Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 17

Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 17 Stykkishólmur: Óvisst um þátttöku kaupfélagsins í sauðfjárslátrun Stykkishólmi. Réttardagur er ekki langt und- an og hefur hann alltaf hér um slóðir sett svip á umhverfið og svo mun víðar vera. Þá flykkjast bæði börn og fullorðnir til að skoða safnið en svo kemur að siáturtíð og undan henni verður ekki komist. I Stykkishólmi hef- ur lengst af verið rekið sláturhús og nú síðustu árin hafa bæði Hólmarar og Grundfirðingar nýtt sér það. Eigendur þess eru vöruhúsið Hólmkjör í Stykkishólmi, verslunin Grund í Grundarfírði, eign Emils Magnússonar, og svo kaupfélögin, bæði í Grundarfírði og Stykkis- hólmi. Nú er ekki vitað um þátttöku Kaupfélags Stykkishólms þótt það sé eigandi að hluta, en það hefur alla tíð slátrað þar fé því sem það hefur fengið hjá bændum. Nú hefur félagið fengið greiðslu- stöðvun hjá sýslumanni og er nú fjarstýrt af kaupfélaginu í Búðardal og hafa heyrst þær raddir að öllu því fé sem lagt verður inn í kaup- félagið verði í haust ekið í Búðardal þótt mönnum þyki það ólíklegt og ekki í samræmi við stefnu kaup- félagsins, en auðvitað getur allt skeð. Þessi greiðslustöðvun og svo hitt að kaupfélagið ráði nú ekki lengur gjörðum sínum, hefur áhrif á fram- hald þess. Sláturhúsið var endur- byggt og viðbyggt nú fyrir skömmu með æmum kostnaði og mun sá kostnaður hafa haft sín áhrif á þró- un verslunarinnar í Stykkishólmi. Ámi Norröna leigð danska rauða krossinum UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur milli Smiril Line og danska rauða krossins um leigu á „Norröna" frá 24. september til 1. mars 1987. Jónas Hallgrímsson umboðsmað- ur Smiril Line á Islandi sagði að samningurinn gerði ráð fyrir að danski rauði krossinn nýtti skipið fyrir flóttamenn sem koma til Kaup- mannahafnar. „Með þessum samningi hefur afkoma fyrirtækis- ins verið tryggð," sagði Jónas. í lok maí á næsta ári hefjast siglingar feijunnar ti) Islands á ný. Bláhvammur í Reykjahverfi: Gistiheimilið opið allt árið STARFSEMI Ferðaþjónustu bænda á Bláhvammi í Reykja- hverfi i Suður-Þingeyjarsýslu hefur gengið vel að sögn þeirra Jóns Frímanns og Steinunnar Bragadóttur, sem reka þar gisti- heimili. Á vegum Ferðaskrifstofu bænda eru rekin gistiheimili á 72 bæjum víðs vegar á landinu, en gistiheimil- ið í Bláhvammi er fárra, sem opið er allt árið. í sumar gistu um 240 íslendingar á Bláhvammi og 70 útlendingar. Gist er í sérhúsi og er sundlaug á bænum. Boðið er ýmist upp á uppbúið rúm eða svefnpoka- pláss og morgunverð og hálft eða fullt fæði. Bláhvammur er miðja vegu milli Húsavíkur og Mývatns og er náð í fólk út á Húsavíkurflugvöll, sé þess óskað. /MIKLIG9RDUR MIKIÐ FYRIR LfTIÐ St. 36-41 Litir: Svart. hvítt St. 37-45 Strigaskor St. 30-46 Verö frá: Singapore Nylon St. 32-46 BlL-fffe Danmark Leisure 2000 Leöur St. 36-46 Litir: Svart, grátt. beige. 3 f 1« ’^SSskí Sæií

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.