Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIBJUDAGUR17. JÚNÍ 1986
Séð yfir tjaldsvæði Mosfells á Hellu. Fjær eru sumarhúsin og tjald-
skálinn til hægri.
Jón Bergþór Rafnsson, framkvæmdastjóri, Jón Óskarsson og Einar
Kristinsson snæða kvöldverð í skálanum.
Morgunblaðið/Ólafur
Nýkjörin sveitarstjórn Egilsstaðahrepps ásamt sveitarstjóra: ÞorkeU
Sigurbjörnsson (H-lista), Broddi Bjarnason (B-lista), ÞórhaUur Eyj-
ólfsson (B-Usta), Sigurður Símonarson, sveitarstjóri, Helgi HaUdórs-
son (D-lista), Sveinn Þórarinsson (B-lista), Guðbjört Einarsdóttir
(D-lista) og Siguijón Bjarnason (G-Usta).
Egilsstaðir:
Meirihluti myndað-
ur í hreppsnefnd
— Helgi Halldórsson kjörinn oddviti
Egilsstöðum.
FYRSTI fundur nýkjörinnar hreppsnefndar Egilsstaðahrepps var
haldinn á þriðjudag og kom þá í ljós að Alþýðubandalag, Sjálfstæðis-
flokkur og Samtök óháðra áhugamanna um hreppsmál (H-listi) hafa
myndað með sér meirihluta á komandi kjörtímabiU um stjórnun
sveitarfélagsins skv. sérstökum málefnasamningi og samkomulagi
um kosningar í ráð og nefndir. Framsóknarmenn sitja því einir í
minnihluta. Formlegur meirihluti hefur ekki verið myndaður áður
í hreppsnefnd Egilsstaðahrepps.
Oddviti var kjörinn Helgi Hall-
dórsson (D-lista) og varaoddviti
Siguijón Bjamason (G-lista). I
hreppsráð voru kjömir af meirihluta
Helgi Halldórsson, oddviti og Þor-
kell Sigurbjömsson (H-lista) en af
minnihluta Sveins Þórarinsson
(B-lista), fráfarandi oddviti.
Samþykkt var einróma á fundin-
um að leita samkomulags við Sigurð
Símonarson um að gegna áfram
starfi sveitarstjóra Egilsstaða-
hrepps, en hann tók við því starfi
fyrir réttu ári af Guðmundi Magn-
ússyni.
A fundinum á þriðjudag var
ennfremur kosið í bygginganefnd
og hlutu eftirtaldir kosningu: Þor-
kell Sigurbjömsson (H-lista), Páll
Pétursson (D-lista), Kristinn Áma-
son (G-lista), Þórarinn Hallgríms-
son (B-lista) og Völundur Jóhannes-
son (B-lista).
Hin nýja hreppsnefnd mun form-
lega taka við störfum hinn 15. þ.m.
og er fyrsti formlegi fundur hennar
áætlaður 24. þ.m. þar sem kosið
verður í hinar ýmsu nefndir hrepps-
nefndar.
í lok fundar á þriðjudag lögðu
framsóknarmenn fram bókun þar
sem meirihlutamyndunin er gagn-
rýnd og hún hörmuð með tilliti til
fyrri vinnubragða í hreppsnefnd.
Hinn nýi meirihluti lagði þá fram
svarbókun þar sem gagmýni minni-
hiutans er vísað á bug og áhersla
lögð á vilja meirihlutans til góðs
samstarfs við minnihlutann um
hagsmuni sveitarfélagsins._
—Ólafur
Morgunblaðið/Sigurgeir.
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum hlýtur viðurkenningu
Á myndinni er f.v. Páll Pétursson, Margrét Júlíusdóttir, eftirlitskona, Haukur Guðmundsson, yfirverk-
stjóri, Anna Sigurlásdóttir, verkstjóri og Stefán Runólfsson, forstjóri.
NIKE HJOLATJAKKAR
hydraulKS
VOKVATJAKKAR
fjl
' A.
1 BUB
J '§$*■*£$ Émmlt
■■ ■
;J|
£33Sm
Allt í bílinn «
m mciiust
Siöumúla 7-9, ® 82722