Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 54
XI5 a3pr j I?-rl s HUDAQUWÍU2 QIOAJíJiíUaSO* 54 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6' JÚLÍ1986 honum. En við vissum að hann myndi heimta peninga í lokin, svo við gerðum við hann samning um greiðslu. Sjálfur nefndi hann töluna 10 dirham fyrir leiðsögn um völund- arhús Medína og samþykktum við það og fengum við góða leiðsögn Muhameðs (en það hét leiðsögu- maðurinn) um hverfm. Ferðafélagi minn hefur geysilega gaman af því að spila á gítar og stundar hann þá iðju daglega. En þar sem hann hafði ekki handleikið gripinn í meir en mánuð, sökum stöðugra ferða- laga var löngunin orðin sterk. Ég stóð hann stundum að því að gjóa augunum hýrlega til gripsins, líkt og aðrir karlmenn gjóa til föngu- legra kvenna. Þó svo langt væri liðið að kvöldi og skuggamir famir að lengjast, ákváðum við að líta aðeins við í einhverri versluninni sem hefði strengjahljóðfæri til sölu, áður en við héldum til farfuglaheimilisins. Það stóð ekki á Muhamed að finna slíka verslun, sem var reyndar einn- ig silfurvöruverslun og var okkur vísað til sætis, á tepparæksni í þröngu húsasundi fyrir utan versl- unina. Við sátum þama í rúmlega 20 mín. án þess að nokkuð gerðist. Loks birtist svo sjálfur „eigandinn" að því er mér skildist, hár og ungur piltur og hafði hann tvo handunna og fagurlega útskoma gítara í höndunum. En gítaramir voru báðir 10 strengja, enda marokanskir, svo Roy gat vart spilað á þá. Allur af vilja gerður, bauðst gítarseljandinn til að hlaupa aðrar 20 mín. til að sækja 6 strengja gítar fyrir okkur. Okkur var litið hvort á annað, hugsuðum til heimferðar, en út- skýrðum kurteisinnar vegna að það væri algeri óþarfí. Pilturinn tók þessu illa og hélt því fram að við værum að gantast með hann. En til þess að forðast misskilning út- skýrðum við fyrir honum að við hefðum ekki tíma til að bíða eftir þessu, en þökkuðum honum samt fyrir. Einkennilegir viðskipta- hættir Bráðlæti Marokkóbúa er með eindæmum og var hann ekkert á því að láta okkur fara að svo búnu og án þess að hafa fengið nokkuð fyrir sinn snúð. Okkur var ýtt inn í litla verslunarholuna, sem var yfirfull af allslags silfurmunum, handunnum af honum. Furðu lostin stóðum við álkuleg innan um silfur- munina með „eigandann" gínandi yflr okkur. Augu hans skutu gneist- um og heimtaði hann að Roy keypti eitthvað handa vinkonu sinni, þ.e. mér. Hann tók fram alls lags stærð- ir og gerðir af silfurarmböndum, sem troðið var upp á báða hand- leggina á mér svo varia sást í þá. Hellti yflr okkur þeirri sögu að sjálf- ur hefði hann þurft að klífa há fjöll og fara langan veg til þess að sækja málminn í silfurmunina og síðan hafl hann setið tímunum saman við smíðar. En við létum harmsögur smiðsins ekki á okkur fá og sögð- umst ekki ætla okkur að kaupa neina silfurmuni, enda voru þeir FEGRH) OG BÆTH) GARMNNMED SANDIOG GRiÓTI! Sandur Sandur er fyrst og f remst jarðvegs- baetandi. Dreifist einnig í ca. 5 cm. þykku lagi í beð til að kæfa illgresi og mosa í grasi (ca.3 cm.). Jafnar hita og raka í jarðvegi. Kjörið undirlag í hellulagða gangstíga. Ferlumöl Perlumöl er lögð ofan á beð, kæfir illgresi og léttir hreinsun. Perlu- mölin er góð sem þrifalag í inn- keyrslur og stíga. Stærð ca. 0,8— 3 cm. Völusteinar Völusteinar eru notaðir t.d. til skrauts á skuggsælum stöðum, þar sem plöntur eiga erfitt uppdróttar, einnig með hellum og timburpöll- um. Mjög til prýði í beðum með stærri plöntum og trjóm. Kjörin drenlögn með húsgrunnum. Stærð ca. 3—5 cm. Hnullungar Hnullungarnir eru ósvikið íslenskt rjót, sem nýtur sín í steinahæðum, öðnum köntum og með innkeyrsl- um og timburpöllum. Stærð ca. 5—10 cm. K BJÖRGUN H.F. SÆVARHOFÐA 13 SÍMI: 81833 Afgreiðslan við Elliðaár er opin: mánud.-föstud.: 730-18.00 laugard.: 7.30-17.00 Komdu á athafnasvæði Björgunar hf. á Sævarhöfða og líttu á sandinn, mölina, hnullungana og steinana. Við mokum þessum efnum á bíla eða í kerrur og vagna, fáanlegt í smærri einingum, traustum plastpokum, sem þú setur bara í skottið á bílnum þínum. allir svo dýrir. Er ég hafði loks fengið af mér alla skartgripina, héldum við til útidyranna. En ekki var þessu með öllu lokið. Skyndilega var gripið heljartaki í upphandlegg- inn á mér svo mig verkjaði og mér hent inn í verslunina. Yflr andliti mínu blés mórautt andlit Marokkó- búans og steyttur hneflnn ekki langt undan. Mér varð hverft við þessi skyndilegu viðbrögð hans og vissi í fyrstu ekki hvað til bragðs ætti að taka. Ástæða var fyrir þessum stjómlausu viðbrögðum Marokkóbúans, enda taldi hann okkur hafa starf hans í flimtingum og eru það því eðlileg viðbrögð hvers og eins og reyna að veija sig. Roy tók heldur betur við sér er hann sá hvað gerðist og ætlaði að reyna að leika hetju og stöðva Marokkóbúann, en var stöðvaður af sjálfúm af Múhameð sem greip í hann. Allt stefndi í óefni, þar til Roy veifaði 50 dirham-seðli og keyptum við eitt armbandið aðeins til þess að sleppa lifandi frá ólátun- um. Seðillinn var hrifsaður úr hendi Roys og við gátum gengið okkar leið. Ég var hálfringluð eftir þessi snöggu umskipti á áður vingjam- legum viðskiptum sem snémst til óútreiknanlegra örlaga handalög- málanna. Okkur langaði mest til að komast burt frá þessum óskammfeilna viðskipaheimi og báðum Múhameð að leiða okkur út á torgið, því við ætluðum heim á leið. MannQöldinn á torginu hafði aukist um meir en helming og iðaði torgið sem á fjölfarinni mauraþúfu. Við þökkuðum Múhameð kærlega fyrir skemmtilega og góða leiðsögn og réttum honum 10 dirham-seðil- inn að skilnaði. En okkur féllust hendur er Múhameð neitaði að taka við peningunum og heimtaði 50 dirham fyrir leiðsögnina. Við höfð- um fengið okkur alveg fullsödd af uppstökkum Marokkóbúum, svo við skelltum 30 dirham í lófa hans og hvarf hann fljótlega inn í mann- þröngina. Andrúmsloftið var dular- fullt er eldrauð sólin hvarf bak við tum moskésins. Grátt kvöldmistrið gaf loftinu ævintýralegan blæ, við dimman trommuslátt og leyndar- dómsfullan flautuleik slöngutemjar- ans sem handlék flmlega slöngum- ar. Götusalarnir stóðu hver upp í öðmm og reyndu að selja vömr sín- ar. Hestakermr, mótorhjól, reiðhjól, bifreiðir og gangandi vegfarendur þeyttust fram og aftur um götumar í óskipulagðri umferðinni. Rútur fullar af bleikum, hvítklæddum ferðamönnum, sem spókuðu sig í þéttskipuðum röðum á torginu. Sár- fætt og þreytt vomm við dauðfegin að komast frá masi og þjasi Medína og út fyrir borgarmörkin. Sólin var að setjast og pálmatrén stóðu sem í Ijósum loga við sjóndeildarhring- inn, er við höktum til farfuglaheim- ilisins. Aðalheiður E. Ásmundsdóttir Nýkomnir myndbandaskápar. Verðkr. 8.700,-stgr. lfalhúsgögn hf., Ármúla 4. Sími 82275.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.