Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6.JÚLÍ 1986 Á áhorfendabekknum ríkti sannkölluð landsmótsstemmning, enda fer vel um fólk i góða veðrinu. Morgunblaðið/Einar Falur Landsmót hestamanna Ófeigur 818 frá Hvann- eyri efstur stóð- hesta með afkvæmi NÚ ER ljóst að Ófeigur 818 frá Hvanneyri mun standa efstur af stóðhestum með afkvæmum á Landsmóti hestamanna. í gær voru kyn- bótahrossin sýnd og kynnt og fengu mótsgestir að sjá glæsi- lega skeiðspretti í hundraða tali. Ófeigur 818 hlýtur heið- ursverðlaun ásamt Náttfara 776 frá Ytra-Dalsgerði. Þá hafa fimm hestar náð þessum áfanga. í gær var ekki ljóst hver stæði efstur af þeim stóðhestum sem keppa til 1. verðlauna, en líklegir þykja Dreyri 834 frá Álfsnesi, Gáski 920 frá Hofsstöðum og Ófeigur 882 frá Flugumýri. Hrafnhetta 3791 frá Sauðár- króki varð efst af þeim hryssum sem keppa til heiðursverðlauna. Nös 3794 frá Stokkhólma sem átti að keppa til heiðursverð- launa fellur út og mun ástæðan sú að aðeins eitt afkvæmi hennar er til staðar og þykir ófært að hafa þau ekki fleiri. Af þeim hryssum sem keppa til 1. verð- launa stendur Sif 4035 frá Laug- arvatni efst. Af fímm vetra stóðhestum varð Kjarval 1025 frá Sauðár- króki efstur eins og búist hafði verið við. Viðar 979 frá Viðvík var talinn líklegastur í efsta sæti 6 vetra stóðhesta og eldri, þó ekki sé útséð með það enn. Tveir fjögurra vetra hestar berj- ast um efsta sætið, þeir Otur 1050 frá Sauðárkróki og Gassi frá Vorsabæ, en það mun skýrast í dag hvor hefur betur. Þær Máría 6017 frá Hólum og Krafla 5649 frá Sauðárkróki standa efstar af hryssum 6 vetra ogeldri. Farið var í sameiginlegan út- reiðartúr um Rangárvelli á föstu- dagskvöld, með þátttöku 180 manna og lauk ferðinni í Reyðar- vatnsrétt þar sem Gunnar Jó- hannsson, formaður Landsmóts- nefndar, grillaði ofan í mann- skapinn. Um hádegisbilið í gær höfðu 6.500 keypt sig inn á svæðið og þykir sennilegt að í dag verði á svæðinu um 10.000 manns. Bjart veður var í gær en nokkuð hvasst. Á sölusýningu í gær voru sýnd 75 hross, fjölskylduhross og gæðingar. Er það Félag hrossa- bænda sem stendur fyrir þessari sýningu í samvinnu við Búvöru- { deild Sambandsins. Lestarmenn ríða yfir Rangá á leiðinni á mótsstað. Björn Jónsson í Vorsabæ stillir hér upp stóðhesti sinum, Gossa frá Vorsabæ, en hann er fjögurra vetra. Nokkur ölvun var á svæðinu í fyrrakvöld en allt fór þó frið- samlega fram og fólk virtist skemmtasérvel. í dag hefst dagskrá klukkan 11.00 með hátíðardagskrá. Eftir hádegi verða ræktunarhópar sýndir og unglingum afhent verðlaun. Þá verður dómum kynbótahrossa lýst og verðlaun afhent. Klukkan 15.30 hefjast úrslit í flokki klárhesta með tölti og alhliða gæðinga. Landsmót- inu lýkur svo með úrslitum í kappreiðum. Á morgun verður haldinn aðalfundur FEIF, Félags eigenda íslenskra hesta, í félagsheimili Fáks á Víðivöllum og verður hann í fyrsta sinn opinn almenn- ingi til kynningar á samtökun- um. fulltrúar Fáks i unglingakeppninni, frá vinstri Edda Sólveig Gísladóttir á Seifí, Hörður Haraldsson á Háfí og Róbert Pedersen á Stelk. Hörður sigraði. Júni frá Syðri-Gröf var lengi vel með hæstu einkunn í A-flokki og töldu margir hann liklegan til að halda þvi sæti en hann lenti í 4. sæti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.