Morgunblaðið - 17.06.1986, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
>
>
á éám k
Þórarmn Björnsson heiðursfélagi Ferðafélags íslands aðstoðar Morgunbiaðið/Sveinn Andri
Harald Theodórsson, 5 ára, við að opna brúna formlega.
Ferðafélagsmenn ganga yfir
hina nýju brú.
Þórsmörk:
Ný g’öngubrú yfir Krossá
GÖNGUBRÚ yfir ána Krossá í
notkun siðastliðinn sunnudag,
hundrað manns.
Það var Ferðafélag íslands
sem stóð fyrir gerð brúarinnar
og í tilefni af opnuninni efndi
Ferðafélagið til sérstakrar ferðar
í Þórsmörk. Kl. 14 á sunnudag
fór opnunarathöfnin fram, og
voru það Þórarinn Bjömsson, 76
ára heiðursfélagi Ferðafélagsins,
og Haraldur Theodórsson, 5 ára
stuðningsmaður, sem tóku brúna
formlega í notkun. Að því búnu
bauð félagið til kaffisamsætis.
Fluttu þar ávarp Magnús Þórar-
insson formaður byggingar-
nefndar, sem lýsti byggingar-
framkvæmdum, og Höskuldur
Jónsson, forseti Ferðafélagsins,
auk þess sem Guðfinna Ragnars-
dóttir las úr ljóðum eftir Jóhann-
es úr Kötlum og Gest Guðfínns-
son. Jóhannes úr Kötlum var um
langt árabil skálavörður í Skag-
fjörðsskála í Þórsmörk.
Göngubrúin liggur utan í svo-
nefndum Valahnúk og er í um
Þórsmörk var formlega tekin í
að viðstöddum hátt á þriðja
600 metra fjarlægð frá skálanum
og hefur verið lagður göngustíg-
ur á milli brúarinnar og skálans.
Tveir klettar úr Valahnúk, sem
fallið hafa í Krossá, em notaðir
sem brúarstólpar en endastólpar
sitt hvorum megin árinnar eru
hlaðnir.
Það mun hafa verið í mars,
sem hugmyndir að hinni nýju
brú voru festar á blað. Bygging-
arframkvæmdir hófust 17. maí
og voru sjálfboðaliðar að störfum
við brúarsmíðina Qórar helgar
fyrir opnunina.
Brúin er 45 metra Iöng og er
því lengsta göngubrú á Islandi.
Breidd hennar er 1,3 metrar.
Burðarbitar eru úr límtré, sex
að tölu, þar af eru 4 bitanna 18
metra langir og vega þeir
þyngstu tæpt hálft tonn. Að öðru
leyrti er efni í brúnni og efnismeð-
ferð áþekk því sem gerist í brúar-
smíði á vegum Ferðafélagsins.
Hin nýja salernisaðstaða, sem byggð var á 10 dögum.
Morgunblaðið/Sveinn Andri
Hér standa þeir við brúarsporðinn, frá vinstri: Höskuldur Jónsson
forseti Ferðafélagsins, Pétur Guðmundsson, yfirsmiður, og Tómas
Tómasson, verkfræðingur.
Hönnun og verkfræðivinna var
gefín af Istaki hf. og annaðist
Tómas Tómasson verkfræðingur
burðarþolsútreikninga og teikn-
ingar. Límtré hf. gaf alla burðar-
bitana og flutning þeirra að brú-
arstæði. Timburverslun Áma
Jónssonar gaf alla stólpa í hand-
rið. íslenskir Aðalverktakar gáfu
allt jám í vindstífíngar og timbur
í langbönd í handriði. Vemd hf.
gaf gagnvöm á brúargólfí og
þverbitum undir gólfínu. Bygg-
ingarvöruverslun Kópavogs gaf
alla nagla í brúna og bræðumir
Gunnar og Guðjón Jónssynir gáfu
flutning á brúarefninu. Félaginu
bámst og margvíslegar gjafír
aðrar.
Um 25 þúsund ferðamenn
koma í Þórsmörk árlega og er
brúin til mikilla bóta fyrir þá.
Áður þurftu ferðamenn annað
hvort að sníkja sér far með bflum
yfír ána eða vaða yfír hana, eða
þá að þeir hreinlega veigruðu sér
við að ferðast á milli hinna ýmsu
svæða í Þórsmörk. Fólk, sem
ferðast vill um svæðið, á nú mun
betri aðgang að því og nú er
óþarfí að vaða ána; brúin þjónar
því bæði sem samgöngubót og
öryggistæki.
Brúarsmíðin yfír Krossá er
ekki eina framkvæmdin sem
Ferðafélagið hefur staðið í að
undanfömu. Nýlega varð félagið
fyrir því áfalli, að snyrtiskálinn
brann til kaldra kola. Ljóst var,
að óhapp þetta gat haft mjög
alvarleg áhrif á starsemi þeirra
aðila, sem kynna Þórsmörk inn-
lendum og erlendum gestum.
Ákveðið var að hefja byggingu
nýs skála hið fyrsta og reis nýr
snyrtiskáli af gmnni á10 dögum.
Húsið er teiknað af Ásgeiri Ás-
geirssyni tæknifræðingi. Það
rúmar 5 salerni á kvennasnyrt-
ingu og sturtur verða þijár. Sal-
emi karla verða tvö og eitt sal-
emi er sérhannað fyrir fatlaða.
Salemið er klætt láréttri kúptri
klæðningu að utan.
Ferðafélag íslands hefur tvisv-
ar brúað ána Ljósá. Báðar brým-
ar hafa eyðilagst í vatnavöxtum.
Nú hefur þriðja brúin verið smíð-
uð og verður á næstu dögum
sett yfir gljúfrið spöl neðar við
ána en fyrri brýr vom staðsettar.
Brúin yfír Ljósá er 7 metra stál-
bitabrú.
Loks má geta þess, að félagið
hefur látið gera stórt útigrill, þar
sem unnt er að grilla heila lambs-
skrokka.
í ræðu, sem Höskuldur Jóns-
son forseti Ferðafélagsins hélt
eftir opnun Krossárbrúar, sagði
hann að framkvæmdir þessar
sönnuðu mátt Ferðafélags ís-
lands til mikilla átaka þegar á
þurfí að halda, þakkaði hann síð-
an öllum þeim, sem lagt höfðu
hönd á plóginn við framkvæmd-
imar.