Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ 1986 59 Um barnameðlög og kjör einstæðra foreldra Til Velvakanda. Að undanfömu hefur töluverð umræða verið um kjör einstæðra mæðra, skilnaði og félagslegar aðstæður bama fráskilinna foreldra í Qölmiðlum. Þar sem ég er ein úr þessum hópi langar mig að leggja orð í belg. Ég er ein með 3 böm á mínu framfæri, sem ekki er neitt einsdæmi í dag. Fyrrverandi eigin- maður minn borgar rétt rúmlega 10 þúsund kr. með þessum þremur bömum sínum á mánuði, sem er eins og allir hljóta að sjá, dropi í hafið. Gert er ráð fyrir að ég skaffi 10 þúsund kr. á móti fyrrverandi maka til að framflejrta fjöskyldunni en það dugar engan veginn. Ég verð að leggja mun meira fram til að endar nái saman. Svo skilst mér að bamameðlög séu frádráttarbær frá tekjuskatti. Sé það rétt er varla hægt að segja að það foreldrið sem ekki hefur bömin á sínu framfæri sjái fyrir bömum sínum. Það leiðir hugann að þeirri spumingu hvort menn eða konur sem ganga út af heimilinu hafí nokkrar skyldur gagnvart þeim bömum sem þau eiga. Kona ein skrifaði í Velvakanda fyrir nokkm og var hún gift manni sem greiddi með nokkmm bömum frá fyrra hjónabandi. Barmaði hún sér mjög yfír að þau hjónin þyrftu að borga þessi bamameðlög. Sagði hún m.a. að enginn gæti gert að því þótt hann hefði verið giftur áður. Nú langar mig til að spyrja þessa konu: Hver á að borga fram- færslu bamana á móti hinum makanum, nkið kannski? Veit hún ekki að ríkið borgar næstum jafn mikið og bamameðlögum nemur í mæðralaun. Ríkið borgar einnig stóran hluta dagvistunargjalda. Er hægt að ganga meira á þjóð- félagið? Er þjóðfélagið ekki að ýta undir fíjálsljmdi og kæmleysi í hjú- skapar- og ástamálum með þessum greiðslum? Nú verð ég að viðurkenna að sá aðili sem hefur bömin þarf mjög á þessum greiðslum að halda og kemst ekki af án þeirra vegna þess hve bamameðlagið er skammarlega lágt. Víst er það rétt að enginn getur gert að því þó hann hafí verið giftur áður - en hver á að bera ábyrgð á því er hjónaband fer í vaskinn nema þeir tveir aðilar sem stofnuðu til þess? Annað sem kemur mér undarlega fyrir sjónir er það, að sá aðilinn sem gerist brotlegur í hjónabandi hefur alveg sama rétt hvað íjármálin varðar og hinn sem heldur hjúskap- arheitið. Að minni hyggju er það nóg fyrir konu eða karl sem verður fyrir svikum að þurfa að yfírstíga hina tilfínningalegu hlið, sem oftast er mjög sársaukafullt, þó ekki sé troðið á fjárhag hans líka. Öllum fínnst okkur sjálfsagt að réttlætið sé af skomum skammti í þessu þjóð- félagi. Að þessu leyti finnst mér tími til kominn að tekið sé í taumana og fólk látið bera ábyrgð á gerðum sínum, þó ekki sé nema bamanna vegna. Mestu máli skiptir að bömin verði fyrir sem minnstu tjóni, þvf aldrei verður hægt að koma í veg fyrir að skilnaður komi niður á bömunum. Skilnaðarböm hafa oft þungan kross að bera. Þau þurfa oft að sjá um sig sjálf flesta daga og bera meiri ábyrgð en þau hafa þroska til. Er ekki tími til kominn að taka í taumana og hækka meðlög til bama svo hægt sé fyrir forráða- menn þeirra að sinna þeim sem skyldi? Því að góðri umönnun og öryggi búa þau alla ævi. Því segi ég. Tökum höndum saman og tryggjum öllum bömum góð uppvaxtarskilyrði. Gaman væri ef fleiri létu til sín heyra um þessi mál. Einstæð móðir. Vinsældalisti rásar tvö er ekki marktækur Til Velvakanda. Ástæðan fyrir því að ég ákvað að setjast niður og skrifa Velvakanda er val á vinsældarlista rásar tvö. Þessi vinsældarlisti á að sýna hvaða lög em vinsælust hveiju sinni og er ekkert við það að athuga í sjálfu sér. Allsstaðar í heiminum em vinsældar- listar teknir saman. í flestum löndum þar sem valin er vinsældalisti er það gert með könnun á sölu minni gramó- fónsplata. Þar sem við emm lítil þjóð og kaupum ekki mikið af litlum plötum þá er þessi möguleiki ekki fyrir hendi hér. En vissulega er hægt að komast að vinsældum laga þrátt fyrirþetta. Rás tvö velur sinn lista með því að hlustendur hringja og nefna þijú uppáhaldslög sín. Þetta er fáránleg aðferð og listinn verður ómarktækur. Ég nefni máli mínu til stuðnings þá smölun sem stundum hefur verið hjá íslenskum tónlistarmönnum við að koma sínum íögum að. Þá má ekki gleyma þeim sem hringja ofar en einu sinni til að koma sinni uppá- haldshljómsveit ofar á listann. Ég á frænda sem sagði mér að hann hefði einu sinni hringt 8 sinnum og vinur hans hefði gert slíkt hið sama. Einu sinni þegar ég hlustaði á kynningu á listanum sagði þulurinn að lægið sem væri í 20 sæti hefði um 50 atkvæði á bak við sig. Af þessu sést að það er ekki ýkja erfitt fyrir fáa einstaklinga að koma lögum hátt á lista. Hvað er hægt að gera? Ég tel að breyta þurfí fyrirkomulagi á vali list- ans, því að hann skipar mikinn sess í dagskrá rásar tvö og sífellt eru dagskrárgerðarmenn að vitna t hann og kynna lög af honum. Rás tvö á að leggja metnað sinn í að standa að marktækum vinsælda- lista. Það eru til margar aðferðir við að velja vinsældalista. Hugsanleg aðferð er að starfsmenn rásar tvö myndu hringja í hlustendur og spyija þá álits, en kannski væri það of dýrt. Annar möguleiki er að hlustendur skrifi rás tvö og tilgreini þijú uppá- haldslög sín og verði þau að vera á ákveðnum seðli_ sem birst gæti í dagblöðunum. Á þessum seðli yrði sendandi að gefa upp nafn og heimil- isfang. Einnig mætti taka mið af skoðun dagskrárgerðarmanna rásar tvö sem þá myndu hafa ákveðið vægp á móti skoðunum hlustenda. Bandarfski vinsældalistinn er valinn á þann hátt að tekið er mið af plötu- sölu og flutningi einstakra laga í útvarpi — þvf ekki að láta dagskrá- gerðarmenn hér hafa áhrif eins og í Bandaríkjunum. Ég vona að ég hafí ekki verið að skrifa til einskis og að við megum eiga von á að fá marktækan vinsældalista sem fyrst. Áfrarn rás tvö. Sigurður Ragnarsson. SUMAR- OG HAUSmSKAA 1986 Barnaregnfatnaður í sérflokki SEXTÍU OS SEX NORÐUR SJOKLÆÐAGERÐINHF Skúlagötu 51 Sími 11520
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.