Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.11.1986, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 25 Helmingur launa okkar farinn eða jafnvel meir - segir Marinó Jóhannsson í Tungnseli „VIÐ förum frekar illa út úr kvótanum, þurfum að minnka við okkur um 90 ærgiidi. Við vorum óheppnir, seldum líflömb til ná- granna á viðmiðunarárunum sem þeir fyrir sunnan vilja ekki viður- kenna sem framleiðslu," sagði Marinó Jóhannsson sem býr fé- lagsbúi með Kristbirni bróður sínum í Tunguseli í Sauðanes- hreppi. „Almennt séð erum við óánægðir með þessi viðmiðunarár, þau voru mjög óhagstæð fyrir okkur alla á þessu svæði. Haustið 1985 hafa lömb ekki verið rýrari í minni bú- skapartíð. 1984 var sett í meira lagi á af gimbrun þar sem fé hafði fækkað árið áður og því voru flest allír með lítið innlegg það haustið. , Ég býst við að það verði 100 dilkar sem ganga af á okkar búi næsta haust þegar við höfum fyllt fullvirð- isréttinn. Við viljum ekki viðurkenna þetta sem staðreynd, það er ekki hægt að láta smella í lás með þessum útreikningum, og treystum því að leiðrétting fáist. Því var það sam- þykkt á sameiginlegum fundi beggja búnaðarfélaganna í Þistil- firði að senda þijá menn suður á fund landbúnaðarráðherra til að fara fram á leiðréttingu. Við þurf- um að fá fleiri ár til viðmiðunar og ef það tekst fáum við verulega leið- réttingu og verðum þá ekki verr settir en bændur á öðrum svæðum landsins. Ef það hins vegar tekst ekki, sem ég trúi ekki að óreyndu, er alveg hugsanlegt að menn láti bera heldur seinna en vant er til að fá léttari lömb og spara fóður- bæti ef vorið verður vont. Ég er þó óánægður með slík úrræði, og vil að hægt sé að nýta sauðféð til hámarksafurða. Allt annað er neyð- arúrræði. Það er æði þungt hljóðið í mönnum og ef ekki fæst nein úrlausn er ekki ólíklegt að ein- hverjir hugsi sér að hætta. Ef þeir bændur sem þegar eru með of litla framleiðslu þurfa að minnka við sig komast þeir í vonlausa aðstöðu. Ef fækkað er hér á svæðinu, til dæmis í Sauðaneshreppi, verður ennþá verra að framkvæma fjall- skil en það er þó nú. Við höfum líka miklar áhyggjur af Skeggja- staðahreppi hér fyrir austan okkur þar sem fyrirsjáanleg er miklu meiri fækkun og hætt við að okkar fé fari mikið þangað. Þar bætist við okkum mikil vinna við fjallskil. Það er allt of stuttur aðdragandi að þessum stjómunaraðgerðum og forkastanlegt ef menn verða neydd- ir til að slátra fé sínu þegar kominn er hávetur og fá svo kannski lítið fyrir. Þessar stjómunaraðgerðir koma mönnum í opna skjöldu. Breytingum á kjötmati var skellt á menn með miklu tekjutapi, hækkun kindakjötsverðsins' var frestað og ofan á allt annað blasir nú við að við fáum talsverða verðskerðingu í haust. Mér sýnist að þama fari helmingurinn af launum okkar, ef ekki meir. Það vom mistök að taka ekki meira á vandanum þegar kvótinn var settur á í upphafí. Því var víst trúað að fóðurbætisskatturinn leysti allan vanda. En það var mik- ill misskilningur. Málið snýst um það hverjir eigi að fá að framleiða kjötið. Ég tel að þeir sem em með stór kúabú eigi fyrst að farga sínu fé. Menn era oft með 100—200 kindur með allstóram kúabúum. Svo fínnst okkur að sauðíjárræktin eigi að hafa forgang í stijálbýlinu þar sem góð afréttarlönd era,“ sagði Marinó. Morgunblaðifl/Bjami Sigtryggur Þorláksson og Þorlákur Sigtryggsson bændur á Sval- barði. Verra ástand en á kalárunum - segja Sigtryggur Þorláksson og Þorlákur Sigtryggsson á Svalbarði Morgunblaðið/Bjami Stefán Eggertsson og Hólmfríður Jóhannesdóttir í Laxárdal með þremur af börnum sinum, sem eru: Eggert, Hildur og Vilborg. þurfa að fækka í haust,“ sagði Stef- án. Hann sagði að það myndi hjálpa mikið ef héraðið í heild eða einstak- ir bændur fengju viðbót við fullvirð- isrétt sinn sem samsvaraði 1.000 ærgildum. Menn gætu vel við það unað, þó margir yrðu eftir sem áður að halda að sér höndum í bili. Aðspurður um hvaðan taka ætti þennan viðbótarrétt sagðist Stefán hafa ákveðnar hugmyndir um það: „Nýtt kjötmat var sett á í haust og var það stóráfail fyrir héraðið. Hjá mér fór til dæmis yfír 20% af kjötinu í O-flokkinn og hjá sumum yfír 25%. Þetta kjöt er selt á 11,5% lægra verði og er nauðsynlegt að koma því á réttu verði til neytenda þannig að salan aukist. Þama er ákveðið svigrúm og viljum við ekki að fítan sem er verðfelld sé talin með í fullvirðisréttinum,“ sagði Stefán Eggertsson. „VIÐ BÚUM á svæði sem er al- gerlega háð sauðfjárrækt og finnst okkur réttlátt að það hafi meiri rétt en önnur til að halda framleiðslunni. Bændur hér hafa ekki í nein önnur hús að venda, nema þá flytja burtu og það gera menn ekki fyrr en í fulla hnef- ana,“ sögðu feðgarnir Sigtrygg- ur Þorláksson og Þorlákur Sigtryggsson á Svalbaði i Sval- barðshreppi. Þeir feðgar sögðust þurfa að draga saman, þar sem líflambasala til nágranna sem var að byija bú- skap hefði ekki fengist reiknuð inn í kvótann. Þangað hefðu þeir selt 65 lömb og kvóti þeirra orðið um 50 ærgildum minni vegna þessa þar sem líflambasala innan héraðs teld- ist ekki framleiðsla við útreikning kvótans. Þeir sögðust þó ekki hafa farið svo illa út úr kvótanum vegna þess að framleiðslan hefði dregist saman á undanfömum áram og þeir því verið tiltölulega langt frá búmarki jarðarinnar. „Það fara ýmsir verr út úr þessu en við, ef ekki fæst leiðrétting. Ef för sendi- nefndarinnar til landbúnaðarráð- herra ber ekki árangur er ómögulegt að segja hvað gerist hér,“ sögðu þeir. „Þessi tvö viðmiðunarár, 1984 og 1985, var þetta svæði hér með 30 tonnum minni framleiðslu en í árum sem verður að telja meðaltals- ár. Árið 1984 var gott ár en framleiðslan lítil vegna þess að þá vora menn að setja á lömb fyrir tvö ár vegna harðindaársins á undan. 1985 var hins vegar lélegt ár. Þá rigndi allt sumarið og um mitt sum- ar kom vont stórhríðaráfelli og bára lömbin þess merki um haustið. Á öðram svæðum er það yfirleitt þannig að annað hvort þessara við- miðunarára hefur verið hámarks framleiðsluár. Við teljum að það sé sanngimiskrafa að þetta svæði fái leiðréttingu, þó ekki væri nema 30 tonn, til að komast á jafnréttis- grandvöll við önnur svæði lands- ins,“ sögðu Sigtryggur og Þorlákur. Þeir sögðu að á mörgum bæjum teldu menn sig verða að lóga 50—100 kindum til að halda sig innan fullvirðisréttarins og við það væri tekjuvonin farin því tilkostnað- urinn við búið væri að stærstum hluta sá sami. „Menn hafa áður lent í harðindum hér en lifað samt, eins og til dæmis kalárin 1968—70, en þetta er að sumu leiti verra ástand því menn héldu þó bústofni sínum á kaláranum. Ef einhveijir meðalbændur hætta hér nú er hætt við að skriðan velti áfram með ófyr- irséðum afleiðingum," sögðu feðgamir á Svalbarði. VIÐ FLYTJUM LÍNUNA Á SUÐURLANDSBRAUT 22 —Unon sími 36011
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.