Morgunblaðið - 28.11.1986, Síða 27

Morgunblaðið - 28.11.1986, Síða 27
Herma heimildir mínar að útbreidd sé sú skoðun meðal stuðningsmanna Guðmundar, að þegar á kjörstað verður komið á morgun og sunnudag, þá sé öruggasta leiðin til þess að tryggja Guðmundi efsta sætið, að setja Sigrfði Hjartar í annað sætið og Helga S. Guðmundsson í það þriðja. Er jafnvel talið að Guðmundur hafi myndað einskonar kosninga- bandalag við þessa tvo frambjóðend- ur, en það hef ég ekki fengið staðfest. Eitt sem styður þá skoðun að Guð- mundur muni hafa það af, að ná efsta sætinu er sú staðreynd, að stuðnings- menn Haraldar hallast að því að Guðmundur sé kominn með það gott forskot í baráttunni, að ekkert fái ógnað honum nú, síðasta daginn fyr- ir prófkjör. Eru þeir næsta vissir um að Guðmundur hreppi efsta sætið, en veðja jafnframt á Harald i annað sætið. Pramsóknarmenn eru uggandi vegna þessa prófkjörs og telja að það geti skipt sköpum fyrir framtíð flokksins í Reykjavík, hver komi til með að skipa efsta sætið. Hefur því heyrst fleygt, að ef Guðmundur fari með sigur af hólmi, þá sé ákveðinn hópur framsóknarmanna, sem hætti að styðja Framsóknarflokkinn. Þá eru aðrir sem segja að ef Finnur fari með sigur af hólmi, þá muni hvorki Guð- mundur né Haraldur taka sæti á listanum, en þetta eins og svo margt annað hefur ekki fengist staðfest. Þó hef ég það staðfest, að Finnur, sem stefnir á fyrsta sætið, mun taka það sæti á listanum, sem hann hlýtur í prófkjörinu. Rey kj aví kurkratar í vandræðum Kratar í Reykjavík eiga úr talsvert vöndu að ráða, þrátt fyrir þá stað- reynd að nú liggur ljóst fyrir hverjir munu skipa þijú efstu sæti listans. Það er aðeins einn um framboðið í hvert þriggja efstu sætanna, þannig að sjálfkjörið er í þau. Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar verður í efsta sæti listans, Jóhanna Sigurðar- dóttir í öðru sætinu og Jón Baldvin Hannibalsson í því þriðja. Samt sem áður er bullandi ágreiningur í flokkn- um um listann. Margir alþýðuflokks- menn teija að það hafl verið í hæsta máta ólýðræðislegt að ganga frá því fyrir prófkjör, hvemig efstu sæti list- ans verða skipuð og er Jóni Baldvin einkum eignaður „heiðurinn" af þess- um nýstárlegu vinnubrögðum. Auk þess er harður slagur þriggja manna um fjórða sætið á listanum. Þau Björgvin Guðmundsson, sem tilheyrir roskna krataliðinu í Reykjavík, Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur Al- þýðusambands Islands, sem var áður Kvennalistakona og er óskrifað blað sem krati og Jón Bragi Bjamason, prófessor og framboðskandidat BJ- , liðsins í Alþýðuflokknum beijast um ! flórða sæti listans, af fullri hörku. , Að visu mun Jón Bragi ekki hafa s beitt sér mikið framan af, en hann * hefur mjög sótt á undanfama viku. ‘ Björgvin og Lára hafa lagt mikla j vinnu í undirbúning og smölun. í gær kl. 19 rann út frestur til þess að skrá sig í Alþýðuflokkinn og var samkvæmt upplýsingum flokks- skrifstofunnar nokkuð jafnt streymi nýrra inntökubeiðna þessa síðustu daga, einkum í gær. Bámst um 300 nýjar inntökubeiðnir alls, þannig að reiknað er með að á milli 1.800 og 1.900 manns hafl rétt til þess að taka þátt í prófkjörinu. Flokksforystan á í miklum erfíð- leikum vegna fjórða sætisins, og I getur ekki beitt sér nema á bak við tjöldin. Björgvin sækir fast að fá þetta sæti, og vísa hann og hans stuðningsmenn til þess að hann sé eini fulltrúi gömlu kratanna í Reykjavík, sem stefni að sæti ofar- Iega á listanum. Birgir Dýrfjörð, fyrrverandi þinglóðs þingflokks Al- þýðuflokksins er atkvæðasmali Björgvins og stýrir baráttu hans. Jón Baldvin, og raunar öll flokksforystan í Reykjavík mun vera mjög andvíg framboði Björgvins. Enn er óvíst hversu mikið fylgi Lára hefur, en það er talinn ótviræð- ur vilji Jóns Baldvins að hún hljóti 4. sætið, þó að hann neiti að gefa upp opinberlega hvem hann vill í 4. sætið. Segja þeir sem til þekkja, að Jón Baldvin telji mikinn feng í því að fá Láru í sæti, sem gæti mögulega orðið þingsæti. Þar með telji hann J sig vera kominn með gott samband MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986 Wj Haraldur Ólafsson alþingis- maður er nú þegar talinn hafa tapað slagnum við þá Guðmund og Finn um efsta sæti lista framsóknarmanna í Reykjavík. inn i höfuðstöðvar Alþýðusambands- ins, en Lára er náinn samstarfsmaður Ásmundar Stefánssonar. Þá mun flokksforystan einnig gera að því skóna að Lára muni höfða til kjós- enda úr röðum verkalýðsins, þar sem hún er starfsmaður ASÍ. Aðrir telja sllkar hugrenningar heyra draum- ómm til og segja það mikið „bjartsýn- ishjal að halda að kontóristi hjá ASÍ geti laðað að atkvæði verkamanna". Það er Ámundi Ámundason sem stýrir atkvæðasmölun og baráttu Láru, en hann hefur einmitt stýrt samskonar baráttu fyrir Jón Baldvin Hannibalsson, formann Alþýðu- flokksins. Þetta er talin enn frekari sönnun á því að Jón Baldvin styðji Lám. Jón Baldvin bað Jón Braga að draga fram- boð sitt til baka Jón Bragi hefur tiyggt sér stuðn- ing þeirra sem em félagar í Félagi fijálsljmdra, en þeir munu vera ná- lægt 200 talsins. Telja stuðnings- menn hans, að hann eigi að vera nokkuð ömggur um að hreppa 4. sætið, þar sem hann gæti átt tals- Flestir spá þvi að Guðmundur G. Þórarinsson fyrrverandi al- þingismaður muni verða i efsta sæti í prófkjöri framsóknar- manna i Reykjavík, og sigra Finn naumlega. vert fylgi þeirra sem rétt höfðu til þátttöku í próflq'örinu áður en Félag frjálslyndra tiyggði sfnum mönnum atkvseðisrétt. Benda þeir á, að í próf- kjömm Alþýðuflokksins í Reykjavík að undanfömu hafi mest teldð þátt um 2.200 manns og þá hafl verið um opin prófkjör að ræða. Nú sé hins vegar um lokað prófkjör að ræða, þar sem einungis flokksbundnir alþýðu- flokksmenn hafl þátttökurétt. Þeir hafi þar til fyrir nokkmm dögum ekki verið nema eitthvað á fjórtánda hundraðið. Næsta vfst sé að ekki nema um 60% þeirra, eða 700 til 800 muni nýta sér réttinn til þátttöku, því stór hluti þeirra sem em flokks- bundnir sé óvirkur og muni ekki ómaka sig á kjörstað. Það sé því ofur- eðlilegt að álykta sem svo, að Jón Bragi eigi víst 4. sætið. Jón Baldvin kom að máli við Jón Braga í sfðustu viku og fór þess á leit við hann að hann drægi framboð sitt til baka, hveiju Jón Bragi synj- aði. Samkvæmt heimildum mínum, þá vildi Jón Baldvin með þessari beiðni sinni tryggja það að Lára fengi 4. sætið en ekki Björgvin Guðmunds- son. Mun Jón Baldvin óttast að svo geti farið, ef Lára og Jón Bragi stefna Finnur Ingólfsson og hans menn hafa þó engan veginn lagt upp laupana og segjast með réttum vínnubrögðum yfir helgina eiga að geta náð fyrsta sætinu. bæði á 4. sætið, að atkvæðin geti skipst þannig, að Björgvin verði hlut- skarpastur. Jón Baldvin, mun síður en svo, eftir því sem ég kemst næst, vera andvígur Jóni Braga og því að hann nái pólitískum frama, en hann hafí vísað til þess er hann gekk á fund Jóns Braga og fór þessa á leit við hann, að Jón Bragi hafi í upp- hafi ætlað að stefna á 5. sæti listans, en ekki það 4. Stuðningsmenn Jóns Braga hafa tekið tilraunum Jóns Baldvins til þess að koma Jóni Braga út úr baráttunni óstinnt uppi, og segja þetta enn eina sönnun þess að hann kæri sig ekkert um Bandalag jafnaðarmanna sem slíkt. Það er að segja, hann vilji ekki nýta menn úr þeirra röðum eða hleypa þeim til valda - hann kæri sig einungis um atkvæði Bandalags jafn- aðarmanna. Jón Baldvin og hans stuðningsmenn hafa þvertekið fyrir sannleiksgildi þessara orða og haldið því fram að staða Jóns Baldvins inn- an þingflokks Alþýðuflokksins hafi styrkst mjög við samruna BJ við Al- þýðuflokkinn. Einn viðmælandi minn sagði að málefnaleg afstaða Jóns Baldvins, Stefáns Benediktssonar og Guðmundar Einarssonar væri mjög svipuð f mörgum tilvikum, þannig að þeir styddu hann vel í þingflokknum. Hörkuslagnr Karvels og Sighvatar Þá er prófkjörsbarátta krata á Vestfjörðum ekki síður hörð, en hér í Reykjavík. Reyndar mun slík harka vera í leiknum þar fyrir vestan, að menn óttist harða eftirmála. Til dæm- is berast fregnir af nafnlausum hótunarbréfum sem stuðningsmenn Karvels Pálmasonar hafi fengið í pósti frá Reykjavík. Eins og kunnugt er, nýtur Sighvatur Björgvinsson mikils fylgis krata á ísafirði, en Kar- vel sækir sitt fylgi til Bolungarvíkur og víðar á Vestfirði. í sfðasta próf- kjöri sigraði Karvel Sighvat með aðeins 24 atkvæðum og heimildir mfnar fyrir vestan herma að þeir feðgar Björgvin Sighvatsson og Sig- hvatur séu staðráðnir í að slíkt endurtaki sig ekki. Meðal þeirra rök- semda sem Sighvatur og Björgvin hafa beitt í próflg'örsslagnum, er sú að ekki eigi að kjósa Karvel, af því hann er Bolvíkingur. Vestfirðingar geti innan skamms staðið fi-ammi fyrir því, ef Karvel veiður kosinn, að allir þingmenn Vestfyarða séu Bolvíkingar, og slíkt kunni ekki góðri lukku að stýra fyrir kjördæmið. Benda þeir á að efsti maður á lista Alþýðubandalagsins, Kristinn Guð- mundsson sé Bolvfkingur og að 3. og 4. maður á lista Sjálfstæðisflokks- ins séu einnig Bolvíkingar. Aftur á móti séu þeir tveir sem í efstu sætum Sjálfsætðisflokksins sitja, þeir Matt- hías Bjamason og Þorvaldur Garðar Kristjánsson orðnir vel við aldur, og muni ugglaust hætta þingmennsku að liðnu næsta kjörtfmabili, ef ekki fyrr. Því blasi við að efstu menn list- ans, eftir næsta kjörtímabil, verði einnig Bolvíkingar. Hef ég heimildir fyrir því að þessi röksemdafærsla feðganna hafí mælst vel fyrir, þar vestra. Búist er við mikilli þátttöku í próf- kjörinu fyrir vestan. Jafnvel er talið að það verði einhversstaðar á bilinu 1.000 til 1.300 manns sem tekur þátt í prófkjörinu, sem veiður opið. Prófkjörið verður opið, þannig að all- ir geta tekið þátt f þvf, sem á annað borð hafa kosningairétt og eru ekki flokksbundnir f öðrum stjómmála- flokki. Þó mega þeir ekki hafa tekið þátt í öðrum prófkjörum, eða verið í nefndum eða ráðum annarra stjóm- málaflokka. Síðast tóku liðlega 900 manns þátt í prófkjörinu. Karvel hélt vestur í gær, til þess að hella sér út í slaginn, en Sig- hvatur hefur verið staðsettur vestra sfðan í sfðustu viku. Menn eru ekki sammála um hvor þeirra fer með sig- ur af hólmi, en fleiri munu þó telja að Karvel meiji að halda fyrsta sæt- inu. Hafa prófkjör gengið sértilhúðar? Að framansögðu er ljóst að flokkar þeir sem leggja út í prófkjör eða for- völ nú um helgina munu eftir að niðurstöður liggja fyrir, verða meira og minna f sárum, sem er það sama og segja má að hafi gerst hjá Sjálf- stæðisflokknum í Reykjavík, Reykja- nesi og Suðurlandi, þegar prófkjör voru afstaðin í þeim kjördæmum. Sömu sögu er að segja af Framsókn- arflokknum í Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra. Það er mér til efs að flokkar sem ganga f gegnum slíka eldskím nokkmm mánuðum fyrir kosningar, geti með sameinuðu og samstilltu átaki einbeitt sér að því næstu mánuði, sem ætti að vera þeirra aðalverkefni - það er að segja kosningabaráttunni. Því er ekki óeðli- legt að menn velti fyrir sér, hvort þetta form á vali frambjóðenda, próf- kjörsformið, hafi ekki gengið sér til húðar. Þjónar það virkilega þeim lýð- ræðislegu markmiðum, sem það á að gera, við val frambjóðenda? Velta menn því ekki fyrir sér, hvort það sé stjómmálaleg sannfæring og hug- sjónaleg barátta, sem ráði ferðinni, þegar skyndilega er hægt að tvöfalda þann fjölda sem rétt hefur til þátt- töku í prófkjöri, eins og gerst hefur hjá Framsóknarflokknum í Reykja- vík, nú fyrir þetta prófkjör, eða hagsmunapot einstaklinganna? Það geri ég, og kemst því að þeirri niður- stöðu að stjómmálaflokkamir þurfi að huga að nýjum leiðum, við val sitt á frambjóðendum. Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins hef- ur velgt flokksmönnum sfnum undir uggum að undanförnu, með þvi sem þeir kalla „ólýð- ræðisleg vinnubrögð og óhóf- lega miðstýringartilhneyg- ingu“. Lára V. Júliusdóttir, lögfræð- ingur ASÍ er óskakandidat Jóns Baldvins í 4. sæti listans, en þeir sem telja hana eiga htiu fylgi að fagna, segja það drau- móra eina, að halda að kontó- risti hjá ASÍ geti laðað að atkvði verkamanna. Jón Bragi Bjarnason, prófessor er framboðskandídat þeirra sem áður tilheyrðu Bandalagi jafnaðarmanna og eru stuðn- ingsmenn hans bjartsýnir á að hann nái 4. sætinu. Björgvin Guðmundsson fram- bjóðandi gömlu kratanna i Reykjavík er ekki talinn eiga mikla möguleika á fjórða sæt- inu, nema þannig fari að atkvæðin skiptist tiltölulega jafnt á milli þeirra Láru og Jóns Braga. Sighvatur Björgvinsson og fað- ir hans Björgvin Sighvatsson reka grimmilega áróðursher- ferð gegn Karvel fyrir vestan og er talið að þeim hafi orðið vel ágengt. Karvel Pálmason hefur þó ekki sagt sitt síðasta orð f slagnum og gera hann og fylgismenn hans sér góðar vonir um að hann haldi fyrsta sætinu. Þeir viðurkenna þó að allt bendi til þess að mjótt verði á mununum, eins og í síðasta prófkjöri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.