Morgunblaðið - 17.06.1986, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
SIF
ÚTVARP/SJÓNVARP
Eg hef haft það fyrir sið hér í
pistli að Qalla um íslenskar
heimildamyndir af öllu tagi og eru
þar ekki undan skildar myndir er
ýmsar stofnanir og félög hafa kost-
að. Ég tel persónulega að með
þessum myndum sé á vissan máta
verið að skrá ísiandssöguna og það
kunni að vera handhægt fyrir sagn-
fræðinga framtíðarinnar að stauta
sig fram úr umsögnunum. Þó hef
ég í seinni tíð fyllst efasemdum um
þá stefnu sjónvarpsins að sýna
athugasemdalaust myndir frá ýms-
um stofnunum og félagasamtökum.
Hef ég reyndar af þessu tilefni leit-
að álits ónefnds Breta er þekkir vel
til bresks sjónvarps; þess ljósvaka-
fjöimiðils er ég tel hvað óhlut-
drægastan. Þessi ágæti maður tjáði
mér eftir að hafa skoðað heimilda-
myndina Lífíð er saltfiskur — er
Sölusamtök íslenskra fískframleið-
enda lét gera í tilefni af 50 ára
afmæli samtakanna en mjrndin sú
hefir skreytt sjónvarpsdagskrána
undanfarin sunnudagskveld — að
slík heimildamynd yrði sennilega
flokkuð ytra sem auglýsing og þar
af leiðandi ekki sýnd í bresku sjón-
varpi. Lítum nú ögn nánar á fyrr-
greinda saltfískmynd í ljósi þessarar
yfírlýsingar Bretans.
Auglýsing?
Fyrirtækið Lifandi myndir hf.
framleiðir saltfískmyndina marg-
umræddu í samvinnu við SÍF. Hér
er sum sé um að ræða samvinnu
annars vegar verktaka í kvik-
myndaiðnaðinum og þess er flár-
magnar myndatökuna. Slík „sam-
vinna“ þekkist varla í bresku sjón-
varpi og naumast í því bandaríska
sem er þó gegnsýrt af auglýsingum.
Þannig leggja sljómendur banda-
rísku sjónvarpsstöðvanna mikla
áherslu á að skörp skil séu á milli
auglýsinga og annars sjónvarpsefn-
is og taka að mér skilst forstjórar
stórfyrirtækja er styrlga gjaman
ýmis kvikmyndaverkefni (Kólum-
busarmyndin var til dæmis styrkt
af IBM — muniði?) fullt tillit til
þessa sjónarmiðs bandarísku sjón-
vapsforstjóranna, þótt fyrirtækin
fái oftast að geta þess að þau hafí
stutt eða kostað viðkomandi sjón-
varpskvikmynd.
En hér er þessu sum sé öðmvísi
farið. Þannig var áberandi í salt-
fískmyndinni frá SÍF að þar var
dreginn taumur söiusamtakanna og
áhorfendur fullvissaðir um að nauð-
synlegt væri að sala íslensks salt-
físks væri á einni hendi eða eins
og segir í fréttatilkynningu sjón-
varpsins: Lýst er hvemig vankantar
sölumála ásamt ytri aðstæðum
(heimskreppu o.fl.) leiddu til þess
að íslenskir saltfískframleiðendur
stofnuðu Sölusamband íslenskra
fískframleiðenda, SÍF, árið 1932.
Hér skal ekki fullyrt um ágæti SÍF
en vafalaust hafa menn á þeim bæ
oft unnið þrekvirki í sölumálum en
það er ekki sjónvarpsins að birta
slíkt sjálfshól. Nær væri að efnt
yrði til umræðna í sjónvarpssal um
efni slikra heimíldamynda þar sem
ólík sjónarmið yrðu viðmð. Væri
mjög æskilegt að tii slíks málþings
veldust menn er hefðu víða sýn
yfír þróun íslensks fískiðnaðar, til
dæmis Lúðvík Jósepsson fyrrum
sjávarútvegsráðherra. Við leitum
allt of sjaldan til slíkra manna um
ráðgjöf en gleypum þess í stað
tískuhugmyndir ýmsar er stórfyrir-
tækjaprófessorar þess heims spýta
í hanastélsboðunum.
Að lokum vil ég geta þess að
þrátt fyrir að ég hefí hér í pistlum
lagst gegn því að sjónvarpið sýni
athugasemdalaust ýmsar heimild-
armyndir er stofnanir og félaga-
samtök láta gera um starfsemi sína
þá er mér full ljóst að sifkar myndir
geta haft ákveðið heimildargildi,
þannig var til dæmis SÍF-myndin
byggð á óvenju traustum grunni
heimildaöflunar og á Erlendur
Sveinsson þar vafalaust stærstan
hlut að máli ásamt starfsmönnum
SÍF- ÓlafurM.
Jóhannesson.
Þjóðminningardagar í Reykjavík
■■^■i Dagskrá í sam-
q 20 antekt Ama
A ö ■“ Bjömssonar,
Þjóðminningardagar í
Reykjavík, er á dagskrá
rásar eitt eftir hádegi í
dag. Þar segir frá þjóð-
hátíðarhöldum í Reykjavík
á árum áður, en þau voru
ekki haldin reglulega fyrr
en árið 1897. Fram að þeim
tíma höfðu yfirvöld einkum
minnst afmælis konungs-
ins. Sagt verður frá þessum
viðburðum og minnst á 100
ára afmæli Reykjavíkur-
borgar árið 1886. í þættin-
um verður leikið fyrsta
Reykjavíkurlagið, sem er
Söngbók
Gunnars
Þórðarsonar
■■■■ Söngbók Gunn-
Q j 55 ars Þórðarsonar
nefnist þáttur
sem er á dagskrá sjónvarps
i kvöld. Þá mun Páll Þor-
steinsson ræða við Gunnar
Þórðarson, tónlistarmann,
og flutt verða nokkur laga
hans, bæði gömul og ný.
að sjáifsögðu í öðrum bún-
ingi en það sem nú er.
Ennfremur verður greint
frá deilum þeim sem stóðu
árið 1907—1911 um það
hvort halda ætti upp á
afmæii Jóns Sigurðssonar,
17. júní, í stað hinnar hefð-
bundnu konungshyllingar.
Lesið verður upp úr blöðum
og leikin lög frá þessum
tíma.
Þj óðhátíðarvaka
■■■ Útvarpað verður
Rætt verður við Gunnar
Þórðarson og leikin
nokkur laga hans í þætt-
inum Söngbók Gunnars
Þórðarsonar, sem er á
dagskrá sjónvarps I
kvöld.
0020 Þjóðhátíðarvöku
á báðum rásum
hljóðvarps í kvöld. Þá mun
Ásta R. Jóhannesdóttir
taka á móti góðum gestum
í útvarpssal. Ýmsir
skemmtikraftar verða
kynntir sem munu syngja
og leika fyrir hlustendur.
Má þar meðal annars nefna
Léttsveit ríkisútvarpsins og
tvo söngvara, þau Guð-
laugu Helgu Ingadóttur,
sem er ung og efnileg blús-
söngkona, og Guðberg
ísleifsson, en hann varð
hlutskarpastur í hæfíleika-
keppni vísnavina nú á
dögunum. Þá mun Bræðra-
bandið koma fram og
hljómsveitin Hvísl mun
leika og syngja eigin lög
og annarra.
Atriði úr sjónvarpsmyndinni Ást i kjörbúð, Guð-
laug María Bjarnadóttir og Ágúst Guðmundsson í
hlutverkum sínum.
Ást í kjörbúð
- ný sjónvarpsmynd eftir
Ágúst Guðmundsson
■^■B Ást í kjörbúð,
00 45 sjónvarps-
mynd eftir
Ágúst Guðmundsson, er á
dagskrá sjónvarps í kvöld.
Ágúst Guðmundsson leik-
stýrir myndinni og Ieikur
jafnframt eitt aðalhlut-
verkið. Sjónvarpsmyndin
Ást í kjörbúð er um kjötaf-
greiðslumann sem hrífst af
álitlegri konu sem verslar
oft í kjörbúðinni þar sem
hann vinnur og verður ást-
fanginn af henni þegar
fram líða stundir. Dregur
þessi ástleitni kjötaf-
greiðslumannsins nokkum
dilk á eftir sér.
I
UTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
17. júní
þjóðhátíðardagur
íslendinga
8.00 Morgurtbæn. Séra
Hannes Guömundsson á
Fellsmúla flytur.
8.06 fslensk ættjaröarlög
8.16 Veðurfregnir
8.30 Fréttir á ensku.
8.00 Fréttir.
9.06 Morgunstund barn-
anna: „Markús Árelíus" eftir
Helga Guðmundsson. Höf-
undur les (6).
8.20 Alþingishátiðarkantata
1930 eftir Pál Isólfsson.
Flytjendur: Guömundur
Jónsson, Þorsteinn ö.
Stephensen, Karlakórinn
Fóstbræður, Söngsveitin
Fílharmónía og Sinfóníu-
hljómsveit Islands. Stjórn-
andi: Róbert A. Ottósson.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir. Lesiö úr
forystugreinum dagblað-
anna.
10.40 Frá þjóðhátíð í Reykja-
vík.
a. Hátíðarathöfn á Austur-
velli.
b. Guðsþjónusta í Dómkirkj-
unni kl. 11.16.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.20 Þjóöminningardagur í
Reykjavík. Árni Björnsson
tekur saman dagskrá um
hátíöahöld í höfuðstaðnum
kringum aldamót.
14.20 Tónleikar Kartakórs
Reykjavíkur i Langholts-
kirkju í april sl. Stjórnandi:
Páll P. Pálsson. Píanóleik-
ari: Guðrún A. Kristinsdóttir.
Einsöngvarar: Hreiðar
Pálmason, Friðbjörn G.
Jónsson og Hjálmar Kjart-
ansson.
16.30 „18. júní, íslenska
hestaveldið." Leikþáttur eft-
ir Signýju Pálsdóttur þyggð-
ur á sögunni „Konuhestar"
eftir Ólaf H. Torfason. Leik-
stjóri: Signý Pálsdóttir. Leik-
endur: Pétur Einarsson,
Þráinn Karlsson og Sunna
Borg. (Frá Akureyri)
18.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Skiptir fortíðin máli? Ól-
afur Ragnarsson stjórnar
umræðuþætti um tengsl
þjóðarinnar við sögu sína.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
Aöstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.46 Kammertónleikar í út-
varpssal. Martial Nardeau,
Bernard Wilkinsson, Guð-
rún Birgisson og Kolbeinn
Bjarnason leika á flautur.
a. Kvartett í E-dúr op. 103
eftir Friedrich Kuhlau.
b. „Sumardagur til fjalla"
eftir Eugéne Bozza.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.46 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Samleikur á fiðlu og
pianó. Guðný Guðmunds-
dóttir og Snorri Sigfús Birg-
isson leika lög eftir Árna
Björnsson, Þórarin Jónsson
og Sveinbjörn Sveinbjöms-
son.
20.00 Ekkert mál. Siguröur
Blöndal stjórnar þætti fyrir
ungt fólk. Aöstoðarmaöur:
Bryndls Jónsdóttir.
21.00 „Síðu-Hallur". Ljóða-
bálkur eftir Jakob Jónsson
frá Hrauni. Höfundur les og
Hörður Áskelsson leikur af
fingrum fram á orgel Hall-
grímskirkju. (Áður flutt á
hvítasunnudag í fyrra).
21.30 Útvarpssagan: „Njáls
saga". Einar Olafur Sveins-
son les (12).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.16 Veöurfregnir.
22.20 Þjóöhátiöarvaka. Ásta
R. Jóhannesdóttir tekur á
móti skemmtikröftum og
öðrum góðum gestum, þar
á meöal Léttsveit Ríkisút-
varpsins. (Sent út samtímis
á báðum rásum frá kl.
23.00).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
18. júní
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.16 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.06 Morgunstund barn-
anna: „MarkúsÁrelíus" eftir
Helga Guðmundsson. Höf-
undurles (7)
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Áður fyrr á árunum.
Umsjón: Ágústa Björnsdótt-
ir.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Bandarísk
tónskáld.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.46 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 ( dagsins önn - Börn
og umhverti þeirra. Umsjón:
Anna G. Magnúsdóttir og
Lilja Guömundsdóttir.
14.00 Miðdegissagan „Fölna
stjörnur" eftir Karl Bjarnhof.
Kristmann Guðmundsson
þýddi. Arnhildur Jónsdóttir
les (17).
14.30 Segðu mér að sunnan.
Ellý Vilhjálms velur og kynnir
lög af suðrænum slóðum.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
16.20 Hvað finnst ykkur?
Umsjón: Örni Ingi. (Frá
Akureyri.)
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veðurfregnir.
18.20 Píanótónlist.
a. Dinu Lipatti leikur Sónötu
nr. 8 í a-moll K. 310 eftir
Wolfgang Amadeus Moz-
art.
b. Emil og Elena Gilels leika
„Andantino varié" f h-moll
og „Grand Rondeau" f A-dúr
eftir Franz Schubert.
17.00 Fréttir.
17.03 Barnaútvarpiö. Stjórn-
andi Vernharður Linnet.
Aöstoðarmaður: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.46 ( loftinu. Umsjón Hall-
grímur Thorsteinsson og
Sigrún Halldórsdóttir.
Tónleikar. Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.46 Að utan. Fréttaþáttur
um eriend málefni.
20.00 Sagan: „Sundrung á
Flambardssetrinu" eftir
K.M. Peyton. Silja Aöal-
steinsdóttir les þýðingu sína
(5). .
20.30 Ýmsar hliðar. Þáttur í
umsjá Bernharðar Guð-
mundssonar.
21.00 íslenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
21.30 Þættir úr sögu Reykja-
víkur. — Verksmiðjuþorp
verður kaupstaður. Umsjón:
Gerður Róbertsdóttir.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.16 Veðurfregnir.
22.20 Hljóðvarp. Ævar Kjart-
ansson sér um þátt f sam-
vinnu við hlustendur.
23.10 Djassþáttur. — Tómas
R. Einarsson.
24.00 Fréttir. Dagskráriok.
ÞRIÐJUDAGUR
17. júní
09.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
son, Kolbrún Halldórsdóttir
og Gunnlaugur Helgason.
12.00 Hlé
14.00 Blöndun á staðnum
Stjórnandi: Siguröur Blönd-
al.
16.00 Hringiðan. Þáttur í um-
sjá Ingibjargar Ingadóttur.
17.00 f gegnum tíðina
Jón Olafsson stjórnar þætti
um islenska dægurtónlist.
18.00 Hlé.
20.00 Troðnar slóðir. Halldór
Lárusson kynnir kristilega
popptónlist.
21.00 íhimnalagi
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
stjórnar þættinum.
22.00 Hittogþetta
Tónlistarþáttur á rólegri nót-
. unum f umsjá Andreu Guð-
mundsdóttur.
23.00 Þjóöhátiöarvaka
Ásta R. Jóhannesdóttir tek-
ur á móti skemmtikröftum
og öðrum góðum gestum
þar á meðal Léttsveit Ríkis-
útvarpsins. (Sent út samtím-
is á báöum rásum.)
24.00 Undir svefninn
Ólafur Már Björnsson sér
um þátt með Ijúfri tónlist.
01.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar í þrjár
mfnútur kl. 11.00, 15.00,
16.00og 17.00.
MIÐVIKUDAGUR
18. júní
09.00 Morgunþáttur
Stjórnendur: Ásgeir Tómas-
son, Kolbrún Halldórsdóttir
og Gunnlaugur Helgason.
Inn í þáttinn fléttast u.þ.b.
fimmtán mínútna barnaefni
kl. 10.5 sem Guðríður Har-
aldsdóttirannast.
12.00 Hlé
14.00 Kliöur
Þáttur f umsjá Gunnars
Svanbergssonar og Sigurð-
ar Kristinssonar. (Frá Akur-
eyri.)
16.00 Núerlag
Gunnar Salvarsson kynnir
gömul og ný úrvalslög aö
hætti hússins.
16.00 Taktar
Stjórnandi: Heiðbjört Jó-
hannsdóttir.
17.00 Erill og ferill
Erna Arnardóttir sér um tón-
listarþátt blandaöan spjalli
við gesti og hlustendur.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar í þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISUTVORP
REYKJAVÍK
17.03—18.16 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
ð
SJÓNVARP
Sjá dagskrá sjónvarps á bls. 42