Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 15

Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 15 náms í Háskóla íslands, t.d. í lækna- deild, vita að þeir stúdentar sem ekki mæta eða mæta illa ná aldrei prófí, þeir falla. Þannig er tíma og kröftum sóað. Hörður Rafnsson greinir frá því að nemendur þurfi stundum á leyfí að halda vegna veikinda eða per- sónulegra ástæðna. Það kemur engum á óvart. Nemendum ÍKÍ hef- ur aldrei verið neitað um leyfí til að leita sér lækninga. Að sjálfsögðu fá nemendur jafnan leyfí til persónu- legra þarfa og þátttöku í íþróttum, raski það ekki starfí skólans að öðru leyti. Þetta ætti HR að muna. Prófin Síðara dæmið, sem HR telur skól- anum vera til skammar, er, að aðeins í örfáum greinum hafí nemendur fengið að sjá prófúrlausnir sínar eft- ir að einkunn hafi verið gefín. Ég kannast ekki við að kennarar hafí neitað nemanda um að sjá prófúr- lausn sína. Aðdróttanir í garð prófdómara og dylgjur um óheiðarleika í einkunna- gjöf eru til að fylla mælinn. Slíkt er ekki svaravert. Staða skólans Um starf mitt sem skólastjóra íþróttakennaraskóla íslands fjallar greinin öðrum þræði. Hörður Rafns- son fínnur mér flest til foráttu. Um það ætla ég ekki að ræða hér. Þá skoðun má hann hafa. Það er ekki aðeins íþróttakenn- araskóli Islands sem býr við bágborið ástand og stöðnun á ýmsum sviðum. Það er fullmikil einföldun staðreynda að kenna skólastjórunum um það fjársvelti sem ríkisskólamir eiga við að búa. Við skólann hafa starfað og starfa enn margir úrvals kennarar sem numið hafa bæði austanhafs og vest- an, þeir hafa hugmyndir og nýjungar erlendis frá, sem reynt hefur verið að koma í framkvæmd hér. Með bættum aðbúnaði er bjart framund- an. Ég hygg, að mér, sem skólastjóra IKI, sé það betur ljóst en flestum öðrum hvað skólann vanhagar um og hver hin raunverulega staða hans er. Hörður Rafnsson gefur mér ráð í greinarlok. Þar sendir hann stjóm- völdum og menntamálaráðherra áskomn, og er það vel. Hinum unga greinarhöfundi óska ég þess, svona í lokin, að hann vandi betur til verka sinna eftirleiðis. Höfundur er skólastjóri íþrótta- kennaraskóla íslands. I skógi ævintýranna Bókmenntir Jenna Jensdóttir Skilaboðaskjóðan. Texti og myndir: Þorvaldur Þorsteins- son. Mál og menning 1986. Þetta er sagan af honum Putta litla, sem á heima í Ævintýra- skóginum, þar sem öll ævintýrin gerast. Samt er hann jafnfjarri þeim og bömin í mannheimum. Hann veit um nomir, vondar stjúpur og nátttröll — en það nægir honum ekki, hann vill sjálf- ur verða þátttakandi. Vill fá að berjast — vill plata nátttröllið út í birtu og sól svo það verði að steini. Það þýðir ekkert fyrir Möddu- mömmu að segja honum að þau geti lesið ævintýrin og þannig kynnst öllum þessum lýð. Nei, Putti tekur til sinna ráða. Þegar kvöldið kemur og svefninn sækir á aðra leggur Putti af stað inn í skóginn í leit að nátttröllinu. Ósköp er dimmt í skóginum, og skrýtin hljóð og undarleg augu sem stara. Putti verður þreyttur og sofnar. Ævintýrin sækja í drauma hans. Þegar Putti vaknar aftur stend- ur nátttröllið yfír honum, læsir krumlu sinni utan um hann og skálmar af stað með hann upp að Tröllafjalli. Heima uppgötvar Madda-mamma um morguninn að Putti er horfínn. Dvergamir Dreitill og Snigill og hvað þeir nú allir heita leggja af stað með mömmu í farar- broddi. Snigill hefur heyrt lausn- arorðin sem þarf til að komast inn í fjallið. En það þarf aldeilis marg- ar og háværar raddir til þess að öskra þau upp svo að gagni komi. Þótt öll skógarins dýr leggist á eitt hrekkur það ekki til. Nú kem- ur sér vel skilaboðaskjóðan, sem dvergurinn Skemill fann upp. Hún getur tekið á móti skilaboðum sem töluð eru niður í hana, síðan er bundið fyrir og ekki opnuð, fyrr en boðin eiga að komast til skila. Kunningjar lesenda úr öðmm Þorvaldur Þorsteinsson ævintýrum þau nomin, vonda stjúpan og úlfurinn sem eiga heima í Vondakastala em beðin fulltingis. Með klókindum fær Dreitill dvergur þau til þess að hrópa lausnarorðið niður í skilaboða- skjóðuna. Öll hersingin leggur síðan af stað aftur að Tröllafjalli með þennan raddstyrk í skjóð- unni. Og nú má lesa hvemig fer. Þetta er bráðskemmtilegt æv- intýri innfléttað í myndimar, sem koma litlu fólki til að hrylla sig og brosa í senn og fylgjast með af miklum áhuga. Margir unnend- ur slíkra ævintýra em á þeim aldri, að þeir em nýbyijaðir að lesa. Það hefði því verið nokkur tillitssemi við þá að hafa ekki svona löng orð í lesmálinu, eins og: dvergastuttbuxur, stutt- buxnabunki, stuttbuxnasending og dvergadónaskapur. Þetta fyrsta ævintýri höfundar, í máli og myndum, á samt gott erindi við unga lesendur. Hann má vel við una og einnig útgáfan. ATHYGLISVERÐ BÓK UM DULRÆN MÁLEFNI DRAUMAR OG ÆÐRI HANDLEIÐSLA Inguar Agnarsson skráir í þessa bók af hógvœrð og vandvirkni frásagnir Aðalheiðar Tómasdóttur, eiginkonu sinnar. Helgi Vigfússon skrifar formála. Aðalheiöur Tömasdótlir DRAUMAR OG ÆÐRi HANDLEIÐSLA Skrasott a( tngvari Agnarssyni Dyngja bókaútgáfa, Borgartúni 23 105 Reykjavík, ® 91-36638, 91-28177 og 91-30913. tagQpmiMjifcUt Gódan daginn! i Jólabrauð hnetur súkkat rúsínur sítrónubörkur kirsuber rauð og græn og ekta romm aðeins 400 ólamarsipanbrauð hnetur marsipan súkkulaði og ekta romm aðeins 300 ólasmókökur 5 tegundir 100 stk. aðeins 390 ____Nýia^Hgj^ KokúKúsió lOlira

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.