Morgunblaðið - 06.07.1986, Page 7
MORGUNBLABIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ 1986
Norræn menningarhátíð heyrnarlausra á íslandi:
„Samskiptaörðug-
leikar hverfandi“
Mbl/Bjami
fljótlega yflrunnir á þessu móti.
Hjálpaði þar til að heymarlausir eiga
létt með að tileinka sér látbragð og
samkennd með þeim er rík. „Tákn-
málið dregur jafnan dám af því landi
sem fóstrar það,“ sagði Vilhjálmur
G., „og þess vegna er óhjákvæmilegt
að það greinist rétt eins og tungu-
mál þjóða. Til dæmis er það þannig
í Noregi að sjá má á því táknmáli
sem viðkomandi notar í hvaða skóla
hann hefur lært. Þannig geta orðið
til mállýskur innan hvers lands. Til
er alþjóðlegt táknmál, nokkurskonar
esperanto heymarlausra, en það er
ekki mikið notað," sagði Vilhjálmur
G. Þá er stafróf heymarlausra yfír-
leitt mjög mismunandi eftir löndum,
það danska og íslenska er þó nánast
eins, en heymarlausir stafa venju-
lega sérheiti. Fyrir nokkm kom út
bók fyrir byijendur yfir táknmálið
íslenska en hún er nú uppseld. Vil-
hjálmur G. kvað Félag heymarlausra
vera með aðra bók í smíðum og mun
hún innihalda um 1.800 tákn.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar
og Amþrúðar Jónsdóttur, starfs-
manns hátíðarinnar, má ætla að hátt
á fjórða hundrað manns hafí sótt
hátíðina en hún var öll tekin upp á
myndband af sænskum aðilum.
NORRÆNNI menningarhátíð
heymarlausra lýkur í dag á Hótel
Sögu. Þetta er í 15. sinn sem hún
er haldin, en i fyrsta skiptið sem
íslendingar sjá um hana. Megin-
stef hátíðarinnar að þessu sinni
er vemdun og þróun menningar
heyrnarlausra og hafa fyrirlestr-
ar og umræður farið fram á Hótel
Sögu.
Þegar blaðamann bar að garði var
nýafstaðið erindi Vilhjálms G. Vil-
hjálmssonar um framtíðarþróun
málefna heymarlausra og stóðu yfír
umræður um erindið. Túlkar voru í
óða önn að snúa umræðunum hver
yfír á sitt mál en taltúlkur hafði í
upphafi þýtt ræðu Vilhjálms jafnóð-
um yfír á dönsku og enn aðrir síðan
yfírfært það á táknmál.
A hátíðinni em þátttakendur frá
öllum Norðurlöndunum og auk þess
frá Skotlandi, Englandi og Banda-
ríkjunum. Taldi Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, starfsmaður menningar-
hátíðarinnar, að erlendir gestir væm
á þriðja hundrað.
Vemdari hátíðarinnar, Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands,
ávarpaði samkomuna á opnunar-
hátíðinni í Þjóðleikhúsinu við mikla
hrifningu viðstaddra, að sögn Vil-
hjálms. Aðspurður kvaðst hann vilja
skipta tilgangi slíkrar ráðstefnu sem
þessarar í tvennt. Heymarlaust fólk
fær tækifæri til að koma saman og
kynnast bæði landi og þjóð. Og svo
em auðvitað áhugamál og hags-
munamál heymarlausra sett j
Mbl/Þorkell
I gærkvöldi skoðuðu ráðstefnugestir Árbæjarsafnið og gerðu sér eitt og annað til gamans í góða veðr-
inu. Meðal annars sýndu Norðmennirnir norska þjóðdansa.
brennipunkt, rædd og kmfín. í
sambandi við hátíðina er haldin
málverkasýning á Hótel Sögu á
vegum Listafélags heymleysingja í
Danmörku.
í viðtali við Vilhjálm G. Vilhjálms-
son, formann Félags heymarlausra,
kom fram að hátíðin hefur lánast
mjög vel. Farið var með gestina að
Gullfossi og Geysi og sagði Vilhjálm-
ur G. að þeir hefðu orðið yfír sig
hrifnir, eins þótti þeim íslenska
landslagið æði sérstakt. í samskipt-
um heymarlausra getur örlað á
tungumálaörðugleikum sem Vil-
hjálmur G. sagði að hefðu þó verið
Túlkað á þinginu.
með möguleika á viðbótardvöl íAmsterdam
án aukakostnaðar í fíugi
Vegna góðrar þátttöku efnum við til sérstakrar aukaferðartil Rhodos
dagana 15.-30. september nk. Þetta er snaggaraleg tveggja vikna ferð,
flogið er í leiguflugi beinttil Rhodos en heim aftur í áætlunarflugi með
millilendingu í Amsterdam. Aukadvöl í borginni fæst því án nokkurs
aukakostnaðar í flugi - og að sjálfsögðu útvegum við hótelgistingu,
bílaleigubíla o.m.fl. í Amsterdam á vægu verði.
Vinsamlegast látið vita um þátttöku sem fyrst.
Takmarkað sætaframboð.
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 • Símar 91 -27077 & 28899
Hótel Sögu viö Hagatorg • 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 18 ■ 96-21400
Vegna langra biðlista og
fjölda áskorana
bjóðum við tveggja vfíam aukaferð til