Morgunblaðið - 17.06.1986, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
VISA með nýjungar fyrir ferðamenn:
Taka upp greiðslu-
seðla fyrir gistiþjónustu
Bjóða auk þess upp á öryggisbókunarkerfi hjá
hótelum og innanlandsflugi Flugleiða
VISA ísland mun þann 18. þessa
mánaðar kynna nýjung í þjón-
ustu sinni, sem nefnd er gisti-
þjónusta. Að sögn Amar Peter-
sen hjá VISA er hér um greiðslu-
seðlaform að ræða fyrir gistingu
og segir Óm að þeir hjá VISA
geri sér vonir um að svona
greiðsluseðlaform verði orðið að
alþjóðlegum gjaldmiðli eftir tvö
til þijú ár.
Þessi greiðslumiðill er kynntur
samtímis i Svíþjóð, Bretlandi,
PortúgaJ, Austurríki, Sviss, Ind-
landi og Islandi.
„Það er búið að vera nokkuð
langur aðdragandi að því að þetta
gæti gerst," sagði Örn, „en í dag
er formið þannig að ferðamaðurinn
fær greiðsluseðil til þess að afhenda
þar sem hann hefur pantað sér
gistirými á þeirri ferðaskrifstofu
sem skipuleggur fyrir hann ferð
hans. Þessir greiðsluseðlar (voue-
hers) eru svo innheimtir af hótelun-
um eftir dúk og disk, og iðulega
er það þannig að ferðaskrifstofum-
ar liggja með þessa fjármuni í tals-
verðan tíma, áður en greiðsla er
innt af hendi, eða allt upp í 90
daga.“
- Er þetta nýja form þá einvörð-
ungu til hagræðingar fyrir hótelin?
„Nei, síður en svo. Auðvitað er
hagræðing af þessu fyrir hótelin,
en það er einnig hagræðing af þessu
fyrir ferðaskrifstofumar og síðast
enn ekki síst fyrir ferðamennina,"
segir Öm. Hann bendir á að á síð-
asta ári hafi íslenskar ferðaskrif-
stofur tapað umtalsverðum fjár-
munum vegna greiðsluseðla frá
bresku ferðaskrifstofunni „Sonic
World", sem varð gjaldþrota á sl.
ári. Það hafí því ekki fengist króna
upp í þá greiðsluseðla sem þegar
var búið að nota hér á landi. Það
sé því staðreynd að greiðsluseðlar
séu í gildi núna, án allrar ábyrgðar,
en svo verði hins vegar ekki með
greiðsluseðlana frá VISA. Hótelin
sem fái VISA- greiðsluseðla sem
borgun geti einfaldlega vísað þeim
fram í næsta banka og um leið og
Morgunblaðið/Einar Falur
Þetta er sýnishorn af þvi hvernig nýju greiðsluseðlarnir, tíl greiðslu
m.a. fyrir gistiþjónustu, lita út.
Örn Petersen hjá VISA handleikur hér nýju greiðsluseðlana sem
verða teknir í notkun þann 18. þessa mánaðar.
það sé gert, sé viðkomandi ferða-
skrifstofa sem gaf seðilinn út,
skuldfærð fyrir upphæðinni. Hótelin
geti því fengið greiðslu fyrir þjón-
ustu sína daginn eftir að hún er
veitt upp í 30 dögum síðar en það
sé mismunandi eftir því hvaða land
á í hlut. Jafnframt þurfi ferðaskrif-
stofur sem notfæri sér þetta
greiðsluform ekki að greiða fyrir-
fram til hótela fyrir gistiiými, þar
sem þessi greiðslumáti sé nánast
gulltryggður.
- En ferðamaðurinn sjálfur - á
hvaða hátt er hann betur settur
með VISA- greiðsluseðil?
„Ja, ferðamaðurinn stendur uppi
einn og vegalaus ef hann tapar
venjulegum greiðsluseðli í útlönd-
um, og getur nánast ekkert gert
nema hann og hugsanlega hótelið
hafí af því mikla fyrirhöfn. Hafi
hann hins vegar glatað VISA-
greiðsluseðli, fer hann einfaldlega
í næsta banka og fær nýjan
greiðsluseðil. Þegar litið er til þess
að það eru um 170 þúsund af-
greiðslustaðir VISA í heiminum,
hlýtur þetta að skoðast sem allgóð
tiygging."
Om segir að þótt þessi þjónusta
sé ennþá á algjöru kynningarstigi,
en fyrsti greiðsluseðillinn verður
væntanlega gefinn út á Akureyri
þann 18. þessa mánaðar, séu hótel
þegar farin að sýna viðbrögð og
Ollum er augljóst gildi þess að
vinna með öðrum - taka sameigie-
lega á þeim verkefnum sem eru
hverjum og einum ofviða. !l vi
Án samvinnu og samstöðulands-
manna allra hefði íslensku þjóðinni
seint tekist að brjóta á bak aftul
áþján erlends valds og öðlast sjálf-
stæði 17. júní 1944.
Samvinnufélögin eru frjáls og
óháð félagasamtök meira en 45.000
einstaklinga. Samvinnuhreyfingin
vill vera öflugur þátttakandi í fram-
fararsókn íslensku þjóðarinnar. Hún
vill vinna með öðrum þjóðhollum
öflum við að byggja upp traust efn-
ahagslíf og taka á þann hátt virkan
þátt í ævarandi sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar.
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Olafur Th.
Ólafsson sýnir
í Hveragerði
ÓLAFUR Th. Ólafsson frá Sel-
fossi opnaði málverkasýningu í
Eden í Hveragerði þann 16. júní
næstkomandi. Sýningin stendur
til 30 þessa mánaðar.
Á sýningunni eru 46 olíu- og
vatnslitamyndir af landslagi, hús-
um, fólki úr fortíð og nútíð og fleiru.
Mjmdimar em allar til sölu.
Þetta er fimmta einkasýning Ól-
afs, en hann hefur að auki tekið
þátt í nokkmm samsýningum. Ólaf-
ur lauk prófi frá Málaradeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands árið
1979.
^-\uglýsinga-
siminn er22480
8p\-í\ <' f
.