Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 06.07.1986, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986 9 HUGVEKJA „Gef oss í dag vort daglegt brauð“ eftir EINAR J. GÍSLASON „Gef oss í dag vort daglegt brauð," er fjórða bæn faðirvors- ins. Fyrstu þtjár bænirnar snúast allar um Guð. Þetta er fyrsta bænin, sem er fyrir okkur mönn- um og snertir þá daglegar þarfir, daglegt brauð. Er þörf að biðja þessarar bænar í landi allsnægta sem ísland er? Bænin er fyrir alla menn á öllum tímum í öllum lönd- um. Guð hefir gefið oss nægtabúr með gnægð matar, sem við fáum aldrei fullþakkað. Er það svo um allan heim? Nei, því miður. Hung- ur og hallæri hijáir heilar heims- byggðir og menn farast úr hungri, skorti og vannæringu. Saga íslensku þjóðarinnar er samofín skorti, hungri og fátækt. Svo svarf að að land okkar var talið óbyggilegt og þessar fjöru- tíuþúsund mannverur er bjuggu þá hér ólu aldur við skort, hungur og fátækt. Um öldina sem leið horfði til landauðnar vegna land- flótta til Vesturheims. Skortur og brauðleysi ríkti í landinu. Skarðsárbók greinir frá óalda- vetrum á Islandi. Það var í þann tíma er Haraldur konungur grá- feldur féll, en Hákon jarl tók ríki í Noregi. Sá vetur var mestur hörmunga á íslandi. Þá átu menn hrafna og melrakka. Gamalmenni voru drepin og ómögum var hrint fyrir hamra. Þá sultu margir til bana, sumir lögðust út til að stela og urðu fyrir það sekir og drepn- ir.' Atta tigum vetra síðar var annað óáran. Það hófst þann vetur er ísleifur biskup tók biskups- vígslu. Það var um daga Haralds Sigurðarsonar konungs. Þá var mestur manndauði á íslandi og allt etið er tönn festi á. Þá var svo mikill snær hvarvetna, að menn gengu flestir til Alþingis. Bls. 235 Landnámabók Islend- ingasagna, útgáfan 1953. Umkomulaus unglingur, er gisti hús foreldra minna um 24 ár, lifði svo mikinn skort sem sveitarómagi, að tálkn voru hon- um borin til munns, þegar hann var 11 ára á páskadag. Um mörg ár fékk faðir þess, er þetta ritar, ekki magafylli nema tvo mánuði á ári. Frá því dimmdi af nóttu um miðjan ágúst og fram í októ- ber að gulrófur voru teknar upp úr görðum. Beiskjan var hörð og ómælanleg, vegna þessa hörm- ungartíma, alla tíð. „Gef oss í dag vort daglegt brauð.“ Hugsum við út í það hví- lík náð það er eða teljum við það sjálfsagt, að geta gengið að því vísu, að hafa alltaf nægju okkar í mataræði. Einn af trúboðum Hvítasunnu- hreyfingarinnar á íslandi, Arthur Eiríksen, lenti í fangabúðum nas- ista í Þýskalandi um meira en tveggja ára bil. Sekt hans var í því að hýsa þýskan flugmann 6 klukkustundir, í norðan garði og hörkufrosti, án þess að segja til um atburðinn. Þegar borðað var, sem nær eingöngu voru súpur og kartöflur, afhýddi enginn kartöfl- ur, heldur voru þær undantekn- ingarlaust étnar með hýðinu. Sem sárafáir gera. „Öll sköpun Guðs er góð og engu ber frá sér að kasta, sé það þegið með þakkar- gjörð," segir Páll postuli. „Þurfa maður ert þú mín sál þiggur afDrottni sérhvert mál. Fæðu þína ogfóstriðallt. Fyrirþað honum þakka skalt. “(H.P.) Naumast getur fegurri heimil- issið en fjölskyldan lútandi höfði yfir borðum áður en máltíð hefst. Þar sem Guði eru færðar þakkir fyrir daglegt brauð. Þær bænir þurfa ekki að vera langar og mjög gjaman að húsfaðir eða bömin þakki Drottni. „Gef oss í dag vort daglegt brauð.“ I„Hugsum við út íþaÖ hvilík ndÖ þaÖ er, eÖa teljum viÖ þaÖ sjdlfsagt, aÖ geta gengiÖ aÖ því vísu aÖ hafa alltafnœgju okkar í matarœÖi. “ Til leigu Söluturn með öllum tækjabúnaði. Vandaðar nýjar innréttingar. Góð staðsetning. Nánari uppl. gefur: FASTEIGNA ff MARKAÐURINN Óðinsgötu 4, símar 11540 - 21700. Jón Guðmundsson sölustj., Leó E. Löve lögfr., Ólafur Stefánsson viðskiptafr. -—V erslunarhúsnæði- Höfum til sölu glæsil. verslunarhúsnæði á mjög góðum stað í austurborginni (verslunarmiðstöð). Húsnæðið er 228 fm götuhæð og 44 fm á jarðhæð. Hægt er að hafa fjóra innganga og nýta húsnæðið í smærri eining- um. Mjög hagstætt verð og greiðslukjör. s.62-1200 Kári Fanndal QuAbrandsaon Lovisa Kristjánsdóttir Sœmundur Sœmundsson ^^jðrnJóneeonhdl^^^^^^ GARfíl JR Skipholri > FJÁRFESriNGARFÉLAGIÐ VEI RÐB IR ÍE F A N 1AI Rl IC Al Dl lll Rl ir j N Genqiö í daq e jou 19&6 < Markaðsfréttir Veðskuldabréf - verðtryggð Veðskuldabréf - óverðtr. Lánst. 2afb. óári 1 ár 2 ár 3 ár 4 ár 5 ár 6 ár 7ár 8ár 9ár 10ár Nafn- vextir HLV 4% 4% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% 5% Sölugengi m.v. mism. ávöxtunar- kröfu 12% 14% 16% 95 91 90 88 85 83 81 79 78 76 93 90 87 84 82 79 77 75 73 71 92 88 85 82 78 76 73 71 68 66 Lánst. 1 afb. á ári 1 ár 2ár 3ár 4 ár 5ár Sölugengi m/v. mism. nafnvexti 20% HLV 15% 89 81 74 67 62 84 72 63 56 50 85 76 68 61 56 KJARABRÉF Gengi pr, 4/7 1986 = 1,619 Nafnverð Söluverð 5.000 50.000 8.095 80.950 Dæmi um ávöxtun. Helstu sparnaðarform. Frá 19. júní 1985 til 19. júní 1986. Kjarabréf Bankabréf Ríkisskuldabréf Bundin bankabók Ársávöxtun 51% 401/z% 351/2% 311/2% Ávöxtun umfram verðbólgu 191A>% 11% 7% 4% Allar tölur miðast við ávöxtun sparnaðarforma sem stóðu til boða 19. júní 1985 og hafa staðið óhreyfð síðan. Ávöxtun er í öllum tilfellum án innlausnargjalds eða endursöluþóknunar. fjármál þín - sérgrein okkar cíárfootípnpKói.órj ísipnrf*? hf. Hafnarstraeti 7 101 Rowkja'^ ** ^0-^ naFRR /qi > ?R506 símsvari aHgp Rri,‘r,rrir?nnipn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.