Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986 AKIJREYRI Velheppnuð M-hátíð: Höfum lifað ánægju- lega hátíðisdaga - segir menntamálaráðherra Akureyri. „VIÐ HÖFUM lifað ánægjulega hátíðisdaga i gær og i dag á Akureyri. Ef ég ættí að lýsa ánægju minnl og þakklæti svo sem best væri þyrfti ég að gripa til hástigs lýsingarorða og myndi þó hvergi hrökkva til,“ sagði Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, meðal annars er hann sleit M-hátíðinni i íþróttaskemmunni á Akureyri siðari hluta sunnudags. Nokkurt Qölmenni sótti hátíðina á laugardag og sunnudag, þar sem boðið var upp á tónlist, upplestur og ýmis erindi, en auk þess eru tvær málverkasýningar opnar í tengslum við hátíðina og verða þær opnar kl. 14-22 alla daga þar til 22. þessa mánaðar. Valgarður Stefánsson myndlist- armaður, sem flutti erindi um myndlistarmenn í Eyjafirði og á Norðurlandi færði Akureyrarbæ að gjöf málverk eftir Þórhall Bjömsson frá 1912. „Ég vænti þess að hún hljóti sinn sess sem henni ber í Listasafni Norðurlands þegar þar að kemur," sagði Val- garður í lok ræðu sinnar. Mynd þessi er ein þeirra sem sýnd er I Iþróttaskemmunni nú. Sverrir Hermannsson, menntamálaráð- herra, sagði einmitt I ræðu á hátíð- inni að hann myndi veita Akur- eyrarbæ aðstoð þegar Listasafn Norðurlands yrði stofnað og „að sjálfsögðu verða einhver verk úr Listasafni íslands geymd þar,“ sagði ráðherra. Nánar verður greint frá M-há- tiðinni siðar. Karlakórar taka lagið við undir- leik lúðrasveitar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrfmason Morgunblaðið/Skapti Hallgrfmason Margrét Hólmsteinsdóttir við nýkeyptan tölvubúnaðinn. Ný hreppsskrifstofa Akureyri. Á LAUGARDAG var formlega tekin í notkun ný sameiginleg skrifstofa þriggja hreppa, Hrafnagilshrepps, Saurbæjar- hrepps og Öngulstaðarhrepps. Skrifstofan er til húsa í gamla bamaskólanum á Laugalandi og er húsnæðið I heild um 65 fermetrar. Ný tölva hefur verið keypt og starfsmaður ráðinn á skrifstofuna í hálft starf, Margrét Hólmsteins- dóttir. Hún mun annast ýmis þau störf er áður voru á höndum oddvita í þessum þremur hreppum, reikn- ingshald o.þ.h. Skrifstofan verður opin fyrir hádegi fyrst um sinn. Af þessu tilefni var skrifstofan höfð Ibúm hreppanna til sýnis á laugar- dag kl. 14-17. Margir hreppsbúar nýttu sér þetta tækifæri og var aðsókn allgóð. Morgunblaðið/Skapti Gamlir og nýir MA-stúdentar taka lagið. Menntamálaráðherra fyrir miðju. Bílasýninef á Akurevri Akureyri. C/ CD (/ 17. JÚNÍ verður bílasýning við Oddeyrarskólann. Það er Bila- klúbbur Akureyrar sem gengst fyrir sýningunni og er þetta i 12. sinn sem hún er haldin. Hátt I 50 bilar af öllum gerðum verða sýndir þama. Sem dæmi um “glæsikerrur" má nefna Chevrolet tvennra dyra árgerð 1957. Hann er I eigu Ólafsfirðings, nýuppgerður og hefur aldrei verið sýndur fyrr. Dodge Coronett 1967 úr Reykjavík. Hann er einnig nýuppgerður og hefur aldrei verið sýndur áður. Þá má nefna Renault og Citroen 1946 og Corvetta 1977 úr Hafnarfírði. Þá verða 20 mótorhjól á svæðinu. Eins og undanfarin verða Bílakúbb- smenn með “turbo-kassabílarall" fyrir krakka. Trúður verður á svæðinu og útbýtir sleikipinnum. Hljómsvetin Rokkbandið leikur svo af ot til allan daginn en sýningin AkureyrL SKÓGERÐIN á Akureyri á 50 ára afmæli á þessu ári og af þvi tilefni var opið hús á föstudag og laugardag þar sem almenningi var gefinn kostur á að koma og skoða starfsemina. Sverrir Her- mannsson, menntamálaráðherra og frú, sem voru ' stödd á Ákureyri vegna M-hátíðarinnar, komu í Skógerðin heimsótt Morgunblaðið/Skapti Hallgrlmason er opin frá kl. 10-18. Þess má geta að Fegurðardrottning íslands, Gigja Birgisdóttir, opnar sýninguna kl. 10. Aðgangur á sýninguna er 200 kr en ókeypis er fyrir böm. • • Ongulstaðahreppur: Emilía hlaut flest atkvæði Akureyri. EMILIA Baldursdóttir frá Syðra Hóli hlaut flest atkvæði i hrepps- nefnd Öngulstaðahrepps i kosn- ingunum um helgina en hér var um óhlutbundna kosningu að ræða. Hún hlaut 124 atkvæði. Aðrir sem kjömir vom I hrepps- nefnd vom Birgir Þórðarson, Ong- ulstöðum II, sem fékk 118 atkvæði, Benjamín Baldursson, Ytri Tjöm- um, með 84 atkvæði, Kristján Hannesson Kaupangi með 73 og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Öng- ulstöðum HI, með 29 atkvæði. 2 seðlar vom auðir en enginn ógildur. Þess skal getið að Sigurgeir Garð- arsson á Staðarhóli, sem var í hreppsefndinni, gaf ekki kost á sér áfram. í sýslunefnd var kjörinn Birgir Þórðarson, Öngulstöðum II, með 53 atkvæðum. Kosning hófst kl. 10 fyrir hádegi og stóð til kl. 21.10. Á kjörskrá vom 263, 160 kusu sem er 60,84%. 1982 var kosningaþátttaka 65,20%. skóverksmiðjuna og sjást hér fylgjast með einum starfsmanna ásamt Birni Dagbjartssyni, alþingis- manni, Val Arnþórssyni, kaupfélagsstjóra og stjórnarformanni Sambandsins, Úlfari Gunnars- syni, deildarstjóra Skógerðarinnar og Jafet Ólafs- syni, yfirmanni fatadeildar SÍS. Þj óðhátíðardagskráin Akureyri. DAGSKRÁ hátíðahaldanna á Akureyri í dag, þjóðhátíðar- daginn, stendur frá kl. 8 að morgni til 2 eftir miðnætti. Það er iþróttafélagið Þór sem hefur veg og vanda af dagskránni að þessu sinni. Skúli Lórenzson, formaður þjóðhátíðamefndar Þórs, sagði I samtali við Morgunblaðið að reynt hefði verið að vanda til dagskrár- innar eins og kostur var — og er hún fjölbreytt. Dagskráin er þann- & Kl. 08.00, Fánar dregnir að húni. kl. 09.00 Hópakstur Bílaklúbbs Akureyrar frá Oddeyrarskóla. Blómabfll og gamlir bílar. RÁÐHÚSTORG Kl. 13.30 Lúðrasveit Akureyrar leikur. kl. 14.00 Skrúðganjja að íþróttaveili bæjarins. ÍÞRÓTTAVÖLLUR kl. 14.20 Fánahylling kl. 14.30 Hátíðin sett - Benedikt Guðmunds- son, formaður Þórs. kl. 14.35 Hátíðarstund, séra Pálmi Matt- híasson og kirkjukór Lögmannshlíðar. kl. 14.60 Ávarp fjallkonu — Gígja Birgis- dóttir, Fegurðardrottningíslands. Kl. 15.00 Dansstúdíó Alice — skemmtidag- skrá. Kl. 15.10 Ræða dagsins — Valur Amþórsson, kaupfélagsstjóri. Kl. 15.20 Ræða nýstúdents — Eggert Tryggvason. Kl. 15.35 Fallhlífarstökk. BARNAKSKEMMTUN Á EIÐSVELLI Kl. 16.00 Knattspymudeild Þórs sér um leik- tæki, BjÖ8si bolla verður á svæðinu og kara- mellum verður dreift yfir sveeðið úr flugvél. Þá skemmta “Innflytjendur" — en það eru Chile-búar sem starfa í Sveinbjamargerði og lyftingamenn verða með aflraunir þar sem krakkamir geta fengið að reyna sig. Skemmt- unin stendurtil kl. 18. RÁÐHÚSTORG Kl. 20.30, Lúðrasveit Akureyrar leikur. Kl. 21.00 „Innflytjendur* skemmta. Kl. 21.30 Ema Gunnarsdótir flytur nVöggu- vísu“ Kl. 21.35 ICY-tríóið skemmtir. Kl. 11.00 Jörundur, Öm Ámason? og fleiri flytjagrín. Kl. 22.15 Dansleikur hefst á Ráðhústorgi. Miðaldamenn frá Sigiufirði leika fyrir dansi til kl. 02.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.