Morgunblaðið - 06.07.1986, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLl 1986
Miðneshreppur:
Sambands-
laust við
Snæfellsnes
Aðfaranótt laugardags varð vart
bilunar á símakerfinu á Snæfells-
nesi og var sambandslaust við nesið
í gær. Unnið var að viðgerðum
þegar blaðið fór í prentun og óvíst
hvenær þeim yrði lokið.
Myndin sneri öfugt
Á baksíðu Morgunblaðsins í gær
birtist litmynd frá Akureyri. Myndin
sneri öfugt vegna mistaka við
vinnslu blaðsins. Lesendur eru
beðnir velvirðingar á þessu.
Forstjórar Coldwater og Sölumiðstöðvar hraðf rystihúsamia skera niður fisk hjá Long John Silver’s
Nýting góð
enhrað-
ann skortir
STARF forstjóra stórra fyrirtælqa er í ýmsu fólgið. Þeir Friðrik
Pálsson, forstjóri SH, og Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater,
leggja mikla áherzlu á náin tengsl við fiskmarkaðinn og vinna
ýmis störf í því sambandi. Fyrir nokkru brugðu þeir sér i heim-
sókn í eitt af veitingahúsum Long John Silver’s í Bandaríkjunum
til að kynna sér starfsemina í þaula. Meðal þess sem forstjórarnir
gerðu var að setja upp stálofna, skurðhelda hanzka og skera flök
niður í hæfilega bita til matreiðslu. Þeir fengu góða einkunn
fyrir nýtingu, en nokkuð var talið skorta á hraða.
Friðrik Pálsson sagði í samtali Toby, í Cherbourg, til skrafs og
við Morgunblaðið, að þeir Magnús ráðagerða og einnig kynnt sér
hefðu komið saman til fundar við starfsemi veitingahúss fyrirtækis-
forstjóra Long John Silver’s, John ins í borginni, hvemig fiskurinn
Mun áfrýja í
lögtaksmálinu
Á FUNDI hreppsnefndar Mið-
neshrepps síðastliðinn miðviku-
dag var rætt um það hvort áfrýja
skyldi úrskurði Fógetaréttar
Keflavíkur, sem nýlega var kveð-
inn upp, til Hæstaréttar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun hafa verið tekin
ákvörðun um að áfrýja úrskurðin-
um, en þar var synjað lögtakskröfu
Miðneshrepps í eignum ríkissjóðs
fyrir álögðu byggingarleyfisgjaldi
vegna byggingar flugstöðvarinnar
á Keflavíkurflugvelli.
Unglingalands-
lið íslands í
skák fer utan
UNGLINGALANDSLIÐ íslands í
skák heldur til Bandarikjanna
þann 13. júlí næstkomandi að
tefla við Collins Kids, en það er
óopinbert unglingalandslið
Bandarikjanna í skák, að sögn
Þráins Guðmundssonar for-
manns Skáksambands íslands.
Þetta er í áttunda skiptið sem
efnt er til þessarar keppni. íslensku
piltamir hafa unnið fimm sinnum
en þeir bandarísku tvisvar.
Kveikjan að þessum samskiptum
þjóðanna var skákeinvígið milli
Fischers og Spasskys, sem haldið
var í Reykjavik árið 1972. Þá kom
hingað til lands John W. Collins,
hann var þá orðinn mjög þekktur
skákkennari í Bandaríkjunum, en
bæði Fischer og Lombardy gengu
í smiðju til hans, svo einhveijir séu
nefndir.
í íslenska liðinu núna er ein
stúlka, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Islandsmeistari kvenna í skák. Af
landsbyggðinni koma meðal ann-
arra íjórir Akureyringar og einn
frá Bolungarvík. Annars em flestir
skákmannanna af Reykjavíkur-
svæðinu. í þeim hópi eru t.d. Hann-
es Hlífar Stefánsson og Þröstur
Amason Reykjavíkurmeistari.
Þessir feðgar höfðu ekkert út á fiskskurðinn þjá forstjórunum
að setja og þótti báðum islenski fiskurinn góður. Mikilvægt er
talið að ná til bama og fjölskyldufólks, þvi hvað ungur nemur,
gamall temur.
Morgunblaðið/Þorkell
Ævintýramenn á Langjökul
„Breakthrough Disability“-hópurinn, sem hyggst ferðast yfir Langjökul og niður Hvitá til sjávar, lagði af stað frá Reykjavík áleiðis
í Húsafell í gær. Þar munu þau dvelja þar til haldið verður á jökulinn.
væri meðhöndlaður frá því hann
kæmi að dymm hússins og þar
ti! hann væri kominn á disk við-
skiptavinarins. Þetta hefði bæði
verið fróðlegt og skemmtilegt.
Sérstaklega hefði verið áhugavert
að sjá hve mikil áherzla væri lögð
Menn öfunda okkur af
skipulagí markaðsmála
- segir Magnús Gústafsson, forsljóri Coldwater um lofsorð, sem lokið er
á starfsemi íslensku fisksölufyrirtækianna vestanhafs
„ÞAÐ BER flestum saman um
að það sem íslenzku fyrirtækin
hafa lagt áherzlu á; áreiðanleika
f framboði, gæðavöru og að
sameinast í markaðsátakinu, sé
vænlegasta leiðin til að ná
árangri á Bandaríkjamarkaðn-
um. Það kemur ekki aðeins fram
í skýrslunni um nýtingu Alaska-
ufsans og sölu á honum. Það
kemur einnig fram í skýrslu sem
lögð var til grundvallar endur-
skipulagningar kanadísks sjávar-
útvegs. Svokallaðri „Kirby-
skýrslu,“ sagði Magnús Gústafs-
son, forstjóri Coldwater, en hann
var inntur álits á skýrslu um
áætlaða nýtingu Alaskaufsans,
vinnslu hans og sölu innan og
utan Bandaríkjanna. í skýrslunni
er lokið lofsorði á aðferðir ís-
lendinga í markaðsmálum vestra.
„Niðurstaða þessarar athugunar
um að taka sér aðferðir íslendinga
í markaðssókn I Bandaríkjunum til
fyrirmyndar, er nákvæmlega sama
niðurstaða og kom fram í „Kirby-
skýrslunni", sem var úttekt á
kanadískum sjávarútvegi, en sú
skýrsla var lögð til grundvallar
þegar sjávarútvegur í Kanada var
endurskipulagður. í þeirri skýrslu
segir á þá leið um markaðsmál, að
þeir sem bezt vinni að markaðsmál-
um sérhæfi sig í þjónustu við
ákveðna hluta markaðsins. Til
dæmis hafi ísland sérhæft sig í
þjónustu við ákveðnar opinberar
stofnanir, veitingahúsakeðjur eins
og Long John Silver’s og önnur
veitingahús af betra taginu. Veit-
ingahúsakeðjur séu tilbúnar til að
greiða lítið eitt hærra verð fyrir
meiri gæði og öruggt og stöðugt
framboð. Þama er okkur hælt mjög
mikið líka. Þeir öfunda okkur af
þeim framsýnu mönnum, sem
skipulögðu markaðsmálin í Banda-
rílq'unum á sínum tíma og fengu
framleiðendur til að sameinast í
átakinu með langtíma sjónarmið í
huga. Þetta hefur til dæmis orðið
til þess að nú eru tvö fyrirtæki í
Kanada sem eru með nálægt 70%
af fiskútflutningi þaðan til Banda-
ríkjanna og eru orðnir skæðari
keppinautar því þau hafa markað-
inn nú að leiðarljósi en ekki einungis
framleiðsluna. Þeir eru að hugsa
um framtíðina. Sem dæmi um það
hafa þeir ekki lagt eins mikla
áherzlu á blokkarframleiðslu, þó
hún hafi undanfarið verið álíka
hagkvæm og hagkvæmari en flaka-
framleiðslan, því þeir eru að búa
sér í haginn, þar sem þeir telja
meiri framtíð f flökunum," sagði
Magnús Gústafsson.
Morgunblaði9/HG
á gæði, ferskleika og meðferð
hráefnis og matvöru. Þeir hefðu
einnig komið við f smásöluverzlun
og alls staðar væri það sama
sagan, gæði íslenzka fisksins
væru rómuð.