsjón með rekstrí Hótel Valhallar.
Hótel Valhöll rekin af
Ferðaskrifstofu ríkisins
Hótelið var opnað í þessari viku
FERÐASKRIFSTOFA ríkisins hefur tekið yfir rekstur Hótel Val-
hallar á Þingvöllum og rekur hótelið í fyrsta sinn í sumar. Auður
Ingólfsdóttir hefur veríð ráðin hótelstjórí en hún hefur veríð hótel-
stjórí á Hótel Bifröst undanfarin suraur. Yfirumsjón með rekstrínum
hefur Ingólfur Pétursson. Hann starfaði sem forstöðumaður Eddu-
hótelanna siðastliðin 10 ár.
Valhöll var formlega opnuð nú í
vikunni og í tilefni þess var starf-
semin kynnt fréttamönnum.
í hótelinu eru 30 nýleg tveggja
manna herbergi sem öll eru með
baði. Auk þess eru þrír veitingasalir
og stórt útigrill í bakgarðinum þar
sem einnig eru borð og bekkir fyrir
matargesti. Stærsti salurinn rúmar
150 til 200 manns. Boðið verður
upp á fjölbreyttan matseðil og að
sögn Auðar Ingólfsdóttur hótel-
stjóra er verðið samkvæmt því. Hún
sagði að áhersla verði lögð á vand-
aðan mat og vandaða þjónustu. í
Valhöll væri góð aðstaða til alls
kyns veisluhalda og móttöku hópa.
Þess má geta að í sumar býður
hótelið upp á sértilboð á gistingu
og mat í miðri viku.
Hótel Valhöll starfrækir báta-
leigu og þar er einnig hægt að
kaupa veiðileyfí í Þingvallavatni.
Þá verður boðið upp á gönguferðir
á hvetjum degi í fylgd með séra
Heimi Steinsson þjóðgarðsverði ef
næg þátttaka fæst.
Valhöll verður opin eitthvað fram
á haustið, að minnsta kosti til 20.
september.
Akureyri:
Fjölbreyttir burtfarartónleik-
ar á sal Tónlistarskólans
Akureyri.
AÐALHEIÐUR Eggertsdóttir og
Hólmfríður Þóroddsdóttir halda
sameiginlega tónleika I sal Tón-
listarskólans á Akureyrí á morg-
un, laugardag 17. maí, og hefjast
þeir kl. 14.00.
©
INNLENT
Báðar eru stúlkumar að Ijúka
tónlistamámi við Tónlistarskólann,
Aðalheiður á píanó og þverflautu,
en Hólmfríður á óbó. A efnisskránni
eru: Prelúdía og fúga eftir Bach,
Impromtu op 142 eftir Schubert,
Palichinella eftir Rachmaninoff
fyrir píanó. Sónata eftir Vivaldi
fýrir óbó og Ungverska fantasían
eftir Doppels fyrir flautu og píanó.
í Kvartett eftir Mozart leika auk
Hólmfríðar þau Lilja Hjaltadóttir á
fíðlu, Agnes Smáradóttir á lágfiðlu
og Hulda Björk Garðarsdóttir á
selló. Kristinn Öm Kristinsson leik-
ur á píanó í einu tónverkanna.
Þær Aðalheiður og Hólmfríður
ljúka nú mikilvægum áfanga í sínu
tónlistamámi með fjölbreyttum og
athyglisverðum tónleikum.
Áðgangur er ókeypis.
Þórður Ásgeirsson, forstjórí OLÍS:
„Því hærri oktantala —
þeim mun betra benzín4í
Vegna frétta í útvarpinu og DV
í dag bið ég Morgunblaðið að birta
eftirfarandi athugasemdin
1. Það er hrein hártogun að tala
um að 97,1 oktan benzín sé ekki
gæðabenzín vegna þess að er-
lendis þurfí benzír. að vera 98
oktan til að kallast „super".
Þetta er mismunandi eftir lönd-
um, en alls staðar mun 97,1
oktan flokkast undir það sem
kallað er „premium". Því hærri
oktantala þeim mun betra benz-
ín.
2. Það er blekking þegar talsmenn
Skeljungs og Olíufélagsins segja
að 97 oktan benzín hafí verið
til sölu hjá þeim að undanfömu.
Þetta benzín þeirra hefur verið
blandað með svo miklu magni
af 93 oktan benzíni að áhrifa
þess gætir sáralítið eins og Vil-
hjálmur Jónsson, forsljóri Olíu-
félagsins, segir raunar í viðtali
við DV í dag.
3. Samkvæmt samningi, sem öll
olíufélögin gerðu við FÍB 20.
september 1985, ber þeim
skylda til að auðkenna á greini-
legan hátt á öllum benzíndælum
oktaninnihald þess benzíns, sem
afgreitt er frá dælunni. Þetta
hefur OLÍS gert þannig að á
öllum OLÍS-stöðvum, sem selja
annað en hið hefðbundna 93
oktan benzín, eru allar dælur
greinilega merktar, 97 oktan eða
93 oktan. Hin olíufélögin hafa
ekki staðið við gerða samninga
við FÍB og þeirra viðskiptavinir
vita ekki, hvað þeir eru að kaupa
eða hafa verið að kaupa, enda
hafa hvorki Olíufélagið né Skelj-
ungur látið nokkuð uppi um
blöndunarhlutföllin né heldur á
hvaða stöðvum er blandað benz-
ín og á hveijum ekki.
Reykjavík 15. maí.
Þórður Ásgeirsson,
forstjórí OLÍS.
Vinsældalisti rásar 2:
Tvö efstu
sætin
óbreytt
GLEÐIBANKINN heldur enn
fyrsta sæti á vinsældalista rásar
2 þessa viku og J’amie La Vie
með Söndru Kim er í öðru sæti.
Sænska lagið úr Evrópu-söngva-
keppninni sækir á, var í tuttug-
asta sæti en er nú komið i sjötta.
Tíu efstu lögin á listanum þessa
vikuna eru:
1. (1) Gleðibankinn - Icy-flokk-
urinn
2. (2) J’aime La Vie - Sandra
Kim
3. (10) Why Can’t This Be Love
- Van Halen
4. (4) Brother Louie - Modem
Talking
5. (3) Fright Night - J. Geils
Band
6. (20) E’ de’ det hár du kallar
kárlek - Lasse Holm og Monica
Tömell
7. (6) AU The Things She Said
- Simple Minds
8. (9) Look Away - Big Country
9. (17) LivingDoll - Cliff Richard
and The Young Ones
10. (27) Your Love - The Out-
fíeld.