Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 23

Morgunblaðið - 28.11.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 23 Var gert að greiða umfram skatta: Skatt- og gjaldheimtustj óri telja Agúst ekki hafa verið hlunnfarinn Þijár sýningar eru eftir á leikritinu Upp með teppið, Sólmund- ur, sem Leikfélag Reykjavíkur sýnir i Iðnó. Myndin er tekin á æfíngu. TJaldið að falla hjá Sólmundi ílðnó SÝNINGUM á leikritinu Upp með teppið, Sólmundur fer nú að Ijúka. Þijár sýningar eru eftir á þessu afmælisverki Leikfélags Reykjavíkur. Leikritið er eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur, sem einnig leikstýrir. Verkið er samið og sett á svið í tilefni af 90 ára afmæli Leikfélags- ins og er sýnt í Iðnó. Gerla sér um ieikmyndina og tónlistarstjóri er Jóhann G. Jóhannsson. Síðustu sýningar verða í kvöld, föstudag- inn 5. desember og miðvikudaginn 10. desember. Malþing um John Locke GJALDHEIMTAN í Reykjavík lítur svo á að það fé sem Ágústi H. Bjarnasyni, menntaskóla- kennara, var gert að greiða umfram skatta eigi ekki að bera vexti. Ágúst ritaði grein í Morg- unblaðið á þriðjudag þar sem hann sagði frá samskiptum sínum við Skattstofu Reykjavík- ur og gjaldheimtuna. Blaðamað- ur leitaði skýringa á þessu máli hjá Guðmundi Vigni Jósefssyni, gjaldheimtustjóra, og sagði hann að stofnuninni hefðu ekki orðið á nein mistök í meðferð málsins. „Samkvæmt lögum er Gjald- heimtunni ekki heimilt að greiða vexti af því sem hún innheimtir af fólki umfram skatta, nema að upphæðin sé hærri en heildará- lagning viðkomandi. Þá reiknast hún sem innistæða, og ber vexti.“ Að sögn Ágústs var tekjuskatt- stofn hans á síðasta ári rúmar 600.000 krónur. Við framtal sitt fór hann að ráði starfsmanns skattstof- unnar og lét fylgja framtalinu athugasemd um að hann ætti úti- standandi laun að upphæð 200.000 krónur. í júní sendi skattstjóri hon- um bréf þess efnis að framtalinu væri hafnað, nema að gerð yrði grein fyrir ákveðnum atriðum innan tíu daga. Ágúst var fjarverandi þegar bréfið barst og las það ekki fyrr en hálfum mánuði síðar. Eftir- grennslan hans á skattstofunni bar engan árangur, og skömmu síðar var honum tilkynnt að allir gjald- stofnar hefðu verið áætlaðir að viðbættu 25% álagi. Tekjur Ágústs voru áætlaðar um 800.000 krónur, alagið nam 200.000 krónum, en vegna mistaka starfsmanns á skatt- stofunni voru þær tekjur sem hann taldi fram í upphafi lagðar við þessa upphæð. Þá var tekjuskattstofn hans orðinn tæp 1,7 milljón króna. Að sögn Ágústs gerði hann ítrek- aðar tilraunir til að ná tali af skattstjóra en tókst ekki. Bréfi sem Ágúst sendi skattstjóra var ekki svarað, en fulltrúi hans tjáði honum að málið yrði að hafa sinn gang. Reykjavík: Prófkjör hjá Framsókn- arflokknum PRÓFKJÖR Framsóknarflokks- ins í Reykjavík vegna Alþingis- kosninganna 1987 fer fram laugardaginn 29. og sunnudag- inn 30. nóvember. Kosið verður á Rauðarárstíg 18, milli kl. 11 og 21 á laugardag og milli kl. 10 og 16 á sunnudag. Rétt til þátttöku hafa allir þeir sem náð hafa 18 ára aldri á árinu 1987 og eru fullgildir félagar í Framsóknarfélagi Reykjavíkur. Einnig þeir sem hafa óskað eftir þátttöku, skriflega, á skrifstofu flokksins og staðfest að þeir séu ekki meðlimir í öðrum flokki enda uppfylli þeir einnig fyrrgreind ald- ursskilyrði. í framboði eru Haraldur Ólafsson, Finnur Ingólfsson, Guð- mundur G. Þórarinsson, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Sigríð- urHjartar, Þór Jakobsson, Finnbogi Marínósson, Valdimar Kr. Jónsson og Helgi S. Guðmundsson. Þijá undanfama mánuði hefur Ágústi verið gert að greiða 138.000 krónur í skatta um hver mánaða- mót, þótt laun hans séu rúmur fjórðungur af þeirri upphæð. Ríkið hefur heimild til að halda eftir allt að 75% af launum og var það gert. í októbermánuði voru skattar Ágústs loks reiknaðir til hlýtar og greiddi Gjaldheimtan honum aftur það sem ofreiknað var, en aftók að borga vexti af upphæðinni. Guðmundur Vignir sagði að Gjaldheimtan færi alfarið eftir þeim gögnum sem kæmu frá skattstofu um álagningu gjalda. „Ef menn lenda í því að skattar þeirra eru áætlaðir er ekki við Gjaldheimtuna að sakast, jm' kæra frestar ekki innheimtu. I þessu tilviki hefði við- komandi getað farið á skattstofuna og beðið um bráðabirgða afgreiðslu. Hefði Gjaldheimtunni borist til- kynning um að verið væri að endurreikna skattana, hefði verið innheimt samkvæmt þeirri bráða- birgðaáætlun skattstofunnar." Guðmundur Vignir sagði að í lög- um væru ákvæði um að ef innheimt væru gjöld umffam það sem álögð- um sköttum næmi skyldi endur- greiða þá upphæð sem ofgreidd var með sparisjóðsvöxtum. Svo hefði ekki verið í þessu tilfelli, þar sem Alþýðuflokkurinn: Prófkjör í Reykjavík og á Vestfjörðum PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins í Reykjavík og á Vestfjörðum vegna Alþingiskosninganna næsta vor, fer fram dagana 29. og 30. nóvember. í Reykjavík er kosið í Alþýðu- húsinu við Hverfísgötu 6 til 8. Kjörstaður opnar kl. 13 og stend- ur til kl. 18 báða daganna. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa þeir einir sem eru flokksbundnir í Alþýðuflokknum, hafa náð 18 ár aldri og eru búsettir í Reykjavík. í framboði eru: Jón Sigurðsson, Jóhanna Sigurðar- dóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Björgvin Guðmundsson, Lára V. Júlíusdóttir og Jón Bragi Bjama- son. Á Vestfjörðum er kosið milli kl. 14 og 19 laugardaginn 29. nóvember en milli kl. 13 og 15 sunnudaginn 30. nóvember. Kosið er á ísafírði í Skátaheimilinu, Bolungarvík í Verkalýðshúsinu, Suðureyri hjá Jóhanni Bjarnasyni Túngötu 6b, á Flateyri hjá Ægi E. Hafberg Goðatúni 6, á Þing- eyri hjá Kristjáni Þórarinssyni Brekkugötu 40, í Mjólkárvirkjun hjá Guðmundi Þ. Kristinssyni, á Bfldudal hjá Hrafnhildi Þ. Jóhann- esdóttur, á Patreksfírði hjá Ásthildi Ágústsdóttur Aðalstræti 49. Utankjörstðarkosning fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins í Reykjavík Hverfísgötu 6 til 8. Tveir frambjóðendur eru í próf- kjöri flokksins á Vestfjörðum þeir Sighvatur Björgvinsson og Karvel Pálmason Ágúst hefði ekki greitt Gjaldheim- tunni hærri upphæð en sem nemur heildarsköttum hans fyrir árið 1985. „Þegar lækkunin kom var mánaðargreiðslunum stillt upp, eins og þær hefðu orðið ef engin áætlun hefði átt sér stað, og viðkomandi endurgreitt í samræmi við það. Þesskonar endurgreiðsla er umfram skyldu. Engin heimild eru fyrir því að greiða vexti í þessu tilviki. Svona eru lögin og vilji menn breyta þeim er við aðra að tala.“ Gestur Steinþórsson, skattstjóri í Reykjavík, sagði að sér væri erfítt um vik að -ræða þetta mál. „Mér er ekki heimilt að ræða skattskil einstaklinga, því ég er bundin trún- aðareiði. Almennt séð er hægt að segja að ef um mistök er að ræða við álagningu skatta, þá reynir skattstofan að leiðrétta það eins fljótt og hægt er,“ sagði Gestur. „I sumar vorum við bundin af mjög ströngum tímamörkum við að skila útreikningi skatta til Skýrsluvéla ríkisins. Þegar álagningu var lokið fór ég í sumarfrí, eins og flest starfsfólk skattstofunnar. Við höf- um aðeins lágmarks mannskap, og í ljósi þess sýnist mér að afgreiðsla málsins hafí verið með eðlilegum hraða.“ Gestur vildi ekki svara spuming- um blaðamanns um einstök atriði sem koma fram í grein Ágústs, þar sem hann yrði þá að ijúfa trúnað. HIÐ ÍSLENSKA bókmenntafé- lag og Stofnun Jóns Þorláksson- ar mun halda málþing um John Locke á morgun 29. nóvember. Þingið verður í stofu 101 í Lög- bergi, húsi Lagadeildar Háskóla íslands kl. 14.30-17.15. Til þess er efnt í tilefni þess að út er komin hjá Hinu íslenska bók- menntafélagi „Ritgerð um ríkis- vald“ eftir Locke í þýðingu Atla Harðarsonar, en þetta rit er eitt af undirstöðuritum vestrænnar stjórnmálahugsunar og hefur haft ómæld áhrif á stjórnskipan lýðræðisþjóðanna. Á málþinginu verða fluttir tveir fyrirlestrar. Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor talar um „John Locke og mannréttindahugtakið“ og dr. Amór Hannibalsson dósent um „John Locke í sögulegu ljósi“. Fundarstjóri verður prófessor Sig- urður Líndal, forseti Hins íslenska bókmenntafélags. Á eftir hvorum fyrirlestri verða frjálsar umræður og kaffíhlé á milli þeirra. Málþingið er opið öllum. (Fréttatilkynning). EIN MEST SELDA HEIMIUS- 7ÖLVAIM Á MARKAÐIMUMI Það er engin tilviljun að AMSTRAD er ein vinsælasta tölvan í heiminum í dag. Síðastliðin tvö ár hafa yflr I milljón AMSTRAD tölvur verið seldar. Með hverjum degi sem líður fá tölvukaupendur meira og meira fyrir peningana sína. í þeirri þróun er AMSTRAD tvímælalaust í fremstu röð. AMSTRAD CPC 6128 og CPC 464 sameina frábæra hönnun, afl og hraða, einstaklega góöa liti í skjá, gott hljóð og geysispennandi notkunarmöguleika. - Tvær afburðatölvur sem færa þig nær framtíöinni. CPC 6128 • TÖLVA • DISKSTÖÐ • UTASKJÁR 128 K RAM örtölva Z80A 4MHz með innbyggöu Basic, hátalara og tengjum (yrir prentara. segulband og aukadiskstöð. 640x200 teiknipunktar á skjá. 27 litir. 20, 40 eða 80 stafir í línu, íslenskir stafir. CP/M PLUS stýrikerfi og DR.LOGO forritunarmál Verð aðeins 35.980/— kr. stgr. CPC 464 • TÖLVA • SEGULBAND • UTASKJÁR 64 K RAM örtölva Z80A MHz með innbyggöu Basic, hátalara og tengjum fyrir prentara og diskstöð. 640x200 teiknipunktar á skjá. 27 litir. 20. 40 eða 80 stafir í línu. íslenskir stafir. Verð aðeins 26.980/— kr. stgr. ÞUSUIMDIR FORRITA! Urval af forritum, bókum og tímaritum fyrir AMSTRAD. Aukahlutir: Diskdrif - stýripinnar - teiknipenni - stereohátalarar - mús o.fl. o.fl. ,.,25% utborgun eftirstöðvar allt^að 6 mán.i Bökabúð JDEILD v/Hlemm, símar 29311 & 621122. Umboðsmenn útl á landl: Akranes: Bókaskemman, Akureyrl: Bókabúöin Edda, Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga, DJúplvogur: Verslunin Djúpiö, Grindavlk: Bókabúö Grindavíkur. Hafnarfjörður: Kaupfélag Hafnfiröinga, Húsavík: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, ísafjöröur: Hljómborg, Keflavík: Bókabúö Keflavíkur, Vestmannaeyjar: Vídeóleiga G.S. öll verö rrwðuð við gengi I. okL 1986 og staðgreiösJu. TOLVULAND HF., SIMI 17S50 NÝTTSÍMANÚMER 69-11-00 Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.