Morgunblaðið - 17.06.1986, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR17. JÚNÍ1986
61
Björgunarstöð SVFÍ
hefur starfað 1 áratugi
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svohljóðandi athugasemd frá
Haraldi Henrýssyni, forseta
Slysavarnafélags íslands, og
Hannesi Þ. Hafstein, fram-
kvæmdastjóra félagsins.
„í Morgunblaðinu sl. sunnudag,
15. júní, er viðtal við Brian John-
stone, starfsmann British Airways
Helicopter Training, sem var leið-
beinandi á nýafstöðnu námskeiði
fyrir starfsmenn þyrludeildar Land-
helgisgæslunnar. Viðtalið er undir
fyrirsögninni: „Þörf á einni stjóm-
stöð sem gæti samræmt allar að-
gerðir".
Nú er það svo, að björgunarmál
hér á landi era margþætt og koma
þar margir við sögu. Okkur er ekki
kunnugt um að Brian Johnstone
hafi kynnt sér þessi mál að öðra
leyti en því sem snýr að Landhelgis-
gæslunni, en það gefur að sjálf-
sögðu ekki nema takmarkaða mynd
af þessum málum. T.d. heimsótti
hann ekki Slysavamafélag íslands
eða kynnti sér starfsemi þess. Hann
virðist og ekki vita um flugbjörgun-
arstjómstöð Flugmálastjómar.
Það er vitanlega hárrétt hjá
Brian Johnstone að við leitar- og
björgunaraðgerðir er nauðsynlegt
að fyrir hendi sé miðstöð eða stjóm-
stöð, sem annist samræmingu allra
aðgerða og öflun nauðsynlegra
upplýsinga. Hún er enginn óþarfa
milliliður svo sem haldið hefur verið
fram nýlega á opinberam vettvangi.
Hins vegar er það mikill misskiln-
ingur að þannig miðstöð sé ekki til
hér á landi. Hér áður var vikið að
því að þegar flugstys verða starfar
sérstök stjómstöð leitar- og björg-
unarstarfs á vegum Flugmála-
stjómar. Á hinn bóginn skal á það
bent að í áratugi hefur björgunar-
stjómstöð verið rekin í höfuðstöðv-
um Slysavamafélags íslands og
hefur hún í reynd gegnt því hlut-
verki, sem Brian Johnstone ræðir
um í viðtalinu. í ijölmörgum tilvik-
um og nær ætíð þegar um neyðartil-
vik á sjó er að ræða, hefur þessi
stjómstöð SVFÍ gegnt því hlutverki
að taka við neyðarbeiðnum sérstak-
lega frá strandarstöðvum, vinna úr
þeim og vera stjómstöð á meðan á
aðgerðum hefur staðið. Síðan til-
kynningaskylda íslenskra skipa
kom til sögunnar og var með lögum
falin í umsjá Slysavamafélagsins
hefur verið vakt í þessari stjómstöð
allan sólarhringinn og þar er neyð-
arsími SVFÍ. Auk þess er ávallt
ákveðinn maður á bakvakt sem
kallaður er til starfa þegar neyðar-
beiðnir berast. Tilkynningaskyldan
er ákaflega þýðingarmikill þáttur í
þessari neyðarþjónustu því þar er
fyrir hendi vitneskja um staðsetn-
ingu íslenska skipa- og bátaflotans.
Við íslendingar eigum ekki mörg
tæki, skip eða flugvélar, sérhönnuð
til björgunarstarfa og því er fram-
lag sjálfboðaliða, hvort sem era sjó-
mennimir á hafinu eða björgunar-
sveitamenn f landi, okkur ákaflega
mikilvægt á þessu sviði og það
hefur margsinnis komið í ljós og
ráðið úrslitum. Við leitar- og björg-
unaraðgerðir geta margir aðilar
komið til greina: Landhelgisgæslan,
björgunarsveitir, skipa- og bátaflot-
inn, flugflotinn og ýmsir fleiri og
það fer eftir aðstæðum hveiju sinni
hveija á að kalla út og oft þarf að
kalla til fleiri en einn. Það hefur í
þúsundum tilvika verið hlutverk
björgunarstjómstöðvar SVFÍ í nær
60 ár að kalla út þá aðila, sem lík-
legastir era til að geta veitt skjóta
hjálp, hvort sem það era björgunar-
sveitir félagsins eða einhveijir aðrir,
og einnig hefur það fallið í hlut
hennar að samræma aðgerðir þeirra
aðila, sem kallaðir hafa verið til
leitar- og björgunarstarfa. Stranda-
stöðvar póst- og símamálastjómar-
innar era oft á tíðum einn mikilvæg-
asti hlekkurinn við slfkar aðgerðir.
í viðtalinu vitnar Brian Johnstone
til björgunarsfjómstöðvanna í
Plymouth og Aberdeen, sem hann
segir einu björgunarstjómstöðvam-
ar á Bretlandseyjum. Það er reynd-
ar ekki rétt og mætti nefna nokkrar
fleiri. SVFI hefur átt margháttuð
samskipti við þessar björgunar-
stjómstöðvar á undanfömum áram,
m.a. í sambandi við ýmsar björg-
unaraðgerðir, einkum við björgun-
arstjómstöðvamar í Aberdeen og
Clyde. Fyrir u.þ.b. 2 áram kom
hingað til lands yfirmaður björgun-
arstjómstöðvarinnar í Aberdeen,
Derek Ancona, og kynnti sér leitar-
og björgunarmál á sjó hér frá öllum
hliðum. M.a. heimsótti hann þá
aðila, sem eiga helst hlut að þessum
málum hér, þ.e. SVFÍ og Land-
helgisgæsluna. Að lokinni heimsókn
sinni ritaði hann stutta lýsingu á
ástandi þessara mála hér, sem
dreift var meðal björgunarstjóm-
stöðva í landi hans og í fleiri lönd-
um. Þar taldi hann að miðstöð
SVFÍ með 24 tíma vakt á tilkynn-
ingaskyldunni gegndi í raun hlut-
verki sjóbjörgunarstjómstöðvar hér
á landi þótt hún hefði ekki verið
opinberlega tilkynnt sem slík og
taldi hann eðlilegast að leita til
hennar ef aðilar á Bretlandseyjum
eða annars staðar þyrfti á aðstoð
að halda varðandi leit og björgun
ásjó.
I viðræðum við stjórnvöld að
undanfömu um skipulag leitar- og
björgunarmála á sjó hefur SVFI
lagt á það áherslu, að hér sé þegar
fyrir hendi björgunarstjómstöð,
opin allan sólarhringinn, sem gegnir
því hlutverki, sem hér er um rætt
og hefur gert svo um áratugi. Hana
eigi að efla og styrkja og breyta
að því leyti sem nauðsynlegt kunni
að teljast, en óþarfí sé að setja upp
nýja 24 tíma vaktþjónustu til að
gegna þessu sama hiutverki. Eðli
máls samkvæmt sé mjög heppilegt
að þessi stjómstöð sé í beinum
tengslum við tilkynningaskyldu ís-
lenskra skipa, sem gegnir þýðing-
armiklu hlutverki við hvers konar
leit og björgun á hafinu. SVFÍ hefur
einnig lagt á það áherslu f sambandi
við skipulag Ieitar- og björgunar-
mála á sjó, að nauðsynlegt sé að
koma á skipulegra og fastmótaðra
samstarfi milli félagsins og Land-
helgisgæslunnar og að þessir aðilar
gætu sameinast um þá stjómstöð,
sem starfrækt er í tengslum við
tilkjmningaskyldu íslenskra skipa.
Nauðsynlegt þótti að koma þess-
um athugasemdum á framfæri
vegna ofangreinds viðtals, sem
greinilega bar vott um vanþekkingu
á íslenskum aðstæðum. Uppbygg-
ing björgunarmála hér á landi er
með sérstökum hætti, sem mótast
hefur af smæð þjóðfélagsins og
stærð þess svæðis, sem um þarf
að hugsa í þessu tilliti. Enda þótt
við þiggjum með þökkum öll góð
ráð frá reyndum erlendum mönnum
á þessu sviði verðum við að meta
þau í ljósi okkar eigin aðstæðna og
staðhátta."
Kaffisala
hjá Geð-
hjálp 17. júní
FÉLAGIÐ Geðhjálp verður með
kaffisölu í félagsmiðstöð sinni
að Veltusundi 3b við Hallæris-
plan þriðjudaginn 17. júní.
Frá kl. 14 til 18 á Þjóðhátíðar-
daginn, taka félagsmenn á móti
gestum. Á boðstólum verða kökur
og kaffi. Velunnarar, sem styðja
vilja félagið, era hvattir til að koma
með kökur og annað meðlæti að
morgni 17. júni milli kl. 10 og 12.
í sumar, júní, júlí og ágúst, verð-
ur opið hús hjá Geðhjálp sem hér
segir. Mánudaga og föstudaga, kl.
14-17, fímmtudaga kl. 20-22.30 og
laugardaga kl. 14-18. Símaþjónusta
er miðvikudaga kl. 16-18. Lokað
verður á sunnudögum í sumar.
Handritasýning
í Arnastofnun
Kl. 14 tíl 16 í dag hefst í Stofn-
un Áma Magnússonar, Árna-
garði við Suðurgötu, sumarsýn-
ing á handritum. Sýningin verð-
ur opin á þriðjudögum fimmtu-
dögum og laugardögum frá kl.
14 til 16 fram til ágústloka.
^Vpglýsinga-
síminn er 2 24 80
Frönsku MOBALPA-innréttingarnar til
sýnis og sölu hjá okkurað Hverfisgötu
37.
Komiö, sjáiö, sannfærist.
KJÖLUR SF.
Hverfiígötu 37 símar 21490 - 2184fy