Morgunblaðið - 17.06.1986, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
LISTAHATIÐIREYKJAVIK
Margaret Price, stórbrotin túlkun og söngur, verður hlustendum minnisstæður um langan tíma.
Heims-söngvari
Tónlist
Jón Ásgeirsson
„Ber er hver að baki nema sér
bróður eigi," var einu sinni sagt
er mikið lá við og nú var það
öðru sinni að auglýstur söngvari
átti ekki að heiman frjálst að fara.
En Listahátíð átti hauk í homi
þar sem Margaret Price var og
hún kemur að morgni laugardags,
syngur síðdegis og er svo flogin
til Parísar, þar sem hún hefur
verk að vinna.
Þau söngverk, sem hún flutti
með Sinfóníuhljómsveit íslands
undir stjóm Jean-Pierre Jacquill-
at, vom stór-aríur úr frægum
óperum. Það fyrsta var tónles og
aría (Dove sono) greifainnunnar,
úr þriðja þætti óperunnar Brúð-
kaup Figaros, eftir Mozart, þar
næst Ritoma vincitor, atriði Aidu,
úr fyrsta þætti í samnefndri ópem
eftir Verdi og aríu Desdemónu (O,
salce) úr fjórða þætti ópemnnar
Otello, eftir Verdi. Eftir hlé söng
Price aríu úr 11 trovatore, eftir
Verdi, aðra úr La Boheme, eftir
Puccini, og síðast aríu úr La Forca
del destino (Pace, pace), eftir
Verdi. Hvort sem Margaret söng
veikt eða svo sterkt, að hún yfír-
gnæfði hljómsveitina, brást henni
aldrei bogalistin og í söngtækni
er hún óviðjafnanlega góð. Þá er
ekki síður stórkostlegt við söng
hennar að túlkun hennar er svo
sterk og samofín söngnum, að
unun er á að hlýða. Þegar slíkan
listamann ber að garði er í raun
óþarfí að hafa um það önnur orð
en að Margaret Price er HEIMS-
SÖNGVARI. Auk söngatriðanna
flutti hljómsveitin nokkra forleiki
og vom sumir þeirra skemmtilegir
áheymar en í undirleikshlutverk-
inu stóð hljómsveitin sig vel, enda
sjálfsagt vart nokkuð það
skemmtilegra til en að leika með
svo frábæmm listamanni og
Margaret Price.
Kvikmy ndasj óður:
Námskeið í
gerð kvik-
myndahand-
rita
I FRÉTTATILKYNNINGU sem
Kvikmyndasjóður Islands sendir
frá sér segir að einum íslenskum
kvikmyndagerðarmanni muni í
júlímánuði gefast tækifæri til að
sækja námskeið í gerð kvik-
myndahandrita sem haldið er af
bandaríska kvikmyndagerðar-
manninum Frank Daniels fyrir
tíu Evrópubúa í Briissel.
Frank Daniels hefur undanfarin
ár kennt kvikmyndahandritsgerð
við Columbía-háskóla í New York
og m.a. verið kennari og ráðunautur
Milos Forman. Hann hefur veitt
samþykki sitt fyrir að einn íslend-
ingur fái þátttökurétt í námskeiði
sem hann heldur á vegum
Flæmsku-Evrópustofnunarinnar í
Brussel.
Námskeiðið stendur í þrjá mán-
uði alls; júlí, desember og maí á
næsta ári og eiga þátttakendur þá
að skila handriti sem er tilbúið til
töku. Þeim sem áhuga hafa á nám-
skeiði þessu er bent á að hafa
samband við framkvæmdastjóra
Kvikmyndasjóðs sem allra fyrst og
mun hann veita allar nánari upplýs-
ingar.
Kirkjukór
Hveragerðis
og Kotstrandar-
sóknar 40 ára
KIRKJUKÓR Hveragerðis og
Kotstrandarsóknar á 40 ára
afmæli á þessu ári. Af þessu til-
efni heldur kórinn afmæiistón-
leika í Hveragerðiskirkju mið-
vikudaginn 18. júní kl. 20:30.
Kórinn er á förum á vinabæjar-
mót í Ömsköldsvik í Svíþjóð ásamt
fleiri Hvergerðingum og Ölfusing-
um.
Einnig mun kórinn syngja í
Noregi og Finnlandi.
Jacqueline
Picasso færir
Listahátíð
árituð
veggspjöld
að gjöf
JACQUELINE Picasso gaf, áður
en hún fór úr landi, Listahátið
100 veggspjöld að Picasso-
sýningunni á Kjarvalsstöðum,
sem hún hefur áritað persónu-
lega, númerað og tölusett.
Veggspjöld þessi eru til sölu að
Kjarvalsstöðum og er verð þeirra
5.000 krónur stykkið.
Björgunar-
sveitin
Albert með
kaffisölu
Björgunarsveitin Albert á
Seltjarnarnesi heldur sina ár-
legu kaffisölu í félagsheimil-
inu f dag, 17. júní, og hefst
hún kl. 15.
Sveitin hefur nýlega fest kaup
á Viking-hraðbjörgunarbát og
mun ágóðinn af sölunni renna
til kaupanna.