Morgunblaðið - 17.06.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
31
Jorge Luis Borges.
Morgunblaðið/Heimir Stígsson
Filippseyjar:
Marcos sagður hafa
haft áhrif á dómstól
SHonolulu, AP.
KNARI á Filippseyjum
bar að Ferdinand Marcos hefði
haft áhrif á málsmeðferð, vegna
morðsins á Benigno Aquino árið
1983.
Þetta kom fram í vitnisburði
saksóknarans, Manuel Herrera,
þegar hann kom fyrir sérstaka
rannsóknamefnd, sem hefur það
hlutverk að grafast fyrir um áreið-
anleika réttarhaldanna. Rannsókn-
amefndin, sem skipuð er þremur
dómumm, er sestir vom í helgan
stein, rannsakar nú málsmeðferð-
ina, svo að hæstiréttur landsins,
geti ákveðið hvort taka beri málið
fyrir að nýju. Réttarhöldunum lauk
með sýknu Fabians Ver hershöfð-
ingja og nokkurra hermanna, sem
vom á flugvellinum, til þess að taka
á móti Aquino, þegar hann sneri
heim úr útlegð.
Herrera sagði að 10. janúar, árið
1985 hefði Marcos boðað á sinn
fund dómarann og fulltrúa ákæm-
valdsins og sagt þeim að sjá til
þess að Ver og undirmenn hans
yrðu sýknaðir. Hann kom einnig
með þá tillögu að þeir yrðu ákærðir
fyrir samsekt, en ekki fyrir að vera
upphafsmenn morðsins, svo að þeir
gætu gengið lausir gegn tryggingu.
Féllust allir fundarmenn á að uppá-
stunga forsetans væri farsælust.
Herrera sagði að Marcos hefði
litið mjög illa út og augsýnilega
verið veikur maður. Hann hefði
Marcos
haft bjúg í andliti, verið þvoglu-
mæltur og óskýr í hugsun. Sér til
aðstoðar hafði hann eiginkonu sína,
Imeldu, og lögfræðing sinn, Manuel
Lazaro.
Þegar fundinum lauk sagðist
Marcos vera þreyttur og þurfa að
hvflast, þakkaði fundarmönnum
fyrir komuna og samstarfið og
sagðist kunna að endurgjalda
greiða, sér gerða.
Marcos hvetur
stuðningsmenn sína
til stillingar
Marcos, sem nú dvelst á Hawaii,
sagði í viðtali við AP á sunnudag,
að suma stuðningsmenn hans skorti
þolinmæði og hugleiddu jafnvel að
grípa til ofbeldisaðgerða gegn
stjóm frú Aquino. Marcos lagðist
eindregið gegn öllum slíkum áætl-
unum og bað stuðningsmenn sína
að hafa einungis uppi friðsamleg
mótmæli, sækja um leyfi fyrir fund-
um sínum og fara að tilmælum
lögreglu.
„Sumu fólki finnst að það eigi
að taka völdin, án afskipta minna
og afhenda mér stjómartaumana
að því loknu." Hann sagði að hann
myndi ekki snúa aftur til Filipps-
eyja, nema til þess að beijast með
hemum gegn kommúnistum, en
hann óttast að frú Aquino megni
ekki að bæla uppreisnartilraunir
þeirra. „Við munum aldrei drepa
aðra Filippseyinga, aðeins vegna
þess að ég vil verða forseti."
Kommúnistar hafa að undan-
fömu sagt að þeir vilji allt leggja
í sölumar, svo að friður komist á í
landinu. Þeir segja þó að þeir muni
kretjast þess að herinn hörfi frá
átakasvæðum, en frú Aquino segir
það af og frá. Friðarviðræðumar
munu hefjast bráðlega, en enn
stendur á því hveijir verði samn-
ingamenn stjómarinnar.
Efnahagur Filippseyja hefur
vænkast upp á síðkastið. Veldur
þar bætt gjaldeyrisstaða, en bæði
hafa fjárfestingar aukist og meira
ber á því en áður, að Filippseyingar
erlendis sendi peninga heim. Enn-
fremur hefur dregið úr verðbólgu.
I
BneYoungCanmbals
HHEVOUHGCHHHBtó
asssp1-
rncvouho
CANNWALS
•ru
uoydcoie- . 'Fifl.e 1
Ca man á eina d^^tómsveitum.
ÖUmyndUondþaaeins kr-4 OQQ
Easy Pieces
FÁLKINN FÁLKINN FÁLKINN FÁLKINN
Laugavagi 24.
S. 18670.
Suöurlandabraut 8.
S. 84870.
SuAurlandabraut 8.
S. 84870.
Póstkröfur
S. 685149.
□IGITAL AUDIO
Höfum fengiðmikiðúrvalaf CDplötum. |/r:N |\▼ /r\r\r\
Viðspilum okkarplöturá IxLIInI\y OOD laserspilara