Morgunblaðið - 06.07.1986, Page 22

Morgunblaðið - 06.07.1986, Page 22
SVONA GERUM VIÐ 22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚLÍ1986 Sumir hlutirnir eru skemmtilega skítugir Fimm ungar konur voru önnum kafnar við vinnu sína á textílviðgerðarstofu Abegg-stofnunarinnar fyrir utan Bem í Sviss í byijun júní. Ein var að lesa sér til um vefnaðarlist; önnur var að reyna að raða saman eldgamalli, egypskri silki- mynd sem var rifín í tætlur; tvær sátu og festu niður lausa gullþræði á gömlum biblíumyndum með örfínum silfurendum; og ein annaðist stjómunarstörf. Vinnustofan var stór og björt, klædd tekkskúffum og -skápum fullum af textílverðmætum. Vinnuborðin vom stór og rúmgóð. Sum þeirra vom með gati svo að hægt var að sauma í vefnaðinn án þess að þurfa að halda á honum. Margrét Gísla- dóttir vinnur ein að viðgerðum og hreinsun á ís- lenskum textíl- þjóðmunum. Hún hefur nokkrum sinnum starfað í þrjá mánuði í senn á virtu, svissnesku textíl- safni og var þar síðast nú í vor. Á einu borðinu lágu slétt og fín, blá, ísaumuð stykki af íslenskum hökli. Margrét Gísladóttir, deildar- stjóri forvörsludeildar Þjóðminja- safns íslands, hafði komið með hökulinn með sér að heiman í byrjun apríl og vann að viðgerðum á hon- um í Abegg-stofnuninni í tæpa þrjá mánuði. Þetta var í fjórða skiptið sem hún dvaldist á stofíiuninni við viðgerðir á íslenskum munum. „Það er ómetanlegt að fá að starfa hér,“ sagði hún. „Hér eru fullkomnustu tæki til alls. Ég fæ efni og aðstoð sem ég þarf og get gert við hluti sem ég mjmdi ekki treysta mér til að gera við heima. Og þetta kostar íslenska ríkið ekki neitt.“ Fjarri mengun þéttbýlisins Svissneski auðkýfingurinn Wem- er Abegg byijaði ungur að safna textíl og öðrum listmunum sem minna á myndir og munstur í vefn- aðarlist. Hann kom sér upp merku og verðmætu safni á langri ævi og hugðist gefa þjóðminjasafninu í Bem það eftir sinn dag. Við nánari athugun reyndist safnið vera orðið svo mikið að það hefði ekki notið sín til fulls á þjóðminjasafninu og Abegg ákvað að stofna Abegg- stofnunina. Hann keypti land úti í sveitasælunni í haeðunum fyrir sunnan Bem og byggði þar safn og íbúðarhús fyrir sig og banda- ríska eiginkonu sína. Stofnunin er úr alfaraleið en staðurinn var valinn með mengun stórborganna í huga. Ekkert var tilsparað svo að færi sem best um munina og þeir varðveittust sem lengst. Stofnunin verður 20 ára á næsta ári. Abegg lést fyrir þremur árum en ekkja hans lifir enn. Þau hjónin vom bamlaus. Nýir munir bætast enn í safnið og Abegg-stofnunin á mjög gott bókasafn um vefnaðarlist sem listfræðingar hafa aðgang að. Helsta markmið stofnunarinnar er að varðveita gamlan textíl, auka þekkingu á honum og halda sýning- ar sem em opnar almenningi. Viðgerðarstofan, sem gengur frá textílnum þannig að hann varðveit- ist, er mjög virt og þangað koma nemendur alls staðar að úr heimin- um til starfa. Aðeins fimm nemend- ur komast að í fullt nám í einu, námið tekur þijú ár, en nemendur em einnig teknir í þriggja mánaða þjálfun. Textílviðgerðir em einnig kenndar í London og Bmssel en það er mjög eftirsótt að komast á Abegg-stofnunina. Norskri stúlku sem spurðist fyrir um þriggja mán- aða pláss í vor var til dæmis sagt að það væri eins og hálfs árs bið- listi til að komast að á viðgerðar- stofunni. En Margrét Gísladóttir komst þar að tafarlaust þegar hún kannaði málið fyrst fyrir fímm ámm. „Elsa Guéjónsson. textílfræðingur á Þjóð- minjasafni Islands, þekkir forstöðu- konu viðgerðardeildar Abegg-stofn- unarinnar og minntist eitt sinn á mig við hana. Forstöðukonan sagði að ég væri velkomin og mér var strax boðið að koma í þijá mánuði þegar ég spurðist fyrir um það árið 1981. Eg var hér aftur í þijá mán- uði 1983 og 1984 og svo núna,“ sagði Margrét. Hefðiekkilagt í verkið heima „Ég tek með mér muni að heiman og geri við þá hér. Ég reyni að velja hluti sem em sambærilegir við aðra svo að ég geti nýtt það sem ég læri hér þegar ég kem heim aftur." Hún hefur hingað til haft með sér púða og sessur sem þurfti að hreinsa og laga en nú tók hún með sér hökul frá Hítardal sem er frá 15. öld. Hún spretti hann upp, hreinsaði hann og litaði efni sem hún leggur undir hann til að fela göt. Hún festir efnið við hökulinn með örfínum silkiþræði og agnar- smáum spomm, gerir að göturium svo að þau stækki ekki og lokar sumum. Hún tók Ijölda mynda af höklinum áður en hún tók hann í sundur svo að hún myndi sauma hann (í höndunum) rétt saman aftur. Hún var ekki viss um hvemig hún ætti að flytja hann heim og lét sér detta í hug, í gríni, að vera bara í honum á leiðinni. „Hökullinn var illa farinn og það er mikið verk að gera við hann. Ég hefði aldrei treyst mér til að taka hann fyrir heima. Þar er ekki að- staða til að gera þá hluti sem ég þurfti að gera og auk þess hef ég engan þar til að ráðfæra mig við í sambandi við verkið. Hér fæ ég „móralskan" stuðning og hef öll tæki og efni sem með þarf til að gera sem best við hann.“ Starf hennar á Þjóðminjasafriinu gengur út á að hreinsa og laga textílmuni og ganga þannig frá þeim að þeir eyðileggist ekki. „Það er engin ákveðin uppskrift til um hvemig á að gera við munina," sagði hún. „Hver hlutur hefur sinn svip og maður tekur eigin ákvörðun um það sem þarf að gera til að þeir haldi sér sem best. Það er enginn kostur að gera of mikið. Ég sauma til dæmis ekki nýja rós ef ísaumuð rós er farin af hlutnum. En ég legg efíii á bak við göt og fel þau ef hlutimir em götóttir og reyni að sauma þau svo að þau stækki ekki og ég festi niður þræði sem hafa losnað úr skrautsaumi." Abegg-ftofn- nnlnergiðu apöl fyrir ntu erfariði höfttðborga innartilað aýnn þeim ger- Kjörbókin er óbundin og örugg ávöxtunarleið. Hún ber háa vexti, sem leggjast við höfuðstól á 6 mánaða fresti. Til þess að tryggja að Kjörbókarelgendur njótl ávallt hagstœðustu kjara er ávöxtun Kjörbókarinnar ársfjórðungslega borin saman við ávöxtun bundinna 6 mánaða vísitöiutryggðra reikninga og hagstæðari leiðin valin. . onrtchanlri Kjörbókln er góð bók fyrlr bjarta framtíð. íslancte MJ Banki allra landsmanna 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.