Morgunblaðið - 28.11.1986, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
UTVARP / SJONVARP
Feilnóta
Þátturinn: í takt við tímann var
að þessu sinni sendur út frá
útvarpshúsinu við Skúlagötu. Þessi
rótgróna miðstöð ljósvakamenning-
arinnar er kjörinn vettvangur frjórr-
ar umræðu og skemmtunar. En hvað
gerðist? Jú ekki vantaði svo sem að
kvikmyndagengið æddi um hin
þröngu húsakynni á Skúlagötunni
uns áhorfandann sundlaði og svo
dundi stöðugt í eyrum: Og hér sjáiði
hversu þröngt er um starfsemina.
Loks voru sjónvarpshorfendur sann-
færðir um þrengslin á Skúlagötunni
og þá upphófst stefnumót við starfs-
fólkið í útvarpssal. Fjórir þulir sátu
þar líkt og fyrir herdómstóli Jóns
Hákons er heimtaði brandara:
Manstu virkilega ekkert skemmtilegt
úr starfinu? Svo var brugðið upp
myndbroti af bömum nokkurra al-
þekktra grínista er áttu að lýsa
grínistanum á heimaslóð. Þá sullaði
Sigmar B. Hauksson í potti og gerði
heiðarlega tilraun til að þræða spag-
hetti oní Ólaf Haukssson og ekki
má gleyma Lottóinu og fatasmyglinu
er ég vík að á eftir. I fáum orðum
sagt tókst umsjónarmönnum þáttar-
ins í takt við tímann ekki að fanga
anda útvarpshússins við Skúlagötu.
Á þetta menningarhús skilið slík eft-
irmæli?
Ljósir punktar
En þótt ég hafí reiðst vegna með-
ferðar sjónvarpsmanna á menningar-
setrinu við Skúlagötu þá var
vissulega að finna ljósa punkta í
þættinum eða í versta falli íhugunar-
verð myndbrot. í fyrsta lagi birtist
hér alþjóð hin nýskipaða Léttsveit
Ríkisútvarpsins er lék af mikilli fimi.
Skilst mér að markmið hljómsveitar-
innar sé að kynna íslenska dægurtón-
list og sé jafnvel ætlunin að skeiða
á dansstaði borgarinnar. Er máski
léttsveitinni ætlað að verða einskonar
útibú frá Symfóníuhljómsveit íslands
en sú ágæta hljómsveit er rekin á
ábyrgð Ríkisútvarpsins eins og allir
vita? Annars hélt ég nú að nóg væri
af léttsveitum á poppmarkaðinum en
auðvitað er ósköp notalegt fyrir út-
valda popptónlistarmenn að komast
á ríkisjötuna.
Viðræður Ólafs Haukssonar við
fulltrúa kaupmanna voru líkt og
klipptar út úr Kastljósi en samt at-
hyglisverðar enda Ólafur glöggur
spyrill. Að sjálfsögðu var rætt um
fatasmyglið frá Glasgow en þar hef-
ir hinn langi armur laganna komið
vitinu fyrir íslenskar húsmæður er
vilja bjarga sér og sínum fyrir jólin.
Það er auðvitað alveg hárrétt hjá
fulltrúa kaupmanna að húsmæðum-
ar íslensku hafa ekki hundsvit á
fatnaði og því brjóta þær ekki bara
lög er þær flytja heim bleðlana held-
ur flytja þær inn drasl sem er vart
mönnum bjóðandi. Undirritaður hefir
nú ekki mikið vit á fötum en um
daginn álpaðist hann inní tískufata-
búð og mátaði þar jakkaföt. Fötin
voru ófóðruð og saumamir gægðust
víða fram en samt átti flíkin að kosta
um 9000 krónur. Ég er ekki viss um
að íslenskar húsmæður myndu kaupa
slfkar dulur í Glasgow en hér em
unglingamir nánast reknir inní
tískudmslubúðimar af auglýsinga-
iðnaðinum. En auðvitað er það
hárrétt hjá fulltrúa kaupmanna að
þar er misjafn sauður eins og annars-
staðar.
í beinu útsendingunni frá Skúla-
götunni notaði Jón Hákon tækifærið
og kynnti Lottóið. Svo einkennilega
vill til að skyld samtök, það er ISÍ
og Ungmennafélagshreyfingin, hirða
bróðurpartinn af ágóða Lottósins, er
greinilegt að menn á þeim bæjum
eiga hauka I homi I stjómmálaflokk-
unum. Hefði ekki verið eðlilegra að
dreifa ágóðanum til fleiri aðila svo
sem Byggingarfélags aldraðra,
Skáksambandsins, Blindravinafé-
lagsins, Landvemdar, Geðvemdar,
Samtaka gegn fíkniefnum, Ópem-
vina eða hvað þau heita öll þessi
félög er beijast fyrir bættu mannlífi?
Ólafur M.
Jóhannesson
Svipmynd frá marsvínaveiðum Færeyinga.
Stöð tvö:
Um víða veröld
■■■i í kvöld hefst á
OA30 Stöð tvö nýr
þáttur, sem bera
mun heitið Um víða veröld.
Þáttur þessi er frétta-
skýringaþáttur I umsjón
Þóris Guðmundssonar,
fréttamanns á Stöð tvö, og
stendur þátturinn I 30
mínútur.
Fyrsti þátturinn mun
Ijalla um hvalveiðar Fær-
eyinga og þann styrr sem
um þær hafa staðið, sér-
staklega með tilliti til
afskipta svokallaðra nátt-
úmvemdarsinna. Þáttur-
inn var gerður af
færeyskum sjónvarps-
mönnum og er marsvína-
veiðum Færeyinga gerð
góð skil I þættinum og af-
staða eyjarskeggja skýrð.
Fjallað er um mótmælin
gegn veiðunum og þau
áhrif sem þessi neikvæða
heimsathygli hefur haft á
Færeyinga og um komu
skipsins „Sea Shepherd" I
sumar, en hún olli mikilli
ólgu á þessum annars frið-
sælu eyjum.
Þátturinn Um víða ver-
öld verður framvegis á
dagskrá á föstudagskvöld-
um, þegar eftir fréttalest-
ur.
Tónlistarkrossgátan
■■■■ Á sunnudaginn
1 FCOO kemur verður á
ÍO Rás 2 þátturinn
Tónlistarkrossgátan og er
þetta sú 66. I röðinni.
Umsjónarmaður er eins
og vant er Jón Gröndal og
spyr hann hlustendur
nokkurra misþungra tón-
listarspuminga.
Lausnir skal senda til:
Tónlistarkrossgátunnar,
c/o Ríkisútvarpið, Rás 2,
Efstaleiti 1,
108 Reykjavík.
UTVARP
FOSTUDAGUR
28. nóvember
8.4B Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
— Páll Benediktsson, Þor-
grímur Gestsson og
Guðmundur Benediktsson.
Fréttir eru sagðar kl. 7.30
og 8.00 og veðurfregnir kl.
8.15. Tilkynningar eru lesn-
ar kl. 7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál. Erlingur
Sigurðarson flytur þáttinn.
(Frá Akureyri.)
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Oskasteinninn" eftir
Björn J. Blöndat. Klemenz
Jónsson les frásögn úr bók-
inni „Hamingjudagar".
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiö úrforustugreinum
dagblaðanna.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Sögusteinn. Umsjón:
Haraldur Ingi Haraldsson.
(Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón:
Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miödegissagan: „Ör-
lagasteinninn" eftir Sigbjörn
Hölmebakk. Sigurður Gunn-
arsson lýkur lestri þýðingar
sinnar (19).
14.30 Nýtt undir nálinni. Elín
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýjum hljómþlötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Lesið úr
forustugreinum landsmála-
blaða.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfiegnir.
16.20 Barnaútvarpið. Stjórn-
endur: Kristín Helgadóttir
og Vernharður Linnet.
17.00 Fréttir.
17.03 Síðdegistónleikar. a.
„Vert — vert", forleikur.
Fílharmoníusveit Berlínar
leikur; Herbert von Karajan
stjórnar.
b. Atriöi úr „Ævintýrum
Hoffmanns". Tony Poncet,
Diséle Viyarelli, Colette Lor-
and, René Bianco o.fl
syngja með kór og hljóm-
sveit undir stjórn Roberts
Wagner.
17.40 Torgið — Menningar-
mál. Umsjón: Óðinn Jóns-
son.
Tilkynningar.
18.00 Þingmál. Atli Rúnar
Halldórsson sér um þáttinn.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá morgni sem
Erlingur Siguröarson flytur.
(Frá Akureyri.)
19.35 Lestur úr nýjum barna-
og unglingabókum. Um-
sjón: Gunnvör Braga.
Kynnir: Ágústa Ólafsdóttir.
20.00 Lög unga fólksins. Val-
týr Björn Valtýsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Ljóðarabb. Sveinn Skorri
Höskuldsson flytur.
b. Á heljarþröm. Torfi Guð-
brandsson les frásöguþátt
eftir Gísla Jónatansson frá
Naustavík í Strandasýslu.
c. Lítið eitt um fornritin,
einkum Njáls sögu. Bene-
dikt Bendiktsson flytur.
21.30 Sigild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Visnakvöld
Guðrún Gunnarsdóttir sér
um þáttinn.
23.00 Frjálsar hendur. Þáttur
í umsjá llluga Jökulssonar.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturstund í dúr og
moll með Knúti R. Magnús-
syni.
1.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
SJÓNVARP
FOSTUDAGUR
28. nóvember
17.55 Fréttaágrip á táknmáli
18.00 Litlu Prúðuleikararnir
(Muppet Babies). 19. þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá 23.
nóvember.
18.55 Auglýsingar og dagskrá
19.00 Spítalalíf
, (M*A*S*H). Níundi þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur sem gerist á neyöar-
sjúkrastöð bandariska
hersdins í Kóreustríöinu.
Aðalhlutverk Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.30 Fréttir og veður
20.00 Sá gamli
(Der Alte). 24. þáttur.
Þýskur sakamálamynda-
flokkur. Aðalhlutverk Sieg-
fried Lowitz. Þýðandi
Þórhallur Eyþórsson.
21.10 Rokkarnir geta ekki
þagnað
Greifarnir.
21.35 Þingsjá
Umsjónarmaöur Ólafur Sig-
urðsson.
21.50 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.20 Á döfinni
22.35 Seinni fréttir
22.40 Á götunni
(Blue Knight)
Ban'darísk sjónvarpsmynd
frá 1973 sem hlaut Emmy-
verðlaun á sínum tima.
Höfundur sögunnar er Jos-
eph Wambaugh. Leikstjóri
Robert Butler. Aðalhlutverk:
William Holden og Lee
Remick. Söguhetjan er lög-
reglumaöur í Los Angeles.
Hann er oröinn gróinn í
starfi en framinn lætur á sér
standa. Hann hugleiöir því
aö hætta, ekki sist eftir að
hann kynnist fallegri konu
og vill festa ráö sitt. Þýö-
andi Reynir Haröarson.
00.20 Dagskrárlok.
STÖD7VÖ
FOSTUDAGUR
28. nóvember
17.30 Myndrokk
18.30 Teiknimynd
19.00 Einfarinn
(Traveling Man)
Lomax óttast að sonur hans
sé viöriöinn eiturlyfjaviö-
skipti. Rannsókn hans á
málum þekkts eiturlyfjasala
vekur með honum hræði-
legar grunsemdir.
20.00 Fréttir
20.30 Um víða veröld
Fréttaþáttur í umsjá Þóris
Guðmundssonar.
21.00 Spéspegill
(Spitting Image)
Breskur gamanmyndaþáttur.
21.30 Leiktímabiliö
($1.000.000 Infield)
Bandarísk sjónvarpsmynd
með Rob Reiner, Bob
Constanzo, Christopher
Guest og Bruno Kirby.
Myndin fjallar um eitt
leiktímabil hornaboltaleik-
manna, störf þeirra og
einkalíf.
23.00 Benny Hill
Breskur gamanþáttur.
23.25 Hernaðarleyndarmál
(Top Secret).
Bandarisk gamanmynd frá
1984 með Val Kilmer og
Lucy Gutteridge i aöalhlut-
verkum. Hér er gert
stólpagrím aö kvikmyndum
af öllum hugsanlegum gerö-
um: táningamyndum, njósna-
myndum, stríösmyndum og
ástarmyndum.
00.55 Hið yfirnáttúrulega
(The Keep)
Bandarísk kvikmynd frá
1983. Myndin gerist i sföari
heimsstyrjöldinni. Hún fjall-
ar um miðaldavirki í fjöllum
Transylvaníu. Innan veggja
virkisins eru ævaforn öfl
sem búa yfir ógnvekjandi
krafti. Þýskir hermenn, sem
þangaö eru sendir, hverfa
einn af öörum. Leikstjóri er
Michael Mann. Myndin er
ekki við hæfi barna.
02.26 Myndrokk
06.10 Dagskrárlok
FÖSTUDAGUR
28. nóvember
9.00 Morgunþáttur i umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Spjallað við
hlustendur á landsbyggð-
inni, vinsældalistagetraun
og fleira.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Gunnlaugs Helga-
sonar.
13.00 Bót í máli
Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynnir óska-
lög þeirra.
15.00 Fjör á föstudegi
með Bjarna Degi Jónssyni.
16.00 Endasprettur
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr ýmsum átt-
um og kannar hvað er á
seyöi um helgina.
18.00 Hlé
20.00 Tekið á rás
Ingólfur Hannesson og
Samúel Örn Erlingsson lýsa
leik íslendinga og Banda-
rikjamanna i kvennaflokki i
handknattleik sem fram fer
i Laugardalshöll og einnig
leik Keflvíkinga og Njarðvík-
inga í úrvalsdeild i körfu-
knattleik.
22.00 Kvöldvaktin
Andrea Jónsdóttir.
23.00 Á næturvakt
með Vigni Sveinssyni og
Þorgeiri Ástvaldssyni.
03.00 Dagskrárlok
Fréttir eru sagöar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavik og nágrenni
- FM 90,1
18.00-19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Föstudagsrabb. Inga Eydal
rabbar viö hlustendur og les
kveðjur frá þeim, leikur létta
tónlist og greinir frá helstu
viöburðum helgarinnar.
989
WfW4t!/
FÖSTUDAGUR
28. nóvember
06.00—07.00 Tónlist í morg-
unsárið.
Fréttir kl. 7.00.
07.00—09.00 Á fætur með
Sigurði G. Tómassyni. Létt
tónlist meö morgunkaffinu.
Siguröur Iftur yfir blöðin og
spjallar viö hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Lesnar
veröa afmæliskveöjur og
mataruppskriftir.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði meö Jóhönnu Haröar-
dóttur.
Jóhanna og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjast meö því
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla viö fólk.
Flóamarkaöurinn er á dag-
skrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—16.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Pétur spil-
ar síödegispoppiö og spjall
ar viö hlustendur og
tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson i Reykjavik
siödegis. Hallgrimur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar viö fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—22.00 Þorsteinn J. Vil
hjálmsson. Þorsteinn leikur
tónlist og kannar hvað næt-
urlífið hefur upp á aö bjóöa.
22.00—03.00 Jón Axel Ólafs
son. Næturútvarp Bylgjunn-
ar fyrri hluta nætur.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gisla
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.