Morgunblaðið - 17.06.1986, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
Frá ráðstef nunni á Hótel Sögu í gær.
„Heilbrígði allra áríð 2000“:
„Viljum bæta heilsufar-
ið og lækka kostnaðinn“
- sagði Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra í setningarræðu sinni
RAGNHILDUR Helgadóttir, heilbrigðisráðherra, setti ráðstefnu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar WHO í gærmorgun að
Hótel Sögn, en ráðstefnan stendur fram á laugardag. Fjallað er
um forvamir langvinnra sjúkdóma á ráðstefnunni og sitja hana
35 fulltrúar frá 10 Evrópuríkjum auk Kanada. Forvaraarverkefn-
ið er liður í áætlun WHO um „Heilbrigði allra árið 2000“.
Heilbrigðisráðherra sagði m.a. í ingum, ofneyslu áfengis, hreyfing-
setningarræðu sinni að hugmyndin
með þessu sameiginlega verkefni
væri að samræma aðgerðir til að
fyrirbyggja og halda í skeQum
langvinnum sjúkdómum, sem ættu
það sammerkt að orsakast af öðru
en smitun en ættu í ríkari mæli en
aðrir sjúkdómar sök á ótímabærum
dauðdaga eða örorku allt of margra.
Ráðherra nefndi í þessu sambandi
hjarta- og æðasjúkdóma, krabba-
mein, sykursýki, slys og geðsjúk-
dóma. Aherslan beindist gegn
sameiginlegum áhættuþáttum svo
sem óhollum neysluvenjum, reyk-
arleysi og streitu auk fleiri þátta.
„Við Islendingar teljum okkur
hafa náð langt á sviði heilbrigðis-
þjónustu svo sem sjá má af því að
við erum í fararbroddi að því er
varðar heilsufar mæðra og ung-
bama. Engu að síður eru mörg
óleyst vandamál. Heilsutjón og dán-
artíðni á of oft rætur að rekja til
ástæðna sem hefði verið hægt að
afstýra með þekkingu og árvekni
einstaklinganna sjálfra. Þetta á við
um þá sjúkdóma sem ég nefndi hér
áðan auk gigtar og tannskemmda,
sérstaklega hér á landi. Hvað varð-
Bæjarstjóm Seyðisfjarðar:
Meírihluti Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknar
Þorvaldur Jóhannsson áfram bæjarsljóri
Seyðisfirði.
SAMKOMULAG hefur tekizt
með sjálfstæðísmönnum og
framsóknarmönnum nm áfram-
haldandi meirihlutasamstarf í
bæjarstjóm Seyðisfjarðar næsta
kjörtímabil. Verður meirihlutinn
skipaður tveimur fulltrúum
Sjálfstæðisflokks og þremur full-
trúum Framsóknarflokks.
Máleftiasamningur hefur verið
gerður og samþykktur á félags-
fundum hjá báðum flokkunum.
Samkvæmt samkomulagi, sem báð-
ir aðilar hafa samþykkt, verður
Jónas Hallgrímsson, fyrsti maður
af lista Framsóknarflokks, forseti
bæjarstjómar og Ambjörg Sveins-
dóttir, annar maður af lista Sjálf-
stæðisflokks, varaforseti. í bæjar-
ráði fyrir meirihlutann verða þeir
Guðmundur Sverrisson, fyrsti mað-
ur af lista Sjálfstæðisflokks, for-
maður, og Jónas Hallgrímsson.
í hafnamefnd fyrir meirihlutann
verða þau Birgir Hallvarðsson,
annar maður af lista Framsóknar-
flokks, formaður og Ambjörg
Sveinsdóttir.
Fulltrúar beggja flokka eru
sammála um að framlengdur verði
ráðningarsamningur við núverandi
bæjarsljóra, Þorvaid Jóhannsson.
Fyrsti fundur nýkjörinnar bæjar-
stjómar verður miðvikudaginn 18.
júní næstkomandi.
— Garðar Rúnar
Ragnhildur Helgadóttir setur
ráðstefnuna.
ar gigt og tannskemmdir, hefur
ráðuneytið ákveðið stórátak sem
hefst á næstunni."
Ragnhildur sagði undir lok ræðu
sinnar að læknis- og spítalaþjónusta
væri dýr en forvamir að sama skapi
ódýrar. Bætt heilsufar og lækkun
kostnaðar gæti því vel farið saman,
en þó aðeins með samræmdum
forvömum, sem hugsaðar væru til
lengri tíma.
Sá stærsti úr Langá?
Jóhannes Guðmundsson, bóndi á
Amabreku og formaður veiðifélags
Langár á Mýrum, veiddi í gærmorg-
un 21 punda hæng í á sinni og að
sögn ýmissra kunnugra, er ekki
útilokað að þar hafi farið stærsti
lax sem veiðst hefur í Langá sem
kölluð hefur verið af fræðimönnum,
„hrein smálaxaá". Laxinn, sem var
nýrunninn, veiddi Jóhannes í
Glanna og taldist til tíðinda, að
fiskurinn var merktur og augljós-
lega af Þverárkjmi, en á síðustu
árum hefur rniklu magni göngu-
seiða af þeim uppmna verið sleppt
í ána og mikill hluti þeirra merktur.
Heimtur hafa verið misjafnar ár
frá ári, en líklega er að þessi lax
hafi verið misjafnar ár frá ári, en
líklegt er að þessi lax hafí verið
þrjú ár í sjó.
Þess má geta, að talsvert hefur
veiðst af merktum stórlaxi í sjávar-
netin við ósa Langár að undan-
fömu, 10—14 punda fiskum, 12
höfðu veiðst frá Lambastöðum og
að minnsta kosti 6 stykki frá
Rauðanesi. Nokkrir til viðbótar
annars staðar. Bíða menn spenntir
eftir lokatölum yfir þá merkta laxa
sem skila sér í sumar svo og hvort
sá stóri, sem Jóhannes bóndi veiddi,
eigi ekki einhver systkini og jafnoka
sem annað hvort eru gengnir I ána
eðaeru áleiðinni.
Veiðin hófst annars í Langá í
fyrradag og er óhætt að segja að
byijunin lofi góðu, 12 laxar lágu í
valnum eftir síðdegistömina á 6
stangir, en í gærmorgun höfðu
menn sig lítið í frammi. Þó fór Jó-
hannes á stjá með framangreindum
árangri. Laxamir voru frá 5-16
punda, flestir þó 9—11 pund og
flestir veiddir á Breiðunni. Þetta
er ekki síst hörkubyijun þegar
minnt er á, að f fyrradag var Langá
kolmórauð og tvöföld að vatns-
magni. Þó veiddust tveir laxanna
tólf á flugu, Þingeying og General
Praktitioner. 16 punda laxinn sem
veiddist var hængur og greinilega
skyldari þeim stóra heldur en hinum
hefðbundnari Langárlöxum ef
marka mátti vaxtarlagið.
Upplýsingamar að framan eru
frá Runólfi Agústssyni f veiðihúsinu
að Langárfossi komnar, en er haft
var samband við Ingva Hrafn Jóns-
son í veiðihúsi sfnu f Stangarholtsl-
andi, var hljóðið ekki síður gott.
„Það var svo mikið flóðið í gær að
við gátum óvíða rennt, þó náði
Gulli (Bergmann) einum, en í morg-
un var áin að sjatna mikið og við
erum famir að sjá hann stökkva
hér og þar. Þá var áin orðin 9 gráðu
heit f hádeginu og hin veiðilegasta,"
sagði Ingvi í gærdag.
Ingvi sagði ennffemur, að laxa-
gengd í Langá hefði hafíst óvenju-
lega snemma að þessu sinni, eða
strax upp úr mánaðamótunum síð-
ustu, „þegar ég athugaði ána 4.
júní siðastliðinn, sá ég 15 til 20
laxa bæði í stiganum við Skugga-
foss og víðar þar í kring, siðan
hefur verið að renna upp lax og
hann er örugglega kominn fram á
efstu svæðin þó ekki hafi veiðst þar
neitt fyrstu dagana.
Þurrkamir í fyrrasumar komu
illa niður á Langá, vatnið í uppi-
stöðustfflunni þvarr er á sumarið
leið og Langá varð að hálfgerðum
læk. Ingvi Hrafn sagði ástandið nú
til muna betra, meiri snjó f fjöllum
og þó ekki kæmi deigur dropi úr
lofti væri Langá tryggð am.k. út
júlí.
Sprengibyijun í
Miðfjarðará
„Þeir byijuðu geysilega vel,
fengu 63 laxa fyrstu 3 dagana,
þar af 35 fyrsta daginn," sagði
Benedikt á Staðarbakka í Miðfirði
um byijunina í MiðQarðar að
þessu sinni.
Benedikt sagði mestu veiðina
hafa verið í Kistunum í Vesturá
sem oft endranær á þessum tíma,
en ekkert hefði veiðst í þeirri á
fyrir ofan Hlíðarfoss. Laxinn væri
genginn langt fram eftir Núpsá
og væri kominn alla leið fram að
Kambsfossi í Austurá. Þetta hefur
verið stór og fallegur lax í Mið-
firði, meðalþunginn um 10 pund
og sá stærsti til þessa 13 punda
fiskur. Árnar eru vatnsmiklar og
dálítið skolaðar.
Að glæðast í Norðurá
Veiðin hefur verið heldur treg
um hríð í Norðurá og heildarveiðin
aðeins um 120 laxar sem þykir
ekkert sérstakt á þessum tíma og
það þrátt fyrir góða veiði fyrstu
dagana. Hins vegar telja ýmsir
að bati sé í nánd og vísa til góðrar
veiði að undanfömu á Munaðar-
nessvæðinu. Þá hefur Norðuráin
bæði verið vatnsmikil og afar
köld það sem af er júní. í Munað-
amesi hafa veiðst allt að 8 laxar
á dag og reytingur hefur einnig
verið í Stekknum. í Munaðamesi
veiðist jafnan best þegar áin er
vatnsmikil langtímum saman.
Ný íslensk kvikmynd
í sjónvarpinu í kvöld
Fjallar um hvað það getur verið erfitt að búa í litlu sam-
félagi, segir höfundiuiim og aðalieikarinn Ágúst Guðmundsson
NÝ ÍSLENSK kvikmynd, Ást í kjörbúð, verður á dagskrá sjón-
varpsins í kvöld. Höfundur handrits er Agúst Guðmundsson, og
jafnframt þvi að leikstýra fer hann með aðalhútverkið í mynd-
inni, sem var kvikmynduð í Reykjavík og Kópavogi á síðastliðnu
hausti.
Aðspurður um efni kvikmynd-
arinnar sagði Ágúst að hún ijall-
aði um kaupmann sem yrði ást-
fanginn að einum viðskiptavini
sínum. „Upphaflegu hugmyndina
að handritinu fékk ég árið 1972
og notaði það meðal annars til
að komast inn í kvikmyndaskól-
ann í Bretlandi, þar sem ég stund-
aði nám,„sagði Ágúst. „Á þessum
§órtán árum sem síðan eru liðin
hefur sagan breyst talsvert mikið
og handritið verið mikið endur-
bætt. Nafn myndarinnar segir
býsna mikið um hvað hún fjaliar,
og kannski ekki ástæða til að
fara of mikið út f þá sálma, en
segja má að hún ijaili um hvað
það getur verið erfítt að búa í litlu
samfélagi þar sem allir þekkja
alla,„ sagði Ágúst.
Um það hvemig á því stæði að
hann léki sjálfur aðalhlutverkið
sagðist hann hafa haft ákveðinn
leikara upphaflega í huga til að
fara með aðalhlutverkið en hann
síðan reynst upptekinn þegar átti
að taka til við upptökur. Þá
Kvaðst Ágúst hafa leitað til ann-
arra en þeir einnig verið önnum
kafiiir. „Þá greip ég á það ráð
að fara sjálfur með aðalhlutverkið
Ágúst Guðmundsson
en menn þurfa ekki að óttast að
ég sé með þessum hætti að líkja
eftir Charlie Chaplin, Woody Allen
eða Orson Welles.
Myndin er gerð á vegum sjón-
varpsins og er um 50 mínútna
löng.