Morgunblaðið - 31.08.1986, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1986
57
Vantar þig góða
aukavinnu
Við viljum ráða duglegt og hresst sölufólk
bæði í dag og kvöldvinnu. Góðar aukatekjur
fyrir t.d. skólafólk og húsmæður. Tilvalin fjár-
öflunarleiðfyrirfélagasamtök. Nánari upplýs-
ingar í síma 82300 næstu daga.
Frjálst framtak
Ármúla 18,
sími82300.
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
FÓStra óskast við dagheimili ríkisspítala,
Sólbakka við Vatnsmýrarveg. Upplýsingar
veitir forstöðumaður dagheimilisins í síma
22725.
Læknaritari óskast við krabbameinslækn-
ingadeild. Hlutastarf kemur til greina.
Stúdentspróf eða hliðstæð menntun áskilin
ásamt góðri íslensku- og vélritunarkunnáttu.
Upplýsingar veitir læknafulltrúi krabbameins-
lækningadeildar í síma 29000.
Starfsfólk óskast við ræstingadeild Kópa-
vogshælis nú þegar. Upplýsingar veitir
ræstingastjóri Kópavogshælis í síma 41500.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar
óskast á vökudeild, ungbarnadeild og skurð-
lækningadeild.
FÓStrur óskast nú þegar við Barnaspítala
Hringsins.
Sjúkraliðar óskast til afleysinga á dag-
deild Kvennadeildar frá 1. sept. eða eftir
samkomulagi.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkr-
unarforstjóri Landspítalans í síma 29000.
Reykjavík 31. ágúst 1986.
Við lifum ekki öll
á því að klippa
hvert annað
Ein helsta stoð góðra lífskjara í hverju landi er
þróttmikill og framsækinn framleiðsluiðnaður.
Við í Hampiðjunni, öflugasta plastiðnaðarfyr-
irtæki landsins, erum stolt af okkar framlagi.
— Vilt þú siást í hópinn?
Nú þegar skólafólkið hverfur á braut, vantar
nokkuð af duglegu og samviskusömu fólki
til framtíðarstarfa, enda mikið að gera á
næstunni.
Við getum boðið:
Góða tekjumöguleika.
Hressa vinnufélaga og öflugt starfsmanna-
félag.
Góða staðsetningu við Hlemm.
Akstur frá Breiðholti og Kópavogi til verk-
smiðju á Bfldshöfða.
Tvískiptar vaktir eða næturvaktir eingöngu.
3ja rása heyrnarhlífar með útvarpi.
Hampiöjan er eitt helsta iönfyrirtæki landsins meö á 5ta hundraö millj-
ón króna veltu og 200 starfsmenn.
Þaö rekur m.a. eina stærstu og fullkomnustu trollnetaverksmlðju á sínu
sviði í heiminum og flytur út yfir 40% netaframleíöslunnar.
Fyrirtækiö framleiöir úr plasti:
• trollnet, gam og kaöla fyrir sjávarútveg
• heybindigarn fyrir landbúnaö
• plaströr fyrir byggingariönaö
• endurunniö plast til útflutnlngs
HAMPIÐJAN
Framsækið fyrirtæki iplastiðnaði
Stakkholti 2-4 og Bíldshöfða 9.
íþróttamiðstöð
Seltjarnarness
Starfsmaður óskast til baðvörslu (kvenna-
böð), ræstinga og fleiri starfa. Upplýsingar
hjá framkvæmdastjóra í síma 611551.
Félagsmálastofnun
Hafnarfjarðar
óskar eftir að ráða starfsmenn til eftirfarandi
starfa strax:
1. Fóstru eftir hádegi á leikskólann Arnar-
berg og þroskaþjálfa eða stuðnings-
fóstru í þrjár stundir eftir hádegi.
2. Fóstru eftir hádegi á leikskólann Norður-
berg og þroskaþjálfa eða stuðnings-
fóstru í tvær stundir fyrir hádegi.
3. Fóstrur eftir hádegi á leikskólann Álfa-
berg.
4. Fóstru í fullt starf í 3 mánuði á skóladag-
heimilið við Kirkjuveg 7.
5. Dagvistarfulltrúi óskast í hálft starf á
félagsmálastofnun Hafnarfjarðar í óá-
kveðinn tíma. Upplýsingar veitir dag-
vistarfulltrúi.
6. Staða félagsráðgjafa á félagsmálastofn-
un Hafnarfjarðar er laus til umsóknar.
Helmingur stöðunnar er afleysingastaða
í 8 mánuði. Upplýsingar um stöðuna
veitir félagsmálastjóri Hafnarfjarðar.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf skulu
fylgja framangreindum umsóknum. Um-
sóknareyðublöð fást á félagsmálaskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 4. Umsóknarfrest-
ur er til 9. september.
Félagsmálastjóri Hafnarfjarðar.
Líffræðistofnun Háskóla íslands
óskar að ráða til starfa
sérfræðing í
líftækni
Við leitum að áhugasömum manni sem getur
unnið sjálfstætt. Starfið felst einkum í vinnu
með ýmsar tegundir örvera og mælingum á
ensímvirkni.
Umsækjandi þarf að hafa reynslu í almennri
rannsóknastofuvinnu svo og vinnu með
hreinræktir og dauðhreinsuð efni og áhöld.
Æskileg menntun er masters- og doktors-
próf í örverufræði, lífefnafræði, sameindalíf-
fræði eða skyldum greinum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil,
rannsóknir og fyrri störf sendist til Örveru-
fræðistofu Líffræðistofnunar Háskólans,
Sigtúni 1, 105 Reykjavíkur.
Frekari upplýsingar veita Jakob. K. Kristjáns-
son og Guðni Á. Alfreðsson í síma 688447.
Starfskraftar
Óskum eftir tveimur stúlkum til ýmissa af-
greiðslustarfa. Um er að ræða heils- og
hálfsdags vinnu.
Uppl. hjá verslunarstjóra, ath. uppl. ekki
veittar í síma.
Aðstoðarfólk
Brauðgerð Mjólkursamsölunnar þarf að ráða
til sín starfsfólk í ýmis störf. Meðal annars
í vinnu við:
1. Pökkun á brauðum (unnið á kvöldin).
2. Ýmis aðstoðarstörf við framleiðslu í
brauða- og kökudeild.
Allar nánari upplýsingar gefa verkstjórar í
brauðgerðinni að Brautarholti 10 (gengið inn
frá Skipholti).
Brauðgerð Mjólkursamsölunnar
Matreiðslumenn
Fyrirtækið er nýiegur veitingastaður í
Reykjavík.
Störfin felast í matreiðslu á skyndibitum, en
fyrirhugað er að bæta við réttum á matseðil
staðarins.
Hæfniskröfur eru að viðkomandi séu já-
kvæðir og eigi auðvelt með að umgangast
fólk. Eingöngu er leitað að menntuðum mat-
reiðslumönnum. Umsækjendur þurfa að geta
hafið störf í september nk.
Vinnuti'mi eru 12 klst. vaktir, 15 vaktir í
mánuði.
Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst
1986.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Aíleysinga- og rádningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavördustig la — 101 Reykjavik - Sími 621355
Verkfræðingur
Tæknifræðingur
Ein öflugustu hagsmunasamtök landsins,
óska að ráða tæknimenntaðan starfsmann,
til starfa, fljótlega.
Skilyrði að viðkomandi sé byggingar- eða
rekstrarverkfræðingur eða tæknifræðingur
með hliðstæða menntun, ásamt nokkurra
ára starfsreynslu.
Starfið felst m.a. í ráðgjöf við fyrirtæki til
hagræðingar í rekstri, skipulagningu nám-
skeiða og leiðbeinendastörf ásamt þátttöku
í gerð kjarasamninga.
Leitað er að hugmyndaríkum aðila, með
trausta og örugga framkomu, skipulögð og
sjálfstæð vinnubrögð, sem er fljótur að til-
einka sér og komast inn í ný mál.
Launakjör samningsatriði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu, sendist skrifstofu okkar, fyrir
14. sept. nk.
(tIIÐNI ÍÚNSSON
RÁÐCJÖF &RÁÐNI ! NCARÞJÓN USTA
TÚNOÖTU 5. 101 REYKJAVIK - - PÓSTHOLF 693 SÍMl 621322
KjöcbúS Louhólum 2 - 6 8fml 74100
Tölvuinnsláttur
Við leitum að aðila með verslunar- eða stúd-
entspróf og góða vélritunarkunnáttu eða
reynslu við innskrift til starfa.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
CjtJÐNT TÓNSSON
RÁÐCJÖF & RÁÐNl NGARÞJÓN USTA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVtK - PÓSTHÓLF 693 SlMl 621322
Kranamenn
Vanir kranamenn óskast á byggingakrana.
Upplýsingar í síma 688882 og í síma 53537.
Álftarós hf.
L