Morgunblaðið - 15.06.1986, Qupperneq 14
14 B
99
Nútímakonan erá
hraðri ferð, alltaf að
flýta sér. Hún er að
hlaupa ívinnuna og
ekur bíl svo að henni
hentarsportleg hár-
greiðsla
44
99
Þegar húnfer útá
kvöldin vill hún samt
geta verið glæsileg
og setur sig í stelling-
artil að vera aðlað-
andi
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR15. JÚNÍ 1986
verðurað koma tilmóts við hraða
lifnaðarhætti nútímakvenna
segir Maurice Franck, listráðunautur heimssamtaka ICD
Um leið og Maurice Franck, vara-
forseti og listaráðunautur heims-
samtakanna Intercoiffure, var kom-
inn til landsins í allri rigningunni og
drunganum á miðvikudagskvöldið
vildi hann hitta íslensku sýningar-
stúlkurnar fimm, sem eiga í dag að
sýna frönsku hátískuna í lok Norður-
landaþings samtakanna á Broad-
way. Þetta sýnir e.t.v. vel að fræg-
asta og þjálfaðasta fólkið á þessu
sviði kastar ekki til höndunum þegar
um sýningar er að ræða. Kannski
einmitt þessvegna sem það heldur
sæti sínu á toppinum og eykur hróð-
ursinn.
Maurice Franck hafði fyrir löngu
fengið nákvæm mál af íslensku sýn-
ingarstúlkunum fimm, valið og látið
lagfæra þennan dýra hátískufatnað
á þær. Eftir Ijósmyndum af þeim
hafði hann svo skapað hárgreiðslur
á hverja fyrir sig og við flíkurnar og
búið til ýmiskonar hárskraut og
toppa fyrirfram. Og nú var hann
spenntur að sjá stúlkurnar sjálfar
með eigin augum, þótt þrír dagar
væru til stefnu meðan þingið er á
Laugarvatni. Og daginn fyrir sýn-
ingu vildi hann fá góðan tíma til að
þjálfa stúlkurnar á staðnum og
samræma framkomu þeirra við tón-
listina, sem gerð hefur verið við
hvert atriði. Viðhorfið til slíkra sýn-
inga á hátískufatnaði og viðeigandi
hárgreiðslum er að það sé listgrein
og framleiðslan vandaður listiðnað-
ur, sem verði að gera háar kröfur
til. Sjálfur ætlar hann að ganga frá
greiðslunum á sviðinu. Til að vel
megi til takast hefur hann með sér
tvo aðstoðarmenn sína.
Eitthvað kostar þetta nú að koma
með svona sýningu - með hátísku-
flíkum frá Ninu Ricci, Philip Bonnet,
Lecoannet Hemant og unga jap-
anska tískuhönnuðinum Juin Abé —
til íslands með tryggingum á öllum
þessum hátískufatnaði, varð blaða-
manni að orði, er hann leit hátísku-
fatnaðinn frá frægustu tískuhúsum
Parísasr sem héngu á slánni í sví-
tunni á Hótel Loftleiðum, þar sem
viðtal við þennan franska meistara
skildi fara fram. Hann játaði því,
sneri sér að aðstoðarmönnum sín-
um og spurði hvort talan væri ekki
eitthvað um 400 þúsund frankar.
En kannski er ein skýringin að
Maurice Franck hefur lengi séð um
hárgreiðslur á vor- og haustsýning-
um allra þessara tískuhúsa.
Síðan dró hann fram sýnishorn
af hárskrautinu, sem búið hafði
verið til fyrir þessa sýningu á ís-
landi. Sagði að þetta væri að vísu
nokkuð íburðarmikið, sem kæmi til
Maurice Franck og Elsa Haraldsdóttlr. Þau standa fyrlr framan allan dýrmaata hátískufatnaðinn fró tískuhúsun-
um f Paris sem búlð var að taka upp úr töskum og bíður þoss að vorða sýndur hér é sunnudag.