Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 2
2
MORGUtíéLAéÍlj; tuáTÍJDAGUR 28. NÓVÉMBER Íd86
Fimm umsóknir um
flugrekstrarleyfi
FIMM umsóknir um flugrekstrarleyfi hafa að undanförnu komið til
samgönguráðuneytisins, og hefur flugráð þegar mælt með tveimur
umsóknanna, ein er í athugun hjá loftferðaeftirliti en flugráð hefur
óskað eftir að frekari upplýsingar verði látnar fylgja tveimur um-
sóknanna.
Þeir aðilar sem sótt hafa um flug-
rekstrarleyfi eru Flugstöðin, Flug-
skólinn Freyr, Þotuflug, Guðni
Þórðarson og Guðbrandur Jónsson.
Flugstöðin sótti um endumýjun á
sínu leyfi, og hefur fengið jákvæða
umsögn hjá flugráði, svo og Flug-
skólinn Freyr, en umsókn skólans
takmarkaðist við flugkennslu.
Þota Þotuflugs hefur hingað til
verið rekin á flugrekstrarleyfi Flug-
stöðvarinnar, með samþykki
samgönguráðuneytisins, en félagið
hefur nú sótt um sérstakt flug-
rekstrarleyfi. Að sögn Leifs
Magnússonar formanns Flugráðs
er búist við því að sú umsókn verði
afgreidd frá flugráði í næstu viku
en loftferðaeftirlitið fjallar nú um
umsóknina.
Umsóknir Guðna Þórðarsonar
fyrrverandi forstjóra Sunnu og
Guðbrands Jónssonar eru í biðstöðu
þar sem Flugráð hefur óskað eftir
að þeir afhendi samgönguráðuneyt-
inu skrifleg gögn með umsóknun-
um.
Frá spástefnu Stjórnunarfélagsins. Gunnar Hansson, forstjóri IBM á Islandi og fundarstjóri í ræðustól,
en næstur honum er Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra og þá Þórður Friðjónsson, efnahagsráðgjafi
rikisstjórnarinnar og formaður Stjórnunarfélagsins.
Spástefna Stjórnunarfélags íslands:
Verðlagsþróunin næsta ár
ræðst af kjarasamnmgum
Björn B. Björnsson
Lést í bílslysi í
Skaftártungu
MAÐURINN sem lést í bílslysi
við Hrífunes í Skaftártungu á
miðvikudag hét Bjöm Berg-
steinn Björasson.
Bjöm heitinn var fæddur 3. okt-
óber 1918. Hann var til heimilis að
Sólheimum 30 í Reykjavík. Bjöm
lætur eftir sig eiginkonu, Ólöfu
Helgadóttur, og fjögur uppkomin
böm. Ólöf liggur þungt haldin á
sjúkrahúsi eftir slysið.
Markmið ríkisstjórnar er 5% verðbólga,
fyrirtækin spá um 12% verðbólgu, en hún
gæti allt eins farið upp í 30%
K-in tvö, þ.e. kjarasamningamir sem nú era hafnir og kosningarnar
til Alþingis í vor, eru þeir tveir þættir sem gera mönnum erfiðast
fyrir að spá um framvinduna í efnhagslífi íslendinga á árinu 1987.
011 ytri skilyrði gefa hins vegar eindregið til kynna að það ár geti
orðið tímabil aukinnar hagsældar og áframhaldandi góðæris, en
kjarasamningarair munu hafa úrslitaáhrif á það hvort unnt reynist
að tryggja þann árangur sem náðst hefur í efnahagsstjórauninni á
þessu ári. Þetta má segja að hafi verið niðurstaða spástefnu Stjóraun-
arfélags íslands sem haldin var í gær.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- úrslitaáhrif á framvindu efnahags-
herra, lýsti á spástefnunni mark-
miðum ' ríkisstjómarinnar í
efnahagsmálum fýrir næsta ár og
að þar stæðu menn frammi fyrir
því að tryggja til frambúðar þann
árangur sem náðst hefði á yfir-
standandi ári í því að stuðla að
stöðugu verðlagi með heildarað-
gerðum. Þorsteinn sagði að þar
myndi skipta sköpum hvemig til
tækist með þá kjarasamninga sem
nú stæðu fyrir djmum. Gert væri
ráð fyrir að ef allt gengi upp eins
og að væri stefnt þá gæti verð-
bólgan verið komin niður undir 5%
á næsta ári. Niðurstaða kjarasamn-
inganna myndi hins vegar hafa
málanna á næsta ári.
Óvissan í kjaramálunum virðist
mjög hafa mótað spár níu íslenskra
fyrirtækja sem þátt tóku í að spá
um þróun ýmissa hagstærða á
næsta ári og vom áætlanir þeirra
um t.d. verðbólguþróunina talsvert
svartsýnni heldur en lýsir sér í
markmiðum ríkisstjómarinnar. Ef
tekið er meðaltal af spám fyrirtækj-
anna um þróun framfærsluvísi-
tölunnar á næsta ári þá spá
fyrirtækin því að hún hækki um
12,2%. Með sama hætti spáðu fyrir-
tækin að byggingarvísitalan
hækkaði um 13,6% ef tekið er
meðaltal allra spánna og að
lánskjaravísitalan hækkaði um
12,1%. í spá um þróun launa var
meðaltalsspá fyrirtækjanna að þau
myndu hækka um 14,73% á árinu
1987 en hæsta spá einstaks fyrir-
tækis hljóðaði upp á 24,7% hækkun
en hin lægsta upp á 8,2% hækkun
launa.
Ragnar Árnason, lektor, sýndi
hins vegar í erindi sínu með tveim-
ur dæmum hversu lítið má út af
bregða til að íslendingar fari aftur
að upplifa gamalkunnar verðbólgu-
tölur. í öðm dæminu, sem hann
kallaði Iágmarksspá, gerði Ragnar
ekki ráð fyrir neinum raunlauna-
hækkunum en reiknaði hins vegar
með 1,5% launaskriði og að raun-
gengi krónunnar hækkaði um 3%
frá því sem nú er. í síðara dæminu,
hámarksspánni, reiknaði Ragnar
hins vegar með 7,5% raunlauna-
hækkun á árinu 1987, neikvæðu
launaskriði um 1% og óbreyttu
raungengi.
Samkvæmt lágspánni yrði verð-
bólgan á árinu 1987 svipuð og hún
er nú eða um eða yfír 11% á 12
mánuðum miðað við breytingu visi-
tölu framfærslukostnaðar. Sam-
kvæmt háspánni myndi verðbólgan
hins vegar fara sívaxandi á árinu
1987 og komast í rúm 26% í árslok
miðað við 12 mánaða breytingu
verðlags. Verðbólguhraðinn yrði þá
kominn yfír 30%. Ragnar kvað hins
vegar lfklegast að verðbólgan yrði
einhversstaðar á milli þessara
tveggja dæma og ljóst væri að ekki
mætti mikið út af bregða í raun-
gengi eða kjarasamningum til að
verðbólgan verði í efri kantinum eða
jafnvel yfír háspánni.
Kalsaveðri
spáð um
helgina
ÚTLIT er fyrir snjókomu um
norðanvert landið í dag, en
léttara verður yfir veðri sunn-
anlands. Á morgun snýst
þetta við, þá verður úrkoma
á sunnanverðu landinu, en
norðanmenn fá hlé. Um helg-
ina verður kalt í veðri og
skiptast á norðan- og sunnan-
áttir.
Nefnd sem kannaði innlendan skipasmíðaiðnað:
Brýnt að stöðva streymi
verkefna út úr landinu
FISKVEIÐASJÓÐUR hefur á þessu ári veitt leyfi fyrir smíði 13
nýrra skipa, en af þeim verða aðeins tvö smíðuð hér á landi. Nær
allar viðgerðir og endurbætur á íslenskum fiskiskipum verða fram-
kvæmdar erlendis. Til þessara verkefna verður varið meira en einum
miUjarði króna. Þessar upplýsingar komu fram á fundi sem nefnd
aðila málmiðnaðarins og iðnaðarráðuneytisins hélt í gær. Þar voru
kynntar tillögur sem eiga að stemma stigu við streymi verkefna í
skipasmíði út úr landinu. „Við teljum okkur ekki vera að hrópa úlf-
ur, úlfur,“ sagði Jósef H. Þorgeirsson, forstjóri skipasmíðastöðvar
Þorgeirs og EUerts á Akranesi, „aUt útlit er að yfir þennan iðnað sé
að riða holskefla sem óvist er hvort hann geti þolað.“
1 nefndinni sitja fulltrúar Sam-
bands málm- og skipasmiðja,
Skipasmíðasambands íslands og
iðnaðarráðuneytisins. Að sögn
nefndarmanna hefur nýsmíði físki-
skipa nánast legið niðri undanfarin
þijú ár. í tillögum hennar kemur
fram að tilboð frá íslenskum skipa-
smíðastöðvum njóta ekki jafnréttis
gagnvart erlendum tilboðum og er
það talin undirrót ástandsins. „Við
viljum að sjónarmiða innlends
8kipasmíðaiðnaðar verði gætt við
opinberar lánveitingar, og að veittar
verði bankaábyrgðir vegna verk-
efna innanlands, en ekki eingöngu
þegar verkefni eru unnin erlendis
eins og nú tíðkast,“ sagði Skúli
Jónsson, Sambandi málm- og skipa-
smiðja og formaður nefndarinnar.
„Nefndin telur að innlendar skipa-
smíðastöðvar séu fyllilega sam-
keppnisfærar við þær erlendu bæði
hvað varðar verð og gæði. Útgerð-
armenn virðast hengja sig í það að
innlendar stöðvar standi ekki við
skilafrest verkefnanna, en eins og
nýleg dæmi sanna er þetta síst
meira vandamál hér á landi en er-
lendis." Sagði hann að í mörgum
tilvikum virtust íslensk fyrirtæki
algjörlega sniðgengin, og ekki gef-
inn kostur á því að gera tilboð í
verkefni innanlands.
Nefndin leggur til að ríkisstjómin
beiti sér fyrir því að veitt verði lán
fyrir 80% af kostnaði við verkefni
skipasmíðastöðvanna, til 7-8 ára,
og einn sjóður annist lánveitingam-
ar. Þetta yrði framkvæmt þannig
að fiskveiðasjóður skuldbreytti lán-
unum að hluta eða öllu leyti miðað
við þær reglur sem hann vinnur
eftir. í vissum tilvikum myndi ríkið
einnig veita sk. „samkeppnislán".
Nefndin vill að fyrirtæki í málm-
iðnaði taki upp meiri samvinnu um
tilboð. Einnig verði komið á vakta-
vinnu til þess að verktími styttist.
Eitt höfuðvandamál iðngreinarinn-
ar er að mati nefndarmanna skortur
á undirbúningi og skipulagi verk-
efna. Það sé löstur útgerðarmanna,
opinberra aðila og stjómenda stöðv-
anna að taka ákvarðanir með of
stuttum fyrirvara, og enginn hafi
rænu á að jaftia verkefíium niður.
LEIT að mönnunum tveimur,
sem saknað hefur veríð frá
þvi að Arnar ÍS 125 fannst
strandaður á sunnudag, hefur
enn engan árangur boríð.
Mennimir heita Jón Eðvalds-
son, skipstjóri og eigandi bátsins.
Jón er búsettur að Suðurgötu 28
í Sandgerði. Hann er 53 ára að
aldri, fæddur 20. janúar 1933. Jón
er kvæntur og á þrjú uppkomin
böm.
Félagi Jóns heitir Jóhannes
Pálsson og er búsettur að Suður-
götu 16 í Sandgerði. Jóhannes er
35 ára að aldri, fæddur 31. maí
1951. Hann er kvæntur og á þijú
böm.
Leit að mönnunum tveimur
stendur enn yfír. Leitarmenn hafa
gengið §ömr og á næstunni verð-
ur fengin neðansjávarmyndavél til
að kanna hafsvæðið úti fyrir
ströndinni þar sem báturinn fórst.
Jón Eðvaldsson Jóhannes Pálsson
Sjómannanna enn saknað