Morgunblaðið - 17.06.1986, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚNÍ 1986
41
Ljósm./Heimir Stígsson
Guðrún Þura Knstjánsdóttir, dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja, með þau verðlaun sem hún hlaut
fyrir framúrskarandi námsárangur í ýmsum fögum.
„Fjölbraut Suðurnesja
er skóli á uppleið“
— segir Guðrún Þura Kristjánsdóttir, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
„Ég sé ekki eftir þvi að hafa
farið í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja,“ sagði Guðrún Þura Krist-
jánsdóttir, „það er mjög gott
samstarf nemenda og kennara i
skólanum, gott félagslíf — þetta
er skóli á uppleið."
Guðrún Þura varð dúx í FS en
hlaut þar að auki verðlaun fyrir
góðan námsárangur, í ensku,
dönsku, frönsku, stærðfræði, raun-
greinum og íslensku.
í haust stefnir Guðrún Þura á
nám í tannlæknadeild háskólans.
„Þetta er ákvörðun sem ég tók
fyrir tveimur árum og ég hef miðað
nám mitt í Fjölbrautaskólanum við
það. Ég held að tannlækningar séu
mjög áhugaverðar og auk þess
getur maður unnið sjálfstætt við
þær. En ef tannlækningamar reyn-
ast ekki eins áhugaverðar og ég
held þá hef ég einnig mikinn áhuga
á tungumálum og get hugsað mér
að stunda nám í þeim.“
Guðrún er trúlofuð Geir Jóni
Karlssyni, húsasmíðameistara, og
eignuðust þau dóttur fyrir einu ári,
en hún fæddist þremur dögum eftir
að Guðrún Þura lauk síðasta vor-
prófínu í fyrra.
„í sumar vinn ég í sjoppu," sagði
Bára að lokum, „og svo ber ég út
Morgunblaðið og passa dóttur
mína.“
Sif Einarsdóttir, Menntaskólan-
um í Kópavogi, hlaut viðurkenn-
ingu fyrir góðan námsárangur í
frönsku, þýsku, íslensku og sögu
nú í vor.
„Læri til
þess að læra“
— segir Sif Einarsdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi
Ég er ekki farin að finna fyrir
neinum námsleiða ennþá,“ sagði
Sif Einarsdóttir sem hlaut viður-
kenningu fyrir góðan námsár-
angur í frönsku, þýsku, islensku
og sögu í Menntaskólanum í
Kópavogi nú í vor. „Ástæðan
fyrir þvi að mér gekk svona vel,“
sagði Sif, „er að ég var að fást
við það sem ég hef áhuga á,
tungumál, sögu, félagsfræði og
sálfræði. Ég hálf vorkenni þeim
sem fara á mis við menntaskóla-
árin, þau eru mjög ánægjuleg."
í haust ætlar Sif í sálfræði og
heimspekinám í háskólanum. „Ég
fer í það sem ég hef áhuga á. Ég
læri til þess að læra ekki til þess
að verða eitthvað, er bara svona
„ópraktísk" í hugsun."
Sif sem vinnur í Gramminu hálf-
an daginn, og einnig við og við á
bamaheimili, segist senn vera á
förum út. „Við erum 11 íslenskir
krakkar sem förum út á vegum
„Connaisance de France“ en það
er félag sem veitir krökkum sem
hafa lært einhverja frönsku og vilja
kynnast landinu betur, styrki. Þeir
borga allt innan Frakklands. í
sumar verður farið um Elsass-
héraðið í norðurhluta Frakklands,"
sagði Sif að lokum.
„Það var erfitt
fyrir okkur bæði
að stunda nám“
- segir Bára Elíasdóttír, Kvennaskólanum í Reykjavík
ísafirði.
„Ég kunni vel við mig í
Kvennaskólanum,“ sagði Bára
Elíasdóttir, dúx frá Kvennaskól-
anuni í Reykjavík. Bára Iauk
náminu á 3 árum en venjulegur
námstími til stúdentsprófs er 3'A
ár í Kvennaskólanum. Hún tók
sér frí veturinn 1983-84, en hún
eignaðist þá dóttur í desember.
Til að jafna upp forföllin vann
hún síðan upp eina önn á seinni
vetri námstimans.
Bára er trúlofuð Óskari Ár-
mannssyni, en hann lauk stúdents-
prófi úr Verslunarskólanum nú í
vor. „Það er erfítt fyrir okkur bæði
að stunda nám,“ sagði Bára, „en
nú léttist vonandi róðurinn þegar
við förum í háskólann og getum
tekið námslán, en það gátum við
ekki þegar við vorum í mennta-
skóla. En við áttum nú bæði góða
að sem studdu okkur með ráðum
ogdáð".
Bára, sem er ísfirðingur, sagðist
hafa farið frá ísafírði til náms í
Reykjavík vegna áhuga hennar á
uppeldisfræðum, en Kvennaskólinn
er einmitt með námsbrautir á því
sviði. „Ég ætla þó ekki í fram-
haldsnám á því sviði, það þýðir
ekkert að hugsa um það vegna
lágra launa að námi loknu. Ég fer
Bára Elíasdóttir, dúx Kvenna-
skólans í Reykjavík.
í lögfræðinám í háskólanum í haust
og Óskar í tölvunám," sagði Bára
aðbkum. úlfar
Iðnskólinn í Reykjavík:
1.250 nemendur
síðasta vetur
Um 1.250 nemendur voru við
nám í skólanum síðastliðinn vet-
ur og var kennt á um 50 náms-
brautum. Á sl. ári hófst kennsla
á tveim nýjum brautum, tölvu-
braut og tæknifræðibraut. Á
næsta ári er ráðgert að hefja
kennslu í öldungadeild í bóka-
gerðargreinum og rafeindavirkj-
un.
Ingvar Ásmundsson skólastjóri
ræddi starfsemi skólans í skólaslita-
ræðu sinni. Auk nýju námsbraut-
anna í öldungadeild, sem eru til
voru stofnuð með kr. 285.87 inn-
leggi á sparisjóðsbók árið 1915,
með því fororði að þegar vextimir
næðu 10 krónum skildu þær veittar
sem fyrstu verðlaun og þegar þeir
næðu 15 krónum skildu önnur verð-
laun, 5 kr., veitti. Bergljót Sigurðar-
dóttir húsgagnasmíðanemi hlaut
þessi táknrænu verðlaun, 10 gamlar
krónur, og einnig verðlaun Iðnaðar-
mannafélagsins. Þórir Björgvinsson
rafvirkjunamemi fékk önnur verð-
laun, 5 krónuseðil gamlan.
Einnig fengu sérstök verðlaun
Ingvar Ásmundsson, skólastjórí Iðnskólans i Reykjavík, brautskráir
nemanda.
komnar vegna brýnnar þarfar, og
til að nýta búnað dagskólans, þá
er einnig á döfinni að ráða námsráð-
gjafa og auka kennslu í námstækni.
í janúar síðastliðnum fóm 19
kennarar skólans í endurmenntun-
arferð til Skotlands, fyrir fé sem
fyrrverandi iðnaðarráðherra ánafn-
aði endurmenntunarsjóði kennara.
Skólanum bárust margar gjafír á
síðastliðnu ári, s.s. tvær stórar tölv-
ur og hugbúnaður til textameð-
ferðar frá Morgunblaðinu, bflvélar,
viðgerðartæki og handbækur frá
Bflaborg hf.
Þá voru veitt margvísleg verð-
laun fyrir góða frammistöðu. Virðu-
legust og elst em verðlaun Þránar
sem var fyrsta nemendafélagið. Þau
Amar Smári Þorvarðarson, húsa-
smíðanemi, Siguijón Ólafsson, bif-
reiðasmíðanemi, Ragnar Aðal-
steinsson fyrir vélvirlqun og renni-
smíði og Þorsteinn Hallgrímsson,
rafeindavirkjunamemi.
Verðlaun skólans fengu Bergljót
Sigurðardóttir, húsgagnasmíða-
nemi, Brynja Hafsteinsdóttir,
tækniteiknunamemi, Eva Andersen
tækniteiknunamemi, Helga Jó-
hannesdóttir, tækniteiknunamemi,
Jóhann Kristinsson, tækniteiknun-
amemi, Láms Pétursson, bifvéla-
virkjunamemi, Magnús Sigurðsson,
blikksmíðanemi, Sigurgeir Guð-
mundsson, rafeindavirkjunamemi
og Úlfar Ormarsson, tækniteiknun-
arnemi.
Egilsstaðir:
Sundlaugarbygging við
Vonarland í augsýn
Egilsstöðum.
Styrktarfélag vangefinna á
Austurlandi hyggst nú gangast
fyrír þvi að bygging sundlaugar
við vistheimilið Vonarland á
Egilsstöðum rísi af grunni i
sumar. Þessi áfangi sundlaugar-
byggingarinnar hefur þegar
veríð boðinn út og var lægsta
tilboði tekið. Reyndist það vera
frá byggingaverktökunum
Baldri og Óskarí sf. i Fellabæ.
Nokkur ár era síöan gmnnur
sundlaugarinnar var byggður — en
sú vinna var að mestu unnin í sjálf-
boðavinnu félagsmanna Lions-
klúbbsins Múla á Héraði auk þess
sem þeir lögðu nokkurt fé til bygg-
ingarinnar.
Styrktarfélagið hugðist síðan
gera sundlaugina fokhelda — en
þegar til kom var því verki skotið
á frest þar sem brýnna var talið
að festa kaup á húsi fyrir sambýli
þroskaheftra að Stekkjartröð 1 —
og var sjóðum félagsins því varið
til þeirra kaupa. Nú em þau kaup
í höfn og mun Styrktarfélag van-
gefínna á Austurlandi því snúa sér
af alefli að byggingu sundlaugar-
innar.
Um leið og stjóm Styrktarfélags
vangefínna á Áusturlandi þakkar
Lionsmönnum liðsinni þeirra við
byggingu sundlaugarinnar væntir
hún stuðnings Austfirðinga við 2.
áfanga byggingarinnar — en gíró-
seðlar verða sendir félagsmönnum
'innan tíðar vegna árgjalda yfír-
standandi árs.
— Ólafur
-----» » »
Sýnir í
Færeyjum
íslenska myndlistarmanninum
G.R. Lúðvíkssyni hefur verið
boðin þátttaka í myndlistarsýn-
ingu á Menningar- og listavöku
Suðureyinga í Færeyjum, frá 27.
til31.júní.
Auk hans sýna færeyskir lista-
menn. G.R. Lúðvíksson mun sýna
u.þ.b. 30 vatnslita- og olíumyndir.
Listamaðurinn verður svo með sýn-
ingu í Eden í Hveragerði frá 23.
september til 7. október í haust.
Þetta em 11 og 12 sýningar hans.