Morgunblaðið - 17.06.1986, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ 1986
37
Suðurlandsmót í hestaíþrottum:
Velheppnað mót þrátt
fyrir afleitt veður
I ÞRIÐJA sinn var haldið Suð-
urlandsmót í hestaíþrottum
sem virðist vera búið að tryggja
sér fastan sess í fjölskrúðugn
mótahaldi hestamanna. Var
mótið haldið að þessu sinni að
Flúðum en þar hafa ekki fyrr
verið haldið stórmót. Á staðn-
um er ágætis 300 metra hring-
völlur með þverbraut fyrir
íþróttakeppni og bein braut
fyrir gæðingaskeið. Eins og
aðstæðum háttar nú er ekki
sérlega góð aðstaða fyrir
áhorfendur en við aðra hlið
vallarins er brekka sem mætti
gera að ágætis áhorfenda-
brekku. Að öðru leyti má telja
Flúðir ákjósanlegan stað fyrir
stærri íþróttamót því þarna er
til staðar ágætis gisti- og veit-
ingaþjónusta auk þess sem
þarna er sérlega fallegt og
vinalegt.
Þrátt fyrir að veður hafi leikið
keppendur og mótshaldara grátt
þá tvo daga sem mótið stóð yfir
tókst framkvæmdin með miklum
ágætum, tímasetningar stóðust
fullkomlega ef undan er skilið að
mótið byrjaði örlítið seinna á laug-
ardeginum en ráð hafði verið fyrir
gert en það kom lítið að sök því
fljótlega tókst að vinna upp þessa
töf. Mótinu lauk síðan um fímm-
leytið á sunnudag og voru menn
sammála um þetta hafí verið
sterkt mót og vel lukkað. Að sögn
Helga Guðmundssonar mótsstjóra
áttu keppendur stóran þátt í að
gera þetta mót svo eftirminnilegt
fyrir utan að mæta með gullgóða
hesta í keppni því stundvísi þeirra
hefði verið með miklum ágætum.
„Veðrið á laugardeginum var það
slæmt að búast hefði mátt við að
dagskráin færi eitthvað úr skorð-
um,“ sagði Helgi.
En úrslit urðu sem hér segir
(stigin eru úr forkeppni).
Tölt stig
JónG.Þorkelss.áStígandafráÞóreyjamúpi 89,60
GeoigKristjánssonáHerði, 81,60
OrriSnorrasonáKóralfráSandlækjarkoti, 84,53
SigurbjömBárðarsonáGárafráBæ, 82,93
Gísli Gfslason á Sóla, 82,13
fjórgangur
SigurbjömBárðarsonáGárafráBæ, 54,74
Jón G. Þorkelsson á Stlganda frá Þóreyjamúpi, 54,06
Gfsli Gfslason á Sóla, 54,74
GeorgKristjánssonáHerði, 51,68
AtliGuðmundssonáSkagfjörð, 50,83
Fimingangur
SigurbjömBárðarsonáKalsafráLaugarvatni, 56,80
Hinrik Bragason á Kraka, 53,80
Orri Snorrason á fjalari frá Kvlabekk, 52,00
AtliGuðmundssonáStiganda, 54,20
HermannlngasonáDjassfráGerðum, 51,60
Hlíðnikeppni
Sigurbjöm Bárðarson á Gára frá Bæ, 38,00
JónG.ÞorkelssonáStigandafráÞóreyjamúpi, 34,00
SteingrimurViktorssonáGránafráBjólu, 15,00
Gæðingaskeið
SigurbjömBárðarsonáKalsafráLaugarvatni, 82,00
GuðniJónssonáÞyrli, 77,50
HermannlngasonáDjassfráGerðum, 74,00
Tölt unglinga 12 ára og yngri
Hákon Pétursson á Iimbó, 69,33
Katrfn Sigurðardóttir á Tvisti, 65,60
ÞorvaldurÞorvaldssonáFlugu, 60,80
HaUdóra Eiríksdóttir á LétU, 54,13
HjömýSnorradóttiráOpal, 38,13
Fjórgangurunglinga, 12áraogyngri
HákonPéturssonálimbó, 45,56
GisliGeirGylfasonáSkáta, 43,35
KatrínSigurðardóttiráTvisti, 45,56
Halldóra Eirfksdóttir á Létti, 28,89
HjömýSnorradóttiráOpal, 28,89
Tölt unglinga 13 til 15 ára
HörðurHaraldssonáHáfifráLágafelli, 77,07
BorghildurÁgústsdóttiráKrumma, 70,13
HeiðarEirikssonáVon, 66,67
ElinÓskÞórisdóttiráStjömu, 64,53
RagnaGunnarsdóttiráTjörva, 58,40
Fjórgangurunglinga, 13tQ 15ára
Hörður Haraldsson á Háfi frá Lágafelli, 47,90
BorgbildurÁgústsdóttiráKmmma, 46,41
42,16
RagnaGunnarsdóttiráTjörva, 40,80
ElínÓskÞórisdóttiráStjömu, 37,06
Sigurvegari í íslenskri tví-
keppni, Jón Gísli Þorkelsson á
Stíganda frá Þóreyjamúpi,
142,66. Sigurvegari í skeiðtví-
keppni Sigurbjöm Bárðarson á
Kalsa frá Laugarvatni, 138,80.
Stigahæsti keppandinn Sigur-
bjöm Bárðarson, 314,47. Sigur-
vegari í íslenskri tvíkeppni ungl-
inga 12 ára og yngri Hákon Pét-
ursson á Limbó, 114,89. Sigur-
vegari í íslenskri tvíkeppni ungl-
inga 13 til 15 ára, Hörður Á.
Haraldsson á Háfí frá Lágafelli,
125,01.
Morgunblaðið/Sig. Sigm.
Sigurbjörn Bárðarson á Kalsa frá Laugarvatni, en þeir sigruðu
í fimmgangi.
Heiðar Eiríksson á Von,
17. júní:
Hátíðahöld um allt land
DAGSKRÁ hátíðahaldanna á þjóðhátíðardaginn, 17. júni, verður
víðast hvar á landinu með nokkuð hefðbundnu sniði.
Reykjavík: Dagskráin hefst að
venju með samhljómi kirkju-
klukkna kl. 10 og þá leggur for-
seti borgarstjómar blómsveig að
leiði Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu. Hátíðin
verður síðan sett á Austurvelli kl.
10.30. Flutt verða ávörp og forseti
íslands Vigdís Finnbogadóttir
leggur blómsveig frá islensku
þjóðinni að minnisvarða Jóns
Sigurðssonar. Guðsþjónusta verð-
ur í Dómkirkjunni kl. 11.15. Tvær
skrúðgöngur verða á þjóðhátíðar-
daginn og hefjast þær báðar kl.
13.30. Önnur leggur af stað frá
Hagatorgi og er gengið í Hljóm-
skálagarðinn en hin fer frá
Hlemmi og niður Laugaveginn að
Lækjartorgi. í miðborginni verður
skemmtidagskrá á þremur leik-
sviðum og hefst hún alls staðar
kl. 14. Leiksviðið verða staðsett
á Lækjartorgi, í Hljómskálagarð-
inum og í Hallargarðinum við
Fríkirkjuveg 11, þar sem dagskrá-
in verður sérstaklega miðuð við
yngstu kynslóðina. Á meðan
skemmtiatriði verða flutt á leik-
sviðunum verður leikhópurinn
„Veit mamma hvað ég vil“ með
götuleikhús í miðbænum og verð-
ur hápunktur þess og jafnframt
lokaatriði skemmtidagskrárinnar
á Tjamarbrúnni kl. 16.15 til
16.30. Til kl. 17.30 verður svo
dansleikur fyrir _böm í Hljóm-
skálagarðinum. í kvöld verður
skemmtun í miðbænum þar sem
fram koma ýmsar hljómsveitir og
skemmtikraftar.Ýmislegt fleira
verður til skemmtunar á hátíðar-
svæðinu svo sem dýragarður í
Hljómskálagarðinum þar sem ís-
lensku húsdýrin verða til sýnis
ásamt afkvæmum, Fombílaklúbb-
ur íslands verður með sýningu í
Kolaporti, Siglirigafélag Reykja-
víkur með bátsferðir á tjöminni
o.fl.
Fyrir eldri borgarana verður
blönduð dagskrá í Frostaskjóli kl.
16.30 til 19 og í Gerðubergi kl.
20.30 til 23.
Kópavogun Dagskráin hefst kl.
10 með því að Homaflokkur
Kópavogs leikur við Kópavogs-
hæli. Skrúðganga verður síðan
frá Kópavogskirkju kl. 13.30 og
verður gengið í Hlíðargarð.
Homaflokkurinn leikur fyrir
göngunni og skátar sjá um fána-
borg. Hátíðardagskráin hefst síð-
an í Hlíðargarði kl. 14, ræðumað-
ur dagsins er sr. Sigurbjöm Ein-
arsson, biskup. Meðal þeirra sem
fram koma em Bergþóra Áma-
dóttir, kór Kársnesskóla og ICY-
flokkurinn. a hátíðarsvæðinu
verður einnig Brúðubfllinn og Jón
Páll og bömum verður gefínn
kostur á að fara á hestbak. Knatt-
spyma verður á Kópavogsvelli,
þar leika Augnablik og eldri flokk-
urUBK.
Hafnarfjörðun Hátíðahöldin
heflast kl. 10 á Kaplakrikavelli
þar sem haldið verður fijáls-
íþróttamót. Einnig verður þar
knattspyma. Kl. 13.30 verður svo
safnast saman í Hellisgerði þar
sem Lúðrasveit Hafnarfjarðar
leikur. Að lokinni helgistund,
kl.14.15, verður síðan skrúðganga
frá Hellisgerði, upp Reykjavíkur-
veg að Thorsplani, en þar hefst
hátfðarsamkoma kl. 15.00. Hátíð-
arræðu flytur Már Pétursson.
Meðal skemmtiatriða verða
Hvammsbræður, Tóti Trúður,
ICY-hópurinn o.fl. Kl. 17 verða
tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju
þar sem kór Flensborgar sjmgur.
Þá verður einnig handknattleikur
við Lækjarskóla. í kvöld kl. 18
verða unglingahljómleikar á
Thorsplani og kl. 19.45 hefst
kvöldskemmtun í íþróttahúsinu
við Strandgötu.
Mosfellssveit: Hátfðarhöldin
hefjast kl. 10 á íþróttasvæðinu
við Varmá með víðavangshlaupi
UMFA. Þá verður Flugklúbburinn
með sýningu á Tungubökkum. í
Lágafellskirkju verður bamasam-
koma kl. 11. Eftir hádegi verða
tvær skrúðgöngur og leggja þær
báðar af stað kl. 13.30. Onnur fer
frá Álftanga en hin frá Stórateigi
og enda þær báðar við íþróttahús-
ið að Varmá þar sem flutt verður
ávarp, Skólahljómsveit Mosfells-
sveitar leikur og Leikfélag Mos-
fellssveitar sér um bamaskemmt-
un. Frá kl. 15 til 20 verður Flug-
klúbburinn með útsýnisflug o.fl.
á Tungubökkum ef veður leyfir.
Kaffísala verður í Hlégarði kl. 16.
í kvöld verður baraadansleikur í
Varmárskóla kl. 19.30 til 20.30
en kl. 20 hefst ijölskylduskemmt-
un í íþróttahúsinu að Varmá. Að
lokum verður svo dansleikur fyrir
alla aldursflokka á hátíðarsvæð-
inu kl.22.
Garðabær: Dagurinn hefst með
víðavangshlaupi bama fæddum
1973-1980. Kl. 14 verður skrúð-
ganga frá gatnamótum Karla-
brautar og Hofstaðabrautar og
gengið að hátíðarsvæðinu við
Garðaskóla þar sem ýmislegt
verður til skemmtunar. K1 16.15
hefst svo skemmtidagskrá í
íþróttahúsinu Ásgarði. í kvöld kl.
20 hefst svo dansleikur fyrir alla
aldurshópa í Garðalundi og stend-
urtil 23.30.
Akranes: Dagskráin hefst kl. 9
með fánahyllingu á Akratorgi en
kl. 10 verður ókeypis kvikmynda-
sýning fyrir böm í Bíóhöllinni.
Hátíðarmessa verður í kirkjunni
kl. 13.30 og á Akratorgi hefst
hátíðardagskrá kl. 15, fullveldis-
ræða, lúðrasveit og ávarp fjall-
konunnar. Skrúðganga verður frá
Akratorgi kl. 15 og gengið að
iþróttavellinum þar sem ýmislegt
verður til skemmtunar. í kvöld
kl. 19 verður Skagaleikflokkurinn
síðan með aðra skrúðgöngu frá
Iðnskólanum að íþróttahúsinu við
Vesturgötu þar sem verður boðið
upp á skemmtidagskrá og dans-
leik. Gömludansaball verður í Rein
kl. 22.
ísafjörðun Hátíðin verður sett
kl. 14 á hátíðarsvæðinu við
sjúkrahúsið. Jón Kristjánsson
alþingismaður flytur ræðu, kórar
syngja og farið í leiki. Á íþrótta-
svæðinu við Tomes hefst síðan
dagskrá kl. 16 en þar verður víða-
vangshlaup o.fl. í kvöld verður
síðan dansleikur við grunnskólann
kl. 21. Þess má geta að á ísafírði
er í heimsókn fínnskur karlakór
og verður hann með tónleika í
grunnskólanum kl. 17.
Sauðárkrókun Hátíðin hefst
með hópreið Hestamannafélags-
ins Léttfeta kl. 10 og munu félag-
ar teyma undir bömum á íþrótta-
vellinum kl. 11. Skrúðganga verð-
ur frá Stafsvelli kl. 13.30 í umsjón
skátafélagsins Eilífsbúa og verður
gengið að íþróttavellinum þar sem
hátíðardagskrá hefst kl. 14. í
kvöld kl. 19 til 21 verður bama-
ball fyrir 12 ára og yngri í Bifröst
og kl. 21 til 24 fyrir unglinga,
12 til 16 ára, þijár unglingahljóm-
sveitir leika fyrir dansi.
Húsavík: Það er leikfélag Húsa-
víkur sem sér um hátíðarhöldin
að þessu sinni. Dagskráin hefst
með því að fánar verða dregnir
að húni en síðan verður safnast
saman við Bamaskólann og há-
tíðarsvæðið skreytt. Ætlast er til
að þeir, sem geti, mæti á reið-
hjólum og kl. 10 verður farið í
hjólreiðaferð um bæinn. Kl. 11
verður messa í kirkjunni. Skrúð-
ganga verður frá sundlauginni kl.
14 og gengið að bamaskólanum
þar sem sitthvað verður til
skemmtunar fyrir alla fjölskyld-
una. Stefnt er að því að hafa
kaffisölu utandyra á hátíðarsvæð-
inu. í kvöld verður svo furðufata-
ball við bamaskólann.
Egilsstaðir: Hátíðardagskráin
hefst kl. 14 með skrúðgöngu frá
kirkjunni að hátíðarsvæððinu á
íþróttavellinum. Þar verða ræðu-
höld, fjallkonan og skemmtiatriði
fyrir böm. Hátíðinni lýkur svo
með dansleik fyrir böm kl. 20.
Seyðisfjörður: Það er íþróttafé-
lagið á Seyðisfirði sem sér um
skipulagningu hátíðahaldanna 17.
júní. Þau heijast kl. 11 með því
að lagður verður blómsveigur á
leiði Bjöms Jónssonar. Kl. 14
verður svo skotið af fallbyssu við
bæjarskrifstofumar og síðan
verður skrúðganga þaðan og að
félagsheimilinu Herðubreið þar
sem ýmislegt verður til skemmt-
unar, ræðuhöld, leikir og hljóm-
sveitin Hálft í hvom. Kl. 17 verður
svo fótboltaleikur, 5. flokkur
keppir við nýkjöma bæjarstjóm.
Lokaatriðið em síðan tónleikar
með Hálft í hvom kl. 21.
Höfn, Homafirði: Hátíðahöldin
hefjast með víðavangshlaupi frá
Sindrabæ kl. 10. Kl. 13 til 14
verður síðan sigling báta frá höfn-
inni og Óslandsbryggju yfír á
Suðuríjörar (Melatanga) þar sem
skemmtidagskráin fer fram. Eftir
dagskrána verður síðan siglt til
baka, um kl. 16. í kvöld kl. 20
til 24 verður svo íjölskyldudans-
leikur í Sindrabæ. Kaffísala verð-
ur í Sindrabæ frá kl. 15.
Vestmannaeyjar: Dagskráin
hefst með skrúðgöngu frá Iþrótta-
miðstöðinni og verður gengið að
Stakkagerðistúni. Þar verður
ýmislegt til skemmtunar , ræðu-
höld, Qallkona og skemmtidag-
skrá í umsjá Guðmundar Rúnars
Lúðvíkssonar og Ágústs Stefáns-
sonar, farið verður í leiki o.fl.
Bamaball verður í samkomuhús-
inu kl. 17. Almennur dansleikur
hefst síðan í samkomuhúsinu kl.
22. Dagskráin er í umsjá frjáls-
íþróttadeildar ÍB V.
Selfoss: Hátíðahöldin á Selfossi
verða með hefðbundnu sniði.
Bæjarbúum er boðið upp á kynn-
ingar, sýningar og skemmtidag-
skrár og hafa unglingamir í bæj-
arvinnunni unnið við það af kappi
undanfama daga að fegra og
snyrta bæinn.
Milli kl. 10 og 12 er opið hús
hjá bmnavömum Ámessýslu,
slysavamadeildinni og lögregl-
unni. Á þessum tíma verður björg-
unaræfing við félagsheimilið Ár-
sali.
Helgistund er í Selfosskirkju
kl. 13.15 og að henni lokinni kl.
14 verður skrúðganga frá kirkj-
unni að íþróttahúsinu. Þar hefst
ijölskylduskemmtun kl. 14.30.
Bflasýning verður á bflastæði
KÁ þar sem gamlir og nýir glaesi-
vagnar verða til sýnis. Úti-
skemmtun verður á íþróttavellin-
um kl. 16.30 í umsjá ungmennafé-
laga. Þar mun Bandalag fslenskra
skáta kynna útistarf sitt og flug-
vél mun fljúga yfír og dreifa ein-
hveiju áhugaverðu.
Skemmtidagskrá hefst í
íþróttahúsinu kl. 20.30. Dansleik-
ur fyrir alla ijölskylduna hefst kl.
22 í Ársölum og verður dansað
til kl. 1 eftir miðnætti.
í tengslum við hátíðahöldin
mun kvenfélag Selfoss bjóða upp
á kaffí í matsal Gagnfraeðaskól-
ans.
Strætisvagnar munu aka um
götur bæjarins á heilum og hálf-
um tímum. Aðaistoppistöð verður
á Potthlemmi við Safnahúsin,
Tryggvagötumegin. Flugklúbbur
Selfoss býður fólki upp á útsýnis-
flug frá kl. 10 og upplysingar um
það atriði að fá í síma 2330. Sýn-
ing verður á handskomum mun-
um í safnahúsunum milli kl. 10
og 22. Einnig verða þar sýndir
skrautfískar í búmm.
Keflavík: Hátíðahöldin hefjast
á messu í Keflavíkurkirkju kl. 13.
Að messu Iokinnni verður skrúð-
ganga og verður gengið í Skrúð-
garðinn þar sem verður skemmti-
dagskrá. Ræðu dagsins flytur
Tómas Tómasson. í Skrúðgarðin-
um verða sett upp leiktæki og
þrautir og ýmislegt annað óvænt.
Á íþróttavellinum verða fímleikar,
leikir og annað til skemmtunar. I
kvöld verður síðan dagskrá við
Hafnargötu þar sem m.a. koma
fram hljómsveitimar Klassík,
Hljómar, Halli og Laddi, Megas
o.fl.