Morgunblaðið - 17.06.1986, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ 1986
19
Frá af maelisf agnaði Kvenfélags Akraness.
Grænlenskar konur frá Qaqortoq sem voru gestir kvenfélagskvenna
á Akranesi á af mælisf agnaði félagsins.
verkum Svövu Þorleifsdóttur sem
var frumkvöðull að stofnun félags-
ins og fyrsti formaður þess. Þá var
lýst kjöri heiðursfélaga og voru
eftirtaldar konur kjöman Helga
Jónsdóttir, Anna Jónsdóttir, Ólína
Þórðardóttir og Svava Finsen. Tvær
þær síðastnefndu voru meðal stofn-
enda félagsins en hinar hafa starfað
í félaginu í yfír 50 ár. Meðal gesta
á kvöldvökunni voru 12 konur frá
Grænlandi. í tilefni af afmælinu
afhenti kvenfélagið Sjúkrahúsi
Akraness að gjöf kr. 500.000 til
kaupa á hjartamonitor. Þessi flár-
hæð er ágóði af sölubúð sem félagið
fekur á sjúkrahúsinu og þar vinna
félagskonumar í sjálfboðavinnu við
rekstur hennar. Meðal annarra
atriða í hátíðardagskrá félagsins á
afmælisárinu var gróðursetning á
tijám og plöntum við listaverk As-
mundar Sveinssonar sem félagið
gaf ásamt fleirum í tilefni kvenna-
áratugarins og staðsett er á homi
Kalmansbrautar og Stillholts. Þá
imun félagið standa fyrir útgáfu á
Ibók með verkum Svövu Þorleifs-
dóttur og einnig verður gefínn út
afmælisplatti og verða á bakhlið
hans greipt nöfn allra þeiira kvenna
sem verið hafa formenn félagsins.
Kvenfélag Akraness hefur látið
ýmis framfaramál á Akranesi til sín
taka og má þar sérstaklega nefna
stuðning við stofnun og byggingu
Sjúkrahúss Akraness og enn þann
dag í dag berast sjúkrahúsinu gjafír
frá félaginu eins og fyrr er sagt.
Dagheimilismál hafa alltaf verið
ofarlega á baugi hjá félaginu, það
stofnaði m.a. fyrsta dagheimilið á
Akranesi sem starfrækt var yfír
sumartímann í bamaskólanum og
síðan keypti það húsnæði undir
starfsemina og rak hana um árabil
ásamt Akranesbæ. Þá hafa kven-
félagskonumar gefíð mikið af leik-
tækjum eða annað hliðstætt fyrir
böm. Þá hefur félagið mikið látið
til sín taka í umhverfís- og fegr-
unarmálum á Akranesi og hefur
nefnd um þau mál lengi verið starf-
andi innan félagsins.
Fjarri fer að hér sé um tæmandi
upptalningu að ræða á því sem
Kvenfélag Akraness hefúr staðið
fyrir eða komið til leiðar enda hafa
störf félagsins á hverjum tíma
miðast að því að gera vel fyrir þá
sem þess þurfa. Á árum áður nutu
þeir sem ekki vom vel efnum búnir
góðs af félaginu og það sama á við
í dag, þó á margan hátt séu breytt-
ir tímar, nú er mest unnið fyrir
aldraða, sjúka eða yngri kynslóðina.
Nú á þessum tímamótum
minnast konumar í félaginu braut-
ryðjandanna sem skópu félagið á
sínum tíma og víst er að það hefur
verið meira mál en hægt er að gera
sér grein fyrir nú. Á þeim ámm var
erfítt um vik hjá mörgum en kon-
umar létu það ekki aftra sér. Saga
félagsins í 60 ár er saga um mikinn
dugnað og fómfysi þeirra sem þar
áttu í hlut. Núverandi_ formaður
félagsins er Ragnheiður Ólafsdóttir.
JG
Guðmundur Auðbjömsson, Sig-
urður ómar og Helga, en þau
reka veitingastaðinn Hlíðargrill
á Eskifirði.
Eskifjörður:
Nýr veit-
ingastaður
á Eskifirði
Eskifjörður.
Nýr veitingastaður hefur verið
opnaður í Shell-skálanum á Eski-
firði. Heitir hann Hlíðargrill. Stað-
urinn er nú orðinn hinn glæsileg-
asti. Húsnæðið allt endumýjað og
settar inn nýjar innréttingar. Sæti
era fyrir 32.
Þá hefur öll aðstaða til bensín-
og olíuafgreiðslu Skeljungs einnig
verið endurbætt. Ekki var annað
að sjá en að bæjarbúar og nágrann-
ar kynnu að meta staðinn því mikið
hefur verið að gera síðan hann var
opnaður.
Það er Guðmundur Auðbjömsson
sem rekur Shell-skálann og Hlíð-
argrill. Hann selur Tomma-borgara
af krafti og fékk í upphafí tvo
matreiðslumenn til þess að kynna
borgarana fyrir Eskfírðingum.
Ekki er að efa að margir eiga
eftir að heimsælqa staðinn og fá
sér veitingar. Guðmundur rekur
staðinn ásamt flölskyldu sinni, eig-
inkonu og sonum. Ævar
Ein aöal fjárðflunarieið Uonsklúbbs þessari útskipun voru 26tunnur. Kaupandi Pvskir Lionsfelagar bjooa geS
Stöð varfj örður:
Lionsmenn salta þorskhrogn
Höfn, Homafirði,
Lionsklúbbur Stöðvarfjarðar
hefur aflað fjár með söltun
þorskhrogna. Skipverjar á skut-
togurunum tveimur sem þaðan
eru gerðir út, hirða öll þorsk-
hrogn og ísa í kassa. Lionsfélag-
ar taka svo við hrognunum í landi
og salta í tunnur, sem eru seldar
til Svíþjóðar með góðum hagn-
aði.
Tilkostnaður við hveija tunnu er
aðeins 2.300 kr. en það er tunna,
salt, sykur og flutningsgjald til
Svíþjóðar. Söluverð er hinsvegar
2.000 sænskar krónur eða um
11.300 íslenskar. Kaupandi hrogn-
anna er fyrirtækið ABBA í Sviþjóð.
Alis hagnaðist Lionsklúbburinn um
234.000 kr. á þeim 26 tunnum sem
hafa verið seldar. — Steinar
Bundin sparibók er sérhönnuð fyrir seðlana þína.
Þad fer svo vel um þá að þeir fjölga sér stöðugt.
Höfuðkostir bókarinnar eru háir vextir'
og stuttur binditími.
Bundin sparibók er einungis fáanleg hjá
Sparisjóði vélstjóra.
'Upplýsingar um kjör bókarirmar er að finna á peningamarkaössiöu dagblaöanna,
gerið samanburö við aðra innlánsreikninga.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
BOR6ARTÚMI8 SÍMI28577
DÚ BINDIIR VEL
UM DAB SEM
PER ER ANNT UM