Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
Vopnahléssamkomulagið undir-
ritað á Filippseyjum:
„Lokatakmark
okkar er varan-
legur friður“
Manila. AP. Reuter.
SAMNINGAMENN stjómarinn-
ar á Filippseyjum og skæruliða
kommúnista tókust í hendur,
föðmuðust og brostu sínu
blíðasta í gær, er þeir undirrit-
uðu samkomulag um 60 daga
vopnahlé, sem gæti orðið fyrsta
skrefið í átt til allsheijarfriðar
í landinu eftir 17 ára blóðug
Suður-Líbanon:
Hart sótt
að palest-
ínskum
skæruliðum
Beirut, Tunis, AP, Reuter.
SEX ísraelskar orrustuþotur
gerðu í gær árás á stöðvar pal-
estínskra skæruliða við borgina
Sidon í Suður-Líbanon. Þá
skýrðu talsmenn Amal-hreyfing-
ar shíta svo frá, að tekist hefði
að ná mjög mikilvægu þorpi í
suðurhluta landsins eftir
grimmilega bardaga við Pa-
lestinumenn.
Talsmaður ísraelska hersins
sagði, að árásimar hefðu verið
gerðar á stöðvar palestínskra
skæruliða suður af Sidon og að flug-
vélamar hefðu allar komið heilar
aftur. Ekki er vitað um mannfall
en útvarpið í Beimt sagði, að tvö
flugskeyti hefðu lent skammt frá
einum flóttamannabúðunum.
Hermenn shíta kváðust í gær
hafa náð á sitt vald þorpinu Magh-
dousheh í Suður-Líbanon eftir mjög
harða bardaga við palestínska
skæmliða. Palestínumenn vilja þó
ekki fallast á þessar fréttir og
segja, að enn sé barist um bæinn.
Ráðherrar í líbönsku ríkisstjóminni
skomðu í gær á Palestínumenn og
shíta að gera vopnahlé og leyfa
kristnu fólki á bardagasvæðunum
að forða sér burt.
átök.
Um svipað leyti og vopnahléssam-
komulagið, sem gengur í gildi um
nónbil 10. desember nk., var undir-
ritað, hóf stjómarherinn mikla
sókn í Aurora-héraði norðaustur
af Manila, þar sem skæruliðar
felldu fimm stjómarhermenn og
tvo þjóðvarðliða í fyrradag.
Corazon Aquino forseti fagnaði
samkomulaginu og sagði: „Loka-
takmark okkar er varanlegur
friður, sem gerir þjóðinni kleift að
vinna í einingu að framfömm í
landinu. Verði báðir aðilar einlæg-
ir í friðarviðleitni sinni, náum við
þessu takmarki."
Samkomulagið var undirritað í
samkomusalnum, þar sem emb-
ættistaka Corazon Aquino fór
fram 25. febrúar sl., þegar Ferdin-
and Marcosi var velt úr sessi. Yfír
300 fréttamenn, embættismenn
stjómarinnar og stuðningsmenn
skæmliða vom viðstaddir athöfn-
ina.
Aðalsamningamaður stjómar-
innar, Ramon Mitra, stökk upp
úr sæti sínu, er samkomulagið
hafði verið undirritað, og rétti
oddvita samninganefndar skæm-
liða, Satur Ocampo, höndina. En
handtakið nægði ekki, og féllust
mennimir tveir í faðma.
Að sögn tveggja af samninga-
mönnum stjómarinnar munu
skæmliðar leggja áherslu á það í
framhaldsviðræðunum, sem hefj-
ast eiga innan 30 daga frá undir-
rituninni, að bandarískum
herstöðvum í landinu verði lokað.
„Við ætlum að kanna, hvort aðilar
geta samræmt sjónarmið sín að
því er þetta varðar," sagði Satur
Ocampo.
Ocampo neitaði að svara þeirri
spumingu, hvort þátttaka í ríkis-
stjóm væri ófrávíkjanlegt skilyrði
af hálfu skæmliða fyrir friðar-
samningum. Hann kvaðst aðeins
hafa áhuga á „víðtæku pólitísku
samkomulagi".
laugarásbiú
LAGAREFIR
Nýjasta mynd leikstjórans Ivan Reitman, sem leik-
stýrði Ghostbusters.
Aðalhlutverk: Robert Redford, Debra Winger og
Daryl Hannah.
Frumsýning laugardag 29. nóvember 1986.
Ramon Mitra, aðalsamningamaður Filippseyjastjómar (t.v.) og Satur
Ocampo, oddviti samninganefndar skæruliða, fagna undirritun
vopnahléssamkomulagsins í Manila i gær.
Danska krónan hærri
en sú norska
Osló, AP.
GENGI dönsku krónunnar var
hærra en þeirrar norsku á gjald-
eyrismarkaði í Osló í gær. Er það
í fyrsta sinn í 19 ár, sem danska
krónan er verðmeiri en sú
norska.
Hundrað danskar krónur vom
skráðar á 100,31 norskar í Osló í
gær, en síðast var danska krónan
hærri en sú norska árið 1967. Hinn
4. janúar það ár jafngiltu 100
danskar 103,90 norskum krónum.
Síðla ársins, eða 18. nóvember
1967, var gengi dönsku krónunnar
hins vegar fellt um 7,9% og mán-
uði seinna fengust aðeins 96,10
norskar krónur fyrir hvert hundrað
danskra.
Bandaríkin:
Stálu frá
hernum og
seldu
tillran
San Diego, AP, Reuter.
FIMM meðlimir bófaflokks, sem
stal varahlutum í herþotur frá
bandaríska hernum fyrir a.m.k.
10 milljónir dollara (rúml.400
millljónir isl.) og seldu til íran,
voru á mánudag dæmdir til eins
til sex ára fangelsisvistar.
Þetta mesta þjófnaðarmál er upp
hefur komið í tengslum við banda-
riska sjóherinn, var tekið fyrir í San
Diego í Bandaríkjunum og sagði
saksóknarinn, Philip Halpem, að
fólkið teldist ekki njósnarar í venju-
legum skilningi, heldur hefði það
látið peningagræðgi blinda sér sýn.
Varahlutimir vom fluttir út til Bret-
lands, merktir sem lyf og varahlutir
í bíla og þaðan til íran. Halpem
taldi líklegt að bófaflokkurinn hefði
starfað frá árinu 1981, en farið var
að rannsaka málið seint á árinu
1983.
Svíþjóð:
Sprenging
í skotfæra-
geymslu
Stokkhólmi, AP.
ÖFLUG sprenging varð í gær í
stórri sprengiefna- og skotfæra-
geymslu í grennd við Jarna um
50 km fyrir sunnan Stokkhólm.
í kjölfarið fylgdu svo nokkrar
minni sprengingar. Varð þetta
til þess að lögreglan girti af allt
svæðið umhverfis. í sprenging-
unni rifnuðu tré upp með rótum
og spennustöð, sem stendur í 800
metra fjarlægð, varð fyrir
skemmdum.
Vopnasalan til íran:
Jane’s Defence Weekly.
Margar þjóðir stunda
vopnasölu til Irans
London, AP.
UNDANFARIN tvö ár hafa íran-
ir fengið vopn frá Argentínu,
Austurriki, Belgíu, Brazilíu,
Kína, ísrael, Líbýu, Norður-
Kóreu og Sýrlandi. Breska
hermálatímaritið Jane’s Defence
Weekly skýrði frá þessu i gær
og sagði ennfremur, að fyrir
vopnin hefðu íranir greitt millj-
arða dollara og oft miklu meira
en markaðsverð.
í tímaritinu, sem þekkt er fyrir
áreiðanlegar fréttir, sagði, að
vopnasendingar Bandaríkjamanna
til írans væri aðeins „smámunir"
miðað við vopnasölur annarra ríkja.
íranir hefðu oft náð samningum um
vopnakaup í Vestur- og Austur-
Evrópu og Suður-Ameríku og
fengið þaðan flugskeyti, orrustuvél-
ar, skriðdreka, fallbyssuhlaup,
varahluti og annað. Einkum sækt-
ust þeir þó eftir vopnum, sem komin
væru frá Bandaríkjunum, enda
hefði heraflinn á dögum keisarans
verið byggður með vopnum þaðan.
Sagði í tímaritinu, að vopnasalar
og aðrir milligöngumenn hefðu oft
grætt offjár á viðskiptum við írani,
sem spyrðu ekki hvað vopnin kost-
uðu, heldur hvort þau væru fáanleg.
Ortega ætlar að
mótmæla Yopna-
sölunni til Irans
Managua, Nicaragua. AP.
DANIEL Ortega, forseti Nic-
aragua, segir, að hann hyggist
bera fram formleg mótmæli við
Bandaríkjastjórn vegna hinnar
leynilegu vopnasölu til írans og
greiðslnanna til Contraskærulið-
anna, sem hið opinbera málgagn
Sandinistastjórnarinnar kallar
„annað Watergate".
ISdwin Meese, dómsmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði á þriðjudag,
að rannsókn ráðuneytis hans hefði
leitt í ljós, að allt að 30 milljón
dollarar af andvirði vopnanna hefðu
gengið til skæruliða í Nicaragua.
Meese sagði enn fremur, að Ronald
Reagan forseta hefði verið ókunn-
ugt um þessa ráðstöfun.
Ortega sagði á þriðjudag, að
Reagan hefði annaðhvort vitað,
Daniel Ortega
hvað var á seyði, og þar með svik-
ist aftan að bandaríska þinginu og
brotið landslög, eða hann ætti ekk-
ert erindi á forsetastóli.