Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 1

Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 1
80 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 269. tbl. 72. árg. FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Prentsmiðja Morgunbláðsins Bandaríkin segja skilið við SALT-2 Washington, AP. BANDARÍKIN hyggjast í dag afnema þær takmarkanir um lang- dræg kjarnorkuvopn, sem settar voru á sínum tima með svonefndum SALT-2 samningi við Sovétrikin, en hann var aldrei staðfestur. Skýrði bandariska varnarmálaráðuneytið frá þessu i gær. Var sagt, að 131. 8prengjuflugvélinni af gerðinni B-52 yrði flogið á áfangastað i Texas. Sprengjuþota þessi er búin stýriflaugum og með þvi að gera hana tilbúna til notkunar, verður farið út fyrir mörk SALT-2 samningsins varðandi fjölda kjarnorkusprengja og flugvéla, sem flutt geta stýriflaugar. „Þessi ráðstöfun er afleiðing þeirrar ákvörðunar forseta Banda- ríkjanna frá því 27. maí sl. um, að ákvarðanir nú og í framtíðinni varð- andi langdræg kjamorkuvopn okkar, verða að byggjast á hemað- arhagsmunum Bandaríkjanna í heild og þeirri ógnun, sem við stönd- um andspænis," sagði í tilkynningu vamarmálaráðuneytisins. Sovétríkin hyggjast grípa til af- Kínverskir bændur eggjaðir lögeggjan: Látið hagn- aðarvonina lýsa ykkur Peking, Reuter. KÍNVERSKUR f rammámaður hvatti í gær bændafólk í landinu, 800 milljónir manna, til að varpa af sér oki f ortíðarinnar og gerast nýir menn, hafa fésældina að leiðarljósi en ekki gamla for- dóma. Préttastofan Nýja Kína hafði það eftir Wan Li, aðstoðarforsætisráð- herra, að bændur í betri sveitum þyrftu ekki lengur að bera kviðboga fyrir morgundeginum og stefndu nú „að því að bæta kjör sín með aukinni vélvæðingu". Sagði Li, að efnahagslegar framfarir á lands- byggðinni væri komnar undir því, að fólk reyndi „að hagnast sjálft eftir öllum löglegum leiðum jafn- framt því að leggja sitt af mörkum til samfélagsins". Li sagði ennfremur, að gamla drauga frá lénstímanum, t.d. hjátrú, giftingar til fjár, óhóf við brúðkaup og greftranir og Qárhættuspil, yrði að kveða niður og svo væri einnig með þá landlægu fyrirlitningu, sem fólk hefði á kaupmönnum. dráttarlausra aðgerða vegna hugsanlegra brota Bandaríkja- manna á SALT-2 samningnum í framtíðinni. Skýrði Boris Pyadys- hev, talsmaður sovézka utanríkis- ráðuneytisins frá þessu í gær. Hann sagði jafnframt að ákvörðun Bandaríkjamanna um að virða ekki framar ákvæði samningsins, ætti vafalítið eftir að hafa neikvæð áhrif á viðræður rísaveldanna í Genf um takmarkanir á vígbúnaði. Búizt var við fremur neikvæðum viðbrögðum sumra bandalagsríkja Bandaríkjanna innan Atlantshafs- bandalagsins gagnvart ákvörðun Bandaríkjastjómar. Þannig var haft eftir Hans van den Broek, utanríkis- ráðherra Hollands í gær, að þessi ákvörðun væri „óheppileg í stjóm- málalegu tilliti" svo skömmu eftir leiðtogafundinn á íslandi. 170 millj- ónirílottói Gillian Boyd frá Colorado Springs og maður hennar fagna stærsta vinningi, sem nokkru sinni hefur fengist í sögu ríkislottós i Colorado- ríki. Hún vann hvorki meira né minna en 4,2 miiy. dollara (nærri 170 millj. ísl. kr.) nú í vikunni. Það var því ástæða til að fagna. Kalkúni íþakkargjörð Svonefnd þakkargjörðarhátíð var í gær í Bandaríkjunum. Þar er það tíl siðs, að menn færi kalkún að gjöf í tilefni hátíðarinn- ar, enda er sá fugl þar vinsælasti hátíðarmaturinn. Mynd þessi sýnir Chad Larson, 13 ára gamlan pUt, færa Reagan forseta kalkún við sérstaka athöfn, sem fram fór i Hvita húsinu í gær. Tekið skal fram, að þessi fugl fær að lifa, þvi að eftir athöfn- ina var honum komið fyrir i fugla- og dýrasafni i nágrenninu. V estur-Þýzkaland: Sýrlenzkum sendimönn- um vísað burt Bonn, Reuter, AP. VESTUR-ÞÝZK stjórnvöld vísuðu i gær fimm sýrlenzkum sendistarfsmönnum úr landi vegna óyggjandi sannana um, að sýrlenzkur sendistarfsmaður hefði átt aðild að sprengjutU- ræði, sem tveir Jórdaniumenn stóðu fyrir i Vestur-Berlín í marz sl. Yfirherstjórn Vesturveldanna þriggja í Vestur-Berlín gerði jafnframt ótilgreindan fjölda Sýrlendinga brottrækan úr borg- inni. Friedhelm Ost, talsmaður vestur- þýzku stjómarinnar sagði, að hún myndi ekki skipa nýjan sendiherra í Sýrlandi um ótiltekin tíma, en sendiherra Vestur-Þýzkalands þar fór þaðan 16. nóvember sl. Þessar ráðstafanir komu í kjölfar dóma, sem kveðnir voru upp yfír tveimur Jórdaníumönnum í gær. Þeir heita Ahmad Hasi og Farouk Salameh. Komu þeir fyrir sprengju í samkomuhúsi í Vestur-Berlín 29. marz sl. Þrír menn fórust í spreng- ingunni og um 200 manns slösuðust. Hasi var dæmdur í 14 ára og Sal- ameh í 13 ára fangelsisvist. Þeir báru það fyrir rétti, að þeir hefðu fengið sprengjuna, sem þeir notuðu, frá sýrlenzka sendiráðinu í Austur- Berlín. Los Angeles Times: Oliver North eyðilagði fjölda af leyniskjölum Los Angeles, Reuter, AP. BLAÐIÐ Los Angeles Times hélt þvi fram í gær, að Oliver North ofursti hefði eyðilagt mörg leyniskjöl um þátt annarra embættis- manna í vopnasendingum Bandaríkjamanna tíl írans og í þvi að koma hagnaðinum af sölu þeirra i hendur Contra-skæruliðum i Nicaragua. Á North að hafa eyðilagt skjölin um síðustu helgi. North ofursti var áður háttsett- ur starfsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, en var leystur frá störfum á þriðjudag. Hafði Los Angeles Times það eftir ónafn- greindum heimildum í Washington, að hin týndu skjöl hefðu fyrst og fremst haft að geyma upplýsingar um þátt annarra embættismanna stjómarinnar í að koma fé fyrir vopnasendingamar til skæruliða í Nicaragua. Málið hefði nú verið fengið alríkislögreglunni (FBI) til meðferðar og ætti hún að rann- saka, hvort rétt væri, að mikilvæg leyniskjöl um málið hefðu verið eyðilögð. Sovietskaya Rossiya: Mistök, bruðl og léleg skipu- lagning valda rafmagnsskorti Moskvu, Reuter. Á ÞESSUM vetri horfast Sovét- menn ( augu við alvarlegan rafmagnsskort og eru ástæð- urnar sagðar vera mistök og slys, botnlaust bruðl, illa þjálf- að starfsfólk og ómöguleg skipulagning. Dagblaðið Sovi- etskaya Rossiya skýrði frá þessu í gær. í greininni, einhverri óvægnustu gagnrýni á ástandið í sovéskum orkumálum, sem birst hefur í sov- ésku blaði, sagði, að annar kjamakljúfurinn f Kalinin-orku- verinu hefði verið tekinri í notkun nú nýlega þótt hann hefði átt að vera tilbúinn í ársbyijun. Væri þar um að kenna lélegri skipu- lagningu, sem ásamt Chemobyl- slysinu og þurrkum í sumar legðust nú á eitt við að valda raf- magnsskorti og vandræðaástandi. „Erfíðasti tíminn er þó enn framundan," sagði f blaðinu, sem benti á, að þótt stjómendum orku- veranna hefði fyrir tveimur mánuðum verið skipað að auka rafmagnsframleiðsluna eftir mætti, virtist sem það ætlaði lítinn árangur að bera. Var það nefnt sem dæmi, að á síðasta vetri hefðu 12% orkunnar farið fyrir ofan garð og neðan af ýmsum ástæðum og þannig væri það enn. í Sovietskaya Rossiya sagði, að leiðtogar kommúnistaflokksins hefðu sérstakar áhyggjur af hve tæknileg geta orkuveranna væri illa nýtt. Stafaði það af því hve starfsfólkið fengi slæma þjálfun og af agaleysi og lélegum stjóm- endum. Greinin í blaðinu kemur í kjöl- far áskorana á almenning um að spara rafmagnið í vetur auk þess, að sums staðar hefur verið gripið til skömmtunar. Los Angeles Times sagði það ekki vera fullkomlega ljóst, hvort North hefði eyðilagt skjölin, áður en hann var yfírheyrður af Edwin Meese dómsmálaráðherra og fleiri háttsettum embættismönnum úr bandaríska dómsmálaráðuneytinu. Blaðið hafði það eftir heimildar- mönnum sínum, að sennilega hefði North farið á skrifstofu sína á sunnudaginn var og eyðilagt skjöl- in, en skrifstofa hans var í bygg- ingu skammt frá Hvíta húsinu í Washington. Hefði þetta gerzt ein- um og hálfum sólarhring, áður en öryggisverðir voru sendir á vett- vang síðdegis á þriðjudag, til að breyta læsingum að skrifstofu Norths og skjalaskápum þar. Blaðið hélt því ennfremur fram, að North væri nú í senn hryggur og reiður yfír brottvikningunni, enda þótt hann hefði tekið henni með jafnaðargeði í upphafi. Sjá ennfremur fréttir á bls. 28.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.