Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 64
!SSw«ii
ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Hvalveið-
ar hafnar
aðnýju
HVALVEIÐAR hófust á sunnu-
daginn og að þessu sinni er ásetl-
að að veiða 80 langreiðar og 40
sandreiðar, en það eru tæplega
helmingi færri dýr en veidd voru
í fyrra.
Að sögn Kristjáns Loftssonar,
forstjóra Hvals hf., gerði fyrirtækið
samning við Hafrannsóknastofnun-
ina um veiðar á hvölunum og verða
þær stundaðar á tveimur hval-
föngurum, en hafa áður verið
stundaðar af flórum hvalbátum.
Mynd þessa tók einn ljósmyndara
Morgunblaðsins, Júlíus, á sunnu-
dagskvöldið þegar Hvalur 8 og
Hvalur 9 létu úr Reykjavíkurhöfn
og héldu til veiðanna. Búist er við
fyrsta hvalnum í Hvalstöðina með
morgninum.Skipið þeytti eimpípur
um leið og það lét úr höfn.
Óbreytt verð
á hörpudiski
YFIRNEFND Verðiagsráðs sjáv-
arútvegsins ákvað á fundi á
mánudag að lágmarksverð á
hörpudiski frá 1. júní til 31. ágúst
1986 skuli vera óbreytt.
Samkomulag var um þessa
ákvörðun yfímefndar.
í yfímefndinni áttu sæti: Bolli
Þór Bollason, sem var oddamaður
nefndarinnar, Ámi Benediktsson og
Marías Þ. Guðmundsson, fulltrúar
kaupenda, og Sveinn Hjörtur Hjart-
arson og Óskar Vigfússon, fulltrúar
seljenda.
Morgunblaðið/Borkur
Kátt var
íhöllinni
Lloyd Cole and the Commotions
léku í gær á Listahátið í Laugar-
dalshöll við mikla hrifningu nm
5.000 áheyrenda. Aðrir tónleikar
verða í kvöld, en þá leikur hljóm-
sveitin Madness og Fine Young
Cannibals. Á myndinni er Lloyd
Cole með gitarinn.
Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastj óri VSÍ um 26% kauphækkun flugliða:
99
Ekki á móti launahækkunum
sem eiga sér efnislega stoðu
Telur þessa samninga skila Flugleiðum f ramleiðniaukningu
ÞÓRARINN V. Þórarinsson framkvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands Islands, telur að þótt flugliðar Flugleiða fái 26% kauphækkun
á árinu samkvæmt nýgerðum kjarasamningum, þá feli þeir í sér það
mikla hagræðingu og aukna nýtingu hjá Flugleiðum, að kostnaðar-
auki Flugleiða vegna þessara kauphækkana sé ekki umtalsverður
framyfir þau 15%, sem samist hefur um við launþega á almennum
vinnumarkaði á þessu ári.
,Þessi samningur við flugliðana
felur vissulega í sér þær kaup-
hækkanir, sem getið var um S
Morgunblaðinu á sunnudag, en
hann felur hins vegar ekki í sér
samsvarandi hækkun launakostn-
aðar, eða 26%. Frá sjónarmiði at-
vinnurekandans er það auðvitað
launakostnaðurinn sem skiptir
rnáli," sagði Þórarinn, er hann var
spurður hvort þessir samningar
hefðu ekki sprengt þann ramma
sem aðilar vinnumarkaðarins mörk-
uðu með kjarasamningum í vetur.
Þórarinn sagði að margháttaðar
breytingar í þessum mýju samning-
um hvað varðaði vinnutíma og
hvíldartímaákvæði gerðu það að
verkum að Flugleiðir og þeirra sér-
fræðingar mætu það svo að launa-
kostnaðaraukinn við þessa samn-
inga væri tiltölulega lítill umfram
það sem falist hefði í almennu
kjarasamningunum, en erfitt væri
að segja til um það hversu mikiil
kostnaðaraukinn væri fram yfír
15%:
„Það er alveg ljóst að hagsmunir
Flugleiða lágu í því að ná fram
þessum breytingum á vinnutíma-
reglunum með samningum, fremur
en að fara út í átök við stéttarfélög
flugsins eins og gerst hefur undan-
farin ár,“ sagði Þórarinn, jafnvel
þótt það þýddi að samningamir
færu nokkuð fram yfir þá almennu
Iínu, sem samið hefur verið um.“
Þórannn var spurður hvort þeir
hjá VSÍ óttuðust ekki að launþegar
kæmu fram með auknar kröfur, í
kjölfar þessara samninga við flug-
liðana: „Svona samningar vekja
alltaf vissa ólgu og væntingar, en
við höfum fylgt þeirri stefnu af-
skaplega stíft að vera jákvæðir
gagnvart hagræðingaraðgerðum og
breytingum á kjarasamningum,
sem auka hagræði í rekstri. Við
höfum því síður en svo nokkuð á
móti launahækkunum, sem eiga sér
efnislega stoð í framleiðniaukningu.
Við teljum að svo sé að mestu leyti
í samningum Flugleiða við stéttar-
félög flugsins."
Magnús L. Sveinsson, formaður
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur, var í gær inntur álits á þessum
samningi Flugleiða við flugliða, en
VR semur við Flugleiðir fyrir ná-
lægt 300 félagsmenn sína: „Okkur
hefur ekki enn tekist að fá þennan
samning, en það er ósköp eðlilegt
að menn spyiji til hvaða ráða við
ætlum að grípa, því mér sýnist sem
þessi samningur feli í sér verulega
umframkauphækkun á árinu, miðað
við það sem almennt var samið
um,“ sagði Magnús. Magnús sagði
að samningaviðræður við Flugleiðir
stæðu nú yfír, þar sem VR væri
að semja fyrir hönd flugafgreiðslu-
fólks. Þeir hjá VR vildu því fá allar
upplýsingar upp á borðið, áður en
samið væri fyrir hönd flugaf-
greiðslufólksins.
Guðmundur J. Guðmundsson:
• /
Albert Guðmundssyni
Metlax úr Langá
Jóhannes Guðmundsson, bóndi á Ánabrekku, veiddi í gærmorgun
21 punds hæng í Glanna í Langá á Mýrum og eru uppi raddir
um að þar hafi farið stærsti lax, sem veiðst hefur í áimi, a.m.k.
í áratugi. Á myndinni er Jóhannes með laxinn góða, sem var
merktur og því fiskur af Þverárkyni, en Langárlaxinn er að
öllu jöfnu fjarri því eins vænn og frændsystkinin í Þverá. Miklu
magni merktra seiða af umræddu laxakyni og hefur verið sleppt
í Langá síðustu árin í rannsóknarskyni og eftir þetta sumar
munu nokkrar niðurstöður liggja fyrir.
Annars byijaði laxveiðin vel í í laxveiðinni á landinu hafí yfír-
Langá, einnig í Miðíjarðará, sem leitt verið viðunandi.
var einnig „opnuð" um helgina, Sjá nánar „Eru þeir að
og er óhætt að segja að byijunin fá’ann?“ blaðsíðu 4.
GUÐMUNDUR J. Guðmundsson
sagði í sjónvarpsfréttum seint í
gærkvöldi, að hann hefði þegið
fjárstuðning frá Albert Guð-
mundssyni árið 1983. Þá hafi
hann leitað sér hvíldar í Florida
vegna hjartasjúkdóms. Þetta
hafi byggzt á persónulegri vin-
áttu þeirra Alberts. Það komi sér
gjörsamlega á óvart, að heyra á
Hafskip minnzt í þessu sam-
hengi.
Sagðist Guðmundur myndu óska
eftir rannsókn á þessu máli og það
yrði rannsakað í botn, væri hann
fús að láta af formennsku í Dags-
brún og Verkamannasambandinu
og jafnframt þingmennsku, meðan
málið yrði rannsakað. Hann hefði
aldrei þegið peninga frá Hafskip.
Hann ætlaði ekki að láta svipta sig
mannorðinu með ásökunum um að
hann gangi fyrir peningum frá
atvinnurekendum.
Vegna þessa hafði Morgunblaðið
samband við Albert Guðmundsson,
iðnaðarráðherra, seint í gærkvöldi.
Hann sagðist ekki myndu svara
spumingum Morgunblaðsins.
Sjá yfirlýsingu frá Guðmundi
J. Guðmundssyni á bls. 2
Viðskiptin við Sovétríkin
verða rædd 23. júní
Viðskiptaviðræður við Sovét-
menn hefjast þann 23. þessa
mánaðar í Reykjavík. Viðræð-
uraar munu snúast um fram-
kvæmd viðskipta landanna innan
rammasamnings, sem um þau
gilda, frá þessu ári til ársins
1990.
íslendingar selja Sovétmönnum
aðallega saltsíld, frystan físk, lag-
meti, ullarvörur og málningu. Mest-
ur hluti innkaupanna frá Sovétríkj-
unum er olía, en einnig kaupum við
þaðan bíla og timbur svo eitthvað
sé nefnt. í viðræðum þessum er
ekki Qallað beint um sölusamninga
heldur framkvæmd viðskiptanna í
heild. Viðkomandi fyrirtæki og
sölusamtök semja síðan sérstaklega
við kaupendur fyrir austan með
þátttöku stjómvalda hér, þegar
samið er um olíuna. Það er Prodin-
torg sem sér um innkaup á matvæl-
um í Sovétríkjunum.